Dagblaðið - 04.09.1981, Side 16
Fjársöfnun Jerry Lewis
mœlist misjafnlega fyrir
— en leikarinn hefur á undanförnum árum safnað
milljónum fyrir fatlaða
Kvikmyndaleikarinn Jerry Lewis
hefur á undanförnum árum safnað
milljónum dollara til handa samtökum
sjúklinga með vöðvarýrnun, en ekki
eru samt allir ánægðir með þær
aðferðir sem Jerry Lewis hefur beitt við
söfnunina. Tvenn samtök, félag fatl-
aðra borgara og réttindamiðstöð fatl-
aðra, hafa gagnrýnt Lewis fyrir að sýna
myndir af fötluðum börnum til að
vekja samúð með þeim og hvetja
þannig almenning til að láta fé af hendi
rakna til söfnunarinnar.
Samtökin segja að með þessu hafi
verið búin til sú ímynd að allir fatlaðir
séu háðir öðrum og að þeirgeti ekki
lagt sinn skerf til þjóðfélagsins eins og
aðrir þegnar. „Okkur finnst að þessi
áherzla á „börn Jerrys”, föl, veikluleg
og kjarkmikil en líklega án nokkurra
möguleika um bætt líf, hafi orðið til
þess að skapa ákveðna ímynd í hugum
almennings og þannig leitt til þess að
Sony kynnir nýja myndavél:
Ljósmyndirnar sýndar
á sjónvarpsskermi
Borges heiðr-
aður á afmœlis-
degi sínum
Þegar argentínski rithöfundurinn
Jorge Luis Borges varð 82 ára á dögun-
um afhenti Jose Lopezz Portillo forseti
Mexíkó.þar sem Borges nú býr, honum
70.000 Bandaríkjadali að gjöf.
Peningar þessir voru hluti af Ollin
Yoliztli verðlaununum, sem eru æðstu
bókmenntaverðlaun sem veitt eru í
Mexíkó.
Borges, sem frægastur hefur orðið
fyrir smásögur sínar, las upp ljóð á
ljóðahátíðinni í Morelia á afmælisdegi
sínum og í virðingarskyni stóðu allir
viðstaddir á fætur þegar skáldið
aldraða hóf ljóðalesturinn. Síðar um
daginn hélt Borges til Mexíkóborgar
þar sem hann las einnig upp ljóð.
Ollin Yoliztli verðlaunin voru fyrst
veitt í fyrra, en þau eru veitt fyrir
bókmenntaafrek á spænsku. Nafnið
Ollin Yoliztli þýðir líf og hreyfing og er
komið úr nahuatl máli Aztecanna.
Borges sagði er hann veitti verðlaunun-
um móttöku; að hann liti ekki á skáld-
skap sinn sem vinnu heldur sem hvatn-
ingu. ,,Ég gaf bækur mínar út svo að
ég mundi ekki þurfa að eyða ævi minni
í að leiðrétta handrit, ” sagði Borges.
Stúlkan á myndinni heidur á hinni nýju myndavál sem Sony hefur framleitt
og i hœgri hendi hennar sést seguldiskurinn, sem hœgt er að taka SO myndir
á.
Ráðherrann send-
Singapore-búar
ekki hrijhir af
hassreykingum
ur í veikindafrí
Læknar hafa fyrirskipað Malcolm
Fraser, forsætisráðherra Ástralíu, að
fara í þriggja vikna veikindafrí vegna
vírusar sem Fraser fékk. Þetta er í
þriðja sinn á tveim árum sem Fraser fer
í veikindafrí. Aðstoðarforsætisráð-
herra landsins, Doug Anthony, hefur
þó neitað því að Fraser hyggist segja af
sér vegna veikinda.
Fraser, sem er 51 árs, fékk lungna-
bólgu í desember sl. og var þá frá vinnu
í fimm vikur. Haustið 1979 hafði
Fraser einnig fengið lungnabólgu og
var hann þá rúmfastur í sex vikur.
Að sögn Anthony, aðstoðarforsætis-
ráðherra, óttast læknar Frasers að
vírusinn, sem hrjáir ráðherrann, þróist
í bronkítis eða jafnvel lungnabólgu.
Jane Fonda varð heldur en
ekki hissa á dögunum þegar yfir-
völd í Singapore bönnuðu sýn-
ingar á mynd hennar 9 to 5.
Ástæðan var sú að í myndinni
bregður fyrir nokkrum lífs-
glöðum ungmennum við hass-
reykingar og valdhafar í Singa-
pore töldu ekki ástæðu til að
sýna æsku borgarinnar þann
vestræna ósóma á hvíta tjald-
inu.
hið opinbera hafi mótað ranga stefnu í
málefnum fatlaðra,” sögðu talsmenn
samtakanna.
Talsmenn samtaka sjúklinga með
vöðvarýrnun hafa hins vegar vísað
gagnrýni hinna samtakanna á bug og
telja öllu frekar að hún sé til komin
vegna þess að samtökin hafi neitað
réttindamiðstöð fatlaðra um 250.000
dollara styrk.
Á seguldiskinn er hægt að taka allt
að 50 myndir, en hægt er að taka disk-
inn úr myndavélinni hvenær sem er, án
þess að búið sé að taka allar myndirnar
á hann. Ljósmyndarar þurfa því ekki
að strita við að klára filmuna, svo hægt
sé að setja hana í framköllun.
Ekki þarf að kaupa nýjan disk, þegar
búið er að taka allar myndirnar á hann,
heldur er hægt að nota hann aftur og
aftur.
Einnig er hægt að taka kvikmyndir
með myndavélinni, en þá þarf að
kaupa sérstakt tæki, sem sýnir hreyfi-
myndir, þegar það er tengt við mynd-
segulband.
Myndavélin er aðeins tæpt kg að
þyngd og er 12 cm ábreidd, sjö áhæð
og fimm á dýpt. Hægt er að skipta um
linsu á myndavélinni og er hægt að
nota flestar tegundir myndavélalinsa á
hana.
Búizt er við að myndavélin komi á
markaðinn eftir tvö ár og mun hún
kosta í Japan um 646 dollara, eða
jafnvirði 4.500 króna. Diskurinn mun
kosta 2.60 dollara, eða um 18 krónur
og sýningartækið sem tengt er við sjón-
varp mun kosta um 215 dollara, eða
1.500 krónur.
Einhver bið verður á því að hægt
verði að gera venjulegar ljósmyndir
eftir disknum, en fulltrúar Sony hafa
ekkert viljað láta uppi um hvenær það
verður hægt né heldur hvað það muni
kosta.
Sony fyrirtækið kynnti fyrir
skömmu nýja myndavél, sem hlotið
hefur nafnið Mavica. Vél þessi er ekki
ólík öðrum myndavélum i útliti, en
innra byrði hennar er alveg nýtt. Engin
filma er notuð í vélina, en hins vegar er
I henni seguldiskur. Þegar ljósmynd er
tekin breytir hleðslutæki myndefninu í
rafmagnsmerki. Merkin eru síðan
hljóðrituð á seguldiskinn. Diskurinn er
tekinn og settur í sérstakt sýningartæki
sem tengt er við sjónvarp. Myndirnar
sem teknar voru birtast svo á sjón-
varpsskerminúm.
SÍMI í MÍMIER10004
FJÖLBREYTT OG SKEMMTILEGT
TUNGUMÁLANÁM.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1981.
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent