Dagblaðið - 20.01.1981, Síða 3

Dagblaðið - 20.01.1981, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1981. 3 Sjálf skipaðir menningarpostular Helgihald útvarps- ins J.G. skrifar: Setja sig á háan hest —ætluðu að nota skaupið sem þumalskrúf u Ríkisútvarpið hefur tekið mikinn fjörkipp i helgihaldi, þrátt fyrir margrómað auraleysi. Auk hinnar hefðbundnu Morgunbænar eru nú komin á dagskrá Morgunorð og Orð kvöldsins, með tónlist í bak og fyrir. Þetta tel ég þarfa ráðstöfun og hefði raunar mátt meira að gera, t.d. að við viðbótar kæmu Hádegisorð og Nónorð. En meðan við biðum eftir siðasttölu Orðunum, er þó bót í máli að inn í dagskrá er skotið öðru hvoru eins konar Litlaskatti, þ.e. Orðum reykinga(varnar)nefndar, einnig með tónlist í bak og fyrir. Rithöfundarnir Jón Trausti og Halldór Laxness hafa af mikilli snilld skapað margar ódauðlegar sögupersónur. Má þar m.a. nefna Settu í Bollagörðum í Heiðarbýlis- sögum Jóns Trausta og Toddu Truntu i Sölku Völku eftir Halldór Laxness. Þær Setta og Todda frelsuðust er aldur færðist yfir þær, og báðar vitnuðu þær á torgum og gatnamótum að viðhöfðum lúðra- blæstri og hallelújasöng. Þegar ég hlusta á Orðin og Litla- skatt, koma mér oft í hug prédikanir Settu og Toddu, og er ekki hægt að segja að á kot sé vísað með sam- likinguna þar sem aðrir eins snillingar og Jón Trausti og Halldór Laxness hafa um vélt. Steinar Berg ísleifsson, hljómplötu- útgefandi, skrifar: Popptónlistarmenn og hljómplötuútgefendur þeirra hafa oft goldið þess hversu samtakamáttur þeirra er lítill og sjaldnast hafa þeir borið hönd fyrir höfuð sér, þegar sjálfskipaðir menningarpostular segja framlag þeirra „drasl” og tilganginn einungis „skjótfenginn gróða”. Ég er ekki sjálfskipaður tals- maður, fyrir hvorugan hópinn, en ég gat ómögulega á mér setið að skrifa þetta, mitt fyrsta lesendabréf, er ég sá ummæli formanns leikara, er hann lýsti fyrirlitningu sinni á áramóta- súpu sjónvarpsins og sagði að þarna hefði verið popptónlistarfólk sem geiflaði varirnar eftir hljómplötum, einungis í auglýsingarskyni fyrir hljómplötuútgefendur. Eins og fram hefur komið var búið að semja handrit að áramóta- skaupi þar sem félagsbundnir leikarar voru i öllum aðalhlut- verkum. Nú, leikarar fóru í verkfall og kröfðust m.a. 25% kvóta af öllu efni fluttu i sjónvarpi. Aðstöðu- munur tónlistarfólks og leikara kemur gleggst í ljós þegar hugsað er um þessa kröfu leikara og ég leyfi mér að fullyrða að ennþá hefur engum hljómplötuútgefanda né tónlistarmanni dottið i hug að setja fram sambærilegar kröfur. En fyrst leikararnir fengu hugmyndina, væru þeir þá ekki líka fylgjandi því að önnur 25% af dagskránni færu i íslenzka tónlist? Ég fæ ekki betur séð en að leikarar hafi ætlað að nota skaupið sem sérstaka þumalskrúfu á sjón- varpið. Þjóðin hefði svo sannarlega tekið eftir því ef léttmeti hefði ekki verið framreitt á skjánum á sjálft gamlárskvöld. Tónlistarfólkið sem sjónvarpið leitaði til var kallað út Eina kvörtun ætla ég að bera fram í lokin. Mér finnst tónlistin með Orðunum og Litlaskatti óttalegt ná- gaul, og er það von mín að gaul þetta verði fellt niður með öllu og í staðinn komi hressilegir hallelújasöngvar, hvar undir verði þeyttir lúðrar og bumbur barðar. með mjög skömmum fyrirvara, þegar Ijóst var að ekki yrði af áramóta- skaupi með hefðbundnum hætti. Auðvitað hefði verið skemmtilegast að hafa hljómsveit i sjónvarpssal til undirleiks fyrir tónlistarfólkið en hinn skammi timi sem til undir- búnings var sá fyrir þvi. Ég skil nú ekki hvað liggur að baki þegar formaðurinn talar um auglýsingu fyrir hljómplötuútgef- endur. Til fróðleiks fyrir hann skal þess getið að á árinu 1980 voru gefnar út u.þ.b. 50—60 hljómplötur á tslandi og þar af eru einungis 3 sem seldust i rétt yfir 5000 eintökum og 5—10 sem seldust i 3000 eintökum. Yfirleitt þarf sölu upp á 2500 til 3500 eintök til að hver plata standi undir sér og útgefendur geti farið að raka saman ágóðanum. Formanninum finnst kannski að þeim hljómlistarmönnum, sem gera hljómplötur ætti að banna að koma fram í útvarpi og sjónvarpi í einhvern ákveðinn tíma eftir að platan er komin út? Og að þá gilti að sjálf- sögðu slikt hið sama um kynningar á bókum, leikritum og öðru menning- ar- og skemmtiefni í t.d. Vöku, Stundinni okkar og víðar í dag- skránni. Það hlýtur eitthvað að standa Ieikurum nær en hugsunin um að tryggja sér sem stærstan bás á ríkis- jötunni. Oft hefur verið deilt um áramótaskaup sjónvarps. Nú siðast brá svo við að eftir að fólk hafði almennt lýst sig ánægt með skaupið hófust miklar deilur um réttmæti þeirrar ánægju. /" " 1 Raddir lesenda Spurning dagsins Fylgist þú með pólitfk? Ólöf Haiöardóttir atagkMa: Nei, ekki neitt. Ég hef aldrei fylgzt með pólitik. Jóhanna Karisdóttlr hismóðir: Nei, frekar litið. Ég bý úti á landi og maður fær aldrei blöðin fyrr en allt er um garð gengið. Þorláknr Kolbeiassoa, bóadi austur i ölfusi: Já, töluvert. Ég hef alltaf gert það eftir því sem ég hef getað. Stefán Ólafseoa bóadi: Já, já. Ég hef alltaf gert það. Tek samt ekki þátt I pólitisku starfi. Guðflnna Karisdóttlr afgreiðalumaður: Svolitið. Ég veit svona hvað er að gerast. Maður verður að fylgjast með því sem verið er að gera. Lárus Haulusoa húsgagnasmiður: Það er nú Htið. Það er svona rétt að maður fylgist með stjórnarskiptum. Maður er búinn að fá leið á þessum köllum.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.