Dagblaðið - 30.10.1980, Side 7
7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1980.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
1949
Flytjum - Sfflkjum - Sendumst sjálfstætt
1980
SENDIBILASTOÐIN H.F.
BORGARTUNI21
Fá gíslarnir
aðkjósa
forseta?
Bandarísku gislarnir fímmtíu og tveir •
sem enn eru í haldi í Teheran í íran
hafa jafnvel möguleika á að kjósa í
bandarísku forsetakosningunum næst-
komandi þriðjudag, hinn 4. nóvember.
Var það íranskur fulltrúi í sendinefnd
lands síns hjá Sameinuðu þjóðunum í
New York sem upplýsti þetta í gær.
Sagðist hann hafa sent fyrirspurn til
stjórnar sinnar eftir að honum barst
um það beiðni frá opinberum starfs-
manni i Massachusetts.
Sagði iranski fulltrúinn að hann
hefði fengið svar þess efnis að sviss-
neska sendiráðið í Teheran mundi sjá
um þessi mál. Sviss gætir hagsmuna
Bandaríkjanna í fran eftir að ríkin
slitu stjórnmálasambandi. Utanríkis-
ráðuneyti Bandaríkjanna segist ekki
hafa haft nein afskipti af þessu máli.
Hinn opinberi starfsmaður í Massa-
chusetts segist mjög ánægður með gang
mála. Hann segist hins vegar ekki hafa
verið fullvissaður um að atkvæðaseðl-
arnir bærust nægilega fljótt frá
Teheran til að ná talningu atkvæða.
Pólland:
KANIA OG PINKOWSKI
KOMNIR TIL MOSKVU
—vináttuheimsókn þar sem ræða á um andstöðu hinna nýju verkalýðsfélaga
Kania, formaður pólska kommún-
istaflokksins, kemur i dag til Moskvu
en þar mun hann ræða við ráðamenn
um óhlýðni forustumanna hinna nýju
frjálsu verkalýðsfélaga í heimaríki
sínu. Með i förinni er einnig Pinkow-
ski forsætisráðherra Póllands. í til-
kynningu sem gefin var út í gær-
kvöldi bæði í Moskvu og Varsjá var
sagt að þarna væri um að ræða sam-
eiginlegan vinnufund. Hefði hann
verið ákveðinn með skömmum fyrir-
vara og ekki yrði mikið um formlegar
móttökuathafnir.
Sovézkir og austur-evrópskir
fréttamiðlar hafa gefið í skyn oft að
undanförnu að Kania, hinn nýi
►
Harkan 1 kröfugerð hinna frjálsu
verkalýðsfélaga sem Walesa er helzti
leiðtoginn fyrír vekur áhyggjur í
öðrum austantjaldsríkjum.
flokksformaður í Póllandi, mundi
brátt koma í opinbera heimsókn til
Moskvu til að fá einhvers konar
blessun valdhafa þar. Hins vegar
þykir skjótleiki í ákvörðun ferðarinn-
ar nú benda til þess að þar hafi ráðið
meiri nauðsyn vegna atburðanna sem
eru að gerast heldur en formlegheitin.
Heimsókn Kania og Pinkowskis er
heldur ekki talin muni standa nema í
24 klukkustundir eða þar um bil.
Pinkowski hefur ákveðið fund með
leiðtogum hinna frjálsu verkalýðs-
samtaka á morgun. Ef ekki næst eitt-
hvert samkomulag á honum hafa
leiðtogarnir hótað að boða til alls-
herjarverkfalls frá og með 12.
nóvember næstkomandi. Verkalýðs-
leiðtogarnir vilja með þessu mót-
mæla ákvæðum sem sett voru inn i
lög samtakanna samkvæmt skipun
dómstóls í Varsjá fyrir síðustu helgi.
Fjalla þessi ákvæði um pólitískt for-
ræði pólska kommúnistaflokksins.
Einnig er talið að fiýtt hafi fyrir
viðræðum Kania og Pinkowskis við
ráðamenn i Moskvu að ákvörðun
austur-þýzkra yfirvalda um skert
ferðafrelsi milli landanna var tilkynnt
ígær.
Kania flokltsformaður flýtti för sinni
til Moskvu til að skýra frá gangi
mála.
Ronald Reagan og eiginkona hans Nancy i garðinum við hús sitt i Virginfu á milli ferða i kosningabaráttunni. Sá lengst
til vinstri á myndinni er heimilishundurinn og gerir sitt bezta til að stökkva u:<p t spýtuna, sem Reagan heldur á.
Bandaríkin:
FLEIRITEUA REAGAN
HAFA VERIÐ BETRI
Ronald Reagan hafði betur í sjón-
varpseinvíginu við Jimmy Carter á
þriðjudagskvöldið ef ráða má af niður-
stöðum skoöanakönnunar sem fram-
kvæmd var af CBS sjónvarpsstöðinni
og birt í gær. Er þetta fyrsta könnunin
sem marktæk getur talizt sem birt er
um árangur forsetaframbjóðendanna.
Rætt var við 1019 líklega kjósendur
sem fylgdust með einvíginu. Af þeim
töldu 44% að Reagan, frambjóðandi
repúblikana, hefði staðið sig betur en
36% hölluðust að Carter Bandaríkja-
forseta, sem sækist eftir endurkjöri
undir merki Demókrataflokksins.
Fjórtán af hundraði þeirra sem spurðir
voru töldu að frammistaða frambjóð-
endanna tveggja hefði verið jöfn.
Talsmaður Carters vildi ekki gera
mikið úr fyrri skoðanakönnunum
vegna forsetakosninganna. í þeim
hefur Reagan haft yfirhöndina.
Skoðanakannanir gerðar síðustu
dagana sýna mjög lítinn mun á fram-
þjóðendunum tveim.
Menn Carters segja að það sem gildi
varðandi sjónvarpseinvígi séu þau áhrif
sem frambjóðendurnir hafi haft á
óákveðna kjósendur. Telja þeir sinn
mann standa þar betur að vígi.
Níutíu af hundraði þeirra sem
spurðir voru sögðu að þeir hefðu ekki
breytt um skoðun við að horfa á sjón-
varpseinvígið sem stóð í 90 mínútur.
Hópur þeirra sem óákveðinn hafði
verið fyrir virtist skiptast hnifjafnt
milli Reagans og Carters.
Leyfir prestum
aðkvænast
Jóhannes Páll annar páfi hefur nú ákveðið að kaþólskir prestar skuli fá leyfi til að
kvænast ef sérstakar aðstæður séu fyrir hendi. Ekki hefur þó verið skýrt frá þvl
hverjar þær sérstöku aðstæður þyrftu að vera. Kaþólskum prestum hefur ekki
veríð heimilað að ganga i hjónaband i fimmtán hundruð ár og hefur einlifi presta
verið eitt.beirra atriða er aðskilið hafa kaþólska og mótmælpndur. Á siöarí árum
hefur þróunin orðið sú að þúsundir presta hafa yfirgefið störf sin hjá kirkjunni
vegna þess að þeir hafa kosið að ganga i hjónaband. Mun þetta faríð að vatda
töluverðum erfiðleikum i kirkjustarfinu. Yfirlýsingar Jóhannesar annars páfa um
hjónabandið að undanförnu hafa vakið verulega athygli.
Erlendar
fréttir
REUTER