Dagblaðið - 16.09.1981, Síða 10
10
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1981.
Stríð Útimarkaðarins og stóru ávaxtainnflytjendanna:
„ Viö viljurn ekki „þóknun”
ogþvf á að útiloka okkur”
— „Við munum leita á önnur mið en þau þýzku þó óhagstæðari séu”
„Ég tel að það sé hin svonefnda
„commission” eða það sem kallað er
þóknun og erlendur seljandi bætir ofan
á vöruverð til íslands, sem er rótin að
því, að nú á að reyna að útiloka okkur,
sem stöndum að „Fæði fyrir alla hf.”
og höfum m.a. keypt beint erlendis frá
ávexti til sölu á Útimarkaðinum, frá
innkaupum hjá hagstæðustu
seljendum erlendis,” sagði Guttormur
Sigurðsson, cinn þriggja forsvars-
manna „Fæðis fyrir alla”. Þessi þókn-
un fer svo inn á bankareikning
innflytjandans.
„Það leikur vist vafi á um hvort og í
hvað miklum mæli má hækka vöruverð
erlendis með „þóknun”, en ’79 mun
verðlagsstjóri hafa gefið út skýrslu um
þessi mál og með henni varð „þóknun-
aróskapnaðurinn” opinber. Hann
hefur m.a. verið viðurkenndur á þann
hátt að Seðlabankanum er heimilt að
opna gjaldeyrisreikninga til
innlagningar þókunarfjár. Þeir sem
hana taka geta síðan ráðstafað fé af
þessunt einka-gjaldeyrisreikningum.”
„Enginn veit hve há þóknun er tekin
í hinum ýmsu tilvikum. Henni er bætt
á vöruverðið og margfaldast í
verðlagningarkerfinu.
„Þóknunin" skapar
verðmuninn hjá
okkur og hinum
Við hjá „Fæði fyrir alla hf.” höfum
hafnað hvers konar þóknun erlendis.
Við teljum hana ólöglega. Á ávextina
höfum við hins vegar lagt fulla
álagningu. En vegna þess að við tökum
ekki þóknun erlendis, sem bætist á
vöruverðið, eru ávextir okkar 20—30%
ódýrari í útsölu hér, þó við setjum fulla
álagningu á þessa vörutegund jafnvel á
Útimarkaðinum,” sagði Guttormur.
Hann sagði að ,,Fæði fyrir alla hf.”
væri heildsölufyrirtæki með full
innflutningsréttindiog gætiselt hverjum
sem hafa vildi. Að því er keppt í fram-
tíðinni. Til þessa hefur innflutningur
firmans hins vegar beinzt að því að sjá
Kornmarkaðinum (Skólavörðustíg 21)
fyrir sérstöku heilsufæði og Úti-
markaðinum fyrir ferskum ávöxtum.
Kaupmenn vilja
stöðva Kornvöru-
markaðinn
„Við höfum áreiðanlegar heimildir
fyrir því að á ótal fundum mat-
vörukaupmanna hefur verið um það
rætt með hvaða leiðum væri hægt að
stöðva innflutning. „Fæðis fyrir alla”
og smásölu Kornmarkaðarins. Lög-
legar leiðir hafa ekki fundizt og þvi er
ekkert um umræður þessar bókað,”
sagði Guttormur.
Hann kvað aðdraganda að firmanu
„Fæði fyrir alla hf.” vera samvinnu
hans og Ingibjargar Gunnlaugsdóttur
1976. Síðar hefði hlutafélagið verið
stofnað og Anada Marga hreyfingin
orðið stærsti hluthafinn, sem í raun
ræður ferðinni. Takmark hennar var að
tryggja félagsmönnum heilsusamlegt
náttúrufæði. Kornmarkaðurinn er af-
sprengi hugmyndarinnar.
