Dagblaðið - 28.03.1981, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 28.03.1981, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. MARZ 1981. 7 — í hverfafélögum Sjálfstæðisflokksins fhaust? Guttormur Einarsson, formaður hverfafélags sjálfstæðismanna í Sel- ás- og Árbæjarhverfi sagðist á Breið- holtsfundi sjálfstæðismanna á fimmtudagskvöld vilja nefna eina mögulega ástæðu fyrir frestun lands- fundar Sjálfstæðisflokksins sem ekki væri mikið rætt um. Samkvæmt lögum ætti að vera búið að halda aðalfundi í öllum hverfafélögunum áður en að landsfundi kæmi i haust. „Það má búast við þvi að með haustinu fari að heyrast raddir úr herbúðum flokksins, aðalskrifstof- unni, og að þá berist einstrengings- legar fyrirskipanir um að nú skuli ljúka af aðalfundunum,” sagði Gutt- ormur. Hann gaf í skyn, að með því ætlaði „harði kjarninn í kringum Geir að skera við trog aðra sjálf- stæðismenn en þá sem eru hallir undir formanninn. Allir aðrir en stuðningsmenn Geirs eru dæmdir óalandi og óferjandi.” Kjartan Gunnarsson fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins tók til máls síðar á fundinum og taldi Guttorm hafa „sáð þeim fræjum að launaðir starfsmenn í Valhöll sætu á svikráðum við flokksmenn”. Slíka ásökun yrði að rökstyðja miklu betur. Kjartan sagði að fyrst og fremst þingmennirnir hefðu viljað fresta landsfundi af ýmsum ástæðum sem ekki hefði verið mótmælt. Hann sagðist hafa beitt sér fyrir því innan flokksins að þegar að fulltrúa- kjöri til landsfundar kæmi yrði fyrir- komulagið haft þannig að ekki skapaði ýfingar meðal manna. Þorvaldur Mawby verzlunarmaður sagðist vilja benda Kjartani á að fyrir aðalfund í sjálfstæðiskvennafélaginu Hvöt hefði verið „hringt ofan úr sjálfstæðishúsi” út um bæinn til að stuðla að formannskjöri Bjargar Einarsdóttur. Jafnframt hefði verið unnið gegn Helenu konu sinni Al- bertsdóttur (Guðmundssonar). „Ég get nefnt þér fleiri en eitt og fleiri en tvö og fleiri en þrjú nöfn, Kjartan,” sagði Þorvaldur. „Þvi segirðu þetta fyrst nú?” kall- aði þá Kjartan Gunnarsson úr sæti sínu. Guttormur Einarsson kom aftur í ræðustól og sagði Kjartan ekki hafa átt að taka svo mikið til sín ásakan- irnar í fyrri ræðunni. „Það koma fleiri til greina en starfsmennirnir. Formenn nefnda og fleiri koma líka inn í húsið,” sagði Guttormur. „Ég er stuðningsmaður ríkis- stjórnarinnar eins og margir aðrir sjálfstæðismenn á ísafirði,” sagði Halldór Hermannsson frá ísafirði á Breiðholtsfundinum í fyrrakvöld Imeð Gunnari Thoroddsen. Þegar Halldór kom í ræðustól kvisaðist um salinn að hér væri kominn bróðir Sverris Hermannssonar þingmanns Austfirðinga og forstjóra í Fram- kvæmdastofnun. Halldór sagði að stjórnarmyndun Gunnars hefði tekizt vegna þess að hann hefði „litið hag landsins betri augum en Geir”. Geir vildi hafa Gunnar Thoroddsen minntist á fundinum lítillega á málflutning Guttorms varðandi ástæður fyrir varnarmálin í fyrsta sæti og ýtti öllu 'öðru til hliðar. „Við verðum að starfa með Alþýðubandalaginu, hvort sem ‘ okkur líkar betur eða verr — en