Dagblaðið - 05.03.1981, Side 18
18
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1981.
Spáfl er norflaustan átt mafl éljum
á norflanvarflu landinu og á Aust-
fjörðum. Láttskýjafl varflur afl mastu
sunnanlands, vfflast hvar varflur
nokkurt froat
* Klukkan 6 var haogviflri, láttskýjafl
og —10 stig f Raykjavfc, norflaustan
8, skýjafl og -7 stig á Gufuskákim;
norflan 3, skýjafl og —7 stfg á Akur-
ayrl; norflaustan 6, snjókoma og —9
stlg á Raufarhflfn; norflaustan 6, ál og
—4 stig á Daiatanga; norflan 6, létt-
skýjafl og —8 stig á Htffn og austan 4,
léttskýjafl og —4 stig á Stórhöffla.
í Þórshflfn var abkýjafl og 0 stig,
þokumófla og 0 stig f Kaupmanna-
hflfn, snjókoma og -3 stig í Osló,
snjókoma og -9 stig f Stokkhólmí,'
mlstur og 2 stig í London, þokumófla
og 0 stig f Hamborg, láttskýjafl og 5
stig f Madrid, þokumófla og 13 stig f
Llssabon og abkýjafl og 3 stig f Naw
York.
, J
Hólmfríður Krlstjánsdóltlr, sem lézt
24. febrúar, fæddist 27. október 1901
að Úlfsdal í Bárðardal. Foreldrar henn-
ar voru Rósa Helgadóttir og Kristján
Sigurðsson. Skömmu eftir fermingu
fluttist Hólmfríður til Akureyrar og
vann þar við heimilisstörf á ýmsum
heimilum. Árið 1923 fluttist hún til
Reykjavíkur. Þar vann hún við ýmis
störf en lengst af við hreingerningar-
störf hjá Rikisútvarpinu. Hólmfríður
átti eina dóttur.
Óttar Eggert Pálsson, sem lézt 20.
febrúar, fæddist 16. febrúar 1931 í
Reykjavik. Foreldrar hans voru Páli
Eggert Ólason og Margrét Magnús-
dóttir. Árið 1954 lauk Óttar Eggert
stúdentsprófi frá MA. Eftir það fór
hann að kenna sjúkdóms og dvaldist
hann oft lengri tíma á sjúkrahúsi.
Fríðjón Guðmundsson frá Fáskrúös-
firði, sem lézt 10. janúar, fæddist 17.
apríl 1909 í Búðakaupstað í Fáskrúðs-
firði. Foreldrar hans voru Guðmundur
Michelsen og Snjólaug Jónsdóttir.
Friðjón vann lengi vel sem verkstjóri í
frystihúsinu i Búðakaupstað. Árið 1933
kvæntist Friðjón Borgþóru Guð-
mundsdóttur og áttu þau eina dóttur,
einnig óiu þau upp son Borgþóru og
eina dóttur átti Friðjón með Jónu
Torfadóttur. Friðjón og Borgþóra
fluttust til Vestmannaeyja og bjuggu
þar síðustu árin.
Jakob Hermannsson bátsmaður lézt í
Osló nýverið. Jarðarförin hefur farið
fram.
Edda Kvaran, Efstasundi 94, sem iézt
21. febrúar, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni föstudaginn 6. marz ki.
15.
Ingibjörg Stefanía Guðmundsdóttir,
Bröttuhlíð 7 Hveragerði, verður jarð-
sungin frá Hveragerðiskirkju laugar-
daginn 7. marz kl. 11.
Jóna Finnbogadóttir, Ásvallagötu 61,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
föstudaginn 6. marz kl. 13.30.
funéh
A/.-samtökin
1 dag. fimmtudag, verða fundir á vegum AA-sam-
takanna scm hér segir: Tjarnargata 3c kl. 21; Tjarnar-
gata Sb (Ungt fólk) kl. 21 og 14; Laugarneskirkja kl.
