Dagblaðið - 30.10.1980, Side 15
14
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1980.
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1980
Stórieikur í handknattleiknum
— einu ósigruðu liðin, Víkingur og Þróttur, mætast ítoppuppgjöri 1. deildar
Það má búazt við sannkölluðum
þrumuleik I Höllinni I kvöld kl. 20 er
ÍS-ÍRíkvSM
í kvöld kl. 20 mætast í iþróttahúsi
kennaraháskólans lið ÍR og ÍS og má
búast við fjörugum lcik þvi ÍR-ingar
urðu að sjá á bak báðum. stigunum
gegn KR fyrr i vikunni í æsispennandi
leik.
Heimsmet
Sergei Minin setti i gær nýtt heims-
met er hann snaraði 133 kílóum i 60 kg.
flokki. Eldra heimsmetið var 132,5
kíló, átti það Viktor Mazin ólympiu-
meistari i flokknum.
Þróttur og Víkingur mætast þar í 1.
deildinni. Bæði liðin eru ósigruð í
íslandsmótinu i vetur, Vikingur með 7
stig úr 4 leikjum en Þróttur með 6 úr 3
leikjum. Lið Þróttar undir stjórn Ólafs
H. Jónssonar, er tvimælalaust það lið
sem langmest hefur komið á óvart íj
vetur og er sannkallað spútniklið. Það
hefur hins vegar viljað loða við|
spútnika að þeir hrapi fljótt niður
aftur en spurningin er hvort Þrótturum
tekst að halda sinu striki.
r' Lelkmenn úr báðum liðum tóku
þátt i Noröurlandamótinu f Noregi i
fyrrl viku og má þvi búast við að þreyta
Isitji i þeim. Á NM gerölst sáeinstæði at
jburður i sögu Þróttar að liðið átti þrjá
landsliðsmenn og þeir voru allir inn á í
sama leiknum. Bæði gegn Færeyjum og
svo Norðmönnum. Þessir þrir leik-
menn, Páll Ólafsson, Sigurður Sveins-
son og Ólafur H. Jónsson eru burðar-
ásarnir i liði Þróttar og það byggist að
[verulegu leyti á þeirra frammistöðu
hvort Uðið nær að leggja Víking í
kvöld.
Óvænt hjá Norðmönnum
Norðmenn gerðu sér lítið fyrir og
unnu Svisslendinga 2—1 i 4. riðli und-
ankeppni HM i knattspyrnu i Bern í
gærkvöld. í hálfleik leiddu Norðmenn
1—0 með marki Einar Hareide frá því á
5. mínútu. Svisslendingar sóttu nær lát-
laust allan siðari hálfleikinn og tókst aö
jafna á 58. min. með marki Barberis.
Svein Mathiesen, einn Noregsmeistara
Start, tryggði Norðmönnum hins vegar
sigur á 79. mínútu.
Þá gerði landslið Norðmanna, undir
21-árs aldri, sér Iftið fyrir og sigraði A-
Þjóðverja 4—0 f Rostock og er það
stærsti skellur Þjóðverjanna i áraraðir.
Það hefur þvi væntanlega verið glatt á
hjalla i Noregi i gær.
V crf' kr. 15110
Á
Langasandi
allan ársins
hring
Staldrað við á
Akranesi
Heimþráin
er meinholl
Rætt við
Hallmar Sigurðsson
Maestra Ratti
í miðnæturviðtali
Garðar Jóhannsson skorar hér gegh Ármenningunum i gærkvöld.
DB-mynd S.
KR setti ífluggír f
síðari hálfleik
—og kafsigldi Ármann 105-62 f úrvalsdeildinni
íkörfubolta
Miklir voru yfirburðir KR f síðari hálfleik
gegn Ármanni í úrvalsdeildinni i körfubolta í
gær. KR-ingar unnu hálfleikinn 63-26 og leikinn
105-62. í fyrri bálfleik var hins vegar fátt sem
benti til þess að munurinn yrði svona mikill í
leikslok. Liðin skiptust á um að hafa forystuna,
en þegar langt var liðið á hálfleikinn tóku KR-
ingar af skarið og leiddu í hlél 42-36. í sfðari
hálfleik keyrðu siðan KR-ingar upp hraðann og
jþað var meira en ungu piltarnir i Ármanni réðu
við.