með óbreyttri stefnu Sjálfstæðisflokksins. Við viljum að ríkisstjórnin lifi út kjörtímabilið. Öllum þeim verður refsað sem hlaupa út úr stjórninni eins og krötunum forðum.” Halldór kvaðst vilja að Gunnar yrði formaður í flokknum og spurði hann hvort hann myndi bjóða sig fram til formennsku. seinkun landsfundarins og þakkað. honum fyrir „tímabærar aðvaranir”. - ARH „Við skulum ekki vera klökk við að stofna annan flokk gerist þess þörf. Við munum sópa að okkur fylgi frá krötum og framsókn.” Gunnar Thoroddsen sagðist aldrei „skorast undan að gegna trúnaðar- mannastörfum fyrir flokkinn,” en að hann sæktist ekki eftir for- mennskunni. Hann neitaði því sem sagt ekki að til greina kæmi framboð hans til formanns. Áður hafði hann lýst því yfir að „sæti varaformanns væri laust” frá og með lands- fundinum. -ARH. „Verum ekki klökk að stofna annan flokk” — gerist þess þörf. Gunnar Thoroddsen neitaöi þvíekki að hann kynni að fara í formannsf ramboð Pétur O. Nikulásson formaður banka- ráðs flytur ræðu sína á aðalfundinum: Hagnaður varð 179,5 milljónir. Veltan meira en tvö- faldaðist Hagur Verzlunarbankans stendur með miklum blóma. Starfsemi bankans jókst verulega á síðasta ári, innláns- aukning varð meiri og betri en verið hefur og útlánsaukning innan þeirra marka sem stefnt var að. Hefur lausa- fjárstaðan stórlega batnað, að því er fram kom á aðalfundi bankans nýlega. Þar fluttu Pétur O. Nikulásson, for- maður bankaráðsins, og Höskuldur Ólafsson bankastjóri ítarlegar skýrslur um starfsemi bankans og skýrðu reikn- inga hans. Hagnaður Verzlunarbankans á síðasta ári varð 179,5 milljónir og voru 62 milljónir af þeim lagðar i varasjóð sem nú nemur 412 milljónum. Niður- stöðutölur á rekstrarreikningi eru 6.944 milljónir og hafa þær hækkað um tæp 107% frá síðasta ári. Innlánsaukning bankans í fyrra varð 6090,6 milljónir, eða 67,9%, sem er mesta hlutfallslega aukning sem orðið hefur hjá bankanum frá upphafi. Staða Verzlunarbankans gagnvart Seðlabankanum batnaði á árinu um tæplega 851 milljón króna og var jákvæð um 796,5 milljónir í árslok. Úr bankaráði áttu að ganga þeir Leifur ísleifsson varaformaður og Guðmundur H. Garðarsson ritari en báðir voru endurkjörnir til 2 ára. Aðrir í bankaráði eru Pétur O. Nikulásson formaður, Þorvaldur Guðmundsson og Sverrir Norland. Bankastjórar eru Höskuldur Ólafs- son og Kristján Oddsson. -ÓV UtíO inn hjá okkur — Það borgar sig OPIO LAUGARDAG SJÖNVARPSMIÐSTÖDIN HF SkHJMÚLA 2 - SiMI 39090 S-432 Verðkr. 1.777.00 S-4540 Verð kr. 2.845.00 S-4420 Verðkr. 2.36 Utsölustaðir: Hvammstangi: Kauplélagið - Bliimluús: Kauplélagið - Saurtár- krnkur: Kadíó- og sjónvarpsþjónuslan — Akureyri: Radíóvinnustofaii Kaupangi ot> Hljómvcr — Húsavík: Radíóvcr — Kgilsstartir: Kaupfélagirt - Scyrtisfjörrtur: Stálhúrtin — Hornafjörrtur: Radíóþjónustan — Hclla: Mosfcll lif. — Sclfoss: Radióvcr - Kcflavík: Radíóvinnustofaii: GERIÐ VERÐ- SAMANBURÐ S-4800 Verð kr. 4.650.00 SENC#R STERE0 FERÐATÆKI ÚSKATÆKI FERMINGARBARNSINS

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.