Dagblaðið - 20.01.1981, Page 17

Dagblaðið - 20.01.1981, Page 17
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1981. '17 Nýrödd íMorgunpósti Nýrödd er nú tekin að hljóma í Morgunpóstinum. Fyrir nokkru tók Anna Steinunn Ágóstsdóttir við af Páli Þorsteinssyni, sem snýr sér nú óskiptur að Syrpugerð. — Anna Steinunn hefur ekki áöur starfað við fjðl- miðla. Hún lauk stúdentsprófi árið 1979 og hefur siöan meðal annars unnið á talsambandi við útlönd. — œfirnúí Sölumaður deyreftir ArthurMiUer Andri Öm Clausen ífyrsta stóra hlutverkinu sínu hjá Þjóöleikhúsinu: Lauk leiklistamámi síðastliöið sumar Kvikmyndin Sesselja: Tilbúin til sýninga eftir þrjár vikur —ekki enn vitaðhvarhún verður sýnd Ómar Ragnarsson er ágætis islenzkumaður og einn af þeim mörgu íslendingum, sem þolir iila erlend orð í máli okkar. Til dæmis benti hann á það á árshátíð fyrir stuttu að orðið bikini væri erlent orð, þó það hefði tekið sér fastan sess í máli okkar. Ómar sagöi að mun rétt- ara væri að kalla bikini þjóðbúning. Ha, þjóðbúning kann einhver að spyrja. Já, Ómar skýrði þetta nánar. Sko, brjóstahaldið gæti heitið upphlutur og buxurnar skaut- búningur, sem sagt þjóð- búningur. . . Hassan og Hampiðjan „Þetta er annað hlutverkið mitt hjá Þjóðleikhúsinu. Vorið 1978 hljóp ég í skarðið fyrir Áma Blandon í öskubusku,” sagði Andri Örn Clausen leikari í samtali við blaðamann DB. Andri æfir nú hlut- verk Happy í Sölumaður deyr eftir Arthur Miller. Verkið verður frumsýnt í lok febrúar. ,,Þetta er prýðisgott hlutverk og skemmtilegir leikarar, sem ég vinn með,” sagði Andri. „Gunnar Eyjólfsson fer með hlutverk sölu- mannsins og Margrét Guðmunds- dóttir leikur konu hans. Við Hákon Waage leikum syni þeirra. — Sölumaður deyr er eitt bezt skrifaða nútímaverkið í leikbókmenntunum og má segja að það sé orðið sígilt. Það var samið að mig minnir stuttu eftir að seinni heimsstyrjöldinni lauk, en á allt eins mikið erindi til fólks í dag og það gerði þá. ” Nám í London Andri Clausen lauk leiknámi hjá Webber Douglas Academy í London í júlí í fyrra. Hann var að því spurður, hvers vegna hann hafi kosið að nema erlendis. ,,Ég reyndi á sínum tíma að komast að hjá Leiklistarskóla ríkisins, en fékk ekki inngöngu. í staðinn fyrir að bíða í heilt ár kaus ég frekar að reyna fyrir mér á nýjum slóðum. Ég komst að í þriðju tilraun og var svo heppinn að fá inni hjá Webber Douglas Academy, sem er einn af fimm höfuðleiklistarskólun- um í London. Þarna var ég í tvö ár og útskrifaðist í sumar.” Hlutverk í Gretti Auk þess að æfa nú af kappi hjá Þjóðleikhúsinu fer Andri Clausen „Filman er farin til Ameríku í kóperingu og við áætlum að hún verðitilbúin tilsýningar eftir um það bil þrjár vikur,” sagði Páll Stein- grímsson kvikmyndageröarmaður er' Fólk-síðan forvitnaðist um myndina Sesselju, sem gerð er eftir sviðsverki Agnars Þórðarsonar, Kona. Myndin var gerð í ágúst í sumar af PáU Steingrímssyni og Ernst Kettler. Með hlutverkin fara Helga Bachmann og Þorsteinn Gunnarsson. Leikstjóri er Helgi Skúlason. „Myndin er klukkustundar löng og gerð bæði fyrir sjónvarp og kvik- myndahús,” sagði Páll. ,,Við vitum hins vegar ekki ennþá hvar hún kemur til með að verða sýnd. munum bjóða sjónvarpinu hana til sýningar og ef það treystir sér til að greiða fyrir myndina það sem við setjum upp, sem er undir því verði sem við þurfum að fá, þá geri ég ráð fyrir að sá kostur verði ofaná. Ef sjónvarpið ætlar að kaupa myndina og við sitjum eftir með 50—60 prósent skuldabagga, þá gæti ekki orðið af þeirri sölu,” sagði Páll ennfremur. ,,Það hefur komið i ljós að tvö kvikmyndahús