Dagblaðið - 16.09.1981, Page 1

Dagblaðið - 16.09.1981, Page 1
7. ÁRG. — MIÐVIKUDAGUR16. SEPTEMBER 1981 — 209. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11—AÐALSÍMI 27022. ÞAÐ ER BÚIÐ AÐ SEUA MG TIL FORTUNA DUSSELDORF’ \ —sagðiþýzkurblaðamaður, sem hringdi til Atla Eðvaldssonar, Félöginhafa —sjáíþróttirí opnu Flugvél fær far með tveimur f lugvélum Það er ekki á hverjum degi sem flug- vélar fá einkaflugvél til að flytja sig, hvað þá tvær einkaflugvélar. Nort- hrop-stríðsvélin, sem sýnd var hér- lendis á dögunum og bjargað hafði verið úr Þjórsá sumarið 1979, naut slíkra forréttinda. Hercules-flutningaflugvél frá norska flughernum, sem ber nafn Freys, frjósemisguðs Ásatrúar, kom til Reykjavíkurflugvallar um hádegisbil í gær til að sækja Northrop-vélina. Búið var að hluta Northrop-vélina í nokkrar einingar til að hentugra yrði að flytja hana. Ekki reyndist kleift að flytja hana alla í einni ferð og er önnur Hercules-vél væntanleg til Reykjavíkur í dag til að taka þá hluta sem eftir urðu í gær. Héðan fer Northrop-vélin til Óslóar þar sem henni verður komið fyrir á norska stríðsminjasafninu en þar er henni ætlað að vera i framtíðinni. -KMU. N FRUCO VILL LEYNA NOFN- UM HÓTANAHEILDSALANNA — gefur þó í skyn að hafa haft samráð við tvo aðila í Reykjavík ,,Ég get því miður ekki látið uppi hvaða viðskiptavinir okkar í Reykja- vík það voru sem óskuðu eftir því að við hættum sölu ávaxta til „Fæðis fyrir alla h.f.” í Reykjavik,” sagði Paul Pátsch, einn af frammámönn- um Frlico ávaxtasöluflrmans í Ham- borg í viðtali við DB í morgun. Það'var Paul Pátsch sem undirrit- aði telexskeytið sem „Fæði fyrir alla h.f.” fékk á föstudag. Skeytið var birt í heild í DB á mánudag. Þar segir m.a. „Okkur þykir það leitt en því miður neyðumst við til að hætta við- skiptum við ykkur. Ástæðan er sú að aðrir viðskiptavinir okkar og vinir í Reykjavík hafa kvartað yfir sam- skiptum okkar við ykkur. Við höfum skipt við þessa aðila í fjöldamörg ár og um umtalsverð viðskipti verið að ræða allan ársins hring. Þeir hafa gert okkur ljóst að ef við ekki hættum að selja ykkur ávexti muni ekki verða frekari viðskipti af þeirra hálfu . . .” Paul Pátsch sagði í morgun að Friico hefði skipti við ýmsa aðila á ís- landi. En í þessu sambandi hefðu ,aðallega verið höfð samráð við tvo stóra innflytjendur til íslands. DB hefur aflað sér þeirra upplýs- inga að stærstu innflytjendur ávaxta frá Fruco séu Heildverzlun Björgvins Schram og Karl og Birgir s.f. Báðir aðilarnir hafa neitað að eiga hlut að málum, en Karl og Birgir s/f segjast hafa orðið fyrir sömu þvingunum í upphafi síns innflutnings. -A.St. AtU Bðvaklsson með umboðs- manninum Reinke. Mál hans var uppsláttur í þýzka biaðinu Biid i gær og enn i morgun var viðtai i/ið Atia uppsiáttur í biaðinu þar sem hann er reiður og viii fé hiuti sölu- verðinu. DB-mynd Bjarnieifur. Mikil spenna í norskum stjórnmálum: Hvað nú Noregur? Frá Sigurjóni Jóhannssyni, frétta- manni DB i Osló, i morgun: Hvað nu, Noregur? spyrja norsku blöðin í morgun og spurningin er vissulega brennandi. Flest bendir nú til að Hægriflokkurinn verði að mynda minnihlutastjórn með stuðn- ingi Miðflokksins og Kristilega flokksins. Flestir þeir er skrifa um stjórnmál hér telja nær útilokað að miðflokkarnir treysti sér í rikisstjóm eftir tapið í kosnitigunum. Vandi miðflokkanna hefur verið ærinn und- anfarið þar sem þeir eru að kreníj- ast á milli Hægriflokksins og Verka- mannaflokksins sem báðir eru mun nær því að kallast miðflokkar en öfgaflokkar. Fulltrúar borgaraflokkanna þriggja, Hægriflokksins, Miðflokks- ins og Kristilega flokksins, hittast í dag en taliö er að forystumenn Hægriflokksins séu þegar byrjaðir að ráðgast um skipan ráðherraembætta í hreinni hægri stjórn. Talið er að strax um helgina verði ljóst hvort Mið- flokkurinn og Kristilegi fiokkutinn treystaséristjórnarmyndun. \ Pundiö hækkar endollar lækkar sjá gengi bls. 18 A

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.