Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 20.01.1981, Qupperneq 8

Dagblaðið - 20.01.1981, Qupperneq 8
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1981. 8 Erlent Erlent Erlent Erlent I Framvarp í danska þinginu um aukið valdsvið f íknief nalögreglunnar og herta baráttu gegn eiturlyf janeyzlunni í landinu: „EG SKAL HAFA UPP Á ÞEIM SEM GÁFU ÞÉR SÍDUSTU SPRAUTUNA” sagði móðir f yrsta f órnarlambs eiturlyfjaneyzlunnar í Danmörku á þessu ári við útför sonar síns „Ég heiti því, Poul Erik, jafnvel þó það verði það síðasta sem ég geri að ég skal hafa upp á þeim, sem gáfu þér síðustu sprautuna. . . ” Það hafði mikil áhrif á kirkjugesti í litlu kapellunni í Álborg Almen Kirkegárd, þegar hin 55 ára gamla móðir, Jenny Nielsen, stóð upp úr sæti sínu og gekk ákveðin að fallega blómum skreyttri kistu, sem hafði að geyma lík sonar hennar. Poul Erik, kallaður Polle af vinum sínum, 26 ára gamall, var fyrsta fórnarlamb eiturlyfjaneyzlunnar í Danmörku á þessu ári. Árlega deyr mikill fjöldi danskra ungmenna af völdum eiturlyfjaneyzlu og standa stjórnvöld nánast ráðþrota frammi fyrir þeim vanda. Jafnvel þó það kosti mig lífið ,,Ég tók þessa biblíu með mér, Poul Erik, sem þú hafðir svo oft með þér þegar þú komst til mín. Ég sver við þessa biblíu að ég skal hafa upp á þeim sem komu þér út i eitulyfjavítið, jafnvel þó það kosti mig lífið. . . ” Móðirin Jenny Nielsen, sem rekur smurbrauðsstofu, hefur heitið því að ráðast til atlögu gegn eiturlyfja- hringnum. Hjá syni sínum, sem nú er látinn, hafði hún fengið vitneskju um nöfn nokkurra þeirra aðila, sem græða stórfé á því að selja eiturlyfja- hungruðum unglingum eitur. Þessir aðilar eru sjálfir ekki eiturlyfjaneyt- endur heldur notfæra þeir sér ein- ungis neyð unglinganna til að græða á. Móðirin hefur nöfn eiturlyfjasalanna Þessum mönnum ætlar Jenny Nielsen sér nú að hafa upp á með aðstoð lögreglunnar. Henni er ljóst að það er kaldrifjaður flokkur manna sem hún hyggst nú leggja til atlögu við til þess að hefna sonar síns. Þess vegna hefur hún skrifað nöfnin niður og geymir pappírana hjá góðum vinum í öryggisskyni þar til hún fer á fund lögreglunnar. Hún segir að það verði ekki fyrr en hún hefur jafnað sig eftir hinn skyndilega dauöa sonar síns og athugað vel sinn gang. „Poul Erik hafði verið í „niður- talningarmeðferð” i átta mánuði hjá Hvítasunnusöfnuðinum í Kibæk. Eitrið var farið úr líkama hans þegar hann kom heim í jólafrí og lét telja sig á að fá eitt „skott”, ” segir móðir hans. Hann fékk of stóran skammt af heróíni. Líkami hans, sem heita mátti laus við eitrið, hefði jafnvel ekki þolað venjulegan skammt. Hugsan- legt er einnig að eitthvert sterkara efni hafi verið blandaö saman við heróínið í þeirri sprautu, sem varð hans síðasta. Á valdi eiturlyfja í tíu ár Jenny Nielsen viðurkennir að son- ur hennar hafi verið á valdi eiturlyfja síðastliðin tíu ár. Við kistu sonar síns notaði hún tækifærið og hvatti for- eldra til að vera vakandi gagnvart eiturlyfjavandanum: „Óskandi að foreldrar gerðu sér grein fyrir því að þeir verða að stöðva börn sin í tæka tíð. Þau mega aldrei byrja, ekki einu sinni fá sér hasspípu til gamans. Það er nefnilega ekki langur vegur þaðan að sprautunni og þá er heldur ekki langt í síðustu stunguna,” sagði hún. Af tilliti til sonar síns hafði Jenny Nielsen aðeins geymt þessi nöfn með sjálfum sér og ekki sagt neinum frá þeim. Nú þegar sonur hennar hefur fengið hvíldina vill hún ekki þegja lengur og hyggur á hefndir. Lögreglan upplýsir