Dagblaðið - 05.03.1981, Síða 28
$&**&**
ftjálsl, óháð dagblað
FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1981
Vísirundir
hamarinn?
— nauðungaruppboð á
rítstjómarhúsnæði
blaðsins auglýstí
fjórðasinn
ígær—íVísi
„Þetta er svokallað fyrra uppboð,
þannig að ekki er um raunverulega sölu
að ræða,” sagði Páll Þorsteinsson, lög-
fræðingur Gjaldheimtunnar í Reykja-
vík, er blaðamaður DB hafði samband
við hann vegna auglýsingar sem birtist í
dagblöðum í gær um nauðungarupp-
boð á hluta Síðumúla 14, þinglýstri
eign Reykjaprents hf. Segir í auglýsing-
unni að uppboðið fari fram á morgun,
6. marz. Áður hefur nauðungaruppboð
á þessari eign Reykjaprents, þar sem
ritstjórnarskrifstofur Vísis eru til húsa,
verið auglýst þrívegis í 92., 98. og 102.
tbl. Lögbirtingablaðs 1980.
Alkunna er að Vísir hefur átt í
miklum fjárhagserfiðleikum um hríð
og hefur Reykjaprent nýverið selt hús-
eign sína í Síðumúla 33. Síðan gerist
það að í Visi birtist auglýsing um nauð-
ungaruppboð á ritstjórnarhúsnæði
blaðsins.
Páll Þorsteinssón sagði að venjan
væri sú að auglýst væri annað og síðara
uppboð áður en uppboðið færi fram,
þannig að af sölu verður væntanlega
ekki á morgun eins og ókunnugir hefðu
getað haldið.
Guðmundur Vignir Jósepsson gjald-
heimtustjóri sagðist ekki mega gefa
upp hverjar skuidir Reykjaprents, út-
gefanda Vísis, væru. í þeim efnum
hefði Gjaldheimtan sömu þagnar-
skyldu og skattyfirvöld. -GAJ
Þótt ka/t só og snjór er vor í
hjarta ungra meyja, sem
skemmta sór i hiýjunni í
sundlaugunum.
DB-mynd Einar Ólason
—bráðlega. Áætlanir um smíði þriggja skipa til að leysa gömlu strandferða-
skipin af hólmi
Skipaútgerð ríkisins er með í
undirbúningi að bjóða út smíði fyrsta
skipsins af þremur sem forráðamenn
fyrirtækisins áætla að láta smiða
fyrir strandferðir umhverfis landið.
Skipaútgerðin ætlar með tímanum að
endurnýja skipakostinn sinn sem
fullnægir ekki kröfum um nútíma
flutningatækni. Vonazt er til að
fyrsta skipið, sem ríkisstjórnin
samþykkti að ráðizt yrði í að smíða,
komist inn á lánsfjáráætlunina sem
Alþingi hefur ekki enn afgreitt.
Guðmundur Einarsson forstjóri
sagði í samtali við Dagblaðið að mikfll
munur væri á útbúnaði Heklu og
Teikning af væntanlegu nýju strandferðaskipi.
Esju annars vegar og nýju skipanna
hins vegar. Nýju skipin eiga að verða
útbúin öllum bezta útbúnaði við
losun og lestun sem fáanlegur er um
þessar mundir. Nýju skipin henta
betur til gámafiutninga, en einnig til
flutninga á brettum og minni
einingum. Hekla og Esja bera 820
tonn og eru með 65.000 rúmfeta lest-
arrými, en nýju skipin verða með
1.200 tonna burðarrými og 120.000
rúmfeta lestarrými.
Reiknað er með að smíði nýs
strandferðaskips taki eitt ár frá því
húnhefst.
-ARH.
Leiðin rudd til olíusamninga við Norðmenn:
Norðmenn gera stóran
olíusamning við Svía
—fá raf magn í staðinn. Grund völlur svipaðra samninga við öll Norðurlönd ,segir
Gro Brundtland.—ísland og Danmörk hafa sérstakan áhuga
Frá Sigurjóni Jóhannssyni, fréttarit-
ara DBí Osló:
Noregur fær rafmagn frá Svíþjóð
en Svíar fá í staðinn olíu frá Noregi.
