Dagblaðið - 24.03.1981, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 24.03.1981, Blaðsíða 10
10 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1981. FLUGLEIÐIR Aðalfundur Aðalfundur Flugleiða hf., verður haldinn föstudaginn 24. apríl 1981 í Kristalssal Hótel Loftleiða og hefst kl. 9.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf skv. 10. gr. samþykkta félagsins. Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir á aðal- skrifstofu félagsins, Reykjavíkurflugvelli, frá og með 14. apríl nk. Athugið að atkvæðaseðlar verða afhentir laugardaginn 18. apríl kl. 10.00 til 17.00. Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu vera komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund. Stjórn Flugleiða hf. Hlaðbær h/f. auglýsir eftir vönum viðgerðarmanni til að vera með viðgerðarbíl og annast smáviðgerðir og þjónustu við vinnutæki v/framkvæmda við Hrauneyja- foss áf. 4og 5. Uppl. hjá Vigfúsi Vigfússyni í síma 40677. 1X2 1X2 1X2 29. leikvika - leikir 21. marz 1981. Vinningsröð: 1X2 — XII—XII — 110 1. vinningur: 11 réttir - kr. 21.115.- 34560(1/11, 4/10). 44417(3/11,12/10) 2. vinningur: 10 réttir - 96 6606 kr. 532.- 17421 21112 32537(2/10) 43911 3925 10154 17944 21239 32700 44091 3996 10369 18098 22029 34319(2/10) 44653 4003 11142 18811 22053 37136(2/10) 45037 5056 12201 + 19651 27732 41078+ 5710 12636 20161+ 29587 41481 + 5878 14190 20188 31202(2110) 42113(2/10) 6135 15943 20354 31203(4/10) 43449 Kærufrestur er til 13. apríl kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera skrif- legar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á aðalskrifstofunni I Reykjavik. Vinningsupphæðir geta lækkað ef kærur verða teknar til greina. Handhafar nafnlausra seðla ( + ) verða að framvisa stofni eða senda stofnínn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir lok kærufrests. GETRAUNIR — íþróttamiðstöðinni — REYKJAVÍK Auglýsing frá Menntamálaráði íslands um styrkveitingar árið 1981 úr Menningarsjóði Útgáfa tónverka Til útgáfu íslenskra tónverka verður veittur styrkur að upphæð kr. 10.000,00. Umsóknum skulu fylgja upplýs- ingar um tónverk þau sem áformað er að gefa út. Dvalarstyrkir listamanna Veittir verða 8 styrkir að upphæð kr. 7.000,00 hver. Styrkir þessir eru ætlaðir listamönnum sem hyggjast dveljast erlendis um a.m.k. tveggja mánaða skeið og vinna þar að listgrein sinni. Umsóknum skulu fylgja sem nákvæmastar upplýsingar um fyrirhugaða dvöl. Þeir sem ekki hafa fengið sams konar styrk frá Menntamála- ráði síðastliðin 5 ár, ganga öðru jöfnu fyrir úthlutun. Styrkir til frœðimanna Styrkir þessir eru til stuðnings þeim sem stunda fræði- störf og náttúrufræðirannsóknir. Umsóknum skulu fylgja upplýsingar um þau fræðiverkefni sem unnið er að. Umsóknir um framangreinda styrki skulu hafa borist Menntamálaráði, Skálholtsstíg 7 í Reykjavík, fyrir 18. apríl næstkomandi. Nauðsynlegt er að nafnnúmer umsækjanda fylgi umsókninni. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Menn- ingarsjóðs að Skálholtsstíg 7 í Reykjavík. íslenzkur f iskur seldur fyrir 17 milljón dala á Flórída í fyrra: Það er fyrst og f remst verðið sem selur fiskinn — segir Þórir Gröndal, f isksali og ræðismaður á Flórída ,,Á sl. ári var íslenzkur fiskur seldur fyrir um það bil 17 milljón dollara á Flórída, en þar eru nú sex umboðsmenn fyrir íslenzka fiskinn,” sagði Þórir S. Gröndal, einn af umboðsmönnunum, í samtali við blm. DB. Auk þess að vera umboðs- maður fyrir islenzka fiskinn er Þórir einnig íslenzkur kjörræðismaður og fréttaritari DB i sólarlandinu Flórida. Er blm. DB var þar á ferð nýlega, heimsótti hann Þóri og konu hans, Erlu