Dagblaðið - 16.09.1981, Page 13
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1981.
h
Kjallarinn
Jón Ásgeir
Sigurðsson
ingar.
í húsnæðishraki eru þá 322 ein-
hleypingar (eldri en 24 ára), 208
tveggja manna fjölskyldur, 104
þriggja manna, 81 fjögurra manna,
35 fimm manna og 10 stærri fjöl-
skyldur. Fyrir þennan hóp þarf þetta
húsnæði í það minnsta: 530 eins til
tveggja herbergja íbúðir, 104 þriggja
herbergja íbúðir, 81 fjögurra her-
bergja ibúðir og rúmlega 40 stærri
íbúðir.
Alls þarf um 760 íbúðir strax til að
leysa vanda þess fólks sem sam-
kvæmt Morgunblaðinu er í hús-
næðishraki á höfuðborgarsvæðinu.
Að sjálfsögðu verður vandinn ekki
leystur með nýbyggingum, það vant-
ar760íbúðir strax!
Reyndar fjölgaöi íbúðum um 1126
að meðaltali ár hvert á tímabilinu
1965—1979. Þær íbúðir sem verða
fullgeröar á næsta ári leysa ekki hús-
næðisvandann, þeim hefur þegar
flestum verið ráðstafað. Og eigendur
þessara nýju ibúða telja sig örugglega
ekki vera á hrakhótum í dag.
Þeir sem ekki eiga kost á nýbygg-
ingum í bráð, gætu leitað eftir kaup-
um 6 þvi húsnæði sem losnar. En þá
standa menn frammi fyrir því að fast-
eignamarkaðurinn hefur gjörbreyst á
undanförnum tveim árum. Fram til
1976 þurftu menn að borga um 65%
út i íbúð. Þetta hlutfall jókst árin
1978 og 1979 i 75% en á sama tima
var fasteignaverð i lágmarki þannig
að greiðslubyrðin hækkaði í raun
ekki.
En eftir 1979 hefur lánstíminn styst
og vextir hækkað fyrir utan þessa
hækkandi útborgun. Lánstíminn
hefur styst úr 8 árum i 5 ár og vextir
hafa hækkað úr 10—12% í 14—
18%. Afieiðing þessa er meðal
annars sú að nú þurfa íbúðakaupend-
ur að leggja fram 15% meira fé fyrstu
2 árin en áður tíðkaðist. Ef við berum
svo íbúðakaupanda í dag saman við
mann sem keypti á árunum 1970—
1978 á tímum neikvæðra vaxta og
vaxtafrádráttar við skattlagningu, þá
hefur greiðslubyrðin vaxið mjög
mikið.
Endursöluíbúðir í
verkamannabústöðum
Afleiðing'ar þessa ástands hljóta að
vera margvíslegar. Fasteignaviðskipti
hafa að líkindum dregist saman og
fólk leitar eftir auðveldari íbúöa-
kaupum, til dæmis endursöluíbúðum
i verkamannabústöðum. Á þessu ári
komu 100 íbúöir til endursölu hjá
Stjórn verkamannabústaða en
umsóknir voru 600. Starfsfólk hjá
Stjórn verkamannabústaða segir að
fyrir utan þá sem lögðu inn umsóknir
komi 5—10 manns til þeirra á degi
hverjum í leit að húsnæði.
Þeir sem ekki treysta sér til að
leggja fram útborgun til að kaupa
íbúð á fasteignamarkaðnum og hafa
ekki fengið fyrirgreiðslu hjá Stjórn
verkamannabústaða eða hjá félags-
málastofnunum á höfuðborgarsvæð-
inu eiga því tveggja kosta völ: að
flytja burt af höfuðborgarsvæðinu
eða reyna að finna leiguibúð.
Enginn biður um að þessar 760
íbúðir sem bráðvantar, þurfi endilega
allar að vera leiguíbúðir. Það er
heldur engin nauðsyn að þær verði
allar sjálfseignaribúðir. En þessar
760 íbúðir þarf að finna, og það
strax!
Frekara samstarfs
er þörf
Þeir aðilar sem um þessi mál fjalla
og ber skylda að leysa vandann, eiga
nú aö taka höndum saman i því skyni
að bjarga hundruðum fjölskyldna úr
því hræðilega ástandi að vera hús-
næðislausar. í Reykjavik er enn-
fremur brýnt að taka upp náið sam-
starf Félagsmálastofnunar borgar-
innar, Leigjendasamtakanna, Stjórn-
ar verkamannabústaða og þeirra
verkalýösfélaga sem fólkiö leitar
mest til meðsín vandamál.
