Dagblaðið - 30.10.1980, Síða 27
Liturn bara á hurðina: Fær
anleg fyrir híegri eða vinstri
opnun. frauðfyllt og nlðsterk — og i stað
fastra hillna og hólfa, brothættra stoða og
k)ka eru færanlegar fernu og flöskuhillur úr
málmi og laus box fyrir smjör, ost, egg, álegg
og afganga, sem bera má beint á borð.
VAREFAKTA
w
Dönsk gæði meö VAREFAKTA, vottorði
dönsku neytendastofnunarinnar DVN um
rúmmál, einangrunargildi, kælisvið, frysti-
gctu, orkunotkun og aðra eiginleika.
iFOnix
HÁTÚNI 6A • SÍMI 24420
Nýir auglýsingatímar fyrir
f réttir og síðdegis um helgar
VWMicmbus 1972
Grár, 8 manna.
Nýleg skiptivél.
Góður bíll.
Verð 2,9 millj.
ílamarkaðurinn
Grettisgötu 12-18- Sfmi25252
Kitty Fane er gift snjöllum sýkla-
fræðingi, en kann ekki að meta hann
sem skyldi og heldur framhjá honum
með alþekktum kvennabósa. Svo
verður sú breyting á högum hennar
að hún flytzt í aðra heimsálfu með
manni sínum og við erfiðleikana sem
mæta þeim þar sér hún hann í réttu
ljósi.
Þetta er í stórum dráttum sögu-
þráðurinn í leikriti vikunnar, Vefur
örlaganna eftir Somerset Maugham,
sem flutt verður fimmtudaginn 30.
október klukkan 20.40. Mabel
Constandours og Howard Agg
bjuggu til útvarpsflutnings. Þýðandi
og leikstjóri pr Ævar R. Kvaran, en
með stærstu hlutverkin fara Kristín
Bjarnadóttir, Þorsteinn Gunnarsson,
Árni Blandon og Helgi Skúlason.
Flutningur leiksins tekur tæpar 90
mínútur. Tæknimaður: Sigurður
Hallgrímsson.
William Somerset Maugham
fæddist i París árið 1874 en faðir
hans var lögfræðilegur ráðunautur
brezka sendiráðsins þar i borg.
Maugham stundaði nám í heimspeki
og bókmenntum við háskólann í
Heidelberg og læknisfræðinám um
skeið i Lundúnum. Hann var m.a.
læknir á vigstöðvunum í Frakklandi i
fyrri heimsstyrjöldinni. Maugham
skrifaði bæði leikrit, skáldsögur og
smásögur. Hefur sumum þeirra verið
breytt í leikrit og þær kvikmyndaðar.
Kunnust skáldsagna Maughams er
liklega í fjötrum en hún er öðrum
þræði sjálfsævisaga.
Á stríðsárunum dvaldist
Maugham í Bandaríkjunum en bjó
síðan lengst af í Frakklandi og þar
lézt hann árið 1965.
Útvarpið hefur flutt yfir 20 leikrit
Maughams og nokkur þeirra hafa
verið sýnd hér i leikhúsum.
Krístin Bjarnadóttir leikur KUty Fane
sem heldur óspart fram hji manni
sinum og kann alls ekki að meta
hann.
DB-mynd R. Th.
Sjónvavp um mánaðamótin:
Þeir sem horfðu á fréttir sjónvarps-
ins á mánudagskvöldið munu hafa
tekið eftir frétt þess efnis að sjónvarpið
hygðist bæta við nýjum auglýsingatím-
um núna um helgina. Auður Óskars-
dóttir, auglýsingastjóri sjónvarpsins,
var spurð um hina nýju tíma.
.,, Annars vegar verða tímar síðdegis á
laugardögum og sunnudögum. Þá
kemur 10 minútna tími eftir íþróttir á
laugardögum, áður en Lassi byrjar, um
klukkan 18.30. Á sunnudögum verður
annar 10 mínútna tími á eftir þættinum
Húsið á sléttunni áður en þátturinn
Helztu trúarbrögð heims byrjar um
klukkan fimm.
Hins vegar eru svo allt að fimm
mínútna tímar fyrir klukkan átta á
kvöldin.
Þessir timar verða til reynslu 25%
ódýrari en aðrir tímar. Ég er þó
ekkert viss um að þeir séu neitt verri.
En þetta er gert til þess að létta á kvöld-
dagskránni. Núna verða þrir aug-
lýsingatímar á hverju kvöldi og verður
hver þeirra ekki lengri en 12 mínútur,”
sagði Auður.
Hún var þá spurð að þvi hvort ekki
hefði verið eins hægt að fækka aug-
lýsingunum með því að hækka verð
þeirra.
„Við hækkuðum verðið um síðustu
mánaðamót um 40% án þess að auglýs-
ingum fækkaði hið minnsta,” sagði
hún.
