Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 20.01.1981, Qupperneq 6

Dagblaðið - 20.01.1981, Qupperneq 6
6 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1981. Erlent Erlent Erlent Erlent Ný vandamál komu upp í gísladeilunni á sídustu stundu: íranir sögðu brögð vera í tafíi Bandaríkjamanna —Muskie segist þó bjartsýnn á að gíslunum verði skilað ídag Aðstoðarutanríkisráðherra Banda- ríkjanna, Warren Christopher, hitti utanríkisráðherra Alsírs, Mohamed Benyahia, tvivegis í gærkvöldi til þess að leysa úr þeim nýju vandamálum sem skyndilega komu upp á siðustu stundu og þegar ekkert virtist vera því til fyrirstöðu að bandarísku gísl- arnir 52 í Teheran yrðu látnir lausir eftir að hafa verið í haldi i fran í fjór- tán mánuði. Vandamálin sem upp eru komin varða inneignir írana i bandariskum bönkum og segja íranir nú að Bandaríkjamenn hafi á síðustu stundu reynt að beita brögðum til að koma í veg fyrir að þeir þyrftu að skila öllu fénu. Alsírskir embættismenn, sem hafa gegnt hlutverki málamiðlara i deil- unni að undanförnu, hafa staðfest að babb sé komið í bátinn varðandi endanlegt samkomulag írans og Bandaríkjanna. íranir segjast hafa fengið í hend- urnar óvæntan viðauka við sam- komulagið og sé þar um að ræða leynilegt kænskubragð Bandaríkj- anna, sem hljóti að fresta lausn máls- ins. Alsírskir embættismenn reyndu í morgun að finna lausn á þessu nýja vandamáli sem upp er komið. Edmund Muskie, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, viðurkenndi að upp væru komnir nýir erfiðleikar varðandi lausn gíslanna en sagðist gera sér vonir um að hægt yrði að greiða úr þeim áður en Carter forseti lætur af embætti í dag. Talsmenn eins helzta viðskipta- banka Bandaríkjanna neituðu því að bandarísku bankarnir hefðu komið fram með viðauka við samkomulagið varðandi hinar frystu inneignir Irana í bandariskum bönkum, sem átti að skila í skiptum fyrir gíslana. Muskie utanrikisráðherni. Jimmy Carter forseti hefur hætt við fyrirhugaða ferð sína til V-Þýzka- lands til að taka á móti gíslunum þar sem augljóst virðist að honum vinnist Carter forsetl. ekki tími til þess áður en hann lætur af embætti. Ronald Reagan, sem í dag tekur við forsetaembættinu, hefur hins vegar beðið Carter um að Christopher aðstoðarutanrikisráð- herra. taka á móti gíslunum þegar þar að kemur. Ekki þykir ósennilegt að Reagan víki að gislamálinu í ræðu sinni við embættistökuna í dag. Nýjungar í dönskum hegningarlögum: Núerhægtað dæma kvenmenn fyrir nauðgun Dönsk hegningarlaganefnd, sem vinnur að endurskoðun á ákvæðum hegningalaganna um nauðgun, hefur sett fram það álit að einnig beri að refsa konum fyrir nauðgun og önnur skírlífisbrot. Ennfremur leggur nefndin til að ákvæðunum verði breytt þar sem kvennasamtök hafa gagnrýnt gildandi réttarframkvæmd. Hegningarlaga- nefndin kveðst sammála sjónarmiðum kvennasamtakanna. Gagnrýni á gild- andi réttarframkvæmd hefur einkum verið fólgin í því að mildari refsi- ákvæðin hafa verið notuð í stað þeirra ákvæða sem þyngri refsiramma hafa. Walesa þeytist milli ráðamanna — Verkföll vofa yffir í Póllandi Lech Walesa, leiðtogi Einingar, sam- bands hinna sjálfstæðu verkalýðsfélaga í Póllandi, hitti Jozef Pinkowski for- sætisráðherra landsins að máli í gær. Áður hafði hann hitt að máli Wyzinski kardínála, yfirmann kaþólsku kirkj- unnar, og skýrði honum þar frá heim- sókn sinni í páfagarð. Á sama tíma og Walesa hitti forsætisráðherra að máli hótuðu verkamenn í fjórum borgum Póllands verkföllum til að leggja áherzlu á kröfur sinar um fimm daga og fjörutíu stunda vinnuviku en stjórn- völd hafa lýst því yfir, að efnahagur landsins þoli ekki svo stutta vinnuviku. SADAT HROSAR ALEXANDER HAIG Anwar Sadat, forseti Egyptalands, lauk lofsorði á Alexander Haig, verð- andi utanrikisráðherra Bandaríkjanna, í sjónvarpsviðtali í gærkvöld. ,,Ég bind miklar vonir við útnefn- ingu Haigs hershöfðingja. Hann býr yfir herstjórnarlegum hæfileikum og slíkan mann þurfum við til þess að fylgjast með því sem er að gerast i heiminum,” sagði Sadat forseti i við- tali við franska sjónvarpið. Aðspurður kvaðst Sadat ekki óttast að tilraunir Bandaríkjamanna til að vingast við arabísk olíuframleiðsluríki myndu bitna á samskiptum Egypta og Bandaríkjamanna. Þvert á móti kvaðst hann fagna auknu sambandi Banda- ríkjanna og olíuframleiðsluríkja. Anwar Sadat, forseti Egyptalands. / m Alþjóðlegum vitnaleiðslum I máli Svfans Raoul Wallenbergs lauk I Stokkhólmi I siðustu viku. Talið er að hann hafl setið I rússnesku fangelsi allt frá árinu 1945. t lok vitnaleiðslanna var tilkynnt að ákveðið hefði verið að tilnefna hann til friðarverð- launaNóbelsiár. Wallenberg vann mikið starf í þágu gyðinga I siðari heimsstyrjöldinni og er talið að hann hafi forðað 100 þúsund gyðingum frá því að lenda í útrýmingarbúðum nasista. Hann var handtekinn af Rauöa hernum i Búdapest 1945. Nýjar upplýsingar benda til að hann sé enn á lífi I fangabúðum i Sovétrikjunum. Haiggræðir ekki á nýja embættinu Alexander Haig, sem tekur nú við embætti utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, kemur ekki til með að græða á því fjárhagslega. Laun hans munu nefnilega lækka átta eða níu sinnum við starfsskiptin. Árslaun hans verða þó tæplega 400 þúsund nýkróna sem utanríkisráðherra en það hrekkur skammt samanborið við fyrri tekjur hans, sem voru rúmlega þrjár milljónir nýkróna á ári í forstjórastarfi því er hann hefur gegnt.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.