Dagblaðið - 13.03.1981, Page 5

Dagblaðið - 13.03.1981, Page 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13. MARZ 1981. 17 ' Hvað er á seyði um helgina ? Urslitaleikur deildabikarsins á Wembley í dag: West Ham á Wembley íþriðja sinn á ári í dag kl. 15 hefst leikur West Ham og Liverpool á Wembley í úrslitum ensku deildabikarkeppninnar. Leikur liðanna hefur alla burði til að verða góður því bæði hafa sýnt góða leiki undanfarið — einkum þó Liverpool. West Ham leikur á morgun í þriðja skipti á aðeins 10 mánuðum. West Ham lék til úrslita um bikarinn í maí i fyrra og fór með sigur af hólrni gegn Arsenal. Síðan mælti West Ham Liverpool í keppninni um góðgerðar- skjöldinn i ágústbyrjun og nú mætir West Ham ensku meisturunum á ný — i úrslitum enska deildabikarsins. West Ham hefur einu sinni áður leikið til úrslita í þessari keppni, rétt eins og Liverpool. West Ham mætti Wcst Bromwich Albion í úrslitunum 1966 og þá var í síðasta skipti leikið heima og að heiman. West Ham sigraði 2—1 á Upton Park en fékk 1—4 skell í hausinn á útivelli. Albion vann því bikarinn. Liverpool lék hins vegar við Nottingham Forest 1978 og tapaði eftir aukaleik. Fyrst varð jafnt, 0—0, á Wembley, þar sem ungur varamarkvörður Forest, Woods að nafni, hélt Forest á floti. í aukaleiknum var það vítaspyrna Jolin Robertson sem tryggði Forest sigurinn. Það var ekki fyrr en með úrslitaleik QPR og WBA árið 1967 að einhver virðingarblær fór að færast yfir deildabikarinn. Úrslitaleikur liðanna var i fyrsta sinn háður á Wembley og hefur farið fram þar æ síðan. Fram að þeim tima höfðu mörg stærri félögin, þ.á m. Liverpool, litinn sent engan áhuga á keppninni en um leið og Wembley kom inn i myndina opnuðust augu forráðamanna lið- anna. Liverpool hefur komizt i undanúr- slil þessarar keppni þrivegis á sl. fjórum árunt. Naumur sigur gegn Man. City í undanúrslitum (2—1 samanlagt) fleytti liðinu i úrslitin í ár. í fyrra féll Liverpool út í undanúrslit- unum fyrir Forest (1—2 samanlagt) og það voru enn tvær vitaspyrnur Robertson sem fleyttu Forest áfram. Arið 1979 komst Liverpool lítt áleiðis en vorið 1978 lapaði liðið 0—I fyrir Forest í úrslitum eins og áður sagði. West Hant hefur hins vegar ekki átt eins ntikilli velgengni að fagna i þess- ari keppni undanfarin ár. Búast má við að fjöldi manna fylgist með útvarpslýsingu frá leikn- um i BBC i dag. Ef að líkunt lætur verður öllum leiknum lýst. Bezt er að ná sendingum BBC á stuttbylgju á 19 eða 25 metrunum á jtessum tima. El menn hafa góð miðbylgjutæki er hægt að ná BBC 2 með herkjum á 330 metrunum eða 433 metrunum. - SSv. I Árshátíðir Borgfirðingafélagið heldur árshátíð sína i Domus Medica laugardaginn 14. marzkl. 