Dagblaðið - 19.02.1981, Page 9

Dagblaðið - 19.02.1981, Page 9
y DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 19. FEBRUAR 1981. Erlent Erlent Erlent Sakamál ársins í Bandaríkjunum Sómakær skólastýra myrðir elskhuga sinn — var það slys eða yfirvegað ráð? Tólf jól í röð fóru kvennaskólastýran Jean Harris og læknirinn Herman Tarnower saman til Florida. En þrett- ándu jólin, þau síðustu, voru ekki jafn ánægjuleg. Þá lá Herman í gröf sinni, en Jean var fyrir rétti ákærð fyrir að hafa banað honum, með fjórum byssu- skotum, að heimili hans í New York- fylki í marzmánuði síðastliðnum. í litla réttarsalnum í White Plains þorpi í N.Y., rétt hjá sveitasetri læknis- ins, þar sem málið er tekið fyrir, er allt- af troðfullt af áheyrendum. Útgef- endur hafa sent þangað rithöfunda og blaðamenn. Tvær bækur og margar meiriháttar greinar um þetta flókna morðmál eru í undirbúningi. Sú ákærða hefur fengið tilboð sem nemur hundruðum þúsunda dollara vilji hún selja sögu sína. En því hafnaði hún. Það er ekki ofmælt að sakamál ársins í Herrnun Tarnower og ritari hans, Lynne Tryforos. Þau snæddu saman síðasta kvöldið sem hann lifði. Bandaríkjunum sé þetta undarlega morð, þegar siðprúð kvennaskólastýra skaut til bana elskhuga sinn, lækni, sem þótti lifa talsvert hátt og var mjög eftirsóttur í samkvæmislífinu. Hann hafði skrifað metsölubók um læknis- fræðilega rétt mataræði. Afbrýðisöm vegna yngri konu Spurningin er ekki sú hvort hún skaut hann — á því leikur enginn vafi. En verjandinn heldur því fram að það hafi verið slysaskot. Hún hafi ætlað að skjóta sjálfa sig, en læknirinn hafi reynt að þrífa af henni 32ja kalíbera skammbyssu, sem hún hafði með- ferðis. Verjandinn segir ennfremur að Jean hafi verið miður sín af kvíða fyrir ellihrörnun (hún er 57 ára, en Herman var 69 ára) og full streitu vegna vinnu- álags.og þess vegna ætlað að svipta sig lífi. Hún hafi komið í dýrri loðkápu sinni með blómvönd til að kveðja elsk- huga sinn hinztu kveðju. En ákæruvaldið heldur því fram að hún hafi komið akandi frá skóla sínum í Virginiu-fylki í þeim ófagra tilgangi að myrða lækninn, því hún hafi verið sjúklega afbrýðisöm út í ritara hans, Lynne Tryforos. Lynne var einum tuttugu árum yngri en Jean, eða 37 ára. Ráðskona læknisins hefur staðfest við yfirheyrslur að hann hafi verið farinn að eyða æ fleiri kvöldum í félagsskap ritarans. Ha_fði ráðskonan heyrt skólastýruna formæla þeim báðum. Hvað lækninn snerti hafði hann varla gert upp á milli þessara tveggja kvenna i erfðaskrá sinni. Hann ánafnaði Jean Harris skólastýru 220 þúsund dollara, Lynne Tryforos ritara Jean Harris'ákærfl fyrir morfl- 200 þúsund dollara. Ákærða brýndi fagurt Irferni fyrir námsmeyjunum Jean Harris sagði reyndar af sér skólastýrustöðunni við Madeira-skól- ann daginn eftir að hinn voveiflegi at- burður átti sér stað. Skólinn er einka- skóli fyrir dætur frá efnaheimilum og Jean Harris þótti afar siðavönd og ströng. Hún rak stúlkur miskunnar- laust úr skólanum ef þær drukku eða voru með hass og kvartaði yfir þvi, að þær vildu alltaf vera að sofa hjá strák- um. Hvernig gat þessi sómakæra kona þolað auðmýkingar læknisins í 14 ár? Hann þótti allkvensamur og