21; Kópavogskirkja kl. 21; Ólafsvik, Safnaðarheimili,
kl. 21; Sauðárkrókur, Aðalgata 3, kl. 21; Akureyri,
Gcislagata 39, (s. 96-22373) kl. 21; Seyðisfjörður,
Safnaðarheimili, kl. 21; Vestmannaeyjar, Heimagata
24 (s. 98-1140). kl. 20.30; Selfoss, Selfossvegi 9, kl. 21;
Keflavik, Klapparstigur 7 (s. 92-1800), kl. 21; Patreks-
fjöröur kl. 21; Blönduós, Kvennaskóli. kl. 21; Dalvik
kl. 21.
1 hádeginu á morgun, föstudag, verða fundir scm
hér segir: Tjarnargata 3c kl. 12; Tjarnargata 5b kl. 14;
Akureyri, Geislagata 39 (s. 96-22372). kl. 12.
Geðhjólp félag
geðsjúkra, aðstandenda
þeirra og velunnarra
Almennur félagsfundur verður I kvöld 5. marz kl.
20.30 I nýju geðdeildinni. Málefni félagsins verða
rædd og hugmyndir frá starfshópum. Allir velkomnir.
m
I
GÆRKVÖLDI
Frá draumaheimi Hollywood
til vandamála þriðja heimsins
Eins og svo oft kenndi ýmissa
grasa í dagskrá útvarps og sjónvarps í
gærkvöldi. Fyrirferðarmestu liðirnir
voru þó harla ólíkir. j sjónvarpi var
síðari hluti draumaheimasögu Har-
old Robbins. Þessi mynd lýsti vel
þeim draumaheimi sem kvikmynda-
iðnaðurinn varð strax i upphafi og er
enn.
Það var ekki eins mikill drauma-
heimur sem Stefán Jón Hafstein tók
til umfjöllunar i umræðuþætti i út-
varpinu. Andstæður ríkra þjóða og
fátækra voru til umræðu. örbirgð
gegn auðsæid kallaði Stefán
umræðuna og er það nafn með sanni.
Efnaiegt ójafnvægi það sem ríkir
milli landa I heiminum í dag hefur
verið mikið til umræðu, og það ekki
að ófyrirsynju.
Við erum ekki að tala um tölur í
tölvu, heldur fólk sagði Stefán, og
með réttu. Okkur sem búum við als-
nægtir hættir til að ifta á vandamál
fólksins í þróunarlöndunum sem
fjarlægt vandamál, stundum vanda-
mál sem okkur kemur hreinlega ekki
við. Við Islendingar erum þannig
staddir í dag að hjá okkur eru með
hæstu þjóðartekjum á mann i heim-
inum, en samt erum við mjög aftar-
lega á merinni hvað þróunaraðstoð
snertir. Samkvæmt lögum um aðstoð
íslands við þróunarlöndin er stefnt
að því að aðstoð okkar nái einu
prósenti af þjóðartekjum. Ef við
ætlum að ná því marki þurfum við
heldur betur að taka á honum stóra
okkar því sautjánfalda þarf núver-
andi framlag til að ná þessu eina
prósenti.
Annars erum við rétt að byrja að
fikra okkur á þá braut að verða
veitendur i þróunaraðstoð. Það eru
aðeins nokkur ár síðan við
náðum þeim áfanga að hætta að
þiggja þróunaraðstoð sjálfir.
Annars er þróunaraðstoð á tímum
olíukreppu og annarra vandamála í
heiminum ekki einfalt mál, eins og
eitt dæmi sem þeir félagar nefndu í
gærkvöldi. Fyrir nokkrum árum var
hafizt handa með þróunaraðstoð að
byggja upp landbúnað í einu
Afríkuriki með því að flytja þar inn
dráttarvélar til að lyfta upp land-
búnaði landsins. Núna eru heima-
menn að gefast upp á tækninni og
vilja snúa aftur til gamla tímans, að
beita uxum fyrir plógana. Ástæðan
er hækkandi olíuverð og dýrir vara-
hlutir í vélarnar. Tæknin er oft og
tiðum of dýr biti fyrir þessar þjóðir
að gleypa.
