Dagblaðið - 30.10.1980, Síða 18
18
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1980.
Tllkynriingar
Veðriðj
Á Suður- og Vesturiandi verður
suðvestan goia aða kaldi, skúrir (
fyrstu, en suðaustan hvassviðri með
kvöldinu og ( nótt. Á Norður- og
Austurlandi léttir tii siðdegis mað
suðvestan kalda og vaxandi suðaust-
anátt (kvöld. AKhvasst aða hvasst og
v(ða rigning þegar l(ða tekur áj
nóttina. Hlýtt vsrðuráfram.
Kiukkan sax var vestan 3, rigning
og 6 stig ( Reykjavlt, vestan 5, '
rigning og 6 stig á Gufuskálum, hæg-
viðri, rignlng og 8 stig á Gaitarvita,
heogviöri skýjað og 6 stig á Akureyri.j
sunnan 4, skýjað og 6 stig á Raufar-1
höfn, sunnan 8, skúrir og 7 stig á
Dalatanga, sunnan 5, rigning og 6 stig j
á Höfn, sunnan 7, rigning og 8 stig á i
Stórhöföa.
( Þórshöfn var láttskýjað og 1 stig,i
skýjað og 1 stig ( Kaupmannahöfn,
láttskýjað og -3 stig, (Osló, skýjað og i
1 stig I Stokkhólmi, láttskýjað og 2
stig (London, skýjað og 7 stig (Ham-j
borg, skýjað og 6 stig I Parfs, látt-
skýjað og 7 stig ( Madrid og látt-
skýjað og 7 stig (New York.
Húnvetningafélagið
í Reykjavík
Félagið heldur vetrarfagnað i Domus Medica föstu
daginn 31. október. Hefst hann með félagsvist kl. 21.
Hrókar leika fyrir dansi.
Kvenfélag Kópavogs
Afmælishóf kvenfélagsins verður haldið í Félágs-
heimilinu 30. október nk. kl. 20.30. Konur tilkynni
þátttöku laugardag og sunnudag í sima 41084 Stefania
eða i síma 40646 Anna.
Hjálpræðisherinn
Fimmtudag kl. 20.30 kvöldvaka. Major Edward
Hannevik talar. Kvikmyndin Transformed lives
verður sýnd. Unglingasönghópur syngur. Veitingar.
Föstudag kl. 20.30. Einkasamsæti fyrir hermenn og
heimilasambandssystur. Verið velkomin.
Björgvin Sigvaldason, sem lézt af slys-
förum 23. október sl., fæddist 13.
nóvember 1962 að Lynghaga í Hvol-
hreppi. Foreldrar hans voru Hulda
Björgvinsdóttir og Sigvaldi Hrafnberg,’
Öldugerði 19 Hvolsvelli. Björgvin var
starfsmaður við Hrauneyjafossvirkjun.
Hann verður jarðsunginn frá Stórólfs-
hvolskirkju laugardaginn 1. nóvember
nk. kl. 14.00.
Tómas Magnússon, Skarðshlíð, sem
lézt 23. september sl., fæddist 29. júli
1909. Foreldrar hans voru Elín Bárðar-
dóttir og Magnús Tómasson. Árið 1936
kaupir hann jörðina Hrútafell II og
hefur þar búskap. Þar býr hann til
ársins 1950 en þá kaupir hann Skarðs-
hlíð 1 þar sem hann bjó til æviloka
ásamt syni sínum. Árið 1936 kvæntist
Tómas Vilborgu Ólafsdóttur. Eign-
uðust þau 5 börn. Hún lézt árið 1974.
Einar Gunnlaugsson, Burstarfelli, sem
lézt 10. október sl., fæddist 3. janúar
1932. Foreldrar hans voru Björg Jóns-
dóttir og Gunnlaugur Jónsson frá
Hraunfelli. Hann kom að Burstarfelli
árið 1949 og ætlaði einungis að starfa
þar en þar ílentist hann. Árið 1955
Fjalakötturinn
Sýningar Fjalakattarins i kvöld (fimmtudag), laugar
dag og sunnudag munu fara fram í Tjarnarbiói vegna
lengdar myndarinnar.
