Dagblaðið - 16.09.1981, Síða 3
V U i
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1981.
3
Garri segir að ef bjór væri seldur á vegum ÁTVR yrði ekkert auðveldara lyrir
unglinga að kaupa hann en áfengi yfirleitt. DB-mynd: Hörður.
UmGrandvaran:
Virðist hrærast í
þokukenndum heimi
—sér of sjónum yf ir hlutum sem hann
ber ekkert skynbragð á
K.V.H. hringdi:
Ruglið í Grandvörum er eins og
hljómur í tómri tunnu. Veslings trén,
sem fóru í pappírinn, er þessi þvæla
var prentuð á — og veslings Grand-
var, sem veit ekki hvað hann á bágt.
Ég get ekki lesið þvílíkt og annað
eins án þess að láta í mér heyra, sem
fyrrverandi sjómaður og þjóðernis-
sinni.
Ég hef verið á sjó i 4 ár og aldrei
orðið ríkur af, því ég hef ekki lent á
þessum ljónheppnu bátum, heldur
einungis á þeim, sem fiska bara
sæmilega, eins og á við um flesta.
Nú er ég hættur á sjó og farinn að
vinna i landi — með ágætiskaup og
get verið hjá eiginkonu og börnum á
kvöldin og um helgar. Eigi öfunda ég
humarveiðimenn sem fá tveggja
sólarhringa frí hálfsmánaðarlega.
Grandvar er illa að sér á mörgum
sviðum, m.a. í reikningi.
íslenzk frystihús kaupa hráefni sitt
á þvi lægsta verði, sem þekkist i
heiminum, selja á þvi hæsta en eru
samt sem áður„rekin með tapi”. Er
ekki eitthvað athugavert við þetta?
Samt eru laun íslenzkra sjómanna
25—40% lægri en gengur og gerist
meðal annarra Evrópuþjóða.
Ég veit jafnframt ekki betur en að
togararnir sigli stíft á haustin, til þess
að rétta tap sitt af, svo það hlýtur að
vera eitthvað að í þjóðfélaginu. Og
þá mun vera um að kenna afætunum.
Sýnist mér að Grandvar muni vera
meðal þeirra.
Hann virðist einnig hrærast í ein-
hverjum þokukenridum heimi, þar
sem hann sér ofsjónum yfir hlutum
sem hann ber ekkert skynbragð á.
Hann sér ekki mein þjóðarinnar, sem
blasa þó við:
1. Ríkisbáknið, sem er að sliga
þjóðina með sín opinberu fyrir-
tæki, rekin með stórtapi. Grand-
var talar þó ekki um laun ráð-
herra, né um kostnað ótal sendi-
ráða um allan heim, þar sem vel
mætti notast við konsúlöt,
o.s.frv.
2. Bankakerfið, þar sem fólkið
þjónar bönkunum en bankarnir
ekki fólkinu. Grandvar talar ekki
um laun bankastjóra, fulltrúanna
og þeirrar hirðar sem þessar
stofnanir hafa um sig.
3. Heildverzlunin, þar sem menn
keppast um að kaupa sem dýrast
inn. Því dýrari sem varan er,
þeim mun meira fá þeir í gróða
vegna prósentufyrirkomulagsins.
Grandvar talar ekki um laun tann-
lækna, lækna, heildsala, ..olíufurst-
anna”, flugmanna, lögfræðinga og
óteljandi annarra.
Ég held að Grandvörum væri nær
að líta betur í kringum sig áður en
hann skrifar fleiri greinar á borð við
„Launabrjálæði sjómanna”. Sjó-
menn vinna örugglega fyrir hverjum
eyrisemþeirfá.
irtcrið í SinW
Hring'ð
eðas
Krifið
„Nú fjölmennum við á völlinn í kvöld og hvetjum Fram til
sigurs gegn Dundalk. Og auðvitað erum við Goða-kokkarnir
ekki bara á búningunum hjá Fram í svona stórleikjum - við
mætum á völlinn og bjóðum áhorfendum að smakka á góm-
sætum Goða-vörum. Sjáumst í kvöld - áfram með okkar menn
í Evrópukeppninni!”
á vellinum i kvöld!
VILL GETA KEYPT
BJÓR Á ÍSLANDI
—annað er til skammar skrifar
íslendingur frá Noregi
Garri skrifar frá Noregi:
Þann 23. ágúst sl. skrifaði Siggi
flug athyglisvert lesendabréf undir
fyrirsögninni „Vangaveltur um
áfengi”.
Í bréfinu gagnrýndi Siggi flug
mikið tal um ofnotkun áfengis í ríkis-
fjölmiðlum, þar sem ekki væri verið
að fjölyrða um tekjurnar sem ríkið
hefur af áfengissölunni, né til hvers
þeim peningum er varið.
Einnig sagðist Siggi flug vera
fremur hliðhollur bjómum, þar eð
menn yrðu syfjaðir og sljóir af
honum, en ofstopafullir slagsmála-
hundaraf áfengi.
Þetta er alveg rétt. Ég hef kynnzt
þvi mjög vel héma í Noregi hvernig
fólk verður af bjórdrykkju. Það
verður rólegra og yfirvegaðra og er
ekki með þennan fyrirgang og læti,
sem fylgja áfengisdrykkju.
Fólk spyr mig oft hvernig islenzki
bjórinn sé og verður mjög hissa,
þegar það heyrir að á fslandi fáist
enginn bjór; ekkert nema óáfengur
pilsner.
Það hlýtur nú að koma að því að
við fslendingar förum að flytja inn
bjór, þvi annað er til skammar. Þetta
tal um að ef við fæmm að selja bjór,
þá yrði svo auðvelt fyrir unglinga að
ná í hann, er nú bara kjaftæði. Ef
bjór væri seldur í „rikinu” þá yrði
alveg jafn erfitt (?) fyrir unglinga að
ná í bjórinn og áfengi.
Hér í Noregi er bjórinn seldur í
matvörubúðum og unglingar geta
ekki fengið að kaupa hann nema þeir
sýni nafnskirteini til marks um að
þeir séu orðnir 18 ára. A fslandi er
fólki meinað að kaupa litið áfengan
bjór. Því er gert að einskoröa sig við
mun áfengari drykki ef það vill eitt-
hvað sUkt.
Spurning
dagsins
Telur þú alkóhólisma
vera sjúkdóm?
Gestur Friðjónsson, múrari: Já, ég tel
það.
Oddný Sigurðardóttir, hjúkrunar-
fræðingur: Já, alveg tvimælalaust.
Þegar fólk hefur ekki stjórn í þeim
efnum, þá er um sjúklega neyzlu að
ræða.
Anna Nidsdóttir, rikisstarfsmaður:
Nei, ég myndi ekki segja það. Ég tel að
þetta sé sjálfskaparviti.
Anna Kristjánsdótlir, húsmóðir: Að
vissu leyti, já.
Bergþór Fríðþjófsson, starfsmaður
Esso: Já, það myndi ég segja — og
einnig sjálfskaparviti.
Jón Pálmason, verzlunarmaður: Já.
Þegar fólk ræður ekki lengur viö
neyzlu sina, er ástandið orðið sjúklegt.