Dagblaðið - 18.03.1981, Blaðsíða 27
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1981.
<§
Útvarp
27
Sjónvarp
D
NYJASTA TÆKNIOG VISINDI - sjónvarp kl. 21.25:
Sagt verður frá framleiðslu á hljóðlátarí þotuhreyflum. DB-mynd Hörður.
SKIÐASKIP OG
VINDMYLLUBÍLL
—ásamt hljóðlátari þotuhreyflumf þurrkun hrísgrjóna og
öruggara bremsukerf i
Fimm myndir verða á dagskrá þátt-
arins Nýjasta tækni og vísindi i
sjónvarpinu í kvöld sem Sigurður H.
Richter stjórnar.
Sú fyrsta er um sjóskíðaskip. Þau
hafa verið í notkun í áratug, aðailega á
stuttum leiðum. Sjóskíðaskip eða flug-
bátar, eins og þau hafa stundum verið
nefnd, eru frekar lítil og eru skíði undir
skrokknum. Þegar skipið hefur náð
ákveðnum hraða lyftist það upp á
skíðin en við það minnkar mótstaðan
og gefst þá möguleiki á enn meiri
hraða. En gallinn við þessi skip er mik-
ill titringur í þeim. í þættinum í kvöld
verður einmitt sagt frá nýrri tegund
sjóskíðabáta, sem er laus við titringinn.
Margar hugmyndir hafa komið
fram um lausn á órkuvandamálum
mannkyns og ein verður kynnt í kvöld.
Líklega er of mikið að kalla hana lausn
en hún er þó í áttina. Hugmyndin er
vindmyllubíll. Slikur bíll er með vind-
mylluspaða að aftan og þegar bíllinn er
á ferð snúast spaðarnir og framleiða
rafmagn en billinn gengur fyrir raf-
magni.Og ef vindur blæs þegar bíllinn
stendur óhrcyfður framleiðist að sjálf-
sögðu einnig rafmagn sem hleðs.i inn á
rafgeyminn.
Þurrkun hrísgrjónauppskeru er mál
sem kannski snertir íslendinga ekki i
hinu daglega amstri en engu að síður
verður kynnt ný hentug aðferð við
slíkt og kannski verður hún til þess að
íslendingar fái ódýrari hrísgrjón.
Sagt verður frá þróun til hljóðlátari
þotuhreyfla en flugvélaframleiðendur
hafa neyðzt til að taka tillit til krafna
sem komið hafa fram í því efni.
Nýjustu breiðþotur eins og Tristar og
DC—10 hafa einmitt hreyfla, sem sér-
staklega voru hannaðir með það fyrir
augum að draga úr hávaða.
Loks verður kynnt nýtt
bremsukerfi sem Mercedes Benz-verk-
smiðjurnar hafa þróað en það hefur
þann eiginleika að hjólin læsast
aldrei þegar bremsað er. Eykur það
mjög öryggi þegar ekið er i hálku.
-KMU.
UMRÆÐUÞÁTTUR UM ÁFENGISMÁL—útvarp M. 22.40:
Er hægt að draga úr áfengisneyzlu?
—aðallega spjallað um fræðslu ungs fólks
Er hægt að draga úr áfengisneyzlu? munu fjórir menn, Vilhjálmur Svan
nefnist umræðuþáttur sem Pjetur Þ. starfsmaður SÁÁ, Karl Helgason
Maack guðfræðingur og starfsmaður fulltrúi Áfengisvarnaráðs, Árni Einars-
SÁÁ stjórnar í útvarpi í kvöld. Þar son formaður íslenzkra ungtemplara
og Sverrir Friðþjófsson forstöðumaður
Fellahellis ræða leiðir til að draga úr á-
fengisneyzlu, aðallega hugmyndir um
hvað hægt sé að gera til að fræða ungt
fólk um áfengismál.
Bændaskólinn ó Hvanneyri.
UR SKOLALIFINU - útvaip M. 20:
LANDBÚNAÐARNÁM
Á ÍSLANDIKYNNT
—Bændaskólinn á Hvanneyri heimsóttur
Bændaskólinn á Hvanneyri og
nám í landbúnaði hérlendis verða
kynnt í þættinum Úr skólalífinu sem
Kristján E. Guðmundsson mennta-
skólakennari stjórnar i útvarpinu í
kvöld.
Kristján fór í heimsókn að
Hvanneyri á öskudag og ræddi við
skólastjórann, Magnús Jónsson. Er
þátturinn að mestu byggður upp á þvi
viðtali en þeir spjölluðu um skólann
og starfsemi hans. Einnig var rætt
við fjóra nemendur.
Þrenns konar starfsemi fer fram á
vegum skólans. Hann er í fyrsta lagi
skólastofnun, þar er rekið bú og þar
fer einnig fram rannsóknarstarf.
Skólinn sjálfur er tvískiptur, í
almenna bændadeild og búvísinda-
deild. Nám í bændadeild tekur eitt ár
en búvísindanám er þriggja ára nám
ogáháskólastigi.
-KMU.
Stuttum viðtölum við Sigurð Pálsson
starfsmann menntamálaráðuneytisins
og séra Sigurð Hauk Guðjónsson
verður einnig skotið inn i þáttinn.
Sigurður Pálsson hefur mál sem snerta
áfengisfræðslu í skólum hins opinbera
á sinni könnu. -KMU.
Pjetur Þ. Maack stjórnar umræðu-
þættinum.
NEMENDALEIKHUSIÐ
Peysufatadagurinn
eftir Kjartan Ragnarsson
Sýning miðvikudag kl. 20.
Miðasala opin i Lindarbæ fró kl. 16—19 alla daga, nema laugar-
daga. Miflapantanir í sima 21971 á sama tíma.
BIIKKSMIflJftM NL
Óskum að ráða nokkra blikksmiði nú þegar
eða síðar. Mikil vinna.
Upplýsingar á staðnum.
BLIKKSMfÐJAN H/F
KÁRSNESBRAUT124. - SÍMI41520.