Dagblaðið - 08.01.1981, Page 27
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 8. JANUAR 1981.
I
I)
Útvarp
Sjónvarp
FIMMIUDAGSLÐKRITID - útvarp kl. 21,15:
Hjónin sækja bæði um
stöðu verdunarstjóra
—spenna myndast og hjónabandið kemst í hættu
Fimmtudagsleikritið að þessu sinni
er eftir norskan rithöfund, Odd
Selmer. Fjallar það um miðaldra
hjón, Einar og Elnu, sem vinna hjá
sama fyrirtækinu. Dag nokkurn er
staða verzlunarstjóra auglýst laus til
umsóknar og þau hjónin sækja bæði
um hana. Konan hefur betri menntun
en mann hennar hefur alltaf dreymt um
stöðuhækkun. Kann þetta að verða
hans síðasta tækifæri til að láta draum-
inn rætast. En konan hefur líka áhuga
á starfinu þannig að spenna myndast.
Hjónabandið er í hættu, svo miklu
skiptir hvernig tekið er á málunum.
Höfundurinn, Odd Selmer, er blaða-
maður. Hann hlaut verðlaun Norður-
landaráðs fyrir fyrsta útvarsleikrit
sitt, Heim frá Ameríku, árið 1972.
Hann hefur einnig skrifað allmargar
skáldsögur. Verzlunarstjórinn er fyrsta
leikrit hans sem flutt er í íslenzka út-
varpinu. ___
Leikstjóri er Klemenz Jónsson en
'þýðinguna gerði Torfey Steinsdóttir.
Með hlutverk hjónanna Einars og Elnu
fara þau Þorsteinn Gunnarsson og
DAGLEGT MÁL—útvarp kL 19,35:
„Mest aðkallandi að
fjalla um framburð”
—segir Guðni Kolbeinsson sem enn sér um Daglegt mál
mönnum, sem eru fljótmæltir, þeir
týna gjarnan úr atkvæöum.
önghljóð falla út, t.d. segja sumir
„Dablaðið” i stað „Dagblaðið”. Ð-
inu er einnig hætt, maður heyrir oft
talað um „Veurstofuna”. Ég spjalla
um fleiri framburðaratriði, sumir
gera a úr æ, t.d. „hakka” og
„lakka” í stað „hækka” og
„lækka”.
Að mínu mati er mest aðkallandi
að fjalla um framburð,” sagði
Guðni, „en það vantar óheyrilega
miklar rannsóknir á nútíma fram-
burði.”
„Ég ætla að tala svolítið um fram-
burð, sérstaklega svokallað latmæli.
Latmæli er það þegar menn nenna
ekki að koma öllum atkvæðum eða
hljóðum orða til skila,” sagði Guðni
Kolbeinsson en hann stjómar enn
þættinum Daglegt mál.
„Dæmi um þetta heyrast oft hjá
Guðni Kolbeinsson.
DB-mynd: Bj. Bj.
Guðrún Ásmundsdóttir en aðrir leik-
endur eru Helga Þ. Stephensen, Hákon
Waage, Guðmundur Pálsson, Soffía
Jakobsdóttir og Ásdis Skúladóttir.
Þorsteinn Gunnarsson leikur eigin-
manninn, Einar.
Flutningstími leikritsins er 58mínút-
ur og tæknimenn voru þeir Friðrik
Stefánsson og Jón örn Ásbjömsson.
-KMU.
Guörún Ásmundsdóttlr leikur eigin-
konuna, Elnu. DB-mynd: Hörður.
SKÓLAÁR ÍSLEJFS BISKUPS GISSURARSONAR
—útvarpkl.22,35:
Var Komið í skóla
f Herf urðu á Saxlandi
—á meðan faðir hans, Gissur hvfti, var í pflagrímsför,
segir séra Kolbeinn Þorleifsson
„Isleifur Gissurarson, fyrsti
biskup Islendinga, dó 5. júlí 1080 að
því er álitið er. Ég tók þetta erindi
saman af því tilefni að 1 júlí í sumar
var stofnaður félagsskapur í Skál-
holti, ísleifsreglan. Þetta er nú engin
munkaregla heldur áhugamanna-
hópur um klassískan messusöng,”
sagði séra Kolbeinn Þorleifsson en í
kvöld flytur hann erindi í tilefni af 9
alda ártíð ísleifs 1980.
