Dagblaðið - 18.03.1981, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1981.
Likan af DC-10 véi, merkt Loftleiöum
Grátbroslegur skrípa-
leikur hjá Flugleiðum
— leigumál f iugvéla félagsins eru oröin að aðhlátursef ni
ræðis fyrir þá sem þurfa að senda
hann til ættingja eða annarra eriendis
sem vilja kynna sér ferðatíðnina sam-
kvæmt bæklingnum.
Sama dag og fréttin birtist í Mbl.
um hina nýju sumaráætlun með
hinni nýju Boeing-vél er svo önnur
frétt í sama blaði. Hún er um það að
nú ætla Flugleiðir í skaðabótamá! við
varnarliðið á Keflavíkurflugvelli
vegna tjóns sem varð á vélinni í
óveðrinu í síðasta mánuði! Áður var
búið að tilkynna frá félaginu að við-
gerðin gæti tekið mánaðartíma eða
meir þannig að ekki fer þessi vél í um-
ferð við upphaf sumaráætlunar
félagsins. Hún hefur meira að segja
verið umrædd sem ein þeirra véla sem
á að selja vegna óhagkvæmni í
rekstri, að sögn eins forráðamanna
Flugleiða! Hvers vegna skyldi þessi
flugvél þá hafa verið keypt í upphafi
ef hún er ári síðar orðin óhagkvæm?
En það er nú eftir öðru hjá þessu
félagi að krefjast skaÁabóta af
varnarliðinu sem það á alla sína til-
veru að þakka! Þar er átt við flugvöll-
inn sjálfan og allt viðhald hans og
rekstur.
En það eru ekki þessi atriði ein sem
vekja furðu fólks varðandi flugfélag
sem nú krefst þess að samkeppnis-
hörnlur verði settar svo landsmenn
eigi engra kosta völ í samgöngum við
útlönd.
Hinar tíðu bilanir á innanlands-
farkostum félagsins vekja spurn-
ingar, t.d. þá hvers vegna þurfti að
leita alla leið til Suður-Kóreu til
kaupa á þessum farkostum og hvers
vegna þær þurftu svo mikillar endur-
nýjunar við áður en þær voru taldar
boðlegar hér á landi. Og hvers vegna
var skipt á þeim og vélum sem fyrir
voru með fullkominn útbúnað?
Ennfremur mætti spyrja unt hvað
mikið Flugleiðir hafa eignazt i DC-10
vélinni sem leigð var til Bandaríkj-
anna. Hún var á sínum tíma talin af
félaginu sjálfu vera til að auka við
fjárfestingu félagsins. Er þessi vél
kannski ekki lengur í eigu félagsins?
Þessi leigumál flugvéla félagsins eru
orðin að aðhlátursefni.
Sjónvarp:
Flóttamannatónleikar
Rifjaði
upp gamlar
minningar
— aðsjákempureins
ogPeterTownshend
Rokkari skrifar:
Það gladdi gamalt hjarta rokkara
að sjá flóttamannatónleikana í sjón-
varpinu sl. laugardagskvöld.
Sjónvarpið er að vísu með ágætis-
þátt, sem er Skonrokk Þorgeirs Ást-
valdssonar, en það hreyfir gamlar
taugar að sjá kempur eins og Pete
Townshend á sviði.
Ég hef aldrei verið neinn sérstakur
aðdáandi Paul McCartneys en mér
finnst hann sterkari eftir að hafa séð
hann þarna á þessum hljómleikum.
Sjónvarpið mætti gjarnan endur-
sýna þessa tónleika.
eru nú orðnar frægar fyrir að endem-
um heldur líka allar þær fréttatil-
kynningar sem þaðan koma, ýmist
frá „Kynningardeild” eða þær sem
hafðar eru eftir forráðamönnum
félagsins.
Ein fréttin er um sumaráætlunina.
„9 ferðir á viku til New York og Chi-
cago,” segir i Mbl. 13. þ.m. — Segir
þar að tvær DC-8 vélar muni annast
þessar ferðir og ein B-727-200
(nýjasta vélin) ásamt einni B-727-100
(önnur gamla Boeing-vélin) muni
annast ferðir til Norðurlanda og
Bretlands.
Engin sumaráætlun er þó komin út
ennþá hjá félaginu og samkvæmt
símtali við þann aðila sem uppl. gaf á
aðalskrifstofu er ekkert vitað hvenær
slík áætlun verður til reiðu fyrir al-
menning.
Er spurt var eftir sumaráætlunar-
bæklingi á söluskrifstofu félagsins
var því svarað að hann myndi til
staðar öðru hvoru megin við helgina
(14.—15. þ.m.). Bæklingurinn er þó
enn ekki til staðar, til mikils óhag-
..................................
Siðumula 22 - Tjarnargötu 17,
Sími31870 Keflavík Sími 2061
Vestri skrifar:
í neðanmálsgrein Magnúsar Bjarn-
freðssonar í Vísi í síðustu viku ræðir
hann um þann grátbroslega skrípa-
leik sem hið svokallaða Flugleiðamál
er löngu orðið.
Nú ráða Flugleiðir ferðum og far-
gjöldum fyrir landsmenn en það
virðist ekki nægja. Flugleiðir vilja nú
fá það staðfest, sennilega hjá hinu
opinbera, að engir aðrir en Flugleiðir
haldi uppi samkeppni við félagið í
nútíð og framtíð!
En það eru ekki bara fargjöld og
samkeppnishömlur sem Flugleiðir
Pete Townshend á fullu á hljómleik-
um.
Spurning
dagsins
Borðarðu
fisk?
Kristín Guðmundsdóttir afgrm.: Já,
ýsa er mitt uppáhald.
Guðfinna Kristjánsdóltir: Já, já. Mér
finnst ýsan bezt.
Baldvin Halldórsson, vinnur við
Prisma: Ég borða allan fisk.
Sigriður Guðmundsdóttir húsmóðir:
Já, aðallega ýsu.
Konráð Baldvinsson trésmiðameistari:
Já, ég borða allan góðan fisk. j
-
i
Erla Ingimars húsmóðir: Já, mér þykir
hann beztur steiktur.
1