stórt eiturlyfjamál En jafnvel án hjálpar Jenny Niel- sen hefur fikniefnalögreglunni í Ála- borg orðið talsvert ágengt og er komin langleiðina með að upplýsa eitt stærsta eiturlyfjamál sem upp hefur komið á Norður-Jótlandi. „Við höfum á síðústu mánuðum fengið fimmtán menn dæmda í hálfs árs til tveggja ára fangelsi fyrir eitur- lyfjaverzlun,” segir aðstoðarrann- sóknarlögreglustjórinn í Álaborg, Vagn Kristensen. Auk þess hefur lögreglan nýverið handtekið fimm menn og hafið yfir- heyrslur yfir vegna meintra tengsla við stóra eiturlyfjamálið á Norður- Jótlandi. Þeim er meðal annars gefið að sök að hafa smyglað miklu magni af hreinu heróíni frá Amsterdam, sem lengi hefur verið sölumiðstöð fyrir eiturlyfjaverzlun í Evrópu. „Eg skal hafa upp á þeim, sem gáfu þér sprautuna,” segir móðir fyrsta fórnarlambs eiturlyfjaneyzlunnar 1 Danmörku á þessu ári. Frumvarp um auk- inn stuðning við fíkniefnalögregluna Ekstra bladet danska hefur undan- farnar vikur haldið uppi mikilli áróðursherferð gegn fíkniefna- og eiturlyfjaneyzlu, sem er hvort tveggja komið á það stig í Danmörku, að stjórnvöld landsins virðast ekki fá við neitt ráðið. í síðastliðinni viku birti blaðið til dæmis viðtal við þingmann- inn Birgith Mogensen, sem hefur ásamt Niels Bolmann lagt fram frum- varp í danska þjóðþinginu um aukinn stuðning við baráttuna gegn eitur- lyfjaneyzlu og meðferð ungra eitur- lyfjasjúklinga. í álitsgerð með frumvarpinu segir Birgith ■ Mogensen meðal annars: „Það er sannfæring mín að fíkni- efnalöggæzlan yrði mun árangursrík- ari ef við kæmum til móts við óskir hennar um auknar rannsóknar- heimildir. Til dæmis ætti að leiða i lög að fólk, bréf og vörusendingar, sem koma frá þeim löndum og sölu- miðstöðvum sem við vitum að eitur- lyfin koma einkum frá, yrðu rann- sökuð á mun nákvæmari hátt en hingað til hefur verið gert. Ótakmörkuð símahlerun Ótakmörkuð símahlerun ætti líka að vera sjálfsögð. f stuttu máli sagt: Fíkniefnalögreglan þarf að vera þannig í stakk búin að hún geti tekizt á við þau mál sem upp koma áður en fuglinn er floginn úr hreiðrinu. Lögreglan hefur einnig mjög brýna þörf fyrir aukinn mannafla,” segir Birgith Mogensen. Um fyrirbyggjandi starf segir meðal annars í álitsgerðinni: „Fyrir- byggjandi starf gegn eiturlyfjaneyzl- unni þarf að hafa í hávegum. Árið 1980 komu i ljós dæmi um eiturlyfja- neyzlu meðal ellefu og tólf ára barna. Alla skóla landsins ætti að skylda til að fræða nemendur þegar í 3..og 4. bekk grunnskólans um skaðsemi vímugjafa og þá sérstaklega um þann óhugnað og dauða sem eiturlyfja- neyzla hefur í för með sér.” „Engu að tapa" Þá leggur Birgith Mogensen til að á næstu tveimur árum verði byggt upp lækninga- og endurhæfingarkerfi er nái til alls landsins. Innan þess kerfis verði fjörutíu göngudeildir sem hafi hver um sig rúm fyrir 25—50 eitur- lyfjasjúklinga. „Við skulum innleiða þessa endur- bót í baráttunni gegn eiturlyfjaneyzlu eins fljótt og mögulegt er. Við höfum engu að tapa en allt að vinna,” segir Birgith Mogensen, sem sjálf á son sem er eiturlyfjasjúklingur. (Ekstra bladet) Hcróinneyzla hefur færzt mjög i vöxt f Danmörku að undanförnu. Ekstra bladet danska hefur að uadanförnu staðið fyrir mikilli herferð gegn eiturlyfjaneyzlunni I Danmörku undir kjörorðinu: „Vi. anklager” (Við ákærum). Viðtal blaðsins við Birgith Mogensen þing- mann er liður í þeirri herferð. Mogensen þekkir vandamálið náið þvf sonur hennar var eiturlyfjasjúklingur.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.