Dagblaðið - 05.03.1981, Síða 10
ID
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1981.
Veró kr. 760,00
Verð kr. 353,00
Byggung
W aa ZW Kópavogi
Verkamenn óskast í byggingavinnu.
Uppl. á skrifstofunni, Hamraborg 1, 3.
hæð.
Btönduós
Nýr umboðsmaður á Blönduósi.
Olga Óla Bjarnadóttir
Árbraut 10 — Sími 95-4178
Hitnar íkolunum á Ólafsfirði:
Uppgjör bæjar-
fógeta og lög-
regluvaröstjóra
— ósamlyndi talið eiga þátt íáminningu varðstjóra.
Varðst jóri telur ásakanir f ógeta illkvitt nar, ámælisverðar
ogvillandi
Málefni lögreglu og bæjarfógeta á
Ólafsfirði eru heldur ókyrr um þessar
mundir. Dagblaðið greindi frá því í
fyrradag að bæjarfógetinn á Ólafs-
firði hefði leyst lögreglumann á
staðnum frá störfum vegna meintra
brota i starfi. Málið væri nú í um-
fjöllun hjá dómsmálaráðuneytinu.
Málið á sér nokkuð langa forsögu
og er talið af kunnugum að þarna sé á
ferðinni uppgjör milli bæjarfógeta,
Barða Þórhallssonar og Stefáns B.
Einarssonar lögregluvarðstjóra.
Stefán hefur lengi verið lögreglu-
varðstjóri á Ólafsfirði og var lengi
eini lögreglumaður staðarins. Hann
hafði starfað í áratug með Sigurði
Uppsagnarbréf frá fógeta til lögregluvarðstjóra:
Áfengisdrykkja við
skyldustörf, ölvun-
arlæti á almannafæri
Guðjónssyni bæjarfógeta á Ólafs-
firði, en hann lézt árið 1977. Sig-
urður Björnsson lögregluþjónn á
Ólafsfirði hefur greint frá því að
samvinna þeirra Sigurðar og Stefáns
hafi jafnan verið með miklum
ágætum og hafi Sigurður látið Stefán
annast um ýmiss konar störf fyrir
embættið.
Barði Þórhallsson, sem áður var
bæjarfógeti á Bolungarvík var síðan
skipaður í embætti bæjarfógeta á
Ólafsfirði sumarið 1978, eftir að full-
trúar frá Akureyri höfðu gegnt þar
störfum í millitíðinni.
Svo virðist sem ósamlyndi hafi
verið milli fógeta og varðstjóra og
megi rekja það til þessarar forsögu.
Fógeti áminnti Stefán fyrir van-
rækslu í starfi síðla árs 1978, vegna
atviks er kom fyrir fljótlega eftir að
fógeti tók við. Þessarar áminningar
er getið nú, er fógeti leysir varðstjóra
frá störfum og tilgreinir þar að auki
ýmsar ásakanir.
Stefán lögregluvarðstjóri hefur
sent dómsmálaráðherra greinargerð
vegna málsins, þar sem hann telur
ásakanir fógeta illkvittnar, ámælis-
verðar og villandi. Eftir að fógeti
leysti Stefán frá störfum, hefur hann
misst öll laun sín.
Dagblaðið hefur kannað ýmis
atriði þessa máls og fara þau hér á
eftir.
-JH.
BIAÐIÐ
• •
kr. 159.00
terylene-buxur 70.OO
Jylene-buxur . ft* \r l25.00
uxur ............... kr. í25.00
sbuxur ••••;•" fríxkr. 49.00
flannelsskyr •• ffákr. 52.00
ibuxur ..........
BUXNA- OG
BÚTAMARKAÐURINN
HVERFISGÖTU 82 - SÍM111258
—■ og móðgandi og meiðandi ummæli um samstarfsmenn
í lögreglunni eru gefnar sem ástæður
Barði Þórhallsson bæjarfógeti á
Ólafsfirði skrifaði Stefáni B. Einars-
syni lögregluvarðstjóra i bænum
bréf 4. febrúar sl., þar sem hann
veitir Stefáni lausn frá starfi
lögreglumanns um stundarsakir
vegna ítrekaðra brota og vanrækslu í
starfi.
Fógeti lýsir síðan brotum og van-
rækslu lögregluvarðstjórans á eftir-
farandi hátt:
„Þann 8. janúar sl. fóruð þér á
skylduvakt þinni, sem samkvæmt
varðskrá stóð ffá kl. 16—24, á
lögreglubifreiðinni um kl. 21.30 í
afmælisveizlu að Hrannarbyggð 13
hér i bæ og voruð þar við áfengis-
drykkju, en eftir skylduvaktina kl. 24
áttuð þér að vera á bakvakt um nótt-
ina, en voruð þess í stað að áfengis-
drykkju fram eftir nóttu. Hér er því
um að ræða gróft brot í opinberu
starfi.
Við sama tækifæri voru höfð eftir
þér móðgandi og meiðandi ummæli
um samstarfsmann þinn í lögregl-
unni og starfsstúlku á bæjarfógeta-
skrifstofunni. Er því hér um að ræða
annaðbrot í opinberu starfi.
Þá hefur að undanförnu borið á
því að þér hafið haft í frammi
ölvunarlæti á almannafæri t.d. á árs-
hátíð Slysavarnadeildar kvenna sem
haldin var 17. janúar sl. Verður það
að teljast alvarleg ávirðing fyrir
lögreglumann þótt utan starfstíma
sé”.
í lokaorðum bréfs fógeta kemur
fram að hann telur Stefán hafa brotið
það gróflega gegn starfsskyldum,
hlýðnis- og trúnaðarskyldum gagn-
vart sér sem yfirmanni embættisins,
sbr. alvarlega áminningu áður gefna
með bréfi dagsettu 13. desember
1978. -JH.
Björn Steinn Sveinsson:
Sjálf sagt að taka
við vakt og bakvakt
—af Stefáni. Tók við bif reiðinni um kl. 23.15
Fógeti sakar lögregluvarðstjóra um
áfengisneyzlu við skyldustörf, en
þessu neitar varðstjóri og segir að
Björn Steinn Sveinsson hafi tekið við
skylduvakt sinni og síðan bakvakt
áður en hann neytti áfengis í tilteknu
húsiá Ólafsfirði.
Björn Steinn hefur vottað það að
Stefán B. Einarsson lögregluvarð-
stjóri hafi beðið sig að taka vakt fyrir
sig fimmtudagskvöldið 8. janúar sl.
svo og bakvakt á eftir. Vottar hann
m.a.:
„Sagði ég það sjálfsagt enda hefi
ég verið við störf hjá lögreglu ef á
mér hefir þurft að halda. Tók ég við
bifr. um kl. 23.15 áðurnefnt kvöld.
Ekkert bar til tiðinda á vakt eða
bakvakt.”
-JH.