Dagblaðið - 20.01.1981, Síða 28

Dagblaðið - 20.01.1981, Síða 28
við Stígandafjörð: Stórsiasað- ureftir4 metra fall Fullorðinn maður slasaðist töluvert um miðnætti í nótt er hann féll 4 metra af bryggju og niður á dekk mb Sigurvon er var í höfninni á Suðureyri. Maðurinn var að mæta til vinnu er honum skrikaði fótur á bryggjunni meö fyrrgreindum af- leiðingum. Maðurinn mun hafa skaddazt á höfði, fingurbrotnaö og skaddazt á öxl eftir því sem bezt var vitað i morgun. Læknir kom þegar á staðinn og var maðurinn fluttur strax á sjúkrahúsið á ísafirði. Töluverð heppni var að vegurinn á milli var opinn um þetta leyti, en hann lokaðist vegna ófærðar skömmu síðar. -ELA. Undírmenn á farskipum felldu kjarasamning sinn og viðræður um kjör bátasjómanna í sjálf heldu: Verkfallsboðun er næsta skrefíð Undirmenn á farskipum felldu kjarasamninginn sem undirritaður var hjá sáttasemjara 19. desember með 48 atkvæðum gegn 30. Það kom í ljós í gærkvöldi þegar talin voru at- kvæði sem greidd voru um samning- inn. Ríkissáttasemjari fékk þegar í stáð tilkynningu um niðurstöðu at- kvæðagreiðslunnar og er búizt við að hann boði til fundar deiluaðila í vik- unni. Stjórn Sjómannafélags Reykja- víkur kom saman til fundar snemma í morgun til að ræða stöðuna. Búizt er viðaðhún taki ákvörðun um að afla sér heimildar umbjóðenda sinna til verkfallsboðunar. Fer það þannig fram í stórum dráttum að sjómönn- um eru send skeyti og þeir senda skeyti um hæl og staðfesta síðan af- stöðu sína með atkvæðagreiðslu þegar þeir koma í land. í upphafi næstu viku ætti heimild til verkfalls- boðunar að liggja fyrir. Ekki er annað fyrirsjáanlegt en að verkfall sé yfirvofandi líka hjá sjó- mönnum þar sem viðræður um endurnýjun bátakjarasamnings eru i fullkominni sjálfheldu. Gert er ráð fyrir að næstu daga boði Sjómanna- sambandið og Farmanna- og fiski- mannasambandið til aðgerða til að þrýsta á útgerðarmenn að ganga til samninga um kjör sjómanna. Lík- legast er að gripið verði til verkfalls- vopnsins og getur svo farið að sam- tímis boði sjómenn og undirmenn á farskipumtilverkfalls. ' - ARH fijálst, úháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 20. JAN. 1981. Stjórnarmaður ÍF1A: Ekki í verka- hring ráðherra Ég vil minna á þá samninga sem Flugleiðir gerðu við Félag íslenzkra at- vinnuflugmanna og Félag Loftleiða- flugmanna í fyrra, en þá skuldbatt félagið sig til þess að flugmenn Flug- leiða flygju þeim vélum sem teknar yrðu á leigu, þ.e. að félagið tæki ekki á leigu vélar með flugmönnum,” sagði Árni Sigurðsson stjórnarmaður í FÍA í morgun. Það kom fram í viðtali DB við Stein- grím Hermannsson samgönguráðherra i gær að sú hugmynd hefði borið á góma í viðræðum við stjórn Flugleiða að skipta e.t.v. einhverjum leiðum milli Flugleiða og Arnarflugs. Mun helzt koma til greina að Arnar- flug fái stærri hluta sólarlandaflugsins en verið hefur til þessa. ,,Ég get ekki skilið að það sé í verka- hring ráðherra að skipta sér af því hvað Flugleiðir gera við sín.dótturfyrirtæki og hvaða verkefni þau fá. Auk þess hafa forráðamenn Flugleiða sagt að samningar félagsins við Arnarflug á síðasta ári hafi verið Flugleiðum mjög óhagstæðir.” -JH Alþýðublaðið og Helgarpósturínn skilja: „Ekkiíokkar verkahring — aðgefaútblaðsem verðurflokkn- um að litlu gagni, segir rekstrarst jóri blaðanna Fullyrt er aö Alþýðublaðið og Helgarpósturinn leiti nú allra ráða til að rétta við hallarekstur sinn — og I því skyni verði rekstur þcirra aðskilinn að einhverju