Nú um helgina verður sýnd myndin Idjótinn, leik-
stýrð af japanska leikstjóranum Akira Kurosawa.
Mynd þessi er framleidd i Japan árið 1951 og er 165
minútur að lengd.
Idjótinn heitir á frummálinu Hakuchi og er byggö á
sögu rússneska rithöfundarins Dostojevsky. Hún er i
stuttu máli sorgarsaga af eyðileggingu sanns og ein
falds manns. öruggt má telja að aðdáendur Kurosawa
verði síður en svo fyrir vonbrigðum með þessa mynd
meistarans.
Félagsskírteini verða seld i Tjarnarbiói nú um helg
ina. Verð þeirra er 13.000 kr. og gilda þau á allar
myndir vetrarins.
Andlát
kvæntist hann Elínu Metúsalemsdótt-
ur, eignuðust þau 5 börn.
Kristmundur Sæmundsson, Kópavogs-
braut 106, lézt á gjörgæzludeild Land-
spítalans 28. október sl.
Sigursveinn Sveinsson bóndi, Norður-
Fossi Mýrdal, verður jarðsettur frá
Reyniskirkju laugardaginn 1. nóvem-
ber nk. kl. 13.30. Ferð verður frá Um-
ferðarmiðstöðinni kl. 8.30.
Ólafur Guðmundur Halldór Þorkels-
son verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju föstudaginn 31. október nk. kl.
11.
Sigurhans V. Hjartarson, Otrateigi 26
Reykjavik, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju föstudaginn 31. októ-
ber nk. kl. 15.00.
Ingibjörg Guðmundsdóttir, Svína-
vatni, verður jarðsungin frá Mosfells-
kirkju laugardaginn 1. nóvember nk.
kl. 14.00.
Bazarar
Kvenfélag Kópavogs
Basar kvenfélags Kópavogs verður sunnudaginn 2.
nóvember nk. kl. 15.00 í Félagsheimili Kópavogs, efri
sal. Margt góðra muna verður á boðstólum, einnig
kökur o. fl. Móttaka muna föstudagskvöld og laugar
dagfrákl. 14.00.
Verkakvennafélagið
Framsókn
Verkakvennafélagið Framsókn heldur basar 8.
nóvember nk. Félagskonur eru beðnar að koma’
basarmunum sem fyrst á skrifstofuna i Alþýðuhúsinu.
Simar 26930 og 26931.
Samkomur
Hvaö er Baháí trúin?
Opið hús á Óðinsgötu 20, öll fimmtudagskvöld frá kl.
20.30. Allir velkomnir.
Samhjálp
Samkoma verður í Hlaðgerðarkoti í kvöld kl. 20.30.
Bilferð frá Hverfisgötu 44 kl. 20. Allir velkomnir.
Grensáskirkja
Almenn samkoma verður i safnaðarheimilinu í kvöld
kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir.
Feröalög
Útivistarferðir
Föstud. 31.10 kl. 20.
Snæfellsnes, góð gisting á Lýsuhóli, sundlaug.
ökuferðir, gönguferðir, kvöldvaka með kjötsúpu á
laugardagskvöld (glaðsl með Gísla Albertssyni átt
ræðum). Uppl. og farseðlar á skrifst. Lækjargötu 6a.
Simi 14606.
Kvikmyndir
Bein lína um íslenzku
Ekki verður ánnað sagt en að rikis-
fjölmiðlarnir hafi gætt þess að halda
nokkru jafnvægi i sambandi við dag-
skrána í gærkvöldi varðandi alþjóða-
hyggjuna og þjóðlegheitin. í þættin-
um Nýjasta tækni og vísindi féllu til
fróðleiksmolar býsna áhugaverðir úr
hinum ólíkustu áttum; um nýtingu
geislanna frá sólu, sýnt var inn í
mannshjarta og franska Renault-
fyrirtækið kynnti eina leið til orku-
sparnaðar.
Norræna samvinna fékk sinn
skammt og hann ekki af verra taginu.