KR-ingarnir voru slakir fyrstu mínúturnar og
gekk liðinu illa að eiga við Ármenningana.
Ármann leiddi 12-10 þegar fimm mínútur voru
iaf leiknum, en síðan tóku vesturbæingarnir kipp
og komust í 27-20. Þessi sjö stiga munur hélzt
fram á 18. mínútu, en þá tóku Ármenningar að
pressa KR-inga stíft upp allan völl. Hin stífa
pressa sló KR-inga alveg út af laginu, hvorki
gekk né rak hjá liðinu og þegar mínúta var eftir
ivar munurinn orðinn eitt stig, 37-36 fyrir KR. En
|KR-ingar skoruðu ftmm síðustu stigin, flest úr
hraðaupphlaupum.
í upphafi siðari hálfleiks var síðan KR-vélin
isett í fluggír, liðið skoraði fyrstu tíu stigin og enn
átti munurinn eftir að aukast. Eftir 12 mínútur
var staðan orðin 72-47 og á 19. mínútu rufu þeir
100 stiga múrinn og leiddu þá 101-59.
Lið KR var eins og svart og hvítt í þessum leik.
í fyrri hálfleik gekk lítið upp hjá liðinu, en í
þeim síðari heppnaðist aftur á móti flest sem
leikmenn liðsins reyndu. Þar bar þá hæst stórleik
Ágústar Líndal, sem gerði 18 stig í síðari hálf-
leik, mörg hver á frábæran hátt. Guðjón Þor-
steinsson var einnig drjúgur i síðari hálfleik, svo
og Bjarni Jóhannesson, sem átti góðan leik í
vörninni, hirti fjölda frákasta.
Lið Ármanns er ungt að árum og á framtíðina
fyrir sér. Liðið skortir illilega leikreynslu, eins og
vel kom fram í síðari hálfleiknum, en þegar leik-
menn þess hafa öðlazt hana, verður Ármann
ekki árennilegt. Beztu menn liðsins i þessum leik
voru þeir Davíð Amar, sem skoraði mörg stig og
dreifði spilinu vel, Valdimar Guðlaugsson og
Kristján Rafnsson, er var sterkur undir körf-
unni.
Stig KR: Keith Yow 26, Ágúst Líndal 22, Jón
Sigurðsson og Bjarni Jóhannesson 12 hvor,
Eirikur Jóhannesson 11, Guðjón Þorsteinsson
10, Garðar Jóhannsson 8 og Ásgeir Hallgríms-
son 4.
Stig Ármanns: Davíð Arnar 18, Valdimar
Guðlaugsson og Atli Arason 12 hvor, Kristján
Rafnsson 9, Hörður Árnason 7, Hannes B.
Hjálmarsson 3 og Guðmundur Sigurðsson 1.
-SA
15
Rafmögnuð spenna er FH
og Haukar skildu jöfn
gífurlegur darraðardans lokakaflann íæsispennandi 18—18 jafntefli liðanna
Haukar og FH skildu jöfn, 18—18 1
æsispennandi leik I iþróttahúsinu við
Strandgötu 1 gærkvöld þar sem gekk á
ýmsu. Leikurinn var e.t.v. ekki svo vel
leikinn — mikið frafár og læti en
spennan var fyrir hendi allan sfðari
hálfleikinn þegar aldrei skildu meira en
tvö mörk liðin að. Haukarnir héldu
forystunni nær allan slðarí hálfleikinn
og áttu gullna möguleika á að tryggja
sér sigurinn þegar Sigurður Sigurðsson
stakk sér inn úr horninu er 4 sek. voru
til leiksloka. Gunnlaugur Gunnlaugs-
son, fyrrum Haukamaður, sem nú
stendur I marki FH og varði I gær mjög
vel, varði skot hans laglega og þar með
fór vonin.
