Dagblaðið - 20.01.1981, Page 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1981.
Erlent Erlent Erlent Erlent J
Ronald Reagan 40. forseti Bandaríkjanna tekur við í dag:
Mikill efnahagsvandi
mætir nýja forsetanum
Skiptar skoðanir umy hvort Reagan hafi ráð við vandanum
Ronald Reagan, sem í dag tekur
við embætti forseta Bandaríkjanna,
stendur frammi fyrir einhverjum al-
varlegasta efnahagsvanda sem um
getur nú á dögum og eru skoðanir
sérfræðinga mjög skiptar um hvort
úrræði Reagans séu til þess fallin að
ráða bót á vandanum eða hvort þau
muni einungis auka á erfiðleikana.
Höfuðvandamálið felst í verðbólg-
unni, en hraði hennar er nú um
þrettán prósent. Atvinnuleysi er
einnig mikið, eða um 7,4 prósent og
hæstu bankavextir eru um 20 pró-
sent.
Innfiutningur þjóðarinnar er meiri
en útflutningur, halli er á fjárlögum
þjóðarinnar tólfta árið i röð, bif-
reiðaiðnaðurinn á í gífurlegum erfið-
leikum þar sem eitt stærsta fyrirtæk-
ið, Chrysler, rambar á barmi gjald-
þrots. Stál- og byggingaiðnaður á
einnig í miklum erfiðleikum.
Reagan hefur lýst þvi yfir að aðal-
takmark hans sé að koma lagi á efna-
hagsmálin. Hann hefur heitið því að
stöðva hallann á fjárlögum ríkisins,
lækka skatta, draga úr ríkisútgjöld-
um, auka framleiðslu í iðnaði og út-
gjöld til varnarmála. Ýmsir sér-
fræðingar segja að þessi markmið
hljóti að stangast á. Hann mun leggja
stefnu sína fyrir þingið innan
skamms og á þar hauk í horni því í
fyrsta skipti í 25 ár eru demókratar
ekki í meirihluta í báðum deildum.
Ronald Reagan ásamt fjölskyldu sinni eftir að hafa hlotið útnefningu sem forseta efni Repúblikanaflokksins. Miklir efnahagserflðleikar mæta honum nú er hann
tekur við embætti forseta Bandarikjanna.
Lögreglan í Atlanta í Bandaríkjunum ráðþrota:
Fjöldamorðingi gengur laus
og veldur mikilli sketfingu
—Sextán blökkuböm hafa fallið í valinn
—Sumir telja að morðin megi skrifa á reikning Ku Kux Klan hreyfingarinnar
300 milljónir
vegna
eiturlyfja
Dönsku tryggingafélögin segja að
um 300 milljónir króna af útgjöldum
þeirra á síðasta ári hafi verið vegna
eiturlyfjaneyzlunnar í landinu og af-
leiðinga hennar.
Fjörutíu ára
fangelsi
fyrirflugrán
Tveir Kúbumenn voru í gær dæmdir
í fjörutíu ára fangelsi hvor í Kólumbíu
fyrir að ræna farþegaflugvél frá flug-
félaginu Delta með 115 farþegum og
snúa henni til Kúbu í septembermánuði
síðastliðnum.
Kúbumennirnir tveir, sem báðir eru
26 ára.munuverðaaðsitja tíu ár í fang-
elsi áður en þeir geta vænzt náðunar.
Þeir voru í hópi 120 þúsund Kúbu-
manna sem fluttu til Bandaríkjanna í
innflytjendabylgjunni frá Havana á
siðastliðnu ári.
Járnbrautar-
slysíParís
Einn maður lét lífið og 71 særðist,
þar af þrir rnjög alvarlega, er neðan-
jarðarhraðlest rakst á lest sem stóð kyrr
á brautarstöð undir óperubyggingunni í
miðborg Parísar í gær.
Útgjöld Sovét-
ríkjanna til
hermála
meiri en
Bandaríkjanna
„Sovétríkin eyddu um 50 prósent
meira fjármagni til varnarmála á síð-
astliðnu ári en Bandaríkin og valda-1
ógnun sem Atlantshafsbandalagið
verður að koma til móts við með aukn-
um herstyrk,” sagði Harold Brown,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í
kveðjuræðu til þingsins.
