Dagblaðið - 20.01.1981, Síða 12

Dagblaðið - 20.01.1981, Síða 12
12 í BIABIB frjálsi, úháð dagblað Útgefandi: Dagblaðið hf. M “ Framkvœmdaatjóri: Sveinn R. EyjóHsson. Ritstjóri: Jónas Kristjónsson. Aðstoðarritstjórí: Haukur Helgason. Fréttastjórí: Ómar Valdimarsson. Skrífstofustjórí rítstjóman Jóhannos Reykdal. íþróttir Hallur Simonarson. Menning: Aðalsteinn IngóMsson. Aðstoðarfróttastjóri: Jónas Haraldsson. Handrít Ásgrímur Pólsson. Hönnun: HUmar Karísson. Blaðamenn: Anna Bjamason, Atli Rúnar Halldórsson, Adi Steinarsson, Ásgeir Tómasson, Bragi Sig- urðsson, Dóra Stefánsdóttir, EBn Albertsdóttir, Gisli Svan Einarsson, Gunnlaugur A. Jónsson, Inga Huld Hákonardóttir, Kristján Már Unnarsson, Sigurður Sverrisson. Ljósmyndir: Bja> tleifu. Bjamleifsson, Einar Ólason, Ragnar Th. Sigurðsson, Sigurður Þorri Sigurðsson og Svainn Þormóðsson. Skrífstofustjórí: Ólafur EyjóHsson. Gjaldkeri: Þráinn ÞoríeHsson. Auglýsingastjóri: Már E.M. Halldórs- son. DreHingarstjóri: Valgerður H. Sveinsdóttir. Ritstjóm: Siðumúla 12. Afgreiðsla, áskríftadeikf, liugtýsingar og skrífstofur Þverholti 11. Aðatoimi blaðsins er 27022 (10 Hnur). Setning og umbrot Dagblaðið hf., Siðumúla 12. Mynda- og plötugerð: Hilmir hf., Siðumúla 12. Prentun: Árvakur hf., Skeifunni 10. ÁskrHtarverð á mánuði kr. 70,00. Verð i lausasölu kr. 4,00. Óheyrilegt fylgi Engar fræðilegar skýringar duga á eindregnum og nánast blindum stuðningi kjósenda við ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen. Staðreyndin blasir bara við eins og hvert annað náttúrufyrirbæri, jafn óhagganlegt og það er óskiljanlegt. Ekki er nóg með, að ríkisstjórnin sé vinsæl, heldur fara vinsældir hennar þar á ofan vaxandi. Fylgi hennar hefur síðan í haust aukizt úr 41% í 62% meðal kjós- enda almennt og úr 61% í 75% þeirra, sem afstöðu taka. Niðurstöður skoðanakönnunar Dagblaðsins verða ekki heldur skýrðar með því að benda á hina óákveðnu. Þeir eru nefnilega furðu fáir að þessu sinni, aðeins 18% hinna spurðu. Svo lág hlutfallstala er einkar sjaldgæf. Freistandi væri að telja þennan hóp fela í sér þann helming kjósenda Sjálfstæðisflokksins, sem ekki hefur tekið trú á Gunnar Thoroddsen — og gera jafnframt ráð fyrir að hinn helmingurinn styðji ríkisstjórnina! Við það mundi auðvitað vakna spurning um, hvar sé flokksbrot Geirs Hallgrímssonar. Finnst það tæpast útan þingflokks og miðstjórnar? Væri þá komin sú flokksforusta veraldarsögunnar, sem mest er utan gátta. Þessar hugleiðingar eru auðvitað ótímabærar, enda kannski meira settar fram í gamni en alvöru. Framhjá því verður þó ekki gengið, að niðurstaða skoðana- könnunarinnar er verulegt áfall fyrir forustu Sjálf- stæðisflokksins. Haldið hefur verið fram, að áramótaaðgerðirnar í efnahagsmálum hafi aukið veg ríkisstjórnarinnar. Á þeirri kenningu er þó sá hængur, að ráðstafanir þessar njóta töluvert minna fylgis en ríkisstjórnin nýtur sjálf. Meðan tveir þriðju kjósenda styðja efnahags- aðgerðirnar, styðja þrír fjórðu þeirra ríkisstjórnina. Sennilega felst mismunurinn einkum í kjósendum á vinstri væng, sem styðja stjórnina almennt, en eru hlutlausir gagnvart aðgerðunum. Ef ráðstafanaþáttur