gortaði af því. Einhvern tíma var haft eftir honum að gaman væri að halda veizlu og bjóða til hennar öllum konunum, sem væru aðeltast viðsig. Skoðanir á Jean eru skiptar. „Hún var aldrei eins og fólk er flest,” segir gömul kunningjakona hennar. ,,Á mannamótum var hún alltaf æst og stíf á meiningunni. Allir vjssu að hún var galin. Jafnvel Tarnower læknir. Ég heyrði hann segja þaðeinu sinni.” En gestgjafi þeirra í Florida, konan sem þau voru alltaf hjá á jólunum, hefur allt aðra skoðun. „Jean Harris er mjög gáfuð og lilfinningarík kona,” segir hún. „Mér finnst óhugsandi að hún hafi deytt hann viljandi. Hún unni honum heitar en sjálfri sér.” Endir. Blandast kvikmynda- og furstablóö á ný í Mónakó? — leikstjórasonur í tygjum við Karolínu vrinsessu Karólína prinsessa af Mónakó er óðum að ná sér eftir hið misheppnaða hjónaband með glaumgosanum Phil- ippe Junot. Nýjustu fregnir herma að hún sé tekin til við Robertino Rosselline en hann er sonur hins þekkta, ítalska leikstjóra Roberto Rosselline og hinnar heims- frægu, sænsku leikkonu Ingrid Bergman. Karólina hefur sézt nokkuð oft upp á siðkastið yftr- gefaJbúð hins þrítuga Rosselhnesi Mónakóog á sirkus- hátíð einni í Mónakó nýlega voru þau saman og að sögn sjónarvotta hegðuðu þau sér eins og ástfangnir ungl- ingar. Yfirvöld veittu Karólínu skilnað í október sl. en ka- þólska kirkjan viðurkennir hann ekki. Foreldrar hennar hyggjast biðja páfann að ógilda hjónaband hennar og Philippe Junot svo að hún geti gifzt aftur. Að sögn eins innanhússmanns í furstahöllinni í Mónakó hafa for- eldrar Karólínu beðið hana um að hegða sér vel þar til páfinn hefur afgreitt málið. Grace furstaynja álítur auk þess að ef dóttirin hegðar sér vel muni það koma þeim vel þegar gengið verður endanlega frá fjármálum og öðru slíku í sambandi við Philippe Junot. í fyrstu fór Karólina eftir þessari ósk foreldranna en nú hefur semsagt orðið breyting þar á. Má þvi búast við að l.ún fái orð í eyra frá pabba og mömmu en þeir sem þekkja til segja að það muni engin áhrif hafa á stúlkuna. „Hún er 23 ára, full af fjöri og í raun dálítið villt,” sagði einn sem þekkir til hennar. Karólína og Robertino Rossellini' Toyota Starlet '80. 4 dyraTEkinn 13.000. Litur btór sans. Verð: 75.000. Bein sató. TOYOTA- SALURINN SÍMI44144 Nýbýtóvegi 8 (i portínu) Opið tóugardaga ki. 13-17 Toyota Cressktó statíon '80. Ek- inn 21.000. Utur guii sans. Verð: 118.000.- Bein sató. Toyota Coroitó ke-30 78. Ekinn 40.000. Litur brúnn sans. Verð: 55.000.- Bein sató. Toyota Coroitó station '78. Ekinrt 53.000. Litur brúnn sans. Verð: 57.000. Bein setó. '69. Góð tfói. Litur rauður/hvítur. Verð: 18.000. Toyota Cressktó statíon sjéifsk. '78. Ekinn aðeins 23.000. Litur grænn sans. Verð: 83.000. Toyota Cressktó 4-D '80. 5 gira. Ekinn 12.000. Litur grér sans. Verð: 105.000. Bein sató. Sumar- dekk/vetrardekk. Honda Civic statíon 78. 1500 cc vól. Ekinn 25.000. Litur hvítur. Verð: 64.000. Skipti möguleg é ódýrari. DL '78. Ekinn 44.000. L 'ttur rauður. Verð: 67.000. Toyota Coroltó ke-30 77. Ekinn 41.000. Litur blér sans. Verð: 49.000. Sumardekk é felgum/vetr- arttókk. Útvarp.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.