19.30. Miðasala á sama stað fimmtudag og föstudag kl. 17— 19. Uppl. ísima 86663. Bazarar Kvenfélag Breiðholts með basar og kaffisölu Kvenfélag Breiðholts hcldur basar og kaffisölu i Safnaðarheimili Bústaðakirkju sunnudaginn 15 marz kl. 15. Tekið verður á móti kökum og basar- munuin á sama stað kl. 13. Allur ágóði af kaffísölunni rennur til Brciðholts- kirkju. Köku- og blómabasar til styrktar meðferðarheimili einhverfra barna Umsjónarfélag einhverfra barna var stofnað árið 1977. Eitt af aðalmarkmiðum félagsins hefur verið stofnun mcðferðarheimilis fyrir einhverf (geðvcik) börn. Þau þurfa flest ævilanga meðferð. sem for- cldrar einir gcta ckki vcitt. Rikið hefur nú fest kaup á húseigninni Trönu- hólum 1 og verður þar starfrækt meðfcrðarheimili fyrir einhvcrf börn, fyrsta sinnar tegundar á landinu. Umsjónarfélag einhverfra barna er að hluta til ábyrgt fyrir lokaframkvæmdum við hcimilið. Félagið aflar fjár með ýmsu móti i þessu skyni og hcfur mcðal annars fengið viðurkenningu skatlyfír- valda á skattfrelsi framiaga til hcimilissjóðs félags- ins. Giróreikningur félagsinser nr. 41480-8. Margir hafa stutt félagið með framlögum, bæði einstaklingar og hópar. nú siðast hefur Kvenfélagiö Hríngurinn hcitið rikulcgum stuðningi við fclagið. Félagskonur hafa alltaf haft það á stefnuskrá sinni að hlúa að veikum börnum, cins og Barnaspitali Hringsinsog gcðdcild Bamaspitala bera vott um. Sunnudaginn 15. marz heldur Umsjónarfélag ein- hverfra barna köku- og blómabasar. Ágóðinn rennur til meðferðarheimilisins. Basarinn hefst kl. 14 að Hallveigarstöðum við Túngötu. Þeir sem tcggja leið sina þangað á sunnudaginn munu vafa- laust láta freistast af gómsætum kökum og cfnilcg- um pottablómum. Kvenfélag og kirkjubygging í Breiðholti í sumum söfnuöum höfuðborgarinnar eru kirkju- kvenfélög, sem árlega safna milljónum til kirkju- byggingar sinnar, cða til kaupa á kirkjumunum, sem hverjum söfnuði eru nauðsyn. Breiðholtssöfnuður er elztur safnaða i rúmlega tuttugu þúsund manna „borg i borginni" — en þar er engin nothæf kirkja ogekkert ..kirkjukvenfélag" heldur. Nú á sunnudaginn kcmur, 15 .marz, cfnir Kven- félag Breiðholts til kaffísölu og basars i safnaöar- heimili Bústaöakirkju að lokinni guðsþjónustu þar. Út fyrir hverfið þarf að leita til góðra granna um hentugt húsnæði til kaffiveitinga, þar sem engin notalcg aðstaða er til þeirra hluta i Bökkum cða Stekkjum. Ágóöi af þessu framtaki kvennanna fer i kirkju- byggingu safnaðarins. En aðdragandi þeirrar bygg- ingar cr þegar orðinn nokkur, cinkum þó af þvi. að gleymzt hafði i upphafi að ætla henni staö i skipu- 'lagi hverfísins. En nú cr hún að rísa. Veturinn hefur að vísu valdið þvi að siðasti áfangi við steinsteypu cr ekki búinn. Þar mun þó aðeins um fá dagsvcrk að ræöa. En á þessu ári þarf kirkjan að komast undir þak. Það cr lifsnauðsyn þessa safnaðar. Tilkynningar Kaffiboð fyrir aldraða Skagfirðingafélagið i Reykjavik heldur sitt árlega kaffiboð fyrir aldraða í Hreyfilshúsinu sunnu- daginn 15. marz kl. 14:30. Jón Helgason alþingis- maður flytur ræðu. Opið hús Laugardaginn 14. marz verður skemmtun fyrir þroskahcfta I Þrótlheimum við Sæviðarsund (Félagsmiðstöð Æskulýðsráðs) frá kl. 15—18. Allir þroskaheftir cru hvattir til að mæta. Dansklúbbur Heiðars Ástvaldssonar Dansæfing laugardaginn 14. marz kl. 21 að Brautar- holti 4. Kökukvöld. Árnesingamót 