og ríkisstjórnarþáttur könnunar Dagblaðsins eru bornir saman, kemur í ljós, að eðli- legast er að telja þá, sem efast um aðgerðirnar, vera fremur á vinstri væng stjórnmálanna en hinum hægri. Þetta merkilega samhengi stingur í stúf við þá fullyrðingu Þorsteins Pálssonar hjá vinnuveitendum, að kjósendur hafi í könnuninni játað aðgerðunum ,,upp við vegg” Hann er þar svo utan gátta, að hann gæti þess vegna tekið við af Geir! Markverðari eru þau ummæli Kjartans Jóhanns- sonar, formanns Alþýðuflokksins, að könnunin sýni ,,allt of mikið fylgi við allt of lélega ríkisstjórn”. í orðum hans felst nokkur sannleikur, þótt þau séu öðrum þræði sjálfvirk stjórnarandstaða. Sannleikurinn er nefnilega sá, að engin ríkisstjórn er svo góð, að hún eigi skilið stuðning þriggja kjósenda af hverjum fjórum. Þvílík einstefna er ríkisstjórn og kjósendum tæpast holl til lengdar. En kjósendur höfðu orðið. Þeir telja ríkisstjórnina vera betri en hinar næstu þar á undan og búast ekki við betri ríkisstjórn á eftir þessari. Þeir telja hana vera að reyna að stjórna. Og þeir sjá á henni fleiri bjartar hliðar en dökkar. Þetta er það, sem lesa má úr ummælum þeirra, sem spurðir voru í skoðanakönnun Dagblaðsins. Og í um- mælunum felast vafalaust merkari tíðindi en í hug- leiðingu þessa blaðs og annarra um hina makalaust vinsælu ríkisstjórn. DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1981. M " .............................. MIKILVÆGUR ÁFANGI Engum blandast hugur um, að við stefndum inn í óðaverðbólgu á árinu 1981, væri ekkert að gert. Að visu greindi reiknimeistarana nokkuð á um, hversu mikil verðbólgan yrði, en algengasta matið var milli 70 og 80 prósent. Það var því engum blöðum um það að fletta, að grípa varð inn í þróun mála. Samkvæmt skoðanakönnun Dag- blaðsins njóta þær aðgerðir, sem ríkisstjórnin greip til, mikils stuðn- ings meðal þjóðarinnar. Þessar að- gerðir lækka verðbólguna úr 70— 80% niður í um 50%. Flestir, sem spurðir voru, voru sammála yfirlýs- ingum ráðherra Framsóknarflokks- ins um að aðgerðirnar væru mikil- vægt skref, en meira þyrfti að koma á eftir, ef nægilegur árangur ætti að nást áárínu. V-100 aðferðin Eftir miklar umræður urðu stjórn- arflokkarnir sammála um áramóta- aðgerðirnar. Aðgerðirnar saman- standa af mörgum þáttum. Einn þeirra er sá, að setja framfærsluvísi- töluna 100 um áramótin um leið og nýja krónan tók gildi. Umbúðalaust þýðir þetta, að hækkanir fram- færsluvísitölu, frá því hún var reikn- uð síðast í byrjun nóvember til ára- móta, reiknast ekki inn í verðbætur launa 1. mars nk. Hámark er þó sett á þá skerðingu launa, sem þannig verður, þ.e. að skerðing verði ekki meiri en 7%. Launaskerðingin er síðan bætt með ýmsum hætti þannig að kaup- máttur meðallauna og lægri launa verði nokkurn veginn sá sami og orðið hefði, ef ekki hefði verið gripið til aðgerða. Vörn kaupmáttar felst í eftirfar- andi atriðum: 1) Skattar verða lækkaðir. ' ........... 