Þeirri sem þennan dálk ritar hefur
undanfarið fundizt nokkuð af
auglýsingum í sjónvarpi bera merki
skrums. Eða hver trúir því svo sem að
Auöur Óskarsdóttir, auglýsingastjórí
sjónvarpsins, skoflar þarna aug-
lýsingafilmu.
DB-mynd HV.
þeir sem borða Myllu brauð eigi
bjartari framtíð en aðrir. Þó í aug-
lýsingu segi: Allir sem nærast á Myllu-
brauði/eflast og eiga framtíð bjarta.
Auður var spurð um eftirlit með slíkum
málum.
„Yfirleitt er svolítið skrum i öUum
auglýsingum og þá ekki bara i sjón-
varpi. Auövitað eigum viö að reyna að
koma í veg fyrir slíkt. Við reynum að
skoða allar myndir sem okkur berast og
ef eitthvað er í mynd eða texta sem er
alveg bannað, eins og til dæmis að
bera sig saman við einhvern annan
aðila, sýnum við ekki slíkar auglýs-
ingar. En þó sé eins og í þessari aug-
lýsingu tekið svona tii orða, sem
kannski má segja að sé hæpið, höfum
við ekki farið út í að henda þeim til
baka, mest vegna þess hversu dýrt er að
gera svona auglýsingar.”
Auður var að síðustu spurð að því
hvernig á því stæði að sjónvarpið, sem
ekki taldi sig hafa efni á að senda út
barnaefni fyrir klukkan átta á kvöldin,
hefði efni á að senda út auglýsingar.
,,Ja, ég veit það nú ekki. Ætli að það
liggi ekki þannig í því að fyrir auglýs-
ingarnar fær það borgað en þarf að
borga fyrir hitt.Op væri það sent út
fyrir fréttir vantaði cfni í staðinn í dag-
skrána,” sagði Auður.
-DS.
Útvarp
Fimmtudagur
30. október
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Fimmtudagssyrpa.
— Páll Þorsteinsson og Þorgeir
Ástvaldsson.
15.50 Tilkynningar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónlelkar.
17.20 Útvarpssaga barnanna:
„Stclpur á stuttum pilsum” eftir
Jennu og Hreiðar Stefánsson.
Þórunn Hjartardóttir les (3).
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Þórhallur
Guttormsson flytur þáttinn.
19.40 Ávettvangi.
20.05 Pianóleikur i útvarpssai:
Arni Harðarson leikur a. Sónötu
i A-dúr op. 120 eftir Franz
Schubert, b. Skerzó í b-moll eftir
Fréderic Chopin.
20.40 Leikrít: „Vefuröriaganna”
eftir William Somerset Maugh-
am. Leikgerð fyrir útvarp:
Mabel Constanduros og
Howard Agg. Þýðandi og leik-
stjóri: Ævar R. Kvaran. Per-
sónur og leikendur: Kitty Fane-
Kristín Bjarnadóttir, Walter
Fane-Þorsteinn Gunnarsson,
Charles Townsend-Árni Bland-
on, Waddington-Helgi Skúlason,
Abbadisin-Guðbjörg Þor-
bjarnardóttir, Jósefs-systir-Þór-
unn Magnea Magnúsdóttir. Aðr-
ir leikendur:, Klemenz Jónsson,
Karl Ágúst Úlfsson og Ævar R.
Kvaran.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dag-
skrá morgundagsins.
22.35 Á frumbýllngsárum. Jón R.
Hjálmarsson fræðslustjóri talar
við hjónin i Silfurtúni í Hruna-
mannahreppi, Maríd og Órn
Einarsson.
23.00 Kvöldstund með Sveini Ein-
arssyni.
23.45 Fréttir. Dagskráriok.
Föstudagur
31. október
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Tón-
7.10 Bæn. 7.20 Leikfimi.
7.25 Morgunpósturinn.
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl.fútdr.) Dagskrá. Tónleikar.
8.55 Daglegt mál. Endúrt. þáttur
Þórhalls Guttormssonar frá
kvöldinuáður.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
Kristján Jónsson les þýðingu sína
á „Uglum í fjölskyldunni”, sögu
eftir Farley Mowat (5).
9.20 Leikfimi. 9.30. Tilkynning-
ar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Tónleikar. Ida Hánde! og
Alfred Holecek leika Fiðlusón-
ðtu i g-moll „Djöflatrillusónöt-
una’ eftir Giuseppa Tartini /
Alexandre Lagoya og Orford-
kvartettinn leika Gitarkvintett í
D-úr eftir Luigi Boccherini.
11.00 „Mér eru fornu minnin
kær”.
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1980.
VEFUR ÖRLAGANNA - útvarp íkvöld kl. 20.40:
KANN EKKI
AÐMETA
MANN SINN