Leikurinn fór rólega af stað, fyrsta
markið kom ekki fyrr en eftir 4
mínútur og var þar Júlíus Pálsson að
verki. FH svaraði með þremur mörkum
og komst í 3—1 og síðar í 7—4 er 16
mín. voru af leiknum. Þá kom Viðar
Simonarson inn á hjá Haukunum og
það er skemmst frá að segja að leikur
liðsins gerbreyttist til batnaðar. Knött-
urinn gekk vel manna á milli og vallar-
breiddin vel nýtt. Enda fór svo að á
þeim 14 minútum sem eftir voru af
hálfleiknum skoruðu Haukar fimm
sinnum án svars frá FH og leiddu þar
með9—7 i hálfleik. FH-ingar misstu þá
Óttar Mathiesen og Sæmund
Stefánsson út af í 2 mín. hvorn en
Haukunum tókst ekki að nýta sér það
og skoruðu ekki á meðan FH-ingarnir
voru færri.
Síðari hálfleikurinn var 5 mín.
gamall er FH náði að jafna, 9—9, en
síðan komust Haukarnir í 13—11
skömmu fyrir miðjan siðari hálfleikinn
og síðan var allt í járnum út leik-
tímann. Viðar virtist vera orðinn
þreyttur og spil Haukanna lamaðist
nokkuð við það. Hjá FH var Geir hvað
eftir annað of bráður á sér og skaut í
lokuðum færum. Hann var ekki einn
um það því þessi kvilli virtist fyrir
hendi hjá báðum liðum. Haukar virt-
ust vera að ná tökum á leiknum er þeir
leiddu 15—14 og Ólafur Guðjónsson
varði víti frá Kristjáni Arasyni rétt á
eftir. Næstu þrjú mörk komu hins veg-
ar frá FH og staðan var orðin 17—15
þegar 6 og hálf mínúta var til leiks-
loka. Þá var Theodór Sigurðsson
rekinn af leikvelli í 2 mín. og Árni
Sverrisson svaraði fyrir Hauka úr
horninu. Síðan fékk FH ákaflega vafa-
samt víti er Kristján brenndi gróflega af
og Haukar brunuðu upp og jöfnuðu
með marki Sigurðar Sigurðssonar úr
horninu. Júlíus fékk síðan reisupass-
ann hjá Haukunum en þeir létu sig ekki
muna um að komast yfir með marki
Árna Sverrissonar þegar rétt tæpar
tvær mín. voru til leiksloka þó að þeir
væru manni færri. Geir jafnaði fyrir
FH 20 sek. síðar og þar við sat. Haukar
héldu knettinum út leiktímann án þess
að ná að skora og jafnteflið var því
staðreynd. Það voru sanngjörn úrslit
þessa leiks því liðin áttu hvorugt skilið
að vinna. Léku bæði ákaflega óagaðan
handknattleik en það kom ekki í veg
fyrir hin hefðbundnu átök er þessi lið
mætast.
Ákaflega erfitt er að gera upp á
milli leikmanna liðanna. Hjá Haukun-
um varði Gunnar Einarsson mjög vel í
fyrri hálfleiknum og Ólafur Guðjóns-
son stóð sig vel á meðan hann var inn á.