Má ætla að mörgum landanum
finnist forvitnilegt að kynnast þeirri
mynd sem Klaus Rifbjerg dregur upp
í framhaldsmyndaflokknum Árin
okkar. Myndin sýndi baksvið at-
burða sem hafa verið eitt meginein-
kenni á þjóðfélagsvanda seinustu ára
í Danmörku, iðjuleysingja sem sogast
inn í heim fíkniefnaneyzlu. Vmsir
munu vafalaust hafa tilhneigingu til
að bera saman danskan kvikmynda-
iðnað og íslenzkan en staðreyndin er
sú að sá danski stendur orðið á
gömlum merg. Danskur kvikmynda-
iðnaður er eldri og reyndari en margir
ætla.
Að loknu sjónvarpi munu margir
hafa hlustað á Beina línu sem nú
fjallaði um íslenzkt mál. Hlustendur
virtust óþreytandi að ræða ástkæra
ylhýra málið, bæði með skoðana-
skiptum við þá vísu málfræðinga sem
sátu fyrir svörum og ábendingum
varðandi sitthvað sem betur mætti
fara í daglegu tali manna.
Ég vona að flestir geri sér grein
fyrir því að íslenzkan, tunga okkar
f slendinga, er það atriði sem stærstan
hlut á i því að binda okkur saman
sem eina sjálfstæða þjóð. Hún er í
raun mesti þjóðarauður okkar. Þvi er
það gleðiefni að heyra hve mörgum
virðist annt um tunguna, nú þegar
ensk menning, aðallega í gegnum
kvikmyndir og hljómplötur, gerir
harða hríð að íslenzkunni.
Halda þarf úti öflugri íslenzku-
kennslu í skólum, og fjölmiðlana,
sérstaklega útvarp og sjónvarp, á að
nota til verndar og styrktar íslenzk-
unni. Vissulega er þágufallssýkin
hvimleið en hættan af henni er lítil
miðað við þau áhrif sem ekki aðeins
enskan heldur alveg eins önnur
Norðurlandamál gætu haft á íslenzk-
una.
Ég er ekki frá því að útvarpinu
megi þegar þakka fyrir hlut sinn til
verndar málinu í hálfa öld því stjórn-
endur þess hafa gert sér góða grein
fyrir einu mikilvægasta hlutverki út-
varpsins. Ef því hefði ekki verið að
heilsa væri íslenzkan án efa verr
stödd en í dag.
Fuglaverndarfélag
Islands
Vetrarstarf Fuglaverndarfélags lslands hefst með
fundi í Norræna húsinu 30. október 1980 kl. 8.30.
Eins og að undanfömu verða fundir haldnir í.
Norræna húsinu seint í hverjum mánuði.
Skarphéðinn Þórisson sýnir litskyggnur og talar um
lif og háttu starans sem, eins og vitað er, er nýr land-
nemi á lslandi.
t lok nóvember verður talað um flækingsfugla á
lslandi með litskyggnum.
Kaffihlé um kl. 10.
Þessar kvöldvökur hafa verið mjög vel sóttar og
alltaf ánægjulegt að koma í Norræna húsið og hitta
áhugamenn og sérfræðinga i fuglafræðum.
Hvers má vœnta af
hjartavernd?
Fræðslu- og umræðudagskrá i Domus Medica
nmmtudaginn 30. október.
I framhaldi af aðalfundi Hjartaverndar, landssam-
taka hjarta- og æðaverndarfélaga, sem haldinn verður
í Domus Medica i dag verður fræðslu- og umræðudag-
skrá um spurninguna Hvers má vænta af hjartavernd?
Jafnframt verður leitazt við að svara spurningunni
Eru hjarta- og æðasjúkdómar á undanhaldi? Dagskrá
þessa málþings um hjarta- og æðasjúkdóma og hjarta-
vernd verður með þeim hætti að sjö læknar og sér-
fræðingar munu flytja stutt erindi um ákveðna þætti
viðfangsefnisins en síðan munu ræðumenn hefja pall
borðsumræður um efni erindanna. Fundarmönnum
verður þá gefinn kostur á að taka þátt í umræðum og
fá svör við spurningum.