Samstarfsnefnd þessara aðila þarf
þegar i stað að draga saman allar
upplýsingar sem til eru um húsnæðis-
vandann. Allar fyrirspurnir eða um-
sóknir um húsnæði þyrfti að bera
saman til að fá rétta mynd af vandan-
um. Með því móti mætti sjá hvort
það vantar fleiri eða færri en 760
íbúðir, hverskonar íbúðir vantar og
hve brýnn vandinn er hjá hverjum og
einum.
Jafnframt skora ég á borgaryfir-
völd aö dusta rykið af ársgamalli
samþykkt borgarráðs og borgar-
stjórnar um markmiö í húsnæðis-
málum. Þar segir i 6. lið:
„Reykjavíkurborg mun kanna
möguleika á því að setja á stofn eigin
húsnæðisskrifstofu þar sem fari fram
þjónusta viö eigendaskipti ibúða og
leigumiðlun. Þjónusta slíkrar skrif-
stofu yrði seld á kostnaðarverði.
Verði niðurstaða þessarar athugunar
jákvæð, verði slíkri starfsemi komið
á fót.”
Enga fjandans
hugmyndafrœði
Allir eru sammála um að hús-
næðisvandinn sé mikill og brýnn.
Þegar ég var að ljúka þessari grein
fékk ég upphringingu frá konu sem
hafði verið að leigja út ibúð og vildi
grennslast fyrir um ákvæði i húsa-
leigusamningalögunum. Hún kvaðst
hafa auglýst leiguupphæðina fyrir
íbúðina, 2500 krónur á mánuði. Á
stuttum tíma hringdu í hana 60
manns sem bráðvantaði húsnæði.
Ein kona sagði henni með grátstafinn
í kverkunum að hún hefði verið í hús-
næðishraki í tvö ár og væri með ung-
barnáframfæri.
Hér dugir engin fjandans hug-
myndafræði. Skrefin eru þessi:
upplýsingasöfnun eins og skot. Síöan
verði það húsnæði sem vantar útveg-
að án tafar.
Vei þeim stjórnmálamönnum sem
reyna að bregða fæti fyrir neyðarráð-
stafanir þær sem nú verður að grípa
til!
Jón Ásgeir Sigurðsson
blaðamaður.
0 „Alls þarf um 760 íbúöir strax til aö leysa
vanda þess fólks sem samkvæmt
Morgunblaðinu er i húsnæðishraki á höfuð-
borgarsvæðinu. Að sjálfsögðu verður vand-
inn ekki leystur með nýbyggingum, það vantar
760 íbúðir strax!”
i
verið svo um langt árabil að
samninganefnd á vegum A.S.V.
og fulltrúar Vinnuveitendafél-
ags Vestfjarða hafa gengið frá og
undirritað samninga hér heima. —
Hér með er því Finnbogj upplýstur um
það, sem allir hafa auðvitað vitað
nema hann, að viðsemjandi A.S.V.-
félaganna er Vinnuveitendafélag
Vestfjarða.
Vísvitandi rangfærsla
eða heimska
í umræddri grein er fullyrt, að
Vestfjarðasamkomulagið frá 1977
hafi skaðað verkafólk á Vestfjörðum
um þó nokkur prósent í kaupi miðað
við Loftleiðasamkomulagið. Látið er
vera að færa rök fyrir þessari full-
yrðingu, og hefur Finnboga líklega
farið eins og öðrum þeim, sem haft
hafa í frammi fullyrðingar sem þessa,
að þeim hefur reynst erfitt að finna
rökin og látið nægja að fullyrða.
Til upplýsinga fyrir þennan annars
pólitískt hrjáða einstakling skal á það
bent, að samanburður var gerður af
hlutlausum aðila á vestfirska sam-
komulaginu og því, sem gert var
syðra. Sá samanburður leiddi í ljós,
að Loftleiðasamkomulagið gaf 2,6 til
2,7% hærra kaup allt samningstíma-
bilið, er þá ekki tekið tillit til þess
þáttar vestfirska samkomulagsins,
sem varðar kaupauka fólksins í
frystihúsunum. En einnig var af hlut-
lausum aðila gerður samanburður á
þeim þætti samkomulagsins og kom
þá í ljós, að vestfirska samkomulagið
gaf fiskvinnslufólki 8—9% hærra
kaup en Loftleiðasamkomulagið
gerði.
Auk þessa skal Finnbogi upplýstur
um, að inn í Vestfjarðasamkomulag-
inu var ákvæði, sem heimilaði
uppsögn þess, ef aðrir fjölmennir
hópar launafólks semdu um verulega
hærri laun en það gerði ráð fyrir.
Krafa um sams konar ákvæði inn í
samninga var á borði A.S.Í. og var af
því talin ein grundvallarkrafan, en
hefur einhverra hluta vegna runnið af
þvi borði, því ekki var ákvæði þess
efnis i samkomulaginu, sem undir-
ritaðvará Loftleiðahótelinu.
