Dagblaðið - 24.03.1981, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1981.
9
Ef Tony Evans hittir ekki nákvæmlega á dýnuna. . .
tta
tvíburar
í sama
bekknum
Kennarinn Catherine Foad á
við sérstakt vandamál að
stríða. í bekknum sem hún
kennir eru nefnilega fjögur pör
af tvíburum.
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
Stökk fram af
sj ö hæða húsi
á dýnu umkringda spjótum
sem
Það er margt
mannfólkið gerir sér til
dundurs. Tony Evans
stundaði áður dýfingar í
tómstundum sínum og reynd-
ar keppti í þeirri grein íþrótta.
Á bátasýningu sem haldin
var fyrir nokkru í London
gafst Tony tækifæri til að
rifja upp hæfni sína í
dýfingum. Á sýningunni
stökk hann þrisvar á dag þá'
daga sem sýningin stóð yfir
fram af 7 hæða háu húsi (25
m) og lenti — ekki i sundlaug
— heldur á dýnu.
Hann varð að hitta ná-
kvæmlega á dýnuna því sitt
,við hvora hlið hennar stóðu
sex álspjót upp í loftið.
Nei, þetta
er ekki
sítróna
Eigandinn, Keith Atkinson, myndi sjál.f-
sagt verða fyrstur til að viðurkenna að
bíllinn hans líktist sítrónu. Hann eyddi
reyndar tveim árum í að gera bílinn þannig
úr garði að hann líktist sítrónu.
Tilgangurinn var að vinna verðlaun á
alþjóðlegri bílasýningu í London.
Sitrónubíllinn gengur fyrir vél úr Ford
Granada.
Og ekki er ólíklegt að ein
skemmtileg hending bætist við
því Catherine á von á sér og
tvíburafæðingar eru algengar í
ætt hennar.
Sagan er þar með ekki öll.
Kennarinn sem leysir Katherine
af þegar hún fer í barneigna-
fríiðáeinnig tvíbura.
Hundar
farnir
að éta
hunda?
Það er engin ástæða til að
hafa áhyggjur af þessu. Hund-
urinn er ekki að éta litla
hvolpinn.
Pedro, en svo heitir
hvolpurinn í munninum, var
ekki nema mánaðargamall þeg-
ar myndin var tekin og stærri
hundurinn, sem er reyndar
tík, heitir Heidi.
,,í fyrstu var ég hálfhrædd,
þegar ég sá Heidi taka hvolpinn
svona upp. En hún var mjög
ljúf við hann og Pedro virðist
kunna vel að meta þá um-
hyggju og blíðu sem hann
fær,” sagði Doris Cash sem
rekur dýraheimili í Tilehurst í
Englandi.
Það skal tekið fram að tíkin
er ekki móðir hvolpsins.
x \
Hvor þeirra er Kenny Rogers?
Annar þeirra er hinn kunni
countrysöngvari Kenny Rogers. Hinn
er Earl James Lloyd og er sölumaður.
En hvor þeirra er Kenny?
Sá til hægri.
Lloyd, sem er 45 ára gamall, fimm
árum eldri en söngvarinn, er bíla-
sölumaður. Hann hefur eins og að
likum lætur oft verið tekinn sem Kenny
Rogers. Eins og t.d. þegar hann fór á
tónleika sem söngvarinn hélt.
„Miðasalinn harðneitaði að taka
við peningunum sem ég ætlaði að
borga með aðgöngumiðann og endur-
tók í sífellu: ,,Þú þarft ekki að borga
þig inn, Kenny. Þú ert sjálfur að
spila.”
Fyrir tónleikana fór Lloyd að heilsa
upp á Kenny. „Kenny starði á mig og
hristi höfuðið, greinilegt var að hann
trúði ekki sínum eigin augum.”
Lloyd hefur einnig átt í vandræðum
vegna aðdáenda Kenny Rogers. Aðdá-
endur söngvarans hafa margoft gengið
að Lloyd og beðið hann um eiginhand-
aráritun.
Eftir tónleikana fyrrnefndu
hópuðust mörg hundruð manns að
honum og báðu um eiginhandaráritun.
Lögreglan þurfti að skerast í leikinn til
að bjarga Lloyd.
Gleðitíðindi fyrir
fjárhættuspilara:
Spilakass-
ar í flug-
vélum
Singapore Airlines býður nú far-
þegum sínum á leið frá Kaliforníu til
Asíu upp á nýja þjónustu. í nokkrum
vélum flugfélagsins hefur nefnilega
verið komið fyrir spilakössum.
Þessir spilakassar eru sérstaklega
hannaðir, léttir og hljóðlátir en í stað
þeirra þurfti að taka 8 sæti úr hverri
vél.
Sjúkir fjárhættuspilarar geta þvi
glaðzt og aðrir farþegar fá tækifæri
til að vinna upp í kostnaðinn við flug-
ferðina.