Dagblaðið - 30.10.1980, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30.OKTÓBER 1980.
4
jSex verzlunar- og þjónustumiðstöðvar á höfuðborgarsvæðinu:
Bæjarf ulltrúamir tóku kon
umar með til Bretlands
„Mestur árangur næst með því að
komast sem næst því bezta og nýjasta
í skipulagsefnum,” sagði Gestur
Ólafsson skipulagsfræðingur, for-
stöðumaður Skipulagsstofu höfuð-
þorgarsvæðisins, er fréttamaður
innti hann eftir ferðalagi bæjarfull-
trúa Garðabæjar, Seltjarnarness og
Kópavogskaupstaðar til Bretlands
nýlega.
Nær allir bæjarfulltrúar Garða-
bæjar fóru þessa ferð með maka
sína. Allgóð þátttaka var einnig úr
Seltjarnarnesskaupstað og sæmileg
úr Kópavogi.
„Það fer ekkej-t á milli mála að
skoðunarferðir erlendis verða nota-
drýgri þegar menn hafa maka sína
með og geta á ýmsan hátt sameinað
gagnlega ferð og nokkra ánægju.
Þetta er nú svona almennt talað mín
skoðun,” sagði Gestur. Hann bætti
við: „Þegar menn eiga þess kost að
fara með maka sínum, bæjarfélaginu
að kostnaðarlausu, þá hljóta menn
að ráða því sjálfir, hvort þeir gera
það eða ekki.”
,,Ég er þeirrar skoðunar, að fast
eigi að halda utan um svona hluti,
þar með taliö peningahliðina,” sagði
Gestur. ,,Ég tel þó, að hver ný og
nytsamleg hugmynd, sem fæst úr
svona skoðunarferð, sé mikils virði.
Ég hvet þvi frekar en let, þegar svona
ferðir eru farnar.”
„Ásgeir Ebenezersson, sonur
Ebenezers I Vörumarkaðnum, var
með í ferðinni vegna áhuga þeirra
feðga á verzlunaraðstöðu i nýjum
miðbæ, sem búið er að skipuleggja i
Garðabæ,” sagði Gestur Ólafsson.
Hann kvað sameiginleg ráð og skoð-
anir skipulagsmanna, fulltrúa
sveitarstjórna og verzlunar- og þjón-
usturekenda fara saman við hug-
myndir URBANECOM. Það er sam-
band skipulagsmanna og þeirra sem á
annan hátt standa að skipulagi, bæði
hönnun og fjármögnun.
Auk hins nýja miðbæjar í Garða-
bæ eru 5 meiri háttar verzlunarhverfi
með þjónustumiðstöðvum á mismun-
andi stigum á höfuðborgarsvæðinu.
Slík miðstöð er fyrirhuguð á Sel-
tjarnarnesi, í nýja miðbænum við
Kringlumýrarbraut í Reykjavík, í
Mjóddinni í Breiðholti, nýjum mið-
bæ i Kópavogi og miðstöð í Mosfells-
sveit, sem að nokkru hefur verið
byggð.
„Meðal þess sem menn verða að
átta sig vel á er það hver sennileg
mannfjölgun veröur á næstu áratug-
um á þessu þéttbýlissvæði. Margar
þeirra verzlana sem nú eru reknar
telja sig geta bætt við veltu sina.
Sumar telja það ekki aðeins mögulegt
heldur nauðsynlegt. í þessum efnum
þarf að vera gott skipulag þar sem
sjónarmið sem flestra komast að,
ekki sízt neytenda eða fulltrúa
þeirra,” sagði Gestur Ólafsson.
Hópurinn sem fór til Bretlands
skoðaði meðal annars The World
Trade Center í London. Það þýðir
bókstaflega ekkert minna en
verzlunarmiðstöð heimsins. Þá var
skoðuð uppbyggingin sem nú er gerð
í Covent-Garden-hverfinu gamla. Þá
má nefna Milton-Keynes, nýjasta
bæinn í Bretlandi, miðsvæðis milli
London og Birmingham.
Fyrirlestrar voru haldnir og gátu
menn komið á framfæri fyrirspurn-
um og nokkurri umræðu þar sem það
mátti helzt verða að notum.
- BS
Alþýöubandalagiö út í kuldann í kosningum til ASÍ-þings:
„Framsóknarbylting”
í Þór á Selfossi
,,Ég get fullyrt að staða Framsókn-
arflokksins á Alþýðusambandsþing-
inu verður sterkari nú en nokkru
sinni fyrr. Okkar fólk verður allt að
þvi eins fjölmennt og kratarnir á
þinginu," sagði viðmælandi Dag-
blaðsins úr röðum Framsóknar-
manna i gær.
Miklar hræringar eru i stjórnmála-
flokkunum vegna ASÍ-þingsins í
næsta mánuði. Er meðal annars tek-
izt á um kjör fulltrúa á þingið.
Á Selfossi bar þaö til tíðinda í
verkalýðsfélaginu Þór að kjörnir
voru 3 framsóknarmenn og I alþýðu-
flokksmaður sem fulltrúar félagsins á
þingið. Á siðasta ASÍ-þingi sátu 2 al-
þýöubandalagsmenn og 1 alþýðu-
flokksmaður fyrir Þór. Ennfremur
féll alþýðubandalagsmaðurinn
Hjörtur Hjartarson í formannskjöri
á aðalfundi í Þór nýlega fyrir fram-
sóknarmanninum Þórði Sigurössyni.
Fulltrúar Þórs á ASÍ-þingi að
þessu sinni eru Þórður hinn nýi for-
maður og flokksbræöur hans þeir
Guðni Ágústsson nýbakaður for-
maður Sambands ungra framsóknar-
manna og Geirmundur Finnsson.