Þetta er í aðalatriðum samningur
milli Noregs og Svíþjóðar er verður
undirritaður 25. marz nk. Fjölmiðlar
í Noregi telja að Norðmenn muni láta
af hendi tvær milljónir tonna af olíu
árlega, en fá í staðinn 2 terrawatttíma
af rafmagni.
Þá verður stofnaður sameiginlegur
iðnþróunarsjóður með 200 milljón-
um sænskra -króna í stofnfé. Gro
Harlem Brundtland, forsætisráð-
herra Noregs, sagði í sjónvarpi í gær-
kvöldi að þessi samningur gæti orðið
grundvöllur svipaðra samninga við
öll Norðurlönd og má búast við að
sérstaklega ísland og Danmörk hafi
áhuga á samningum við Noreg um
olíukaup.
Slíkur samningur hefur lengi legið í
loftinu því Svíar hafa verið utan við
olíuævintýrið í Norðursjónum og
standa höllum fæti með hinn háþró-
aða iðnað sinn. Volvo-fyrirtækið
reyndi ákaft að ná samningum við
ríkisstjórn Noregs fyrir 2—3 árum,
en samningar runnu þá út í sandinn.
Með þessum athyglisverða samn-
ingi verður jafnframt reynt að brjóta
niður ýmsa múra til að gera öll at-
vinnu- og fjármálaumsvif milli land-
anna greiðari.
- JH
Dregið úr
rafmagns-
skömmtun
Rafmagnsskömmtun undanfarnar
vikur og fremur hagstætt veðurfar fyrir
rafmagnsframleiðendur hefur nú gert
það að verkum að Þórisvatn er ekki
nema 75 cm lægra en á sama tíma í
fyrra. Landsvirkjun hefur því talið sér
fært — a.m.k. í bili — að heimila
stöðvun olíustöðva, sem framleiða
samtals 24 megawött. Standa þá eftir
aðeins 4 mw í disilstöðinni á Kefla-
víkurflugvelli, að þvi er segir í frétt frá
Landsvirkjun í gær.
Frostin og snjórinn í vetur gerði það
að verkum að í lok janúar var Þóris-
vatn orðið 3,4 metrum lægra en á sama
tima í fyrra. Var því af hálfu Lands-
virkjunar gripið til aukinnar skömmt-
unar á rafmagni i samráði við við-
skiptavini fyrirtækisins.
Skömmtun hjá Isal og Áburðarverk-
smiðjunni hefur enn ekki minnkað
nema smávægilega og vill Landsvirkj-
un engu spá um hversu hratt hægt er að
auka aflið til þessara fyrirtækja. Járn-
blendiverksmiðjanerennlokuð. -ÓV
Opinber rann-
sókn vegna
ummæla
læknis um
lögreglumenn
íDagblaðinu
Rikissaksóknari hefur fyrirskipað
opinbera rannsókn á ummælum Rögn-
valds Þorleifssonar læknis í Dag-
blaðinu nýlega. Rannsóknarlögregla
rikisins mun annast rannsóknina. í
viðtalinu ræddi Rögnvaldur um
handtöku læknis, sem grunaður var
um ölvun við akstur og siðan með-
ferð á þeim handteknu og blóðsýnis-
horna. Lögregluféiag Reykjavikur
óskaði opinberrar rannsóknar á um-
mælunum. -JH
10 bflar í á-
rekstrasúpu
Samtals 10 bílar áttu aðild að einni
árekstrasúpu sem varð í Álfabrekku f
Kópavogi í gærmorgun. Mikil hálka
var þá á götunni sem er með þeim
brattari í bænum. Runnu bílarnir
saman einn af öðrum og fengu öku-
menn litið við ráðið vegna brattans
og hálkunnar.
Engin slys urðu á mönnum en bíi-
arnir eru misjafnlega mikið
skemmdir, þóenginnónýtur. -KMU
SMÍDINÝS STRAND-
FERDASKIPS B0DIN ÚT