Það að taka upp umræðu um mis-
skiptingu gæða heimsins er þarft verk
og hafi Stefán þökk fyrir. Okkur
íslendingum ber skylda til að láta
meira af hendi rakna til þróunar-
landanna og við verðum líka að vera
menn til að fylgja því eftir. Annars
gæti svo farið að upp kæmi svipuð
spurning og hjá okkur Stefáni, þegar
við stóðum meðal flóttafólks á landa-
mærum Kampútseu fyrir réttu ári:
Hvaðverðursvoumþetta fólk?
Fundur hjá
viðskiptafræðingum
og hagf ræðingum í kvöld
Félag viðskipta- og hagfræðinga hefur ákveðið að
halda röð funda um endurmenntun fyrir félagsmenn
slna.
Fyrsti fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 5.
marz, kl. 20.001 Árnagarði, stofa 201.
Á fundinum mun starfsemi viðskiptadeildarinnar í
fyrirtækjakjarna verða kynnt af kennurum deild-
arinnar. Einnig verður starfsáætlun félgsins lögð fram
og gefst því mönnum ágætt tækifæri til að fræðast
um þaö helzta, sem fram hefur komið á undanförnum
árum.
Kvenfélag Hallgrímskirkju
Fundur helgaöur ári kristniboðsins. sem er í ár, verður
haldinn fimmtudaginn 5. marz kl. 20.30 í félagsheim
ilinu. Fjórir kristniboðar sem starfað hafa i Konsó
munu annast fundinn. Þeir munu segja frá starfi sínu
og sýna litskyggnur og syngja. Kaffi. Að lokum mun
Helgi Hróbjartsson kristniboði flytja hugvekju. Fjöl-
mennið og takið mcð ykkur gesti.
Kvikmy ndir
íþróttamenn
i Háskólabíó
Háskólabió hefur hafið sýningar á myndinni Players
(árg. 1979) sem á íslenzku hefur hlotið nafnið Iþrótta-
mennirnir. Myndin fjallar um ungan glaumgosæ
tennisleikarann Dean-Poul Martin og ástarævintýri
sem hann á með Nicole-Ali Mac Graw. Myndin er
tekin á mjög óvenjulegum stöðum heimsins s.s. á
Wimbledon leikvanginum.
Mynd þessi er fjórða mynd kvikmyndaframleiðand
ans Robert Evans. cn hann hefur áður framleilt úr-
valsmyndirnar Chinatown, Marathon Man og Black
Sunday. sem allar voru endursýndar i Háskólabiói
fyrirskömmu.
iþróttir _
íþróttafélag
fatlaðra
Innanfélagsmót í Boccia verður haldið helgina 21.-22.
marz. Þátttaka tilkynnist til Lýðs. eða Jóhanns Péturs
sima 29110 eða til Elsu Stefánsdóttur i sima 66570
fyrir 16. marz. Munið að tilkynna þátttöku I borð
tennis keppninni sem verður þann 16. marz.
Bikarkeppni KKÍ
Fimmtudagur 5. marz
Laugardalshöll
Valur—UMFN úrslit kl. 20.
Aðalfundir
Aðalfundur
Sjálfstæðisfélags
Keflavfkur
verður haldinn fimmtudaginn 5. marz nk. kl. 20.30 a$
Hafnargötu 46, Keflavik. Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf.
2. Stefna flokksins I bæjarmálum. Frummælandi
Tómas Tómasson, forseti bæjarstjórnar.
3. önnur mál.
Nemendasamband MA
heldur aðalfund fimmtudaginn 5. marz kl. 20.30 að
Hótel Esju.
Stjórnmalafundir
L.. A
Kópavogur
Framsóknarfélögin i Kópavogi auglýsa fund að
Hamraborg 5, 3. hæð 5. marz n.k. kl. 20.30. Fundar-
efni: Fulltrúar flokksins i nefndum bæjarins skýra frá
störfum ogsvara fyrirspurnum.
Garðabær —
Bessastaðahreppur
Framsóknarfélag Garðabæjar og Bcssastaðahrepps
heldur fund fimmtudaginn 5. marz nk. kl. 5.30 i
Goðatúni 2. Jóhann Einvarðsson alþm. mætir á
fundinn.