Ávextir eru ein þeirra tegunda fæðu
sem hreyfingin vill stuðla að aukinni
neyzlu á. Ódýrir ávextir á Útimarkaði
eru leið að því marki. Innflutningur á-
vaxta hófst í maí sl. Út var sendur
Andrés Magnússon til að kynna sér
grænmetismarkaðina. Sér hann um
innflutninginn ásmt Guttormi, sem
einnig sér um Útimarkaðssöluna.
Sigmar Amórsson er svo verzlunar-
stjóri Kornmarkaðarins, sem þrifizt
hefur vel með hálfri leyfilegri
verzlunarálagningu.
Hér eru aðstandendur „Fæðis fyrir alla hC’ og Kornvörumarkaðarins á Skólavörðustfg 21, þeir Andrés Magnússon lengst
t.v., Sigmar Arnórsson verzlunarstjóri og Guttormur Sigurðsson. Einhver rótgróinn islenzkur ávaxtainnflytjandi hefur nú
séð ástæðu til að reyna að stöðva 2—3 tonna vikulcgan innflutning þeirra frá Þýzkalandi með hótunum við þýzka
ávaxtasalann.
-DB-mynd: Sig. Þorri.
Þjóðmálahreyfingin
með í spilinu
Inn í allt þetta blandast svokölluð
„Þjóðmálahreyfmg” sem Guttormur
er hugsuður að. Sú hreyfing er á móti
kommúnisma og vill nýjar leiðir. Hún
vill kanna andleg viðhorf fólks til
hlutanna og efla andlega heimspeki.
Hún vill dreifingu efnahagslegs valds,
er á móti ríkiseinokun og á móti allri
söfnun valds á fárra manna hendur.
Fólkið eða einstaklingurinn reki fyrir-
tækin i anda fólksins.
Hluti af ágóða hinnar ódýru á-
vaxtasölu sem einhver íslenzkur inn-
flytjandi vill nú stöðva með hótunum
við erlenda aðila, hefur runnið til
eflingar Anada Marga og Þjóðmála-
hreyfingunni. Hluti ágóða hefur runnið
til að koma upp aðstöðu til aukinnar
sölu, tækjakaupa og uppsetningu
geymslurýmis fyrir lager. Eru þeir
félagar mjög ánægðir með þann
árangur sem náðst hefur til þessa.
Reyna nýjar inn-
flutningsleiðir
„Ætlið þið að leggja ára i bát við
sölustöðvunina hjá Frúco”? spurðum
við þá.
„Við trúum því eiginlega ekki ennþá að
þeir hafi lokað á viðskipti við okkur. Hjá
þeim er gott að verzla, þvi þeir hafa allar
tegundir ávaxta og það var hægt að gera
góð kaup, þó ekki væri keypt rosalegt
magn af hveri tegund. Við keyptum 2—3
tonn á viku í sumar og magnið fór
vaxandi. En vilji þeir ekki selja eru ótal
markaðir tíl og við munum þá kaupa
annars staðar frá þó óhagstæðara sé,”
sögðu þeir félagar.
„Við óttumst að með þessum maftu-að-
ferðum sé verið að gera atlögu að Úti-
markaðinum. Það væri sjónarsviptiraðþví
ef hann hyrfi. Þar er unnið að því að
skapa skjólbetri aðstöðu og betri tímar
væm framundan, ef óvæntír atburðir
breyta ekki framþróuninni”.
-A.St.
Sfld íHúnaflóa:
„EÐULEGT AÐ MONNUM
HLÝNIUM HJARTARÆTUR”
—en því miður, þetta er ekki gamla Norðurlandssíldin,
segir Jakob Jakobsson f iskifræðingur
„Það er eðlilegt að mönnum hlýni
um hjartarætur þegar vart verður við
síld við Norðurland. En þetta er ekki
gamla Norðurlandssíldin. Yfirgnæf-
andi líkur benda til að þetta sé sumar-
gotssíldin,” sagði Jakob Jakobsson
fiskifræðingur í samtali við Dagblað-
ið í gær í framhaldi af frétt sem birt-
ist í blaðinu í gær þess efnis að Reykj-
arfjörður á Ströndum væri nú fullur
af síld.
