Dagblaðið - 20.01.1981, Page 5

Dagblaðið - 20.01.1981, Page 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1981. 5 ............ ............ “\ Þorbjöm Broddason lektor: Vantraustsyfir- lýsing á stjóm- arandstöðuna „Það er umtalsvert að sömu að- ferð er beitt á nokkurra mánaða millibili og sú breyting sem þar verður á sýnir að fylgi ríkisstjórnar- innar er meira en það var. Þó alltaf séu einhverjir ágallar á svona könnun gefur hún vísbendingu um vaxandi fylgi. Hvað veldur því er hins vegar ekki gott að segja um. Þessi könnun er gerð skömmu eftir efnahags- ráðstafanir ríkisstjórnarinnar og um svipað leyti og sjónvarpsþáttur var með fulltrúum flokkanna. Það verður að segjast eins og er að stjórnarandstaðan kom ekki sterk úr þeim þætti,” sagði Þorbjörn Broddason lektor. „Þá er einnig ný mynt tekin í notkun og má kannski tengja það þessari útkomu þó gjaldmiðilsbreyt- ingin sé ekki bara þessari stjórn að þakka heldur hafi verið til umræðu lengi. Þessi útkoma er vantraustsyfir- lýsing á stjórnarandstöðuna þar sem sá þriðjungur sem ekki tjáir sig í könnuninni í september virðist vera kominn yfir á stjórnina núna. Þá virðist fólki vera auðveldara að tjá Þorbjðm Broddason lektor: Ef til vill má tengja gjaldmiðilsbreytinguna við þessaútkomu. hug sinn núna, þegar aðgerðirnar eru í fersku minni, og eftir því sem hlut- fallið er hærra í könnuninni því marktækari er hún,” sagði Þorbjörn Broddason. -ELA. Kristinn G. Jóhannsson ritstjóri íslendings á Akureyri: Ríkisstjómin ræðurekki við drauginn „Ríkisstjórnin er búin að rugla fólk gersamlega 1 riminu með talna- leikjum sínum og baráttu við vind- myllur sem hún býr til sjálf,” sagði Kristinn G. Jóhannsson ritstjóri Islendings, málgagns sjálfstæðis- manna á Norðurlandi. „Stjórnarandstaðan benti á í fyrra að verðbólga árið 1981 yrði 70—80% með óbreyttri stjórnarstefnu. Því neitaði rikisstjórnin þá en tileinkaði sér svo málflutning stjórnarandstöð- unnar og segir núna að verðbólgan Svanur Kristjúnsson: Ekld viss um að alllr sem lýsa sig fylgjandi ríkisstjórn- inni séu ánægðir með hana. Kristinn G. Jóhannsson: Glámur verður ofan á þegar upp er staðið. verði 40% i stað 70—80% vegna efnahagsaðgerðanna, og það þrátt fyrir að viðurkennt sé að verðbólgan verði að minnsta kosti 50% á árinu! Ríkisstjórnin hefur magnað upp draug sem hún ekki ræður við en segist ætla að gera hann viðráðan- legri með því að spá í fortíðina. Mig uggir að Glámur verði ofan á þegar upperstaðið.” -ARH. ATLI RUNAR HALLDÓRSSON er að minnast átakanna í Alþýðu- flokknum í tengslum við flokksþing hans. Það má líta svo á að úrslitin sýni ekki sízt vantrú á Geirsarm Sjálf- stæðisflokksins og Alþýðuflokkinn. Mest á óvart kemur að ekki skuli fleiri telja sig óákveðna í afstöðu til ríkisstjórnarinnar,” sagði Svanur Kristjánsson. -ARH. Setuverkfall í Hagaskóla: Ekki nógu þroskuð til að sjá Pæld’íðí? Mikil reiði gagntók 9. bekkinga í Hagaskóla í gær er þeim var tjáð að 7. bekkingum (sem eru 13 ára) yrði ekki leyft að sjá sýningu Alþýðuleikhússins, Pæld’lðí, sem verður í skólanum á fimmtudag. Nokkrir nemendur 9. bekkjar tóku sig saman og smöluðu nemendum 7. og 8. bekkjar fram á ganga skólans og var haldið setuverk- fall í á annan tíma. Að sögn eins nemandans voru krakkarnir mjög reiðir yfir þessari ákvörðun en skýring- una sagði hann vera að kennararnir teldu 7. bekkinga ekki nógu þroskaða til að sjá leikritið. Nú vona krakkarnir bara að verkfall þeirra hafi haft ein- hvern árangur ogaö7. bekkingar fái að sjá Pæld’iðí eins og 8. og 9. bekkur. -ELA/DB-mynd Bj. Bj. Mótmæli gegn skrefatalningu: „ÞÚSUNDIR” HAFA SKRIF- AÐ UNDIR —söfnunin þó heldur laumuleg Undanfarna mánuði hefur staðið yfir söfnun undirskrifta til þess að mótmæla skrefatalningu símtala á Reykjavíkursvæðinu. Söfnun þessi hefur farið heldur hljótt og forsvars- menn hennar lítt haft sig i frammi. í fyrradag var þó í Velvakanda Morgunblaðsins smáklausa frá ónefndum forsvarsmönnum söfnun- arinnar þar sem gefin voru upp tvö símanúmer. Áhugamenn um söfnun- ina voru beðnir að hafa samband við þessi númer. Dagblaðið hafði samband við annað númerið og leitaði frétta af söfnuninni. Konan sem svaraði taldi þetta lítið fréttamál. Hún sagði þó að söfnunin gengi ágætlega og þegar hefðu safnazt „þúsundir undir- skrifta.” Aðspurð um forgöngumenn söfnunarinnar sagði hún að um væri að ræða nokkrar. konur sem hefðu komið saman til þess að ræða það óréttlæti sem skrefatalning á síma væri. Slíkt kæmi í veg fyrir notkun margraásímanum. Listar þessir liggja frammi í stöku verzlunum og efnalaugum og víðar en þeim hefur ^ekki verið komið skipulega í verzlanir. Ekki liggur fyrir hvenær undirskriftir þessar verða afhentar réttum aðilum. -JH. Fáskrúðsfjörður. Skipu- lagsleysi ísnjó- ruðningi? Fáskrúðsfirðingar eru ekki par ánægðir með að fá vikugamlan póst, eins og gerzt hefur I tvigang að undanförnu. Gætir í þorpinu tals- verðrar óánægju með þá tilhögun hjá Vegagerðinni að ekki skuli rutt á leið- inni frá Fáskrúðsfirði upp á Hérað sömu daga og mjólkurblllinn er á feröinni. Sem stendur er rutt á milli á þriðju- dögum og föstudögum en mjólkur- bíllinn fer þessa leið á mánudögum og fimmtudögum. Á milli þessa lokast leiðin iðulega. í gær féll t.d. niður ferð áætlunarbilsins vegna ófærðar og er það að sjálfsögðu mjög bagalegt fyrir alla flutninga. Tefur þetta fyrir póstsamgöngum. í gær, mánudag, fengum við póst 1 fyrsta skipti í viku og sömu sögu var að segja á mánudaginn var. Tilraunir heimamanna til aö fá samræmdar mjólkurferðir og opnun leiðarinnar hafa ekki borið árangur til þessa. •Ægir, Fáskrúðsfirði.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.