hafa annað efni til að sýna með myndinni, svo hún nái fuUum sýningartíma. Myndin er að mörgu leyti frábrugðin sviðsverki Agnars, en er þó byggð á því verki. Hún segir frá lífsuppbyggingu tveggja persóna. í kringum sögu- þráðinn spinnst þjóðsagnakennd um fjöruna og konuna, sem átti tvo hami,” sagði Páll. Myndin var tekin í fjörunni nálægt Grindavík en inniatriði I Blað allra landsmanna skýrði frá þvi i siðustu viku að elzti maður Færeyja væri látinn. Það minnir á söguna um landamerkjadeilu í héraði nokkru úti á landi. Hvorki gekk né rak í deilunni, svo að ákveðið var að bera hana undir elztu menn i næstu sveit. Hreppstjóranum þar var því skrifað bréf og hann beðinn um að grennslast fyrir um málið. Svarið kom eftir nokkra daga. Því miður — elzti maður sveitarinnar hafði látizt nokkru áður og því var þar enginn elzti maður á lífi lengur. með nokkur hlutverk í söngleiknum Gretti hjá Leikfélagi Reykjavíkur. — Grettir er reyndar fyrsta viðfangsefni Andra síðan hann kom heim frá námi. — Hann var spurður að því hvort nóg væri að gera fyrir nýút- skrifaða leikara um þessar mundir 1 Rey kj avík ur leikhús unum. „Nei, mér hefur skilizt að svo sé ekki, sérstaklega ekki hjá nýút- skrifuðum leikkonum,” svaraði hann. ,,Ég hlýt að hafa verið á réttum stað á réttum tíma, þegar ég fékk fyrst. hlutverkið í Gretti og síðan i Sölumaður deyr. Sem sagt einstök heppni. Það er því allt í óvissu um hvenær mér býðst hlutverk næst.” T ónlistarf erillinn Hér áður fyrr fékkst Andri tals- vert við tónlist og lék meðal annars inn á eina plötu. Hann var spurður að því að lokum, hvort hann hefði alveg sagt skilið við tónlistina. „Það var nú aldrei nein alvara á bak við tónlistina,” svaraði hann. „Við gerðum þessa plötu þegar ég var ímenntaskóla.Júlíus Agnarsson, Ásgeir Óskarsson, Ómar Óskarsson, ég og fleiri. Nú, þeir urðu at- vinnumenn en ég hélt áfram í skóla. Það er leiklistin sem er nú efst á baugi hjá mér og annaðhvort er maður í henni af heilum hug eða ekki.” -ÁT- Árbæ. Ekki vissi Páll hvert heildar- verð myndarinnar væri, en þeir félag- ar fengu 8 milljónum gamaila króna úthlutað frá Kvikmyndasjóði til að gera myndina. — -ELA. Frá upptöku á kvikmyndinni Sesselju í fjörunni nálœgt Grindavlk. Á myndinni má sjá þau Helgu Bachmann og Þorstein Gunnarsson I hlutverkum sínum ásamt Ernst Kettler Mjóöupptökumanni, Páli Steingrlmssyni kvikmyndatökumanni, Helga Skúlasyni leikstjóra og Þorsteini Úlfari aðstoðarmanni. Eftirlits- maður ríkisins áÞjóðviljann Eftirlitsmaður ríkisins með rekstri Flugleiða, Baldur Óskarsson, er nú orðinn blaðamaður á Þjóðviljanum. Kemur hann inn á ritstjórnina í stað Einars Arnar Stefánssonar, sem ráðinn hefur verið á fréttastofu út- varpsins eins og frægt er orðið. Baldur hefur til skamms tima verið erindreki Alþýðubandaiagsins. Ekki mun alveg ljóst hvort hann lætur alveg af því starfi eða hvoft hann mun eingöngu i framtiðinni reka erindi flokksins i gegnum Þjóðviljann. Nýr þjóðbúningur... > Andri Örn Clausen á tröppum Þjóðleikhússins. Ungir leikarar hafa ekki mikið að gera þessa daganafrek- ar en endranœr. DB-mynd: Einar Ólason. Dagblaðið hefur frétt á skot- spónum að húmoristar á Sauðár- króki séu liðtækir við uppnefnasmíð- ar þessa dagana. Lögreglumaður á staönum, sem grunaður er um fikniefnabrot, er til dæmis kallaður Hassan. Og lögreglustöðin. . . hún er að sjálfsögðu uppnefnd Hampiðjan. Elsti karl- maður Fær- eyja látinn ELSTI karlmadur í Fœreyjum. Andrass Poulsen. lést á jóladag sl. Hann var 100 ára Kamall er hann andaðist.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.