Dagblaðið - 20.01.1981, Síða 13

Dagblaðið - 20.01.1981, Síða 13
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1981. Kjallarinn GuðmundurG. Því er þess freistaö hér aö stöðva gengissigið einhvern tfma, en af því leiðir að fella verður gengið upp á gamla mátann með einhverju milli- bili. Að sjálfsögðu er ekki unnt að halda gengi islensku krónunnar föstu. Þrátt fyrir þessar efnahagsað- gerðir er áætlað að verðbólgan hér verði um 50% frá upphafi til loka árs. Það þýðir að veröbólgan hér verður 34—36% hærri en verðbólga f helstu viðskiptalöndum okkar. Við slíkar aðstæður fellur Islenska krón- an. Við því er ekkert að gera, þó hækkun á útflutningsafurðum okkar og aukin framleiðni gætu eitthvað bætt úr. Hér er einungis þess freistað að breyta um aðferð, hverfa frá gengissigsstefnunni i von um að það auðveldi lækninguna. Ailt tal um fölsun gengis er út 1 hött ( þessu sam- bandi, Auðvitað veldur itiiklu í þessu sam- bandi hvernig til tekst með fiskverðs- ákvörðun núna í janúar. Sjómenn og útgerð knýja fram bættan hag sinn, með hærra fiskverði. Fiskvinnslan er hins vegar bundin af verðlagi á er- lendum mörkuðum. Hækki verðlag fisks innanlands verulega, er ekki unnt að bæta stöðu fiskvinnslunnar nema með gengisbreytingu, að hún fái fleiri islenskar krónur fyrir erlendu myntina til þess að standa undir kostnaðarauka. Þarna Uggur einn aflhvati hring- rásarinnar. Knúin er fram hækkun fiskverðs, sem ekki er unnt að mæta nema með gengisbreytingu. Gengis- breytingin fer síðan út i verðlagið og framkallar kröfu um hærra fiskverð vegna þess að verðlagshækkunin, sem hún veldur, rýrir hag sjómanna og útgerðar. Reyndar er málið flóknara en þetta og spurningin um orsök og afleiðingu er erfið viðfangs. Því er eðlilegt að menn spyrji, gæti einhvers konar tak- mörkuð, tímabundin millifærsla dregið úr hraðanum? Af nnillif œrslum í efnahagsáætluninni er gert ráð fyrir, að veröjöfnunarsjóði sjávarút- vegsins veröi útvegað nokkurt fjár- magn ef þörf krefur vegna stöðvunar gengissigs. Akvæði eru einnig um fjármagn til að tryggja afkomu sam- keppnisiðnaðar og útflutningsiön- aðar á svipaðan hátt. Stjórnarflokkarnir eru sammála um, að hámark þessarar fjárútvegun- ar sé lOOm.kr. Stjórnarandstaðan gerir mikið úr því að þetta sé slæmt mál. Þarna sé á ferðinni gengisfölsun, viðamikið millifærslukerfl og brot á samkomu- lagi okkar við EFTA og EBE. Þetta eru fráleitar fullyrðingar. Aðgerð þessi fellur inn í tilraun til stefnu- breytingar i gengismálum svo sem áður segir. Engar hugmyndir eru uppi um gengisfölsun enda slík að- gerð ekki framkvæmanleg. Aðeins verið að reyna að hægja á skrúfunni. Hér er heldur ekki um neitt milli- færslukerfi að ræða. Þjóðartekjur okkar eru áætlaðar 1981 um 18,5 milljarðar króna. Millifærslur upp á 100 m.kr. vega sáralítið i þeirri upp- hæð. Hefur ekki mikil áhrif á pen- ingamagn í umferð. Því er hins vegar ekki að leyna, að framsóknarmenn eru ekki hrifnir af millifærslum. Þó þessi upphæð sé takmörkuð og tima- bundin, kemur hún ofan á há fjárlög og háa lánsfjáráætlun. Menn mega samt ekki gleyma aö þessari milli- færslu er ætlað ákveðið hlutverk I verðhjöðnuninni. En hvað með bandalagslönd okkar I friverslun? Menn telja sumir, að þau muni ekki geta fallist á þessa aö- gerð og telji hana samningsbrot. En lítum nánar á málið. Það eru bullandi millifærslur I allri V- Evrópu. Menn eru blindir, ef þeir sjá það ekki. Hvaö með stuðning þessara landa við sinn iðnaö? Hvaö er hann annað en millifærsla? Ég hef fyrir satt, að Norðmenn greiði 2,50 norskar krónur með hverri vinnustund I vefjar- og fata- iönaði. Hvað er það