Ólafsson Gröndal, á heimili þeirra í Plantation, skammt frá Fort Lauderdale. Mikilvægur markaður „Markaður okkar á Flórída er mjög mikilvægur fyrir íslendinga. Hér eru samt stundaðar umfangs- miklar fiskveiðar og veiddar um það bil hundrað tegundir af fiski sem við þekkjum alls ekki heima á Fróni,” sagði Þórir. íslenzku tegundirnar sem seldar eru á Flórida eru þorskur, ýsa, ufsi og grálúða. Ufsinn er mest notaður í vinnslu en einnig er hann seldur flakaður. Ufsinn þekktist ekki á markaðnum fyrir tíu árum, og grá- lúðan kom fyrst á markaðinn fyrir fjórum árum. Það sem þorskurinn virðist vera að ganga til þurrðar á miðunum við ísland er vaxandi nauðsyn á að veiða og selja nýjar tegundir af fiski. Hvernig er þeim komið á markaðinn? „Það er aðallega verðið sem selur fiskinn. Bæði íslenzku fisksölufyrir- tækin hér fyrir vestan, Sambandið og Sölumiðstöðin, reka tilraunaeldhús á sínum vegum. Þar eru gerðar tilraunir með eldamennsku á hinum ýmsu fisktegundum. Síðan er farið með sýnishorn og myndir til væntanlegra viðskiptavina. Það er nefnilega þannig hér í Bandaríkjunum að auglýsingin verður að vera nákvæmlega eins og það sem verið er að selja. Rétturinn verður fyrst og fremst að vera ódýr og það verður að vera auðvelt að eida hann. Hann verður að fylla vel á diski og vera fagur á að lita,” sagði Þórir. Landarnir kynna sig vel Eins og áður segir er Þórir ræðis- maður íslands á Flórída. Var hann skipaður kjörræðismaður í júní í fyrra en það starf er ólaunað. Frank Hinds, sem verið hefur ræðismaður íslands á Flórída um árabil, hefur verið gerður að aðal- ræðismanni en hann er nú sjötíu og fimm ára gamall. Frank Hinds er búsettur í Bocaraton sem er skammt fyrir norðan Fort Lauderdale. Var hann sæmdur fálkaorðunni fyrir vel unnin störf í þágu íslands. Talsverð umferð Islendinga er á Flórída og hafa ræðismennirnir nokkur afskipti af þeim. — í hverju er starf ræðismanns aðallega fólgið? „Helzt að vera til aðstoðar ef eitthvað ber út' af. Þar að auki þarf að vinna að auknum viðskiptum milli landanna og svara margvíslegum fyrirspurnum. Fyrir kemur að landar lendi í útistöðum við lögin og lendi jafnvel í fangelsum, þótt ég hafi ekki kynnzt slíku af eigin raun, en Frank hefur sagt mér frá slíkum málum. Þá kemur einnig fyrir að sjómenn eru hlunnfarnir hér og fyrir kemur að fólk týnir pössunum sínum. Að vísu geta ræðismenn ekki gefið út passa, nema þá til bráða- birgða, en við aðstoðum þá fólk við að ná sambandi við sendiráðið f Washington. Annars virðist landinn hafa kynnt sig mjög vel hér á Flórída. Ég held að sögur af miklum drykkjuskap íslenzkra ferðamanna hér á sólar- ströndum séu mjög ýktar. Landarnir þurfa að vera örlítið Þórir Gröndal, kjörræðismaður íslands i Flórida, fisksali og frétta- ritari DB. DB-myndir A.Bj. sjálfstæðari er þeir koma hingað til þess að baða sig í sólinni heldur en þegar þeir fara til sólbaðsstaða i Evrópu. Þangað fara þeir beint með leiguflugi en þeir verða að skipta um flugvél í New York á leið sinni hingað,” sagði Þórir. „Straumur íslendinga hingað er sívaxandi. Talið er að um tvö prósent af íslenzku þjóðinni hafi heimsótt Flórída á sl. ári, eða um tvö þúsund til tvö þúsund og fimm hundruð manns. Um 40 milljón ferðamenn komu til Flórída í fyrra og þar af fóru um 22 milljónir um fiugvöllinn í Miamiborg, um klukkustundarferð frá Ford Lauderdale,” sagði Þórir S. Gröndal. -A.Bj. Þar er listin í hávegum höfð Frá stofnfundinum i Dalvikurskóla. Þar mættu 20 manns, auk þess sem 13 manns höfðu samband við undir- búningsnefndina og skráðu sig stofnfélaga. DB-mynd Jón Baldvinsson.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.