Framsóknarmcnn studdu svo Hrein
Erlendsson formann Alþýðusam-
bands Suðurlands sem 4. fulltrúann á
ASÍ-þing, en Hreinn er úr Alþýðu-
flokki.
Línur í formannskjörinu í Þór, svo
og i fulltrúakjöri voru hreinar.
Þórður Sigurðsson hlaul 44 atkvæði i
formannskjöri á móti 11 atkvæðum
Hjartar.
Dagblaöið hefur fregnað að
ástæða hræringanna á Selfossi sé al-
menn óánægja með starf verkalýðs-
félagsins undanfarið. Jafnframt að
Framsókn hafi sótt mjög á á Selfossi,
til dæmis er staða framsóknarmanna
i bæjarstjórninni sterkari en annars
staðarálandinu.
- ARH
KosningaríVerði:
GEIRSMENN OFAN A
Geirsarmurinn í Sjálfstæðisflokkn-
um varð ofan á í kosningu til uppstill-
ingarnefndar i Verði í fyrrakvöld.
Gerö var tillaga um fjóra menn,
Óskar Friðriksson, Björgúlf Guð-
mundsson, Svein Björnsson og Ingi-
björgu Rafnar. Kjósa á þrjá og var
það gert á fundinum í fyrrakvöld.
Björgúlfur fékk 61 atkvæði, Óskar
53, Ingibjörg 45 og Sveinn 30. Auðir
og ógildir voru 3. Sveinn Björnsson
fellur þar með út og er það talið
nokkurt áfall fyrir Gunnarsarminn.
Sveinn hefur verið náinn samstarfs-
maður Alberts Guðmundssonar i
borgarstjórn. Ingibjörg er aftur á
móti Geirs megin. Hún er dóttir
Jónasar Rafnar og eiginkona Þor-
steins Pálssonar hjá VSÍ. Óskar er
fráfarandi formaður stjórnar, en
Björgúlfur hefur ekki tekið afstöðu
til armanna innan flokksins.
- JH
Útför Stefáns Jóhanns gerð f gær
Útför Stefáns Jóhanns Stefánssonar,
fyrrum forsætisráðherra og formanns
Alþýðuflokksins, var gerð á vegum
ríkisins í gær. Séra Ólafur Skúlason
dómprófastur jarðsöng. Gamlir sam-
herjar, stjórnmálaleiðtogar og embætt-
ismenn báru kistuna úr kirkju. Vinstra
megin má sjá Gunnar Thoroddsen for-
sætisráðherra, Eggert G. Þorsteinsson
fyrrv. ráðherra, Björn Sveinbjörnsson
forseta Hæstaréttar og Jón Helgason,
forseta sameinaðs alþingis. Hægra
megin eru Ólafur Jóhannesson utan-
ríkisráðherra, Benedikt Gröndal for-
maður Alþýðuflokksins, Baldvin Jóns-
son hrl. og Sighvatur Björgvinsson,
formaður þingflokks Alþýðuflokksins.
DB-mynd: S.
Jólarjúpumar
ofan í byggð
Það stefnir I metveiði á rjúpu í ár — og líkiega verður verðið aidrei hœrra. Talað
hefur verið um að hver rjúpa ájólaborðið muni kosta nœrfimm þúsund krónur. (Verst
er að ekki skuli minnzt á lágmarksfjölda jólarjúpna I nýja félagsmálapakkanum.) En
þaðþarf ekki aðfara langt til aðfinna rjúpur — þessihjón voru að spóka sig við hest-
húsin I Vlðidal um helgina og flugu slðan á brott óáreitt. DB-mynd: S.
Ný samstarfsnefnd um reykingavarnir blæs til
orrustu gegn tóbaksreyknum:
Fræðsluvika í nóvember
Samstarfsnefnd um reykingavarnir
gengst fyrir fræðslu- og upplýsinga-
viku um sfcaðsemi tóbaksreykinga
vikuna 9. —15. nóvember næstkom-
andi. Þá daga munu stærstu fjölmiðl-
ar landsins, sjónvarp, hljóðvarp og
dagblöð, birta margvíslegar upplýs-
ingar um reykingar. Til dæmis er
áformað að í hverjum fréttatíma
sjónvarpsins verði 4—6 mínútna
fréttamynd þar sem fjallað er um
efnin j tóbaksreyk, hjarta- og æða-
sjúkdóma, lungnasjúkdóma, krabba-
mein, áhrif óbeinna reykinga og
fleira.
Samstarfsnefnd um reykingavarnir
hefur verið óstarfhæf frá áramótum,
en þá sögðu tveir af þremur nefndar-
mönnum sig úr henni. Svavar Gests-
son heilbrjgðisráðherra skipaði nýja
menn í nefndina. Formaðurinn er
Ingimar Sigurðsson, deildarstjóri í
heilbrigðisráðuneytinu. Aðrir
nefndarmenn eru Björn Bjarman,
Auðólfur Gunnarsson læknir, Sigrún
Stefánsdóttir fréttamaður og Þor-
varður örnólfsson. Sá síðasttaldi var
einnig í gömlu nefndinni.
Illa er búið að samstarfsnefnd um
reykingavarnir fjárhagslega. Opinber
fjárveiting til starfsemi hennar er í
krónutölu sú sama og árið 1977. Er
þess vænzt að ríkisvaldið sjái af
hærri upphæðum til starfsins. Þess
má geta að nefndin hefur ráðið
Gunnar Stefánsson lögfræðing i hálft
starf. Verður hann jafnframt fram-
kvæmdastjóri nefndarinnar. - ARH