annað en milli- færsla? Sum Norðurlöndin og e.t.v. fleiri lönd veita iðnfyrirtækjum lán, sem siðan eru afskrifuö á ákveðnum ára- fjölda og aldrei borguð. Hvað er það annað en millifærsla? Þessi lönd gefa út þykkar bækur, upplýsingarit til iðnfyrirtækja um hvaða aðstoð og styrki þau geti fengið frá hinu opinbera. Hvað er þetta annað en millifærsla? Hvernig halda menn að gangi t.d. með stáliðnaðinn víöa í Evrópu núna? Það skyldi þó aldrei vera, að einhverjar millifærslur væru þar. Hvað er aðstoð Bandaríkjamanna núna við bílaiðnað sinn annað en millifærsla? Hvað með landbúnaðinn í EBE? Halda menn að þar séu engar milli- færslur? Hvað eru menn að tala um? Svo standa menn hér á landi bláeygir og saklausir, jafnvél forsvarsmenn iðn- aðarins segja: ,,Nei, við megumekki fara í svona millifærslu. Löndin I kringum okkurgætu reiðst.” Þessir menn eru kaþólskari en páf- inn. Heimurinn er ekki svona einfald- ur. — Ég átta mig alls ekki á þessum mönnum. Jafnvel forystumenn bóksala halda ræður við hátlðleg tækifæri um nauðsyn frjálsrar verslunar og frjálsa álagningu. Þeir sem samþykkja ekki að gefa álagningu alla frjálsa um- yrðalaust, eru haftamenn. Síðan byggja þeir sér upp einokunarað- stöðu. Enginn má selja bækur nema fá leyfi frá þeim. Þeir sem hafa leyfin koma sfðan saman og ákveöa verð bókanna, sem enginn má vikja frá. Athyglisvert. Næsta hátfðisdag er síðan ræðan haldin aftur um frjálsa verslun og frjálsa álagningu. Þannig mætti lengi telja. Forystumenn iðnaðarins, sem skel- egglega hafa barist gegn og bent á víðtækt millifærslukerfi ýmissa við- skiptalanda okkar, koma nú og boða heimsendi vegna þessara litlu aögeröa hér, s'em nánast ekkert eru. Var einhver að tala um ósamræmi f málflutningi stjórnmálamanna? Um útgreiðslu þessa fjár 1 efna- hagsáætluninni er það aö segja, að til sjávarútvegs getur féð farið gegnum verðjöfnunarsjóð sjávarútvegs og ætti ekki að valda erfiöleikum, og til iðnaðaríns má greiða svipaö og gert var meö uppsafnaðan söluskatt eða veita hagræðingarstyrki og efla lána- sjóði iðnaðarins. Vaxtamálin Meö efnahagsaðgerðunum er að- lögunartíminn að jákvæðum vöxtum lengdur um eitt ár. Elia hefðu vextir átt að hækka nú um 10% og voru allir sammála um að það væri ófram- kvæmanlegt við núverandi aðstæður. Á undanförnum árum hafa komið fram fjórar stefnur I vaxtamálum. 1) Frjálsvaxtastefna, sem Sjálf- stæðisflokkurinn fylgir. 2) Raunvaxtastefna, sem Alþýðu- flokkurinn fylgir. 3) Verðtryggingarstefna, sem Fram- sóknarflokkurinn fylgir. 4) Lágvaxtastefna, sem Alþýðu- bandalagið að minnsta kosti fylgdi hér áður. Meginmunur raunvaxtastefnu og verðtryggingarstefnu kemur fram í greiðslubyrði lengri lána. Raunar má segja að verötryggingarstefnan hafi orðið ofan á, enda hefur hún marga kosti. Þó vaxtahækkun sé nú frestað vegna atvinnulífsins og unga fólksins sem er að byggja og stofna heimili, eru jafnframt jjpnaðir 6 mánaða verðtryggðir innlánareikningar. Þar með er almenningi opnað hagstæðara sparnaðarform en hann hefur áður átt kost á. Menn geta geymt fé sittjærðtryggt aö visu bundið i 6 mánuði. Þar með er mönnum gefin leið til þess að varð- veita sparifé sitt. Noti almenningur þetta I verulegum mæli leiöir af sjálfu sér, að bankarnir verða að lána út verðtryggt I auknum mæli. Það gæti flýtt fyrir framgangi verötryggingar- 'stefnunnar. Vaxtakerflð þarf allt aö taka til endurskoðunar og samræma þarf út- lána- og innlánaform, Ég hefði talið að verðtryggðu inn- lánareikningarnir ættu ekki aö vera bundnir lengur en I 3 mánuði. Bankamenn voru hins vegar hræddir við svo stórt stökk í einu og 6 mán- uðir uröu