Flestir leikmanna gerðu góða hluti inn
á milli en jafnvægi vantaði illilega i leik
þeirra og vitleysurnar sem sáust af og
til voru hrikalegar. Hjá FH mæddi
mest á Kristjáni Arasyni því Gunnar
Einarsson lék aðeins með í upphafi
vegna meiðsla. FH-liðið er í ár mun
slakara en i fyrra og sömu sögu má|
reyndar segja um Haukana. Geir
heldur enn spilinu gangandi, en vantar
fvrri snerpu, þó sýndi hann lítið í gær
nema þegar Kristján lék hann laglega
upp í nokkrum tilvikum. Þorgils Óttar
Mathiesen er sterkur línumaður og á
framtíðina fyrir sér og sömu sögu má
reyndar segja um kollega hans á
línunni hjá Haukum, Lárus Karl Inga-
son, þótt hann næði sér ekki fyllilega á
Denis Tueart, gamla kempan hjá
Manchester City, sem freistaði
gæfunnar í Bandaríkjunum um stund
en snerí siðan aftur, reyndist efsta liði
2. deildar, Notts. County, óþægur Ijár 1
þúfu er Manchester City mætti
Nottinghambúunum á Maine Road í
Manchester í deildabikarnum í gær-
kvöld. Tueart skoraði 4 mörk City í 5—
1 sigri en fimmta markið skoraði David
Bennett. Greinilegt er að John Bond er
að bylta liði City og þessi sigur kemur á
bezta tíma fyrir liðið. Þá gerðu WBA
og Preston markalaust jafntefli á The
Hawthorns i sömu keppni.
Norwich og Crystal Palace skildu
jöfn, 1—1, í 1. deildinni á Carrow
Road. Gengi Norwich er nú afar slakt
strik í gær.
Mörk Hauka: Hörður Harðarson
7/5, Árni Sverrisson 4, Sigurður
Sigurðsson 2, Sigurgeir Marteinssson 2,
Viðar Símonarson, Árni Hermannsson
og Júlíus Pálsson 1 hver. Mörk FH:
Kristján Arason 9/6, Geir Hallsteins-
son 5, Sæmundur Stefánsson 2,
Valgerð Valgarðsson og Guðmundur
Magnússon 1 hvor.
Dómarar voru Árni Tómasson og
Jón Friðsteinsson. Þeir ráku 3 FH-inga
|út af og einn úr Haukum. FH fékk 8
víti en Haukar 5.
og kæmi ekki á óvart þótl liðið félli
niður f 2. deildina með slfku áfram-
haldi. í skozka deildabikarnum urðu
þau óvæntu úrslit að Aberdeen tapaði
0—1 heima fyrir Dundee og féll þar
með úr keppninni eftir markalaust
jafntefli i fyrrí leik liðanna. Þá komst
hitt Dundee-liðið, United, einnig á-
; fram með 5—3 samanlögðum sigri
gegn Clydebank.
Eftirtaldir leikir voru í lægri
deildunum:
3. deild
Chester-Huddersfield 0—2
Oxford-Rotherham 1—1
4. deild
Crewe-Southend 1—1
Lincoln-Tranmere 2—0
Wigan-York 1—0
-SSv.
Tueartfórákost-
um gegn County
llinn bráðefnilegi Lárus Karl Ingason stingur sér inn af linunni en hafði ekki heppnina meö sér í þetta sinn.
DB-mynd S.
...
Allt við það sama
íensku deildakeppninni
Tveggja daga ráðstefnu fulltrúa
ensku deildafélaganna 92 lauk I fyrra-
dag. Fjallað var þar um ýmis mál
deildakeppninnar — minnkandi að-
sókn, ólæti á knattspyrnuvöllum.
Einnig um sjónvarp frá knattspyrnu-
leikjum. Nokkuð almenn ánægja var
með samningana um sjónvarpsréttinn,
sem gildir til 1983. Fyrir hann fá deilda-
félögin gifurlegar upphæðir.
Tillaga kom fram á ráðstefnunni að
gefa þrjú stig fyrir sigur f leik — og
leyfa félögunum að ráða þvi hvort
leikið værí á laugardögum eða
sunnudögum. Þessi tillaga hlaut litlar
sem engar undirtektir. Næsta
ráðstefna deildafélaganna verður eftir
ár.
Knattspyrnuleikmenn
Við leitum að sóknarleikmanni í lið sem
leikur í annarri deild í Noregi. Við út-
vegum vinnu og íbúð.
Umsækjendur sendi upplýsingar um at-
vinnu og persónuhagi ásamt meðmælum
til Dagblaðsins merkt: Norskur bær.