Ályktun Norræna áhugaleik-
listarráðsins af stjórnarfundi
Á stjórnarfundi Norræna áhugaleiklistarráðsins, sem
haldinn var 23.-25. janúar I St. Mikkel i tengslum
viö leiklistarhátið Sambands áhugaleikara í finnsku
verkalýðshreyfmgunni, var samþykkt eflirfarandi á-
lyktun:
Norræna áhugaleiklistarráðið. er samanstendur af
landssamböndum áhugaleikara á öllum Norðurlönd
unum. lítur svo á að norrænt menningarsamstarf
verði fyrst og fremst að byggja á frjálsu samstarfi og
áhuga fólksins sjálfs. ibúa landanna. og standa föstum
fótum i daglegu lífi þcss.
Það áhugafólk. sem helgar listinni krafta sina. er
jafnframt hluti þessa samfélags og slær þann ncista er
tcndrar sjálfsvitund og bætir og þroskar umhverfi sitt.
Norræna áhugaleiklistarráðið hefur. á tiðum. fagn
að opinberum yfirlýsingum norrænna stjórnmála-
manna og álvktunum samnorrænna stofnana þar sem
með hlýjum orðum var staðfest nauðsyn þessarar
Sænski kvikmyndaleikstjórinn
STEFAN JARL
heldur fyrirlestur og sýnir kvikmynd sína
„Förvandla Sverige”, fimmtudaginn 5.3. kl.
20.30 í Norræna húsinu.
Verið velkomin Norræna húsið
frjálsu samvinnu áhugafólks fyrir norrænt samstarf en
harmar mjög að sannreyna að þrátt fyrir þetta allt er
cnn ekki veitt sanngjörnum fjárupphæðum til sam-
taka. hverra félagar og samstarfsmenn halda uppi. án
endurgjalds. svo umfangsmiklu og grundvallandi sam-
starfi norræns fólks.
Norræna áhugaleiklistarráðið væntir þess nú að
umrætt starf áhugaleikara verði svo hátt metið að af
leiði verulegur aukinn stuðningur frá þeim samnor-
rænu sjóðum sem ætlað er að leysa hin menningar-
legu verkefni.
Istjórn Norænaáhugaleiklistarráðsinseru 1 fulltrúi
frá hverju landi. Fulltrúi tslands er Einar Njálsson.
Húsavík. Formaður Norræna áhugaleiklistarráðsins
er Helga Hjörvar.
Ýmislegt á döfinni
i Norræna húsinu
Ýmislegt verður á döfinni I Norræna húsinu vikuna
2.-8. marz. fyrirlestrar, kvikmyndasýning og bóka-
kynning.
Norræna húsið hefur boðið hingað Hans Frederik
Dahl frá Noregi. en hann er menningarmálaritstjóri
við Dagbladet í Osló. Hans Frederik Dahl er faíddur
1939 og sagnfræðingur að mennt. Hann hefur skrifað
nokkrar bækur, þar á meðal bókina „Kringkastning-
ens historie i Norge”. Hér heldur hann tvo fyrirlestra:
Þann fyrri þriðjudaginn 3. marz kl. 20.30 og nefnist
hann „Massmediedebatten i Norge". hinn siðari
fjallar um stefnur i sagnritun i Noregi i dag eða „Nyc
tendenser i norsk historieskrivning” og verður föstu-
daginn 6. marz kl. 17.15.
Einnig er von á sænska kvikmyndaleikstjóranum
Stefan Jarl. Hann heldur fyrirlestur í Norræna húsinu
fimmtudaginn 5. marz kl. 20.30 og ræðir þar um kvik-
myndagerð sina og mynd hans „Förvandla Sverigc"
verður sýnd, en hún fjallar um lifsskilyrði okkar. Stef-
an Jarl er einkum þekktur fyrir samfélagsádeilu I kvik-
myndum sínum. 1 myndunum „Dom kallaross mods”
og „F.tt anstándigt liv” tekur hann fyrir lif ungra eitur-
lyfjaneytenda. Þessar tvær myndir ásamt. siðustu
stuttu mynd hans „Memento mori" verða einnig sýnd-
ar í tilefni af heimsókn Stefans Járls til lslands. I Regn-
boganum i Reykjavik 4.-8. marz. á Egilsstöðum
28.2.—1.3. og á Akureyri I. marz. Þaðeru Fjalaköll-
urinn. sænska sendiráðið og Norræna húsið sem
standa að þessari heimsókn Stefans Jarls.
