Dagblaðið - 20.01.1981, Blaðsíða 27
27
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1981.
I
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
D
Þítturinn i kvöld er um Feþon.
FRÁ DÖGUM GODANNA—sjónvarp kl. 20,35:
ÓVÆNT ENDALOK - sjónvarp kl. 21,45:
KUNNINGIHJÓNANNA
HELDUR VIÐ KONUNA
— Regnhlífarmaðurínn veldur þáttaskilum ílífi þeirra
Óvænt endalok eru á dagskrá
sjónvarps í kvöld. Þátturinn fjallar
annars vegar um aldraðan mann,
regnhllfarmanninn, sem aflar sér
peninga með vafasömum hætti.
Hins vegar fjallar hann um hinn
eilífa ástarþríhyrning, hjón og
kunningja þeirra, sem heldur við
eiginkonuna.
Dag einn fer eiginkonan í hár-
greiðslu en á leiðinni heim gerir úr-
hellisrigningu. Hún verður því að
leita skjóls. Regnhlífarmanninn ber á
hennar fund og þau kynnast. Þessi
kynni þeirra leiða til óvæntra enda-
loka, sem breyta verulega líft
konunnar, en ekki er rétt að fara
nánar út í það.
Þýðandi myndarinnar er Krist-
mann Eiðsson.
-KMU.
KRISTJAN MÁR
UNNARSSON
Goðsagnimar grísku
fyrir unga sem aldna
í gær var á dagskrá sjónvarpsins
fyrsta myndin af sex í fmnskum
klippimyndaflokki þar sem endur-
sagðar eru þekktar sagnir úr grískri
goðafræði. Hver þáttur er sjálfstæður.
1 kvöld verður annar þáttur um Feþon.
Bæði börn og fullorðnir ættu að
geta horft á þessar myndir því sögumar
eru skemmtilegar og teikningarnar
fallegar.
Þættirnir verða sýndir á
mánudögum og þriðjudögum næstu
tvær vikurnar. Þýðandi er Kristín
Mántylá en sögumaður Ingi Karl
Jóhannesson. -KMU.
Á HUÓÐBERGI - útvarp kl. 23,00:
Veðsettar landeignir
reyndust vera vötn
— Lifandi f rásögn af f jársvikara
í þætti sínum, Á hljóðbergi, mun
Bjöm Th. Björnsson listfræðingur
flytja hljóðritun af lestri sænska rit-
höfundarins Fritiof Nilsson Piraten á
sögu sinni Milljónamæringnum (En
millionár).
Að sögn Björns þótti Fritiof Nilsson
strax í skóla dálítið baldinn og var þar
uppnefndur piraten (sjóræninginn).
Seinna tók hann sér þelta höfundar-
nafn. Hér á landi er hann þekktastur
fyrir fyrstu bók sina, Bombi Bitt sem
kom út 1932. Þá sögu las Helgi Hjörvar
í útvarp við feikna vinsældir og var hún
einnig geftn hér út.
Siðan hefur hann skrifað mikið af
gamansömum bókum og smásögum en
oftast haft þann háttinn á að segja þær
í sænska útvarpið. Hefur flutningur
hans verið lifandi frásögn hans sjálfs.
Þaðereinmitt ein slík lifandi frásögn
sem við fáum að heyra í kvöld. Sagan
fjallar um hlálega fjárpretti. Maður
nokkur verður milljónari á því að
veðsetja landeignir norður í Svíþjóð.
Þegar til kemur reynast þessar land-
eignir vera vötn og er margt skoplegt
sem gerist í þessari sögu.
Höfundurinn gerir söguna mjög
trúverðuga og ótrúlega raunverulega
Skíðasköfí
Sigurðar Jónssonar
Skíðakennsla fyrirafía, einka- og hóptímar.
Kvöld-, helgar- og dagkennsla.
Uppl. og skráning alla virka daga milli kl. 18 og 20 í síma
76740.
Fasteignaþjónustan auglýsir
— Laust starf —
Viljum ráða sölufulltrúa
Sérlega lifandi og skemmtilegt starf.
„Ráðherralaun" fyrir þann sem er úrræðagóður, lipur,
ólatur og fylginn sér. — Vinna og aftur vinna.
Viðtalsbeiðnum veitt móttaka í síma 26213 þriðjud. og
miðvikud.
FASTEIGNAÞJÓNUSTAN ð©
AUSTURSTRÆTI IV - REYKJAVÍK
Útboð
Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar óskar eftir
tilboðum í vikurflutninga vegna aðveitu Seleyri-
Akranes. Útboðsgögn verða afhent á Verkfræði-
stofunni Fjarhitun hf., Álftamýri 9 Reykajvík,
Verkfræði- og teiknistofunni sf., Heiðarbraut 40
Akranesi og Verkfræðistofu Sigurðar Thorodd-
sen, Berugötu 12 Borgarnesi gegn 200 króna
skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Hitaveitu
Akraness og Borgarfjarðar, Heiðarbraut 40
Akranesi, þriðjudaginn 10. febrúar 1981 klukkan
15.30.
spörum
RAFORKU
Björn Th. Björasson.
með því að lýsa lagahliðum málsins á
nákvæman hátt enda er hann lög-
fræðingur að mennt.
Sjálfur segist Fritiof Nilsson Piraten
hafa fengið stílkenndina frá íslendinga-
sögunum en hann ólst upp við þær, að
sögn BjörnsTh. Björnssonar. -KMU.
spörum
RAFORKU