Hann sagði að aðildarlönd Atlants-:
hafsbandalagsins í Evrópu yrðu að
auka framlag sitt til varnarmála.
„Hvorki þingið né bandaríska
þjóðin munu lengi geta borið ósann-
gjarnan hlut af heildarbyrðinni,” sagði
hann. „Við getum ekki gert þetta allt
einir,” sagði Harold Brown.
Fjöldamorðingi, sem valdið hefur
mikilli skelfingu meðal íbúa í Atlanta í
Bandaríkjunum, gengur enn laus þrátt
'fyrir mikla leit lögreglu og sjálfboða-
| liða. Fórnarlömb morðingjans eru
blökkubörn á aldrinum sjö til fimmtán
; ára. Sextán börn hafa horfið á síðustu
i átján mánuðum. Ellefu hafa fundizt
myrt og fyrir stuttu fundust beina-
grindur tveggja í viðbót.
Mikil hræðsla hefur gripið um sig
meðal blökkumanna í Atlanta. For-
eldrar þora ekki að hleypa börnum
sínum út af ótta við að sömu örlög
kunni að bíða þeirra. Margir þekktir
lögreglumenn í Bandarikjunum að-
stoða lögregluna í Atlanta við ’að upp-
lýsa morðmál þessi.
Ekkert er sammerkt með morðunum
annað en að fórnarlömbin eru svört
börn í öllum tilfellum. Aðferðirnar við
morðin eru margvíslegar. Lögreglan
gengur þó út frá því að um einn fjölda-
morðingja sé að ræða þó ekkert sé
hægt um það að fullyrða.
Ýmsir blökkumenn hafa látið í ljós
þá skoðun að morð þessi megi skrifa á
reikning hægri sinnaöra öfgasamtaka
eins og Ku Kux Klan en slíkar hreyf-
ingar hafa látið til sin taka í auknum
mæli að undanförnu og framið ýmis
óhæfuverk.
Lögreglan virðist þó ekki taka undir
þau sjónarmið enda eru blökkumenn
mjög óánægðir með frammistöðu
hennar í málinu.
D’Urso dómari á blaðamannafundi:
Var bundinn við rúm
í tjaldi inni í íbúð
Dómarinn Giovanni d’Urso, sem í
síðustu viku var látinn laus úr haldi
Rauðu herdeildanna á Italíu, sagði á
blaðamannafundi um helgina að
traust hans til ítalska ríkisins hefði
ekki horfið vegna 34 daga vistar hans
hjá hryðjuverkasamtökunum.
Á blaðamannafundi þessum kom
d’Urso í fyrsta sinn fram opinberlega
eftir að hann fannst bundinn og
keflaður í bifreið í Róm síðastliðinn
fimmtudagsmorgunn. Um 200blaða-
menn sóttu fundinn sem d’Urso
boðaði til.
D’Urso, sem enn er í yfirheyrslum
hjá lögreglunni, neitaði að sgja
blaðamönnum frá smáatriðum
varðandi „alþýðufangelsið” sem
hann dvaldi í eða frá ræningjum
hans.
Dómarinn d’Urso, sem var mjög
þreytulegur sagði að trú hans á Guð
og innri styrkur hans hefðu hjálpað
sér til að lifa fangelsisvistina af.
Samkvæmt þeirri lýsingu sem
d’Urso gaf lögreglunni eftir að hann
var látinn laus var hann bundinn við
rúm inni í tjaldi, sem komið var fyrir
inni í miðri íbúð meðan á fangavist
hans stóð.
Tjaldið var það stórt, að hann gat
staðið uppréttur en þar var hvorki út-
varp né sjónvarp. Tónlist var leikin í
herberginu nær látlaust til þess að
koma í veg fyrir að hann gæti áttað
sig á staðsetningu hússins út frá utan-
aðkomandi hljóðum.
Lögreglan hefur handtekið náms-
mann í sambandi við ránið á d’Urso
dómara og víðtæk leit fer enn fram
að „fangelsinu” þar sem d’Urso var í
haldi.
D’Urso dómari var mjög þreytulegur á blaðamannafundinum og neitaði að ræða
mörg þau atriði sem hann var spurður um.