„Við eigum von á sýni frá Hólma-
vík til frekari staðfestingar. Þetta er
stór og falleg síld,” sagði Jakob.
Hann kvaðst hafa fengið send
sýni sl. mánudag frá Kálfshamarsvík,
sem er við austanverðan Húna-
flóann. Hefði síldin sem þaðan kom
reynzt vera sumargotssíld, 30—40
sentimetralöng.
„Það hefur orðið vart við síld við
Loftmynd af Djúpuvik viö Reykjarfjörð. Þrjátiu ár eru nú liðin frá þvi sildarverksmiðjan þar var sfðast starfrækr.
DB-mynd: Kristján Már.
allt Norðurland. En þessi sild er
einungis á grunnslóð og reyndar allt
upp í fjöru,” sagði Jakob.
Að sögn Jakobs var sumargots-
síldin eini stofninn sem bjargaðist
begar hrunið mikla varð. Fyrir áratug
er talið að stofnstærðin hafi verið
15—20 þúsund tonn. Sagði Jakob að
á þessum.tíu árum hefði stofninn
vaxið gífurlega og væri nú talið að
hann væri 200 þúsund tonn.
„Þetta var aldrei stór stofn, mest
um 300 þúsund tonn,” sagði Jakob.
Þess má geta að sumargotssíldin
er einmitt sú síld sem veidd hefur
verið undanfarin haust á miðum fyrir
austan og sunnan landið.
Gamla Norðurlandssildin var að
sögn Jakobs vorgotssild. Hrygndi
hún við Noreg á vorin en gekk síðan
til Norðurlands á sumrin þar sem hún
var síðan veidd.
Leifarnar af þeim síldarstofni
halda sig alveg við Noreg. Hefur sú
síld ekki hreyft sig þaðan og oft verið
áberandi inni á norskum fjörðum.
Eins og lesendum er eflaust kunnugt
um hefur nokkur styr staðið á milli
íslenzkra stjórnvalda og norskra um
friðun þeirrar síldar. Norðmenn hafa
leyft veiðar á þeim stofni, en
íslendingar viljað algjöra friðun.
-KMU.
Athugasemd
við leiðara:
Heldur
hlálegur
tónn
Haukur Helgason eyddi heilum
leiðara sl. laugardag i að fjalla um
„inngöngu Kommúnistasamtakanna
í Alþýðuflokkinn”. Kvað við heldur
hlálegan tón í skrifum Hauks, sama
hálfkæringinn og oflátungsháttinn
og einkennir isl. stjórnmálabaráttu, I
stað málefnalegrar umræðu og bar-
áttu.
Haukur segir í leiðaranum að
hann hafi heyrt á nokkrum framá-
mönnum í Alþýöuflokki, sem setið
hafa viðræðufundi með
Kommúnistasamtökunum, að þeir
haldi eitt og annað sem ég eyði ekki
rúmi í að tilgreina. Auðvitað getur
Haukur ekki tilgreint þessa m'enn þvi
engir slikir fundir hafa farið fram.
Eina samtal tveggja Alþýðuflokks-
manna og eins félaga Kommúnista-
samtakanna fór fram óformlega i júli
eins og margoft hefur komið fram.
Svona vinnubrögð við ábyrg leiðara-
skrif sæma ekki jafn ágætum blaða-
manni og Hauki Helgasyni.
- Loks vil ég benda á að hugtakið
„krakkarnir i Kommúnista-
samtökunum” hlýtur að hafa
einhvern sérstakan tilgang í skrifum
Hauks þar eð hann kannast við
marga félaga samtakanna á þritugs-
og fertugsaldri. Mál er að linni.
Ari Trausti Guömundsson.