Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 16.09.1981, Qupperneq 7

Dagblaðið - 16.09.1981, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1981. i Erlent Erlent Erlent Erlent 3 ms Aldrei ofgamall til að mótmæla William Gandall, sem er 80 ára gamall fyrrverandi hermaður 1 Flórída, hefur verið handtckinn fyrir óspektir á almannafæri. William settist vopnaður flaggi og kröfu- spjaldi á gólfið á göngudeild ætiaðri uppgjafa hermönnum og neitaði að fara þaðan. Vildi hann á þennan hátt mótmæla niöurskurði Reaganstjórnarinnar á fjárframlögum tii félagsmála. OLÍUFUNDUR í JÓNAHAFI Orkumálaráðherra Grikklands, Steffanos Manos, tilkynnti í gær að mikið gassvæði hefði fundizt í Jóna- hafinu. Talið er að hér sé um að ræða 100 billjónir kúbikfeta og fannst gasið undan ströndum borgarinnar Kata- kolon. — Þetta staðfestir þann grun að um olíu geti verið að ræða í Jónahafi og vekur mikla bjartsýni á meðal griskra ráðamanna, segir ráðherrann. Svíþjóð: Kross okkar nútímamanna Norðurlandabúar þykja heldur lítið trúræknir og er kirkjusókn líka afleit í þessum löndum. Nýjar skýrslur frá Danmörku sýna að í Kaupmannahöfn er annað hvert barn óskírt, að ekki sé minnzt á allt það fólk sem flytur saman án nokkurrar blessunar, hvorki frá kirkju né ríki. Sænskur listamaður, Stig Carlson, sem hefur sérhæft sig í smíðum kirkju- gripa, hélt nýlega sýningu í Islevkirkj- unni í Kaupmannahöfn og sýndi þá m.a. þennan kross sem hann taldi afar táknrænan fyrir nútimamanninn. Krossinum er skipt í akreinar og eru bílarnir á þeim úr plasti. Carlson, sem annars segist vera trúaður maður, var þungorður í garð kirkjunnar. — Ef kirkjan er orðin svo stif og umvöndunarsöm að hún kemur i veg fyrir að Guð fái að athafna sig, á að rífa allar kirkjur, sagði hann.— Auk þess er alls óvíst hvort hann þarf nokkuð á kirkju að halda. Stjómarmyndunarviðræður í Noregi: Minnihlutastjóm Hægriflokksins ? —ágreiningur um fóstureyðingar og skattamál Viðræðufundir milli Hægriflokks- ins, sem varð sigurvegarinn í norsku kosningunum í gær, Miðflokksins og Kristilega þjóðarflokksins hefjast í dag og munu þeir ræða möguleika á stjórnarmyndun. Búizt er við að aðalágreiningurinn verði fóstur- eyðingalöggjöfin en Kristilegi þjóðarflokkurinn vill herða á henni. Leiðtogi hans, Káre Kristiansen, var þó undir lok kosningabaráttunn- ar farinn að draga nokkuð í land með slíkar kröfugerðir í sambandi við stjórnarmyndun borgaraflokkanna og er álitið að það hafi vakið svo mikla óánægju á meðai kristilegra kjósenda flokksins að þeir hafi fremur setið heima en að ljá flokkn- um atkvæði sitt. Er talið að þetta geti verið skýring á hinu mikla tapi flokksins, en hann tapaði 7 þing- sætum. Almenn skoðanakönnun hefur þó sýnt að aðeins 1/3 kjósenda er hlynntur herðingu á fóstureyðinga- lögunum og leiðtogi Hægriflokksins, Káre Willoch, segist ekki leggja neina áherzlu á slíkt í umræðum um stjórnarmyndun. Samt er álitið að einmitt þetta geti valdið því að stjórnarmyndun borgaraflokkanna takist ekki, ásamt óánægju minni flokkanna yfir tapi í kosningunum. Einnig getur niðurskurður á skött- um valdið ágreiningi á milli Mið- flokksins og Hægriflokksins. Will- och vill lækka skattana mikið á