2) SkerðingarákvæðiÓlafslaga.nema ákvæði um vín og tóbak, falla út á laun 7.250 nýkr. á mánuði og lægrí laun þrjá útreiknings- punkta, þ.e. 1. júni, 1. sept. og 1. des. 3) Lægri verðbólga veldur minni kaupmáttarrýrnun milli útborg- ana verðbóta. Með þessum aðgerðum gera stjórn- völd sér vonir um að verja megi kaupmátt lægri launa. Auðvitað er það aðalatriðið að verja kaupmátt eftir því sem unnt er. Fleiri útborgað- ar krónur eða einhvers konar útreikn- ingsreglur verðbóta skipta minna máli og eru fremur formsatriði. Um þetta er annars það að segja, að Þjóðhagstofnun telur, að kaup- máttur verði um 1 1/2% lægri að meðaltali á árinu en orðið hefði, ef ekki hefði verið gripið til aðgerða. Mat ofantalinna þriggja atriða gæti verið: 1) Skattalækkun verður fram- kvæmd, sem nemur um 1 1/2% í verðbótum launa. 2) Ekkieralvegeinfaltaðmetaþetta bráðabirgðaafnám skerðingar- reglna. Fordæmi fyrir þessari að- ferð er frá setningu Ólafslaga, en þá voru bráðabirgðaákvæði um að skerðingarákvæði næðu ekki til lægstu launa í fyrstu. Við þessar aðgerðir þótti eðlilegt að gripa aftur til slíkra bráðabirgða- ákvæða. Skerðingarákvæðin, sem falla út, eru ákvæði um viðskiptakjaravisitölu og launalið bóndans. Menn greinir nokkuð á um, hvernig ákvæðið um viðskiptakjör muni virka síðari hluta ársins. Sumir telja að viðskiptakjör kunni að bama, er líður á árið, en aðrir að þau muni verða þvi sem næst óbreytt. Líkur eru því til, að þetta ákvæði muni ekki hafa mikil áhrif á verðbætur launa á þessu tímabili. Líklegt er hins vegar, að launaliður bónda muni hækka verðbætur launa um 0,5% á hverjum útreikningspunkti, þ.e. 1. júní, 1. sept.og l.des. Þær raddir heyrast, að eftirgjöf á skerðingarákvæðunum, þó til bráða- birgða sé, sé spor aftur á bak. Þeir hinir sömu telja að þessi ákvæði séu það skásta, sem gert hafi verið i vísi- tölumálum á undanförnum árum. Sjálfsagt má færa að því margvísleg rök. Ég hefi hins vegar ekki farið dult með þá skoðun mína, að ákvæði í lögum um verðbætur launa á þennan hátt séu óæskileg. Að mínu mati er ekki unnt að verja lífskjðr í landinu með lögum án tillits til helstu efna- hagsstærða. Hversu fegnir sem við vildum, þá gengur það einfaldlega ekki upp. Eðlilegra er, að verðbóta- ákvæðin séu samningsatriði í kjara- samningum. 3) Aðgerðirnar eiga að færa verð- bólgu úr 70—80% í um 50%. Af því er augljós hagur fyrir alla. Gengissigi hætt um áramót í efnahagsáætlun ríkisstjórnarinn- ar segir, að gengissigi verði hætt um áramót og gengi haldið stöðugu næstu mánuði. Á undanförnum árum hefur ríkt sú stefna að láta gengi íslensku krón- unnar fljóta. Krónan hefur því sigið meira eða minna í hverri viku eftir aðstæðum. Margir hagfræðingar eru þeirrar skoðunar, að í óðaverðbólgu, eins og er hér á landi, auki gengissigið á óreiðu í verðlagsmálum. Stöðug breyting gengis veldur sifelldum breytingum á verðlagi og stóreykur vinnu við verðútreikninga í verslun- um, heildsölum, bönkum o.s.frv. Jafnframt ruglar gengissigið þann- ig verðskyn almennings enn meira og erekkiábætandi. KJARAMAL Eins og vant er eru launamálin i brennidepli þessa dagana. Kannski meira en venjulega vegna bráða- birgðalaganna J’að má þó segja aðum þau hafi verið meiri kyrrð en venja er undir svipuðum kringumstæðum. Ein ástæðan er sú að allir bjuggust við einhverju. Sú baktería er landlæg i stjórnarráðinu hver sem þar situr að krukka í kjarasamninga. Það sem gerir gæfumuninn er að nú er a.m.k. tæpt á ýmsum loforðum sem eiga að koma almenningi að gagni og fólk vill staldra við og sjá hvað setur. Af því tókum við fyrst og fremst mið í A. S. f. og engu öðru. Við lifum í mannlegu samfélagi en ekki í einangruðum hópum sem ekkert vita utan sinna vébanda. Við vitum að vaxtaokrið er að sliga það fólk sem er að reyna að eignast þak yfir höfuðið, einkum unga fólkið, það stritar meira en það þolir. Skatturinn hirðir arðinn, heimili sundrast og upplausn og óhamingja fylgja á eftir. Það er hörmulegt til þess að vita að nýkratarnir skuli vera höfundar að hávaxtastefnunni og verja hana enn 1 líf og blóð. Verður lausaskuldum þeirra sem eru að berj- ast við botnlausar skuldir breytt í föst lán fyrir 1. marz? Og þá ekki síður, verður það gert af viti þ.e.a.s. miðað við hæfilegt húsnæði en ekki hallir? Verður bætt um í atvinnuleysis- tryggingarsjóði, þannig að þeim sem eru svo ógæfusamir að verða at- vinnulausir sé mögulegt að lifa af þvi sem þeir fá? Við búum ekki við atvinnuleysi og þó, tímabundið sums staðar, og eldra fólk sem missir vinnu á í erfiðleikum með að fá annað starf. Við búum við hróplega ranglátt Iífeyrissjóðakerfi. Verður farið í að leiðrétta það? Og ekki síst, hvað með gamia fólkið sem er orðið ósjálf- bjarga? Á að gera eitthvað til að þvo af okkur þá smán sem meðferðin á því er? Þar þurfa margir að leggjast á eitt ef vel á að takast. Margt fleira mætti nefna en ég læt staðar numið. Á meðan ég skrifa þessa grein les ég viðtal sem Tíminn á við Bjarnfríði Leósdóttur. Þar segir: „Hvaða eðlis- munur er á því hvort það er hægri stjórn eða vinstri sem lækkar visi- tölubætur”. Dagana 8. og 9. des. 1978 var haldinn sambandsstjórnar- fundur A.S.Í. Þar var samþykkt ályktun um 5% vísitöluskerðingu þá- verandi „vinstri” stjórnar.' Þar segir orðrétt: „Þó aðgerðir ríkisstjórnar- innar í september og aftur nú i desember séu bráðabirgðaúrræði en ekki varanleg Iausn á þeim efnahags- vanda sem við er að etja, lýsir sam- bandsstjórnarfundur A.S.I. skilningi sínum á nauðsyn aðgerðanna.” í umræðum um þessa tillögu segist Bjarnfríður samkvæmt fundargerð gera mikinn greinarmun á þessari rikisstjórn og þeirri sem var á undan og vænta mikils af henni. f þessari stjórn hefði fagleg og pólitísk verka- lýðshreyfing náð saman. Hún sagði að verkalýðshreyfingin bæri ábyrgði á ríkisstjórninni svo sem vera bærí og það ætti að duga svo henni yrði langra lífdaga auðið ,,en ýta verður á að pakkinn verði framkvæmdur”. (tilvitnun lýkur). Já, þetta var nú þá, það var nú samt sú stjórn sem kom á vaxtahækkun og skerðingu á verð- bótavísitölu. Er ekki best að hver ríkisstjórn dæmi sig af verkum sinum og þessi líka? Ef á að tala um stjórnarandstöðu í A.S.Í. eru það vist kratarnir. Á mið- stjórnarfundi fluttu þeir enga tillögu sem þeir orðuðu sjálfir. Karl Steinar 0 „Það sem gerir gæfumuninn er, að nú er að minnsta kosti tæpt á ýmsum loforðum, sem eiga að koma almenningi að gagni, og fólk vill staldra við og sjá, hvað setur.”

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.