Dagblaðið - 05.03.1981, Qupperneq 16
Þrumandi þorragleði í Hamborg
yfciru „
FO
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAG
Ra/inar SÍRurösson nltarleikari kemur
i fyrsta skipti fram opinberleya meó
Tivoli á hljómleikum á Hótel Bory i
kvöld. Hann xekk aö nýju til liós viö
hljómsveitina Islöasta mánuöi.
DB-mynd: Þorri.
Tívolí hyggur
á tveggja
laga plötu
„Við erum með tvö fullfrágengin
lög eftir Jóhann G. Jóhannsson, sem
við ætlum að leika inn á plötu. Að
undanförnu höfum við ekki haft full-
nægjandi æfingahúsnæði og einnig
hreinlega svo mikið að gera að okkur
hefur ekki gefizt tími til að æfa þau.
En ég reikna með því að við byrjum á
því í næstu viku,” sagði Ólafur
Helgason trommuleikari Tívolis í
samtali við blaðamann DB.
Ólafur sagði að lög Jóhanns væru
alveg í stíl við tónlistarstefnu Tívolís,
kröftug rokktónlist. „Við erum enn
ekki búnir að fá útgefanda að þessari
tveggja laga plötu okkar, en vonumst
til að það gangi á næstunni,” sagði
hann.
Hljómsveitin Tívolí kemur í fyrsta
skipti fram opinberlega í kvöld eftir
að Ragnar Sigurðsson gítarleikari
gekk í hana. Hann kemur í stað
Björns Thoroddsen, sem er farinn til
tónlistarnáms i Bandarikjunum. Þá
er Hjörtur Howser jafnframt hættur
í hljómsveitinni, eins og skýrt var frá
á Fólk-síðu á dögunum.
Ólafur Helgason kvað Tívolí ætla
að bjóða upp á erlenda rokktónlist á
Hótel Borg í kvöld, — lög með
AC/DC, Nazareth, Queen og gömul
og ný lög eftir John Lennon. Þá
verður eitthvað af lögum Led Zeppe-,
lin á dagskrá, því að ,,það þýðir ekk-
ert annað en að leika eitthvað af þeim
hvort sem mönnum líkar betur eðá
verr. Það er alltaf verið að nauða í
okkur að taka þau," sagði Ólafur.
Fjöldasöngnum ómissandi stjórnaöi Áyúst Guðmundsson og naut viö þaö aöstoöar konu sinnar, sem lék á nltar.
DB-myndir: H. Sætran.
fœrra
SKRIFSTOFA FORSTJÓRA
FJÁRMÁLASVID
FLUUMtKS IHAH og DEKNISVID
MARKADSSVID
STJÖRNUNARSVID
HÓTEL BlLALEIGA KEF ARNARFL
Utandyra var heldur vetrarlegt.
En hátíðarbragurinn á þorrablótinu í
Hamborg sveik engan, enda rösklega
blótað.
Hátíðin var haldin laugardags-
kvöldið 21. febrúar á öldruðu óðals-
setri í nágrannabyggð Hamborgar og
upphófust athafnir laust upp úr
miðaftni. Þegar við aðkomu
sannreyndu blótsgestir afurðasýni
islenzks iðnaðar, því að hefð
Hamborgara var boðinn íslenzkur
brennivinssnafs við inngöngu.
Þá er gestir höfðu tyllt sér var
fram borin þorrafæðan. Hráefnið
hafði verið sent frá tslandi og svo
hafði sérlegur matreiðslumeistari
Félags tslendinga í Hamborg, Jost
Borack, annazt úrvinnslu og haglega
tilreiðslu matfanganna af valin-
kunnri smekkvisi að vanda. Þátt-
takendur kunnu augsýnilega vel að
meta frambornar veitingar og lögðu
þeir ótrauðir til atlögu við hlaðin
trogin.
Þrátt fyrir óvissu ýmissa þýzku
gestanna um hvurs/hvers afurðirnar1
nú væru, blótuðu þeir þó ekki
ótæpilegar en margur landinn. Þeir
létu sér fátt um finnast um tilurð eða
uppruna fæðunnar og snæddu hana
með góðri lyst.
Skemmtiatriði blótsins voru af
ýmsu þjóðmenningarlegu tagi, en
fyrst bauð dr. Sverrir Schopka for-
maður Félags tslendinga í Hamborg
gesti velkomna. Alls komu um áttatiu
manns, sumir hverjir langt að. Karin
Schopka fiutti nokkur frumort ljóð
við ágætar undirtektirog síðan las
Börge Kourist ýmsa kafla úr
íslenzkum þjóðsögum. (Sumum
yngri þátttakendanna þótti hún
heldur skrýtin kerling þessi Gilitrútt).
Fjöldasöngnum ómissandi
stjórnaði Ágúst Guðmundsson með
aðstoð eiginkonunnar, sem lék undir
á gitar. Pilturinn kann auðheyrilega
að taka lagið og fá fólk til að taka
undir, því að duglega var sungið.
Hlutavelta kvöldsins færði heim
sanninn um að ekki þarf alltaf að
leggja mikið af mörkum til að öðlast
eitthvað.
Að skemmtiatriðum loknum var
boðið upp í dans. Fótmennt var síðan
iðkuð fjörlega langt fram á síðkvöld.
Skemmtanin fór hið bezta fram og
ungir jafnt sem aldnir eyddu
ánægjulegri kvöldstund saman í
boði Hamborgaranna. -H. Sætran
Einu
númeri
FLUGLEIDIR
Langaöi
— en þorði
ekki
Hlutaveltan á þorrablótinu fœröi heim sanninn um aö ekki þarf alltaf aö leygja
mikiö af mörkum tilað öðlast eitthvaö. Hérer vinninyunum úthlutað.