Fræðslu- og umiæðudagskrá þessi hefst kl. 16 og
mun standa í um tvær klukkustundir. öllum er heimill
aðgangur meðan húsrúm leyfir.
Flugbjörgunarsveitin
í Reykjavík
Hin árlega merkjasala Flugbjörgunarsveitarinnar i
Reykjavík verður nú um helgina, 31. októbér—2.
nóvember.en þaðereina fjáröflunarleiðsveitarinnar.
Flugbjörgunarsveitin heldur upp á það á þessu ári
að 30 ár eru liöin frá stofnun hennar, sem var í kjölfar
Geysisslyssins fræga á Vatnajökli. 1 tilefni þessa hefur
nú verið gert sérstakt afmælismerki úr silfri og verður
þaöboðið til sölu um helgina.
Félagar sveitarinnar munu selja merkið á götum úti
og ganga siðar í hús og er það von sveitarinnar að
Iandsmenn taki vel í þessa beiðni um styrk, sem er
raunar forsenda þess að hægt sé að halda uppi nauð-
synlegu starfi.
Frá Mígrenisamtökunum
Skrifstofutimi Migrenisamtakanna er einu sinni i viku.
kl. 17—19 á miðvikudögum.
Neskirkja — Fótsnyrting
Fótsnyrting fyrir aldraða í sókninni er byrjuð. Tima
pantanir ísima 16783 á þriðjudögum millikl. l4og 16
eða 13855.
Iþróttlr
íslandsmótið
í handknattleik
Laugardalshöll
Hmmtudagur 30. október.
kl. 20.00 1. deild karla Vikingur-Þróttur.
kl. 21.15 2. deild kv. B Þróttur-UBK.
kl.22.15 2. fl. k. B Fram-FH.
íslandsmótiö
í körfuknattleik
tþróttahús Kennaraháskóla tslands
Hmmtudagur 30. október
kl. 20.00. Úrvalsdeild ÍS-ÍR.
Fyrirlestrar
Dr. Owe Gustavs
Fyrirlestur
Hér á landi er staddur tslandsvinur frá Rostock i
Þýzka alþýöulýðveldinu, Dr. Owe Gustavs. Hann
hefur mikinn áhuga á íslenzku máli og málfræði og
hefur unniðað rannsóknum á íslenzku.
Hann mun flytja fyrirlestur á vegum islenzka
málfræðifélagsins í stofu 422 i Árnagarði
fimmtudaginn 30. október kl. .17.15. Fyrirlesturinn
mun fjalla um notkun þolfalls með forsctningunni
meði í'-íslenzku.
Allir eru velkomnir á þennan fyrirlestur. sem
fluttur verður á islenzku.
Stjornmalafundir
Alþýðubandalagsfélag
Keflavíkur
Aðalfundur verður haldinn í kvöld fimmtudaginn 30.
okt. kl. 20.30 í Tjarnarlundi.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa á landsfund.
3. önnurmál.
Félagar mætið vel og stundvislega.
Framsóknarfélag
Sauðárkróks
Fundur Í-Framsóknarhúsinu i kvöld fimmtudaginn.
30. okt. kl. 20.30.
Frummælandi: Halldór Ásgrimsson alþm.
Allir velkomnir.
Almennur
stjórnmálafundur
verður haldinn í samkomusal Hótel Heklu Rauðarár-
stig 18, fimmtudaginn 30. okt. kl. 20.30.
Guðmundur G. Þórarinsson alþm. hefur framsögu
um stjórnmálaviðhorfið.
Rangœingar-Rangæingar
Framsóknarfélag Rangæinga gengst fyrir almennum
fundi um orkumál héraðsins í kvöld, fimmtudaginn'
30. okt., í félagsheimilinu Hvoli kl. 21.
Á fundinn mætir fulltrúi frá Rafmagnsveitum rikisins
og þingmennirnir Jón Helgason og Þórarinn Sigur-
jónsson.