Kynning sendikennaranna á bókum frá Norðurlönd-
unum: Laugardaginn 7. marz kl. 15.00 munu sendi
kennararnir I norrænum málum við Háskóla Íslands
kynna bækur sem hafa komið út 1980. Claus Lund
kynnir danskar bækur. Ros-Mari Rosenberg kynnir
finnskar bækur. Tor Ulset norskar bækur og Lennarl
Pallstedt sænskar bækur.
Af þessu tilcfni hefur Norræna húsið boðið hingað
rithöfundinum Christina Andersson og mun hún
ræða um ritverk sin á bókakynningunni. Christina
Andersson er finnlandssænsk og skrifar einkum fyrir
börn og unglinga. Fyrsta bók hennar kom út 1956 og
með bókum sínum um Jakob Dunderskðgg varð hún
mjög þekkt og vinsæl. Christina hefur einnig unnið
við útvarp og sjónvarp og gert 13 kvikmyndir fyrir
börn. Siðustu árin hefur hún skrifað leikrit ætluð
börnum og einkum fyrir leikhóp sem kallar sig Skóla-
leikhúsið. Meðal leikrita eftir hana má nefna tvö sem
hafa verið sýnd hér. Kóngsdóttirin, sem kunni ekki að
tala. sem Alþýðuleikhúsið hefur sýnt við miklar vin-
sældir og Hlynur. svanurinn og Heljarfljótið. sem
Leikfélag Reykjavlkur sýndi fyrir skólanema í vetur.
1 bókasafni Norræna hússins verður sýnt úrval
þeirra bóka sem bókasafnið hefur keypt á sl. ári og
verða þær til útláns að lokinni kynningunni ásamt
öðrum kosti safnsins.
Starfsmannafélagið Sókn
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæða-
greiðslu um kjör stjórnar og trúnaðarráðs Starfs
mannafélagsins Sóknar fyrir árið 1981. Framboðslist-
um skal skila í skrifstofu félagsins Freyjugötu 27 eigi
siðaren kl. 12 á hádegi mánudaginn 9. marz. Hverjum
lista skulu fylgja nöfn 100 fullgildra félaga sem með
mælenda.
Eflum framfarir fatlaðra,
gíróreikningur 50600-1.
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING Ferðamanna
Nr. 44 — 4. marz 1981 gjaideyrír
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandarfkjadollar 8,548 6,564 7,220
1 Sterlingspund 14,499 14,639 15,993
1 Kanadadollar 5,449 5,464 6,010
1 Dönsk króna 0,9841 0,9868 1,0855
1 Norskkróna U103 1,2238 U350
1 Sœnskkróna 1,4188 1,4205 1,5626
1 Finnskt mark 1,6065 1,6100 1,7710
1 Franskur franki 1,3116 1,3151 1,4466
1 Belg. franki 0,1885 0,1890 0,2079
1 Svissn. franki 3,3891 3,3984 3,7382
1 Holienzk florina 2,7942 2,8018 3,0820
1 V.-þýzktmark 3,0863 3,0984 3,4042
1 ftölekllra 0,00640 0,00641 0,00705
1 Austurr. Sch. 0,4361 0,4373 0,4810
1 Portug. Escudo 0,1148 0,1152 0,1267
1 Spánskur peseti 0,0768 0,0760 0,0836
1 Japansktyen 0,03151 0,03160 0,03476
1 IrsktDund SDR (sérstök dréttarréttindi) 8/1 11,308 8,0404 11,339 8,0623 12,473
* Breyting frá slðustu skráningu. Sfmsvari vegna gengisskráningar 22190.