Hráefnið I þorramatinn hafði verið sent frá Islandi oy slðan verið tilreitt af Jost
Borack. Löyðu yestir þvl ótrauðir til atlöyu við troyin. jafnt Islendinyar sem
þýzkir gestir.
Símaskrá
1981
Þótt Alfreð Elíasson fyrrum for-
stjóri Loftleiða og Flugleiða og
stjórnarmaður í Flugleiðum neiti að
rýma þá skrifstofu, sem hann hefur
haft í byggingu Flugleiða á Reykja-
vikurfiugvelli hafa topparnir engu
að síður komið með krók á móti
bragði og fjarlægt nafn Alfreðs úr
innanhússsimaskrá félagsins. í síma-
skrá 1980 voru fjögur nöfn undir
liðnum „Skrifstofa forstjóra”: Sig-
urður Helgason forstjóri, örn. Ó.
Johnson formaður stjórnar, Alfreð
Eliasson varaformaður stjórnar og
Vilborg Bjarnadóttir ritari. í skrá
ársins 1981 eru hins vegar þessi nöfn:
Sigurður Helgason forstjóri, Vilborg
Bjarnadóttir og Janet Ingólfsson rit-
arar og örn Ó. Johnson formaður
stjórnar. Innanhússnúmer 350 er þar
ekki lengur.
Dönsku blöðin skrifuðu mikið um
Vigdísi Finnbogadóttur forseta
islands i frægri heimsókn hennar til
Danmerkur á dögunum. Bro Brille,
frægur dálkahöfundur á Extra-
blaðinu, sagði m.a. í grein að allir
hefðu verið sammála um að Danir
hefðu aldrei fyrr fengið svo fallegan
forseta í heimsókn. Bro hafði eftir
kunningja sínum:
„Mig langaði mest að lyfta Vigdísi
upp og kyssa hana — en ég þorði það
ekki. Ég reyndi það nefnilega einu
sinni með Ellen, konu Börge
Schmidts borgarstjóra. Ég lyfti henni
upp og kyssti hana og á eftir var hún
flutt á sjúkrahús með þrjú brotin rif-
bein.”
Svo bregðast
krosstré...
Hljótns vettimar Bara
fíokkurlnn (tll vinstri) og
Tortíming, som standa
að hijómieikunum á,
laugardag, eru báðar
nýjar afnálinni.
í nýlegum Lögbirtingi er skýrt frá
gjaldþroti félagsins Scanhús hf. — en
það félag var stofnað fyrir nokkrum
árum með miklum fyrirgangi til að
byggja hús i Nígeríu. Þegar bygginga-
fyrirtækið Breiðholt hf. fór á haus-
inn var Scanhús tekið út úr fyrirtæk-
inu og sýndist mönnum þá, að þar
væri um arðvænlegt framtíðarfyrir-
tæki að ræða. En svo bregðast kross-
tré. . . .
Tóm þvœla og
vitleysa
í Fleira-Fólks dálkinum á þriðju-
daginn birtjst klausa um orkufrekt
gróðurhús á Litla-Hrauni, sem Gísli
forstjóri Sigurbjörnsson hafði gefið
stofnuninni. Helgi Gunnarsson
fangelsisstjóri hafði samband við
blaðamann vegna klausunnar og
kvað hana með öllu tilhæfulausa. —
Gróðurhúsið er aðeins notað á
sumrin, sagði Helgi, og þá ræktaðir i
því tómatar og agúrkur. Á veturna
stendur húsið ónotað og ókynt.
Ráðuneytið þarf því ekki að hafa
áhyggjur vegna kyndingarkostnaðar
þess.
Popphljómleikar á
DB-myndir:
Guóm. Svansson.
Akureyri
Hvað er nú það? gætu Akureyringar spurt, því
að uppákoma sem popphljómleikar hefur ekki
verið þar síðan árið 1976. Nú ætla ungir piltar i
tveimur norðlenzkum hljómsveitum að taka upp
þráðinn. Þær eru Tortíming og Bara flokkurinn.
Hljómleikar þeirra verða i Nýja bíói á laugardag-
inn.
Tortíming er þannig skipuð: Á gítara leika
Albert Ragnarsson og Jakob Jónsson. Níels Ragn-
arsson leikur á hljómborð og Guðmundur Sigurðs-
son á trommur. A efnisskránni hjá Tortímingu er
rokk, jazz, nýbylgjaog reggae.
Tortíming var stofnuð í september á síðasta ári.
Hún hefur komið fram í H-100 og Sjallanum.
Liðsmenn hennar hafa augastað á sveitaböllunum
næstasumar.
Hin hljómsveitin, Bara fiokkurinn, flytur að
mestu leyti frumsamið efni. Aðallagasmiður
flokksins er Ásgeir Jónsson söngvari. Með
honum eru Þór Freysson,á gítar, Jón Freysson
leikur á hljómborð, Árni Hinriksson á trommur og
Baldvin Sigurðsson leikur á bassa.
Bara flokkurinn hefur æft saman í allan vetur. i
nóvember síðastliðnum kom hann fram í Mennta-
skólanum á Akureyri. Flokksfélagarnir segjast að
sjálfsögðu stefna á toppinn, — hvar sem hann er
að finna.
Auk hljómsveitanna tveggja stendur Pálmi í
Stúdió Bimbó að þessum fyrstu popphljómleikum
sem Akureyringum bjóðast um tæplega fimm ára
ske'®- - G.Sv., Akureyri.