Dagblaðið - 05.03.1981, Side 2
2
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1981.
Það er flestum ljóst að bíllinn er
þarfasti þjónninn nú orðið, þó hest-
urinn hafl einhvern tíma verið það.
Fara menn úí í það að breyta bílskúr-
unum i hesthús? Eins og ástandið er i
dag litur sannarlega út fyrir það.
Til að bæta afkomu fólks er kaup-
ið hækkað, en það þyrfti ekki að
hækka eins mikið ef allar neyzlu-
vörur hækkuðu ekki eins mikið og
raunbervitni.
Bensínkostnaður er stór liður í út-
gjöldum einnar fjölskyldu, með því
að lækka hann, eða hækka ekki alveg
eins mikið, þá myndi afkoma fólks
batna.
Raddir
lesenda
Fræðsluf undur um unglinga
KYNUF OG HJONABAND
—fjallað um málið á svo opinskáan hátt að dóttir mín var miður sfn þegar
heimvarkomið
Ein reifl i Breiðholti skrifar:
Mig langar að víkja fáeinum
orðum að félagsmálastarfsemi þeirri
fyrir unglinga, sem fram fer i
Fellaheili hér í Breiðholti. Þannig er
mál með vexti að dóttir mín sótti þar
einhvers konar fræðslufund þar sem
fjallað var um unglinga, kynlíf og
hjónaband. Mér skilst að þar hafi
verið tveir ungir menn sem fjölluðu
um þessi mái á svo opinskáan hátt að
dóttir mín var miður sín þegar heim
kom. Veit ég að fleiri mæður hafa
sömu sögu að segja. Það er vitað mál
að við Breiðhyltingar höfum ekki
fengið að njóta sömu þjónustu og
aðrir borgarbúar og jafnvel litið á
okkur sem annars fiokks fólk. Því
langar mig til að spyrja, er þetta
viðhorf rikjandi í ráðningu starfs-
fólks í þessa félagsmiðstöð? Hafa
þeir starfskraftar sem þarna eiga að
inna af hendi félagslega starfsemi,
hlotið tilskilda menntun? Sé svo,
sem ég efast um, iangar mig til að
spyrja hver ber ábyrgð á störfum
þeirra og því tjóni á uppeldi
unglinganna sem þeir kunna að
valda? Gera þessir menn sér
einhverja grein fyrir þeim áhrifum.
sem þessi ósmekklega umræöa þeirra
og fleiri getur haft á óharðnaða
unglinga? Eitt er víst að dóttir mín
mun ekki framar sækja þennan stað
og veit ég að hún er ekki ein um það.
Það er skylda okkar mæðra að
standa vörð um börn okkar og
vernda þau gagnvart svona ósóma.
Mættu gjarnan fleiri láta heyra í sér
um þetta mál. Með von um skjót svör
og úrbætur.
Útivist og
gönguferðir
HHngiðíaHW
tfs2-
Góð þjónusta
4474—4023 hringdi:
Mig langar til að biðja DB að
koma á framfæri fyrir mig þökkum
til starfsfólks sandsölunnar Björgun
h/f.
Það er alveg sama hvenær maður
kemur eða við hvern maður þarf að
eiga, það eru allir jafn elskulegir,
bæði þeir sem eru á gröfunum og
stúlkurnar, sem maður kvittar hjá.
Mér finnst rétt að geta þessa, vegna
þess að þetta er alveg einstakt.
Vigdís Finnbogadóttir
Vdkominheim
Unnur Marinós, Austurbergi 32,
skrifar:
Alveg finnst mér furðulegt hve
sjaldan er minnzt á ágæti göngu-
ferða, þegar talað er um trimm alls
konar. Veiztu nokkuð hve göngu-
ferðir um nágrennið eru hressandi?
Ég get frætt ykkur á því, ykkur sem
ekki stundið útivist og göngur.
Það er ein bezta hreyfing og úti-
vera sem þú færð, og þar fer svo
margt saman. Gangir þú með göngu-
félagi kynnist þú frjálslegu og glöðu
fólki. Þú eignast góða vini, unga og
aldna, því i útivistarfélögum er ekk-
ert kynslóðarbil, hamingjunni sé lof.
Þú öðlast betri skilning á undrum
náttúrunnar, gleymir öllu amstri og
kemur heim sæll og glaður.
Klæddu þig bara vel og drífðu þig
út, þú munt ekki sjá eftir því. Félag
fólks um útivist stendur fyrir ferðum
um hverja helgi, lagt er af stað frá
Umferðarmiðstöðinni kl. 13 á hverj-
um sunnudegi. Þessar gönguferðir
eru opnar öllum, drífðu þig með.
Félagið Útivist hefur um langt skeið staðið fyrir ferðum um landið. Hér er hópur
frá Útivist um borð i mb. Fagranesinu á leiðá Hornstrandir.
Borgari skrifar:
Mig langar til að bjóða Vigdísi
Finnbogadóttur forseta velkomna
heim úr vel heppnaðri heimsókn tii
Danmerkur.
Mér finnst þessi heimsókn forset-
ans til Danmerkur hafa tekizt alveg
sérstaklega vel. Ekki sízt fannst mér
Vigdísi takast vel upp þegar hún sat
fyrir svörum hjá dönskum blaða-
mönnum. Þær stóðu sig reyndar
báðar mjög vel, Vigdís og Margrét
Danadrottning.
Ég óska Vigdísi til hamingju með
þessa ferð og ég er viss um að hún á
eftir aö bera hróður íslands víða.
Það var halfkalt i veðri þegar þessi var að taka bensin nú á dögunum.
DB-mynd Einar Ólason.
Bensínverð
—að hækka enn einu sinni
Forseti íslands, VÍgdís Finnboga-
dóttir.
DB-mynd Sig. Þorri.
Borgari hringdi:
Nú á að fara að hækka
bensínlitrann í 6,25 krónur. Hvar
endar þetta? Á skattpíning ríkisins
sér engin takmörk?
Aðalheiður Bergsteinsdóttir síma-
stúlka: Já, þaö eru ekki alveg eins mikl-
ar hækkanir og áöur.
Spurning
dagsins
Friðrika Púlsdóttir fangavörflur: Nei,
égfinn ekkifyrir þvi.
Björgvin Gislason, starfar á Klepps-
spitala: Nei, mér finnst allt hækka
jafnt sem áður.
Gísli Albertsson trésmiður: Ég veit það
nú ekki, þaö eru ef til vill ekki eins
miklar hækkanir og áður. Annars fylg-
ist ég ekki svo mikið með verði.
Siguriína Magnúsdóttir bankamær: Eg
get nú ekki sagt tii um þaö, þar eð ég
hef ekki verið á landinu svo lengi.
Hugi Vigfússon: Nei, það get ég el
sagt. Kauphækkanir eru teknar sti
afturtil baka.