Dagblaðið - 08.01.1981, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1981.
17
0MAR
VMLDIIVIMrtSSU
Margir áhrifamenn í Alþýðu-
bandalaginu heyrast nú hugsa
upphátt að flokksforystan þurfi að
leggjast á árar í tæka tið og koma í
veg fyrir að Guðrún Helgadóttir
tryggi sér öruggt sæti á fram-
boðslistanum í Reykjavik þegar þar
að kemur. Guðrún þykir rekast svo
Mlla í flokknum.
Guðrún flutti í vetur fræga þing-
ræðu í kjölfar frétta um nokkurra
milljarða króna (gamalla) minningar-
gjöf hjónanna Sigurliða og Helgu til
menningarstarfsemi í landinu. Hún
taldi i beinu framhaldi að fréttin gæfi
tilefni til að setja spumingamerki við
barlóm forkólfa verzlunarinnar
almennt. Enginn Alþýðubandalags-
þingmaður kom í pontu og tók undir
með Guðrúnu og enginn þeirra svo
mikið sem yrti á hana á eftir og allan
þann dag. Hún var „fryst” úti.
Gervasonimálið fylgdi fast á eftir.
Þar hótaði hún rikisstjórnarhróinu
öllu illu ef Gervasoni færi. Og í þing-
flokki Alþýðubandalagsins fékk hún
aðeins stuðning frá einum félaga
sínum: Ólafi Ragnari Grimssyni.
Um áramótin lenti henni svo enn
saman við flokksforystuna, þar á
meðal Ólaf Ragnar Grímsson.
Tilefnið var bráðabirgðalögin með
tilheyrandi kjaraskerðingarákvæðum
og öðrum gömlum lummum.
Allt þetta eyddi þolinmæði gömlu
flokkshestanna í Allaballanum: Hún
skal út af þingi.
„Áfram Iceland”
Anna Halla Kristjánsdóttir,
istenzkur lögfræðingur við rikis-
skattstofu Bandaríkjanna i
Washington, er mikill áhugamaður
um langhlaup. Hún hleypur yfir 150
kilómetra á viku og tekur þátt i
maraþonhlaupum vestra. Skömmu
fyrir áramótin tók hún önnur
tveggja kvenna þátt i maraþon-
hlaupi landgönguliða, merk ’
Íslandi i bak og fyrir. Hljóp hún
vegalengdina á 3 timum 22
minútum og 4 sekúndum, við mikil
hvatningarhróp áhorfenda, sem
hrópuðu: „Áfram lceland".
Matthías
vill
aftur inn
Matthías .iohannessen, ritstjóri
Morgunblaðsins, sagði sig úr Blaða-
mannafélagi ísiands sl. haust, eins og
sagt var frá í þessum dálki og raunar
víðar. Taldi Matthias félag blaða-
manna vera á mjög rangri braut með
því að hafa veitt ýmsum starfs-
mönnum ritstjórna blaðanna, öðrunt
en blaðamönnum, aðild að félaginu,
t.a.m. simastúlkum og safnvörðum.
Á Þorláksmessu sótti Matthías
aftur um aðild að Blaðamannafélagi
íslands. Ekki er vitað að veruleg
stefnubreyting hafi orðið í félaginu
varðandi inntökuskilyrði — en
grunur leikur á að þeir fari í jóla-
köttinn, sem ekki eru í stéttarfélögum
um jól.
Flokkshest-
arnir vilja
Guðrúnu burt
úr þingsœti
Þriðja hljómplata
Karlakórsins Goða
— Ber nafnið Við Ljósavatn
NÚMERINLÆTÉG EKKI
Magnús Bjarnfreðsson við frétta-
lestur.
Magnús les
fréttimar
úný
Magnús Bjarnfreðsson, einn af
fyrstu starfsmönnum sjónvarpsins, er
byrjaður að lesa fréttirnar á ný.
Hann er þó aðeins í þvi starfi til
bráðabirgða, leysir af Boga Ágústs-
son, sem óskað hefur eftir því að
losna undan fréttalestrinum.
Fyrir nokkrum árum sagði
Magnús upp föstu starfi sínu hjá
sjónvarpinu, en hefur unnið þar
fjölda þátta í aukastarfi. Hann sér til
dasmis um dagskrárliðinn Sjónvarp
næstu viku, sem sendur er út á
sunnudagskvöldum.
Fréttaþulir sjónvarpsins eru nú
fjórir. Auk Magnúsar eru það Sonja
Diego, Guðmundur Ingi Kristjánsson
og Guðrún Skúladóttir.
Magnús Bjarnfreðsson sagði í
blaðaviðtali að hann hefði verið dá-
lítið taugaóstyrkur í fyrsta frétta-
timanum sinum á laugardagskvöldið,
,,þó ekki eins og þegar við byrjuðum
hérna á árum áður með sjónvarpið,”
sagði hann. Þá var Markús Örn
Antonsson borgarfulltrúi frétta-
maður með Magnúsi og útsendingar-
stjóri frétta var Ólafur Ragnarsson,
nýrekinn ritstjóri af Visi.
og Illuga
Búizt er við að til frekari tíðinda
— Allt frá stofnun kórsins hefur
hann haft mikla sérstöðu meðal
íslenzkra karlakóra, þar sem hann
hefur ekki farið troðnar slóðir. En
hvað veldur? Jú, — haustið 1972 var
fenginn tékkneskur hljómsveitar-
stjóri frá Prag, snillingur í verkum
gömlu meistaranna, Robert Bezdek
að nafni, til að stjóran kórnum. Þessi
hæfi tónlistarmaður með mikla
menntun og reynslu að baki skynjaði
fijótt þá möguleika, sem íslenzkir
karlakórar höfðu ekki nýtt sér. Hann
leiddi þvi hinn nýstofnaða kór inn á
brautir sem litt höfðu verið gengnar
áður.