ofaná. Margt fleira mætti segja um vaxta- málin, en ekki er færi til þess í stuttri blaðagrein. Framhaldið Mikilvægt er, að ríkisstjórnin nái sem fyrst samstöðu um framhaldsað- gerðir I verðbólgumálum.Stjórnar- flokkarnir eru sammála um þaö markmið aö ná verðbólgunni niður ( 40% á þessu ári, Þessar aðgerðir duga aðeinsi 50%. Það er þvi samkomulag um að grlpa til frekari aðgerða og sam- kvæmt skoðanakönnun Dagblaðsins er það I samræmi við vilja þjóðarinn- ar. Engan þarf aö undra þó ólikir stjórnmálaflokkar þurfi nokkurn tima til þess að ná samkomulagi i svo margþættu máli. Þvert á móti. Vilji til samkomulags er fyrir hendi og þessi ríkisstjórn hefur burði til þess að takast á við vandann og leysa hann. Nýr neyslugrunnur framfærsluvísi- tölu tekur gildi á þessu ári i framhaldi og samræmi við neyslukönnun Hag- stofunnar. Þá gætu opnast möguleik- ar til lækkunar ýmissa opinberra gjalda, sem þá vega meira í visitölu- grunni en nú. I í efnahagsáætluninni er gert ráð fyrir samvinnu við aðila vinnumark- aðarins um mótun samræmdrar stefnu til tveggja ára, sem vonandi tekst. Niðurskurður fjárlaga og lánsfjár- áætlunar væri skref f rétta átt. Að mlnu viti gæti ríkisstjórnin boðið enn frekari skattalækkanir, þegar kemur fram á árið I skiptum fyrir t.d. 3 stig i verðbótavísitölu 1. júní eða 1. sept. Þær skattaiækkanir væru miðaðar við það að halda óbreyttum kaupmætti. Ekki skal ég segja, hvort unnt er að ná samkomu- lagi um eitthvaö í þeim dúr, en vissu- lega væri það mjög mikilvægt. Fleiri og fleiri virðast lika komnir á þá skoöun, að kaupmátturinn sé aðalat- riðið en ekki krónutöluhækkunin. Hér er ekki færi á að fjalla um hin fjölmörgu atriði I efnahagsáætlun rikisstjórnarinnar. — Kannski gefst tækifæri til þess síöar. Aðalatriðið er, að þessar aðgerðir hrinda frí þeirri holskeflu sem var að dynja yfir okkur og gefa okkur viðspyrnu til raunhæfra framhaldsaðgerða. GuðmundurG. Þórarinsson alþingismaður „Að mínu viti gæti ríkisstjórnin boðið enn frekari skattalækkanir, þegar kemur fram á árið, í skiptum fyrir til dæmis 3 stig í verðbótavísitölu 1. júní eða 1. september.” Kjallarinn Aðalheiður Bjamfreðsdóttir eyddi lengstum tima í að verja Kjara- dóm og kvarta undan sínum launum. Sagðist meðal annars semja um hærri laun fyrir suma i sínu félagi en hann hefði sjálfur. Hins vegar lét hann þess ógetið að sumt af hans launum er skattfrjálst. Ég get hvergi fundið þessi háu laun sem hann talaði um I sínu félagi i launatöxtum Verka- mannasambandsins, það hlýtur þá að vera falið og með aðstoð V.S.Í. Nú, Karvel studdi Karl Steinar í þessu, og hvorugur vj|di álykta um bráða- birgðalögin. Þegar svona menn hlaupa svo I blöð til að hæla sjálfum sér, gengur yfir þá sem til þekkja. Það kom mjög fram á þessum fundi að verkalýðshreyfingin mætti búast við erfiðum róöri til að verja kaupmátt launa og bæta lífskjörin, En það þarf meira tii en að þeir sem eru í forystu hugi að því. Fólkið I verkalýðshreyfingunni verður að fylgjast vel með og gera sér ljóst hverjir eru að reyna að ná fram kjarabótum og hverjir eru að æpa til aðauglýsasjálfasig. Ég lýk svo þessum línum með þeirri ósk til þeirra sem telja sig full- trúa verkafólks á alþingi að þeir beri fram tillögu um breytta skipan Kjara- dóms. Það er óhæfa að þar sitji eingöngu háskólamenn og jafnframt að hluti af launum alþingismanna sé skattfrjáls. Ferðakostnaður og uppi- haidskostnaður eru auðvitað laun, og ég spyr. Eru lög um að þetta skuli vera skattfrjálst? Með bestu ósk um gleðilegt ár. Aflalhelður Bjarnfreðsdóttir, formaflur Sóknar. ✓ /

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.