Dagblaðið - 08.01.1981, Blaðsíða 20
20
(§
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1981.
Menning
Menning
Menning
Menning
I
Tónlist
GATAN ,
OGSOUN
Rafeindir, náttúra og
annað krydd
Spunahljómsveitin Steini blundur
gefur plötu þessari sterkan lit. Hvort
um raunverulegan spuna sé að ræða
tel ég töluvert vafamál. Þetta virðist
að minnsta kosti þrælæfður andskoti
Það þarf þó alis ekki aðrýra gildi
spilamennskunnar sem slikrar. Hæst
ber þar fiðluleik Grahams Smith.
Hann virðist skynja bezt barnslega
einfeldnina í ljóði og lagi. — Svo er
rafeinda- og náttúrutónlist, sem
Gunnar Reynir Sveinsson framleiðir
beitt af smekkvísi og skynsemi.
Annað krydd á emnig vel við. Fjar-
rænn lestur Helga Skúlasonar og
síðast en ekki sist blokkflautuleikur
dætra Magnúsar Þórs, þeirra önnu
Thelmu og Lindu.
Öll er platan þokkalega unnin frá
upptöku til umslags, þótt vart geti
talizt framúrskarandi. — Að öllu
samanlögðu hin frambærilegasta
plata, sem likast til gefur visbendingu
um þá stefnu sem Magnús Þór
hyggst taka í náinni framtíð.
-EM
Magnús Þór Sigmundsson.
plötu Magnúsar Þórs frá í fyrra. Það
er sama barnslega handbragðið sem
blasir við, handaverk Brians Pilkin-
tons. Og vist er tengsl að finna við
álfakveðskap Magnúsar Þórs.
Þemun eru sum hver að minnsta
kosti lík, en meðferðin þó í aöal-
atriðum töluvert önnur.
Hin barnslega einfeldni
Ljóðunum skipta þeir Magnús Þór
sjálfur og meistari hins barnslega,
Kristján frá Djúpalæk nokkurn
veginn jafnt á milli sín. Milli text-
anna myndast vissar andstæður þótt
um sömu hlutina fjalli. Þannig er til
dæmis athyglisvert að bera saman
Borgina eftir Kristján og Götuna eftir
Magnús Þór, og sömuleiðis kvæðin
Sólin og ég eftir Kristján og Sólin
eftir Magnús Þór.
Magnúsi Þór tekst betur að ljá
sínum eigin ljóðum tónbúning en
Ijóðum Kristjáns. Réttara væri
kannski að segja að ljóð hans falli
betur að hans eigin tónmáli. í sjálfu
sér gæti það þó virst mótsagnakennt
þar sem lögin eru öll býsna lik hvert
öðru. Það vekur svo aftur þá spurn-
ingu, hvers vegna piltur eins og
Magnús Þór fer i smiðju til Kristjáns
frá Djúpalæk. — Og ætli svarið gæti
orðið annað en, að á hann leiti þessi
sama barnslega, magíska einfeldni í
ljóðum Kristjáns, sem töfrað hefur
allar þær kynslóðir poppara, sem
Kristjáni hafa verið samferða.
Mitt á milli
í fyrstu kemur efni plötunnar
þannig fyrir eyru að sífellt sé verið að
endurtaka sama lagið upp aftur og
aftur. Lögin eru keimlik og Steini
blundur tengir þau gjarnan með
millispili svo að þau renna saman i
eitt. Gæti það virst tilraun til að gera
eins konar svítu úr plötunni, sem þó
ekki tekst og úr verður eitthvað mitt á
milli. Á það raunar við um fleiri
þætti plötunnar, því að lög og
flutningur Magnúsar Þórs er mitt á
miili fyrri laga hans og álfalaganna.
Gatan og sólin
Tónlist.
EyjóHur Melsted.
Gatan og aóiin.
Hljómplata mafl lögum Magnúaar Þóra
Sigmundaaonar.
Flytjandur: Höfundur og apunahljómaveitin
Steini blundur, auk annarra hjálparmanna.
Hljóflritun: Tóntœkni h.f.
lltgafandi SG-hljómplötur, SG-135
Sé litið á framhlið plötuumslags
Götunnar og sólarinnar mætti ætla
að þar færi framhaldsútgáfa á álfa-
Ekki veríð að flana að hlutunum á Eskifirði:
FERN HJONAEFNIGENGUIÞAÐ
HBLAGA Á GAMLÁRSDAG
sss-
Togarinn Jón Kjartansson fór á
loðnuveiðar í fyrrakvöld. Þess skal
getið að Jón Kjartansson fór í klössun
til Danmerkur sl. maí og kom aftur til
Eskifjarðar rétt fyrir áramót.
Togarinn má veiða 11 til 12 þúsund
tonn af loðnu á vertíðinni, en því
magni var togaranum úthlutað af
sjávarútvegsráðuneytinu ásl. ári.
Nýbyrjað ár leggst vel í flesta Esk-
firðinga og eru flestir ábyrgir menn
ánægðir með byrjunina á efnahags-
ráðstöfunum núverandi rikisstjórnar.
Vonast fólk til þess að stjórnarand-
staðan verði ábyrg í þeim nauðsynlegu
málum. En mér finnst að Geirsmenn i
Sjálfstæðisflokknum séu alltaf slæmir í
stjórnarandstöðu um fengitímann.
Fólk hefur skemmt sér vel um þessi
jól og heilsufar er gott. ÁramótaböU
eru alltaf vel sótt hér og fara mjög vel
fram. Barnaball var sl. sunnudag og
skemmtu börnin sér vel við fallegt jóla-
tré. Fagnaðarlátunum ætlaði aldrei að
linna þegar þrir jólasveinar komu í
heimsókn og gáfu börnunum alls konar
sælgæti. Það voru fjögur fyrrtæki hér
á staðnum, sem stóðu að þessari
skemmtun, fyrir börnin og voru
veitingar allar mjög rýmilegar.
Eskikórinn hélt fjölskyldu-
skemmtun um jólin í Valhöll. Söng
kórinn átta jólalög undir stjórn Viólu
Smidova. Hún hefur stjórnað kórnum
síðan 1977 að einum vetri undan-
skildum. Nýtur hún mikilla vinsælda
fyrir starf sitt, hún er sjálf mjög ánægð
hér, vill helzt setjast að hér, en hana
vantar húsnæði. Aðgangur að
skemmtun EskikórJns var ókeypis, en
hægt var að fá keypt kaffi og með því
fyrir 2500 g. krónur. Á eftir var fariö í
leiki. Skemmtunin þótti takast mjög
vel og var létt yfir mannskapnum.
Fern hjónaefni gengu i það heilaga á
gamlársdag, að vel athuguðu máli, því
sum hjónaefnin voru búin að halda
heimili í 3—7 ár. Enginn þeirra ungu
manna, sem keyptu piparsveinahöllina
frægu gekk í hjónaband um þessa stór-
hátíð enda er ekki nema rúmt ár siðan
þeir fiuttu inn og hafa þeir ekki enn
fengið afsal fyrir íbúðunum.
Eskfirðingum er það í blóð borið að
flana ekki að neinu og hafa allt á
föstum grunni.
-Regína/GSE.
H
Eskifjörður. Á innfelldu myndinni er
Eskifjarðarkirkja en þar voru gefin
saman fem hjón á gamlársdag.