Svo segir á umslagi nýrrar plötu
karlakórsins Goða, er hefur hlotið
nafnið Við Ljósavatn. Á henni
syngur kórinn þrettán erlend lög, öll
með íslenzkum textum. Robert
Bezdek útsetti öll lögin og stjórnar.
Undirleikarar eru átta talsins, meðal
annars Tómas Tómasson, Ásgeir
Óskarsson, Pétur Hjaltested og
Sigurður I. Snorrason.
Kariakórinn Goöi — fer ekki troðnar slóöir, að þvi er sef>ir ú untslafti nýjustu
plötu kórsins.
„Ég hafði fullkomin not fyrir
peningana og það er öruggt mál að ég
læt númerin ekki,” sagði Eggert
Garðarsson, þrítugur bifreiðastjóri
frá Hvammstanga, í samtali við Fólk-
síðuna um mikið lán sitt í
happdrættisspili. Ásamt konu sinni,
Arndísi Sölvadóttur, á hann tvo
nifalda miða í Happdrætti Háskóla
íslands, sem á nýliðnu ári gáfu af sé á
elleftu milljón króna, gamalla þó.
Eggert segist alltaf hafa verið
lánsamur i happdrættum og
verðlaunakeppnum. „Þegar ég var
strákur tók ég stundum þátt i
verðlaunagetraunum hjá Æskunni og
síðar hjá Vikunni. Iðulega fékk ég
verðlaun. Seinna fór ég að spila í
happdrættum DAS og SÍBS og kom
yfirleitt mjög vel út úr því. Svo
keypti ég miða í Happdrætti Há-
skólans ’73 og fór strax að vinna á
hann.”
Hikaði viðað
fá sér trompmiða
Hann sagðist hafa verið dálitið
hikandi þegar Háskólahappdrætt-
ið hóf að selja svokallaða
„trompmiða” fyrir fimm árum. „Ég
var að byggja þá og mér fannst þetta
dálítið dýrt. Svo slógum við nú til og
fórum strax að vinna ágætar
upphæðir. Það varð þó bezt í haust
— í september fengum við nífaldan
vinning, eða samtals 9.9 milljón
krónur. Við eigum aðra samstæðu í
samliggjandi númerum, þannig að
samtals skiluðu þessir miðar okkur
rúmlega 10.2 milljónum.”
Vantaði peninga
íhúsið
Eggert og kona hans höfðu góð
not fyrir peningana, eins og hann
sagði í upphafi spjallsins við Fólk-
síðuna. „Við höfum verið að byggja
okkur hús á Hvammstanga undan-
farin þrjú ár og vantaði ýmislegt
í það, bæði innihurðir, gólfteppi og
dragi á ritstjórn Vísis í kjölfar
bombunnar, sem útgáfustjórnin
varpaði þar inn á gólf um áramótin.
Rætt er um að uppsögn Ólafs
Ragnarssonar ritstjóra muni fiýta
fyrir brottför fleiri ritstjórnarliða.
Einkum eru nefndir til sögunnar
Sæmundur Guðvinsson, einn af
reyndustu fréttamönnum Vísis (og
umsækjandi um fréttamannsstöðu á
sjónvarpinu fyrir nokkrum vikum),
Elías Snæland Jónsson ritstjórnar-
fulltrúi og lllugi Jökulsson umsjónar-
maður helgarblaðs Vísis. Brottfarar-
snið hefur verið á þeim um nokkurt
skeið, ekki sízt vegna árekstra rit-
stjórnarinnar við útgáfustjórnina.
Brottrekstur Ólafs fyllti hins vegar
bikarinn og vel það.
fleira. Ymsu var komið i verk fyrir
jól, en auðvitað er ennþá sitthvað
eftir.”
Þau hjónin, sem eiga þrjú börn,
eru bæði fædd og uppalin á
Hvammstanga. — ,,Ég var þó hér í
Reykjavík meira og minna í ein fimm
ár frá 1970, en þá ákváðum við að
fara heim aftur. Fram að þeim tíma
hafði yfirleitt verið ríkjandi at-
vinnuleysi á vetrum á Hvammstanga,
en nú er alltaf nóg að gera og
staðurinn er í miklum uppgangi. Það
er alveg liðin tíð, að menn fari að
heiman til að leita sér að vinnu, eins
og var þegar ég var að vaxa úr grasi.”
Meðan Eggert bjó syðra stundaði
hann sjómennsku og akstur, var m.a.
tvö ár hjá BM Vallá og ók einnig
strætisvagni í Kópavogi. Nú rekur
hann ásamt 3 öðrum verktaka-
og fiutningafyrirtæki á Hvamms-
tanga og segist hafa meira en nóg að
gera. Hann sé því síður en svo á leið
aftur á mölina — og hann er
ákveðinn í að halda áfram að spila i
happdrættinu.
-ÓV.
Kftftert Garðarsson: „ Varfyrst í vafa um hvort cy cetti að tuku trompið — en það
hefur sannarieftu horyuö siy.'' Mynd: Ella.
— segir Eggert Garðarsson ú
Hvammstanga, sem lúnið
leikurvið í Happdrætti Hí
'fÓLK
Brottfararsnið a
Sæmundi, Elíasi
FÓLK