Dagblaðið - 30.10.1980, Page 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1980.
3
Hvað kostaði þetta
brenglaða Vandarhögg?
— Nógað gera við peningana í okkar hrjáða landi!
E. H. (2034—1432) skrifar:
Hve margar milljónir kostaði þetta
brenglaða leikrít, Vandarhögg, sem
sjónvarpið bauð upp á sunnudaginn
26. október?
Sá sem skrifar svona er sjúkur á
sálinni. Ég bjóst nú við ýmsu sem
ekki væri fyrir hvern mann að skilja
eða horfa á þegar Hrafn Gunnlaugs-
son var öðrum megin því hans
smekkurer þannig.
En það sem þetta leikrit hafði upp
á að bjóða var fyrir neðan alíar
hellur.
Þessi unga kona, sem var aðal-
persónan, segir í blaðaviðtaii að ekki
sé því að neita að myndin sé óhuggu-
leg og fólkið klikkað.
Ég held að það svari því.
Ég held að það séu ekki margir ef
nokkur sem leggur blessun sína yfir
slikt og þvílíkt.
Fólk hlakkar til að fá að heyra og
sjá það sem er á islenzku en það
bregzt oftast.
Þegar upp er staðið frá þessum
ósköpum verður manni að orði: Guð
hjálpi ísienzku þjóðinni!
Það er nóg komið af þessu!
Stoppið að kasta miiljónum á slíkt
endemis rugl! Það er nóg annað að
gera við peningana
stjórnlausa iandi!
okkar hrjáða,
Fleiri konur
ístjórnmálin!
— margir þingmenn hugsa lítið um
þjóðarhag
Jóhann Þórólfsson skrifar:
Eru stólarnir á Alþingi meira virði
en þjóðarhagur?
Það er ekki nema von að fólk sé
farið að gera grín að þeim sem sitja á
Alþingi og líkja þeim við leikara i
Þjóðleikhúsinu. Þeir sitja þama í
fleiri mánuði og hafast vægast sagt
litið að, a.m.k. í sambandi við efna-
hagsmáiin og i þvi að lækka
skattana.
Það er tími til kominn að við kjós-
endur förum að breyta þessu liði og
fá menn sem eru þjóðhollari en sumir
af þeim sem eru fyrir. Við þurfum
ekki annað en að líta á formannsdeil-
una í Alþýðuflokknum og klofning-
inn í Sjálfstæðisflokknum.
öðruvisi mér áður brá, þegar við
áttum menn eins og Bjarna
Benediktsson, Ólaf Thors, Hermann
Jónasson, Jónas frá Hriflu og marga
fleiri sem of langt mál yrði að telja
upp.
Því miður eru í þingmannahópnum
eiginhagsmunamenn sem þar af leið-
andi hugsa minna um þjóðarhag en
slíkum mönnum eigum við að gefa frí
og fá nýtt lið, helzt könur. Ég vona
að þið konur farið meira út í stjórn-
málin. Með næstu kosningar í huga
sendi ég öllum konum góða kveðju.
Því miður eigum við ekki marga
þjóðholla frammámenn þjóðarinnar
eins og forsætisráðherrann, Gunnar
Thoroddsen. Það sýndi sig þegar
hann myndaði ríkisstjórnina en þá
tók hann hugsjónina fram yfir póli-
tísku iínuna.
Það er algert einsdæmi að einum
manni skuli hafa tekizt að mynda
rikisstjórn eftir að formenn alira
flokkanna höfðu gefizt upp. Gunnar
á heiður skilinn fyrir þetta framtak
sitt.
„Ég bjóst nú við ýmsu sem ekki væri fyrír hvern mann að skilja eða horfa á þegar
Hrafn Gunnlaugsson væri öðrum megin þvf hans smekkur er þannig,” segir bréf-
rítarí.
Jóhann Þórólfsson telur þjóðina ekki
eiga marga þjóðholla frammómenn
eins og Gunnar Thoroddsen forsætls-
róðherra.
GÆDANNA
VEGNA
ÆSKÁN
SELFOSSI
Sími99-1830
VERSLUNIN
TINNI
Drafnarfelli 16-18
Sfmi 75713
Glitbrá
Laufiavcfii 70 — Sirtii 10660
Verslunin
Tröð
Neðstutröð 8
Sími 43180
Kópavogi.
mömmusál
Skólavörðustíg 3
Simi27340
Hvers vegna eru
svo fóar konur
í stjórnmólum?
Jón B. Gunnlaugsson: Vegna áhuga-
leysis þeirra sjálfra að standa saman i
þessu efni svo og vegna sjálfselsku karl-
peningsins sem helzt vill hafa þær
heima og geta gengið að þeim eftir eigin
geðþótta. Áfram stelpur! — eða
þannig.
Guðrún Þórhallsdóttlr húsmóðir: Það
er þessi gamla minnimáttarkennd sem
þær voru aldar upp í.
Guðrún Guðmundsdóttir: Þær treysta
sér bara ekki i þaö. Þær telja sig ekki
nægilega menntaðar til að vera í stjórn-
málum.
Árni Bergmann ritstjóri: Það er af því
að það er allt fullt af körlum fyrir og
það tekur sinn tima að koma þeim fyrir
kattarnef.
Albert Hansson verkamaður: Þær nota
ekki tækifærin sem þær hafa, það
vantar að þær dragi sig upp.
Vilborg Kristjónsdóttlr bankastarfs-
maður: Ætli þær séu ekki bara hrædd-
ar viö að það veröi ekki tekið mark á
þeim. Þær vantar kjarkinn en þær eru
lfka niðurbældar.