næstu fjórum árum en Miðflokkur- inn vill halda áfram dýrum niður- greiðslum á landbúnaðarvörum. Káre Willoch: Verður forsætísráðherra. Erlendar fréttir Hlýlegar móttökur Nú er Francois Mitterrand forseti aftur snúinn heim til Frakklands eftir að hafa átt viðræður við forsætisráð- herra Breta, járnfrúna Margaret Thatcher. Segja áreiðanlegar heimildir að vel hafi farið á með þeim þrátt fyrir að þau eru tveir andstæðir pólar í stjórnmálum, hann ljósrauður sósíalisti, hún svartasta íhald. Tengsl þessara landa, Frakklands og Bretlands, hafa löngum verið fremur svöl en nú ætla þau Mitter- rand og Thatcher sem sagt að verma þau. Vonast bæði til að fundir þeirra verði upphaf að nýjum og betri þætti í sögu samskipta þessara landa. Þetta er fyrsta opinbera heimsókn- in sem Mitterrand fer í eftir að hann var kjörinn forseti. Þau Thatcher) ræddu m.a. ástandið í Póllandi, afvopnunarmál, Afganistan og Mið- austurlönd. Við heimkomuna getur Mitterrand annars búizt við því að heldur sé farið að slá í vináttuna milli hans og kommúnistaleiðtogans Goerges Mar- chais, en sá síðarnefndi hefur lýst yfir því að flokkur hans sé alls ekki reiðubúinn til að styðja hvaða mál sósíalista sem er í franska þinginu. Nýrsöngleikur: Stúlkumar frá Mitford Enski Iávarðurinn Redesdale átti sex dætur sem voru hver annarri sérkenni- legri og gerðu þær garðinn frægan á árunum 1920—1930, sumar fyrir sam- bönd sín við nasista, eins og t.d. Unity og Díana. Unity var svo góð vinkona Hitlers að hún gat náð símasambandi við hann hvenær sem var, Díana giftist fasistaforingjanum sir Oswald Mosley. Jessica hafði aftur á móti djúpa samúð með uppreisnarmönnum á Spáni og skrifaði þjóðfélagsádeilur. Deborah varð fræg sem hertogafrú af Devons- hire. Og nú er hin skrautlega saga þessara systra efniviðurinn í nýjum söngleik, ,,The Mitford Girls”, sem nýtur geysi- vinsælda í London og var nýlega sýndur í 40. sinn fyrir troðfullu húsi. Þegar hertogaynjunni var sýnt hand- ritið að söngleiknum áður en æfingar hófust hafði hún aðeins eitt að athuga við það: — Þið verðið að sjá til þess að laglegar leikkonur veljist i hlutverk okkar. KIRKEGAARD A UPPB0ÐI Einstakt heildarsafn af frumútgáfum ritverka Sörens Kirkegárd er nú til sölu í Danmörku og óttast menn að það verði selt úr landi. Núverandi eigandi þess segir sig neyddan til að selja og hefur uppboðsfyrirtækið Sothesby í Englandi verðlagt safnið á 110.000 dkr. Margar af bókum þessum eru bækur sem Kirkegárd notaði sjálfur til að gefa ýmsum andans mönnum síns tíma og eru því með eiginhandaráletrun. Eigandinn keypti safnið fyrir 8 árum á 60.000 dkr. og álítur að þrátt fyrir mikla hækkun verði margir um boðið, sérstaklega útlendingar. — Vegna föðurlandsástar vildi ég allra helzt að bækurnar yrðu kyrrar í Danmörku, segir eigandinn. — Þó ég sé auðvitað síður en svo að lasta það að útlendingar sýni Kirkegárd svona mikinn áhuga. Bonn: Rauðiherinn berábyrgð V-þýzka lögreglan álítur að Rauði herinn, sem líka gengur undir nafninu Baader-Meinhof-hreyfingin, standi að baki banatilræði því sem yfirhershöfð- ingja Bandaríkjahers í Evrópu, Frederick J. Kroesen, var sýnt í gær í Heidelberg.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.