1981 verður haldið í Fóstbræðraheimilinu við Langholts- veg laugardaginn 14. marz og hcfst með borðhaldi kl. 19. Heiðursgestir mótsins verða þau Guðrún Lofls- dóttir og Pálmar Þ. Eyjólfsson tónskáld og organisti á Stokkseyri. Árncsingakórinn syngur, Elisabct Eiriksdóttir syngur cinsöng og hljómsveit Hreiðars Ól. Guðjónssonar leikur fyrir dansi. Miðar fást í Bókabúð Lárusar Blöndal, Skóla- vörðustig 2, simi 15650. Skemmtikvöld í Félagsgarði í Kjós Nú i vetur hefur Karlakórinn Stefnir i Mosfellssveit haldið skemmtikvöld i kabarettstil. Skemmtanirnar hafa farið fram I Hlégarði og verið frábærlega vel tekið af þeim er sótt hafa enda hafa færri komizt að cn vildu. Næstkomandi laugardagskvöld. 14. marz. bregða Stefnismenn sér upp i Félagsgarð í Kjós, meö úrval af skcmmtiatriðum frá fyrri kvöldum i Hlégarði. Skcmmtunin í Félagsgarði hcfst kl. 21.00. Mosfcll- ingum gefst kostur á rútuferð kl. 20.00 á laugardags- ikvöld frá Þverholti. Þess ber að geta að Stefnismenn hafa notið aö- stoöar eiginkvenna sinna við gerð og flutning skcmmtiefnisins og er þeirra hlutur si/t minni en karlanna. Sýningum fækkar á Gretti Söngleikurinn Grettir eftir þá Þórarin Eldjárn, Ólal Hauk Simonarson og Egil Ólafsson fer nú scnn að renna sitt skeið á enda. Leikfélag Reykjavikur hefur staöið fyrir sýningum á leiknum siðan i nóvembcr. Fyrir nokkru voru miðnætursýningar aflagðar og nú er vcrkið sýnt klukkan 21 á miövikudags- og Jföstudagskvöldum. — Næsta sýning er cinmitt i kvöld. Alls koma sextán leikarar, söngvarar og dansarar fram i Gretti. Stærstu hlutverkin eru i höndum Kjartans Ragnarssonar, Jóns Sigurbjörnssonar. Ha.ralds G. Haraldssonar, Ragnheiöar Stcindórs- dóttur, Hönnu Mariu Karlsdóttur, Sigurvcigar Jóns- dóttur og Egils ólafssonar. — Á myndinni má sjá Gretti — Kjartan Ragnarsson — ásamt nokkrum vinum sinum úr pönkarastétt. Þcir cru lciknir af Soffíu Jakobsdóttur, Andra Clausen og Aðalsteini Bergdal. Stjórnmálafundir Alþýðubandalagið í Suðurlandskjördæmi Kjördæmisráðsfundur Alþýðubandalagsins i Suður- landskjördæmi verður haldinn laugardaginn 14. marz kl. 14 i Verkalýðshúsinu á Hellu. Fundarcfni: Atvinnumál. Framsöguerindi flytja Guðrún Hall- grimsdóttir og Sigurjón Erlingsson. Selfoss — nágrenni Sjálfstæðisfélagiö Óöinn boðar til almenns stjórn- ■málafundar að Tryggvagötu 8, Sclfossi, sunnu- idaginn 15. marz kl. 15. Frummælendur vcröa Geir Hallgrimsson og Albert Guðmundsson. Allir sluðn- ingsmenn Sjálfstæðisflokksins velkomnir. Hellissandur Viðtalstimar þingmanna i Vesturlandskjördæmi ;verða i Röst Hellissandi 14. marz kl. 16—18 og •mættir veröa Alexander Stefánsson og Davið Aðal- Isteinsson. Skilíhelg- ardagbók Vegna vinnslutíma helgardag- bókar Dagblaðsins skal bent á að I þeir sem hyggjast koma að efni í | hana skulu skila því í siðasta lagi klukkan fimm á miðvikudags-1 eftirmiðdögum. Ekki er tryggt að I tilkynningar sem berast siðar | komist inn þá vikuna. Varðandi efni i helgardagbók-1 ina skal tekið fram að hún á ein- göngu að fjalla um atburði sem eru að gerast um helgina. Annað | efni fer í fasta dagbók blaðsins. -ÁT. Ráðstefna um landbúnaðarmál ihaldin i Valhöll Reykjavik 13.