Dagblaðið - 16.09.1981, Síða 11
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1981.
Útgerðarfélag Akureyringa vantar land undir
skreiðarhjalla:
Hálfgert vandræða-
ástand eins og er
—segir Vilhelm Þorsteinsson f ramkvæmdastjóri Ú A
„Já, það má segja að við séum í
vandræðum með skreiðarverkunina
eins og er,” sagði Vilhelm Þorsteins-
son, framkvæmdastjóri Útgerðar-
félags Akureyringa, í samtali við
fréttamann blaðsins í gær. í blaði
gærdagsins var frétt um að bændur í
Glæsibæjarhreppi hefðu í fyrradag
lokað veginum að skreiðarhjöllum
ÚA og fengið því á endanum
framgengt, að þeir verði fjarlægðir.
„Þetta mál allt á sér nokkuð lang-
an aðdraganda,” sagði Vilhelm
Þorsteinsson. „Við erum búnir að
hengja upp skreið á "Oddeyrinni í
þrjátíu ár, fyrst norðanmegin og svo í
mörg undanfarin ár sunnar. Byggðin
hefur stöðugt verið að færast nær og
á endanum var svo komið, að
hjallarnir voru eiginlega komnir fast
að henni. Við höfum verið að leita
okkur að nýjum stað fyrir hjallana en
ekki fundið hann ennþá”.
Vilhelm sagði að Akureyrarbær
hefði boðið útgerðarfélaginu land
undir hjalla utan við svonefnt Þórs-
nes en þar væri jarðvegur slíkur, að
vafasamt væri hvort hægt væri að
reisa þar skreiðarhjalla. „Bærinn á
þetta land í Glæsibæjarhreppi,”
sagði Vilhelm, „en þar eru hjallarnir
of nálægt mannabústöðum sam-
kvæmt heilbrigðisreglum. Þess vegna
verðum við að fara þaðan þegar búið
er að þurrka það sem þegar hefur
verið hengt upp. Þetta gerir kannski
ekki mjög illt einmitt núna, þegar
verið er á skrapfiskiríi að mestu, en
vitaskuld verðum við að verða okkur
úti um nýjan stað. Hvar það verður
Skreiöarhjallar ÚA við bæinn Blómsturvelli f Glæsibæjarhreppi I Eyjafirði eru
allt of nálægt mannabústöðum. Samkvæmt lögum og reglum verða að vera að
minnsta kosti 500 metrar i milli.
veit ég ekki í augnablikinu.”
Hann sagði að Útgerðarfélag
Akureyringa hefði verkað talsvert
mikið í skreið á undanförnum
tveimur árum, enda hægt að fá gott
verð fyrir slíka vöru og markaðir
góðir. „Þetta er nú einmitt sú
verkunaraðferð, sem hvað mest gefur
af sér í dag,” sagði Vilhelm Þor-
steinsson. -ÓV.
Eftir margar árangurslausar tilraunir til
skreiðarhjallana, tóku bændur f hreppnum til
hjöllunum.
að fá ÚA til að
sinna ráða og lokuðu
hætta við
veginum að
Framkvæmdastjórar Útgerðarfélags Akureyringa, Gisii Konráðsson og Vilhelm Þorsteinsson mættu báðir á staðinn f fyrra-
dag og leituðu sátta við bændur. -DB-myndin Guðmundur Svansson, Akureyri.
ÍBRMÍ.NAt
ÍERMÍNAi
ÍERMÍN^
^mbPi
TERMÍNAÍ
TfRMÍNAl
PRB3E-
fESTýjEB
TERMÍNAt
TERMÍNAt
«TBÆ-
RSÍk®
TQíMÍNAI
HAARIíóP
fERMÍNAl
TERMINAL PROFESSIONAL
AHar nánarí upp/ýsingar varðandi
námskeiðið á Hársnyrtistofunni
Papiiiu, sími 17144.
LEIÐBEINANDI:
M| mmm^ , TÓRFI GEIRMUNDSSON.
Hársnyrtiefni fyrir fagfóik, aðeins tii
endursölu hjá því.
Námskeið verður haidið í þessari
viku í meðferð á þessum efnum
ásamt öðrum vörum frá Kadus.
I 1
1 I 1 í „ s
t ...... i'