„Erindið er hluti af ritgerð sem ég
samdi en í henni held ég því fram að
ísleifi hafi verið komið í skóla i
Herfurðu i Saxlandi þegar faðir hans,
Gissur hvíti, var í pilagrímsför til
Rómaborgar. Ég hef verið að rann-
saka sögu ísleifs biskups og komizt
m.a. að því að elzta handritið sem til
er í íslenzkum söfnum, nótnahandrit,
er með þeirri sömu nótnaskrift sem
Isleifur Gissurarson lærði i skólanum
í Herfurðu. Þetta er mjög merkilegt
vegna þess að skömmu síðar breyttist
nótnaskriftin.” sagði séra Kolbeinn
Þorleifsson.
-KMU.
,27
HVAMMSTANGI
Nýr umboðsmaöur á Hvammstanga.
Ingibjörg Hjaltadóttir
Melavegi 13. S. 95—1489.
IÉMÉBIAÐW
ESKIFJÖRÐUR
Umboðsmaður óskast á Eskijjörð. Vin-
samlegast hafið samband í sima 97—6300
eða 91—27022.
BIAÐIÐ
LAUST STARF
Starf byggingaeftirlitsmanns ráðuneytisins er laust til
umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknum, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf, sendist dóms- og kirkiumálaráðuneytinu fyrir
31. janúar 1981.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
30. desember 1980.
iðnskólinn í Reykjavík
Menntamálaráðuneytið hefur falið skólanum að starf-
rækja nám í öðrum áfanga iðnnáms fyrir tannsmíði á
námssamningi. Námið á að fara fram á þessari önn, sé þess
nokkur kostur. Væntanlegir nemendur hafi samband við
skrifstofu skólans fyrir 12. janúar nk.
Iðnskólinn íReykjavík.
LAUSSTAÐA
Staða vélritara við embætti ríkisskattstjóra er laus til um-
sóknar.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf,
skal senda ríkisskattstjóra, Skúlagötu 57, 105 Reykjavík,
fyrir 26. janúar nk. Ríkisskattsljóri,
6. janúer 1981.
fjl AUGLÝSING
Athygli sölu- og dreifingaraðila á sláturafurðum af alifugl-
um hér í borg er hér með vakin á reglugerð landbúnaðar-
ráðuneytisins nr. 260/1980 um útbúnað alifuglasláturhúsa,
slátrun alifugla, verkun þeirra og heilbrigðisskoðun, er tók
gildi 6. maí 1980. Sérstök athygli er vakin á eftirfarandi
ákvæðum reglugerðarinnar:
slátra
1. Alifuglum sem slátrað er til sölu skal einungis slá
viðurkenndum sláturhúsum skv. reglugerð nr.
260/1980.
2. Óheimilt er að bjóða til sölu ófrystar sláturafurðir ali-
fugla.
3. Óheimilt er að bjóða til sölu afurðir alifugla sem eru án
umbúða eða í vanmerktum umbúðum.
Umbúðir skulu auðkenndar nafni sláturhúss og fram-
leiðanda, og greina sláturmánuð og ár. Ennfremur
hvaða tegund alifugla eða afurða umbúðirnar hafi að
geyma, flokkun, magn og þyngd og heppilega meðferð
vörunnar fyrir matreiðslu. Áletrun á umbúðum skal
vera glögg og varanleg.
Heilbrigðiseftirlitið í Reykjavík mun hér eftir gera upp-
tækar afurðir af alifuglum, sem á boðstólum eru í Reykja-
vík og ekki uppfylla ofangreind skilyrði, svo og önnur
ákvæði áðurgreindrar reglugerðar, sem til greina geta
komið.
Raykjavik, 7. janúar 1981,
Heilbrigðisráð Reykjavíkurborgar.