—14. marz 1981. jFöstudagur 13. marz: ! 16.00 Ráðstefnan sett: Geir Hallgrimsson, for- maður Sjálfstæðisflokksins. ; 16.15 Landbúnaðurinn — vandamál og mögu- ! leikar. — Stefán Aðalsteinsson búfjárfræð- ingur. 16.30 Aðgerðir til að stjórna framlciðslu og áhrif þeirra. a) Kvótakerfí. b) Fóðurbætisskattur. c) Aðrar leiðir. — Egill Jónsson al- i þingismaður, Óðinn Sigþórsson bóndi. i 17.00 Fjármagn til uppbyggingar og rekstrar í bú- skap og vinnslustöðvum. a) Lögbundin fjár- framlög vcgn^ jarðræktar- og búfjárræktar- laga. b) Fjármagn úr fjárfestingarlána- sjóðum. — Guðmundur Sigþórsson, fulltrúi i landbúnaðarráðuneyti, Matthias Á. ' Mathiesen alþingismaður. 17.30 Verðmyndun á búvöru. a) Framleiðslu- ráðslögin, visitölubúið og störf sexmanna- nefndar. b) Niðurgreiðslur og útfíutnjgns- bætur. c) Bcinir samningar bænda við rikis- valdið. — Brynjólfur Bjarnason framkvslj.. Gcir Þorsteinsson. fulltrúi i scxmannancfnd. Þórarinn Þorvaldsson bóndi. i 18.15 Þörf fyrir búvöruframleiðslu. a) lnnlcndur | markaður fyrir matvæli og iönaðarhráefni. b) Erlcndur markaður fyrir búvörur. — Kctill Hanncsson ráðunautur. Umræður og fyrirspurnir. 19.00 Fundarhlé. 'Laugardagur 14. marz: j09.00 Framleiðniaukning i landbúnaði og vinnslu- stöðvum. a) Möguleikar á framleiðniaukn- ingu og afleiðingar hennar. b) Dreifíng og af- I urðasala. — Lárus Jónsson alþingismaður. '09.15 Búsctuþróun. a) Fækkun bænda — grisjun byggðar. b) Ný atvinnutækifæri i sveitum. — Jón Guðmundsson bóndi, Sigurjón Bláfeld i ráðunautur, Þórður Þorbjarnarson borgar- verkfræðingur. 10.00 Landið og nýting þess. — Pálmi Jónsson landbúnaðarráðhcrra. j 10.15 Almennar umræður. i 12.00 Hádegisverður. Ávarp: Steinþór Gestsson alþingismaður. 13.00 Almcnnar umræður. ,16.00 Ráðstefnuslit. | Ráðstefnustjóri: Bjarni Bragi Jónsson hagfræðing- iur. Ritarar ráðstefnunnar: Árni Jónsson landnáms- jstjóri og Tryggvi Gunnarsson laganemi. Ferðalög Útivistarferöir Sunnud. 15.3 kl. 13: Grimmansfell — Reykjafell, létt fjallganga eða skiðaganga á sama svæði. Verð 40 kr., fritt fyrir börn með fullorðnum. Farið frá BSÍ. vestanverðu. Páskafcrðir: Snæfellsnes, gist á Lýsuhóli. Noröur- Sviþjóð. ódýr skiða og skoðunarlerð. Samvinnubankinn Sparivelta Nú getur þú stoftiað verðtryggðan spariveltureikning í Samvinnubankanum. Um leið og þú verðtryggir pening- ana þína tryggir þú þér rétt til lántöku, - Samvinnu- bankinn skuldbindur sig til að lána þér sömu upphæð og þú hefur sparað að viðbættum vöxtum og verðbótum! Sparivelta Samvinnubankans er jafngreiðslulánakerfí, sem greinist í þrennt: Spariveltu A, skammtímalán; Spariveltu B, langtímalán; og Spariveltu VT, verðtryggð lán. Láttu Samvinnubankann aðstoða þig við að halda í við verðbólguna. Fáðu nánari upplýsingar um spariveltuna hjá næstu afgreiðslu bankans. VERÐTRYGGÐ Sparivelta Fyrirhyggja í fjármálum

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.