Alþýðubandalagið
á Reyðafirði
Álmennur, opinn fundur um atvinnu- og orkumál
verður haldinn í Félagslundi Reyðarfirði í kvöld kl.
20.30.
Framsögu hefur Hjörleifur Guttormsson iðnaðar-
ráðherra.
Aðalfundur FUS
Huginn, Garðabæ
og Bessastaðahreppi
verður haldinn að Lyngási 12, Garðabæ, i kvöld, kl.
20.
Dagskrá: Venjulegaðalfundarstörf.
Ónnurmál.
Árnessýsla
Fulltrúaráö og sjálfstæðisfélögin i Árnessýslu halda
sameiginlegan fund í Sjálfstæðishúsinu að Tryggva-
götu 8, Selfossi, í kvöld, kl. 20.30.
Fundarefni: Félagsmál.
Félagar í sjálfstæðisfélögunum eru hvattir til að
fjölmennaá fundinn. I
—
Félag óháðra
borgara, Hafnarf irði
Aðalfundurinnverður fimmtudaginn 30. október kl.
20.30 aðAusturgötu 10.
Málfundafélagið Óðinn
Aðalfundur félagsins verður haldinn i kvöld kl.20.30 i
Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Fundarefni:
1. Venjulegaðalfundarstörf.
2. Sigurður Óskarsson, formaður Verkalýðsfélags
Sjálfstæðisflokksins ræðir um kjaramál.
Stykkishólmskonur
Fundur verður i kvöld fimmtudaginn 30. október kl.
8.30 í Domus Medica.
íþróttafélag fatlaöra.
Félagar, munið félagsfundinn í kvöld kl. 20.30 að Há-
túni 12,annarri hæð.
Freeportklúbburinn
Fundur í Bústaðakirkju í kvöld kl. 20.30.
Kvenfélag
Fríkirkjusafnaðarins
Fundur verður næstkomandi mánudag, 3. nóveraber
kl. 20.30 í Iðnó uppi.
Sýningar
Frá Kjarvalsstöðum
Aö Kjarvalstöðum stendur nú yfir umfangsmesta
sýning myndlistarverka sem sett hefur verið upp í
húsinu til þessa. Er um að ræða yfirlitssýningu Braga
Ásgeirssonar sem spannar 33 ára feril hans á mynd-
listarvettvangi, sem mikla athygli hefur vakið. Sýning
in stendur of stutt yfir, en henni lýkur á sunnudags-
kvöld, 2. nóvember. Til þess aðgefa sem flestum tæki-
færi til þess að skoða hana býður Bragi skólanemend-
um í fylgd með kennurum eða gegn framvisun skóla-
skirteina ókeypis á sýninguna á fimmtudag og föstu-
dag (í dag og á morgun).
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING Fe,ðaman„,
. Nr. 206 — 27. október 1980. gjakjaynr
Einingkl. 12.00 .-Kaup Saia Sala
1 Bandarikjadolar 520.20 553.50 608.85
1 Sterilngspund 1348.05 135135 148838
1 Kanadadollar 469.90 471.00 518.10
100 Danskar krónur 9451.80 9474.10 10421.51
100 Norskar krónur 11143J0 11169.40 1228634
‘100 Saenskar krónur 12988.35 13018.95 1432035
100 Rnnsk mörk 14772.60 14807.40 16288.14
100 Franskir frankar 12651.35 12681.15 1394937
100 Belg. frankar 181830 1822.50 2004.75
100 Svissn. frankar 32396.60 32472.90 35720.19
100 Gyliini 26944.50 27007.90 29708.69
100 V.-þýzk mörit 2913535 29203.86 3212434
100 Lirur 61.65 81.79 6737
100 Austurr. Sch. 4116.50 4126.20 4538.82
100 Escudos 1077.00 1079.60 118736
100 Pesetar 735.05 738.75 810.43
100 Yen 261.64 262.26 288.49
1 irskt pund 1097.90 1100.50 1210.55
1 Sárstök dráttarréttindi 712.63 714.31
* Breyting frá siðustu skráningu. Simsvari vegna gengisskráningar 22190.