leyti. Bjarni P. Magnússon, rekstrar- stjóri þessara beggja blaða fyrir hönd Alþýðuflokksins, staðfesti að svo kynni að fara. „Samstarfið við Helgarpóstinn hefur verið gott og við erum ósköp ánægðir með að hafa getað gefið hann út,” sagði Bjarni. „En viö höfum áhyggjur af að framundan kunni að vera rekstrar- vandi hjá báðum blöðunum og þvi þurfum við að athuga alla möguleika til sparnaðar. Við sjáum ekki að það sé t okkar verkahring að gefa út Helg- arpóstinn, sem er Alþýðuflokknum að litlu pólitisku gagni, enda ritstjórn Heigarpóstsins óháð vilja flokksins.” Hann bætti við að i sextíu ár hefði blaðaútgáfa jafnan verið þaö sem hefði skapað Alþýðuflokknum mest- an fjárhagsvanda. „Nú viljum við skoða alla kostnaðarliði,” sagði Bjarni ennfremur. ,,Við óttumst að fram- undan sé minnkun á auglýsingum, jafnvel tregða í lausasölu, en á sama tíma hækkar kaup blaðamanna.” Bjarni staðfesti, að prentunar- kostnaður i Blaðaprenti væri orðinn óhóflega hár, enda hefðu taxtarnir ekki breytzt að sama skapi og Alþýðublaðið hefði minnkað að stærð. Hann vildi ekki fallast á fullyrðingu sem fram kom i Þjóðviljanum í morgun um að rit- stjóm Alþýðublaðsins undir stjóm Jóns Baldvins Hannibalssonar væri óeðlilega dýr. „En auðvitað vill rekstrarstjórnin ná niður kostnaði hvar sem hægt er,” sagði hann að lokum. -IHH. Metdagur íárekstrum í Reykjavík og Kópavogi: * UNG KONA TÖLUVERT SLÖSUÐ EFTIR AÐ EKID VAR Á HANA — og ungbam slasað eftir harðan árekstur í Kópavogi Ekið var á unga konu á Hofsvalla- götu á móts við Melabúðina um kl. 17 í gærdag. Ekki er vitað með hvaða hætti slysið varð en konan var flutt allnokkuð slösuð á slysadeild. Óvenju mikið var um árekstra í gærdag og var lögreglan kölluð í 32 umferðaróhöpp víðs vegar um bæinn. Þá var einnig metdagur í árekstrum í Kópavogi að sögn lögreglunnar þar. í einu tilfelli var um mjðg harðan árekstur að ræða á Álfhólsvegi. Tveir bílar fkullu saman og ungbarn í burðarrúmi, sem var í aftursæti annars bílsins, mun hafa meiðzt eitthvað. Bílarnir voru báðir mjög mikið skemmdir. Alls urðu 12 árekstrar hjá lögreglunni í Kópavogi í gær, misjafn- lega harðir. -ELA. m m Ekið var á unga konu á móts við Melabúðina um fimm leytið i gærdag og mun hún hafa slasazt nokkuð. nn a. c Olíuskipíveðurofsasuðuraf íslandi: ^ ^ MISSTI500 ÞUSUND UTRA AF BÍLABENSÍNI í HAFH) —talin lítil hætta á mengun, því bensín gufar fljátt upp Rússneskt olíuskip á leið til lands- ins missti þann 27. desember sl. 500 þúsund lítra af bensíni í hafið. Var skipið þá statt um 180 sjómílur suður af íslandi. Það kom frá borginni T uapse við Svartahaf. Olíuskipið hreppti mjög slæmt veður og var í miklum barningi í þrjá sólarhringa. Leiddi það m.a. til þess að mælingalúga sópaðist af einum geymanna. Sjór komst í geyminn en þar sem bensín er eðlisléttara.vék það fyrir sjónum, flæddi upp úr og í hafið. Hingað til lands kom skipið 2.' janúar. Var það mikið laskað, sér- staklega brúin en einnig hafði sjór flætt inn á vistarverur. Sjópróf fóru fram í Hafnarfirði 3. janúar en skipið hélt af landi brott 6. janúar. Það heitir Dzerzhinsk og er 7.600 brúttó- lestir að stærð. Það var á vegum Skipadeildar Sambandsins en flutti farm fyrir öll íslenzku olíufélögin. Að sögn Kára Valvessonar hjá Skipadeild Sambandsins er lítil hætta á mengun vegna þessa slyss. Skipið var statt það langt suður frá íslandi er óhappið varð, en bensín flýtur nfan á iíS nc cnfar fliótt UDD. - KMIJ

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.