Dagblaðið - 20.01.1981, Síða 11

Dagblaðið - 20.01.1981, Síða 11
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1981. 11 Katrfn VÉ á strandstað skðmmu áður en tókst að koma taug yfir 1 hana úr Þórunni Sveinsdóttur DB-myndir Einar Ólason. Tókst að draga Katrínu á flot sex skipverjuni var bjargað í land Vestmannaeyjabáturinn Katrín var dreginn á flot úr fjörunni við Nýja- Ós vestast á Skeiðarársandi. Það tókst að koma taug á milli bátsins og Þór- unnar Sveinsdóttur VE. Hins vegar gekk það ekki með varðskipið Tý, sem einnnig var á strandstað, þar eð það strandaði við Nýja-Ós í gærmorgun. Báturinn var á netaveiðum er óhappið varð, Næsti bátur, Þórunn Sveins- dóttir, kom þegar að strandstaðnum, svo og varðskipið Týr. Björgunarsveit- in á Klaustri brauzt í skafrenningi og kulda niður í fjöruna og einnig voru björgunarmenn frá Keflavíkurflug- velli í viðbragðsstöðu. Það var um klukkan hálfsex sem Katrín var dregin á flot. Þá voru norðan sex til sjö vindstig á strand- staðnum og mikill skafrenningur á Skeiðarársandi. -ÁT- N Norðan sex til sjö vindstig voru á strandstaónum er taug var látin reka frá Katrfnu yfir i Þórunni Sveinsdóttur með gúmbjörgunarbát. 1 fyrstu tilraun tókst siðan að draga bátinn á flot. Fremst á myndinni eru björgunarsveitarmenn frá Kirkjubæjar- klaustri, þá kemur Katrfn, Þórunn Sveinsdóttir og yzt er varðskipið Týr. Mikið brim var á strandstaðnum er blaðamaður og Ijósmyndari Dagblaðsins flugu yflr. Svona litu aðstæður út úr 500 feta hæð. JnEWLErr^ packard hewlett Jip^ PACKARD HEWLETTPACKARD HEWLETT ihfL PACKARD HEWLETT ^PACKARD^ Einkaumboð á Islandi fyrir vasa- og borðtölvur — Upplýsingar, sala, þjónusta STALTÆKI, Bankastrætis simi 27510 I

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.