Eftir að B.S.R.B. hafði síðar um
haustið 1977 samið og fengið
hækkun umfram Vestfjaiðasam-
komulagið, var því sagt upp á grund-
velli áðurnefnds ákvæðis og nýtt
samkomulag undirritað 4. jan. 1978.
Og samkvæmt því samkomulagi
hækkaði kaup verkafólks á Vest-
fjörðum um 5,5% umfram það sem
samkomulagið frá 13. júní gerði ráð
fyrir.
Miðað við allt samningstímabilið
þá var tímakaup á Vestfjörðum sam-
kvæmt samkomulaginu frá 4. janúar
kr. 3,20 hærra pr. tíma að jafnaði en
samkomulag það, sem Alþýðusam-
band íslands gerði. Auk þess skal
bent á, að kaup fiskvinnslufólksins á
Vestfjörðum, sem var 8—9% hærra
samkv. fyrra Vestfjarðasamkomu-
laginu en samningur A.S.Í. gerði ráð
fyrir, hækkaði um 4% 1. janúar 1978
samkvæmt samkomulaginu sem gert
var 4. janúar 1978, og auk þess kom
hækkun þar til viðbótar 1. mars
1978. Fullyrðingar Finnboga um að
Vestfjarðasamkomulagið hafi fært
vestfirsku verkafólki minni kaup-
Finnbogi Hermannsson
Kjartan Ólafsson
hækkun en samkomulag A.S.Í.
gerði, eru þvi hreinar blekkingar eða
einskær fáviska, nema hvort tveggja
sé.
Vilji Finnbogi frekari upplýsingar
skal honum bent á, að í 1. tölublaði
Vestra frá janúar 1978 er að finna
tölulegar upplýsingar og úttekt á
báðum þessum samningum, og væri
ekki úr vegi að það yrði eitt af fyrstu
verkum Finnboga sem blaðamanns
við Vestfirska að birta þessar tölu-
legu upplýsingar.
Er aumingja mann-
inum sjálfrátt?
Ein er sú fullyrðing Finnboga í um-
ræddri grein, að ólýðræðislegum
vinnubrögðum hafi verið beitt af
hálfu A.S.V. við undirbúning að
kröfugerð og hvernig standa skuli að
samningum á hausti komanda. Eru
það ólýðræðisleg vinnubrögð að
boða til kjaramálaráðstefnu þar sem
fulltrúar aðildarfélaga A.S.V. koma
saman og ræða hugsanlegan undir-
búning að kröfugerð og hvernig
staðið skuli að málum og drög að
kröfugerð lögð fram, en málinu
síðan vísað út í félögin til umræðu og
ákvörðunar?
Engin rödd, hvorki innan nú utan
verkalýðshreyfingarinnar, nema rödd
hrópandans í eyðimörkinni, hefur
Jón H. Bergs
heyrst um að vinnubrögð þau, sem
viðhöfð hafa verið, séu ólýðræðis-
leg. Þvert á móti held ég, að öllum
sem á annað borð hafa óbrenglað
viðhorf til mála sé ljóst, að hér hafa
eðlileg, lýðræðisleg vinnubrögð verið
viðhöfð.
Þó skal það ekki dulið, að þeir sem
á annað borð eru undirlagðir af
kommúnistískum viðhorfum hafa
auðvitað ýmislegt við þetta að athuga
og líklega eru þeir fleiri en Finnbogi,
sem ala slík viðhorf við brjóst sér, en
menn stiga mismunandi í vitið til
opinberunar þeirra hugsana sinna.
Algjört virðingarleysi
og vanvirða við vest-
firskt launafólk
Ýmislegt fleira í grein Finnboga
væri ástæða að taka til umfjöllunar,
en í lokin aðeins vikið að eftirfar-
andi.
Finnbogi fullyrðir, að undirritaður
hafi látið A.S.V. skrifa undir vesf-
firska samkomulagið 1977.
Þvilík vanvirða og fyrirlitning af
hálfu þessa piltungs i garð vestfirsks
launafólks, að ætla því að það láti
einhvern einstakling segja sér fyrir
verkum. — Nei, Finnbogi. Sem betur
fer er vestfirskt launafólk þess full-
komlega fært að mynda sér sjálf-
stæða skoðun á málum og taka
afstöðu samkvæmt því og ástæðu-
laust er að sýna því slíka vanvirðu og
fyrirlitningu sem Finnbogi gerir.
En svona aðdróttun að launafólki
sýnir betur en margt annað hvernig
viðkomandi einstaklingur er innrétt-
aður.
Sams konar fullyrðing er viðhöfð
um sjómannasamkomulagið, sem
gert var hér í Bolungarvík á sl. ári.
Og sama svarið á við: Það er van-
virða og fyrirlitning gagnvart
bolvískum sjómönnum að halda því
fram, að þeir láti segja sér fyrir
verkum. Þeir eru hver og einn j>ess
umkomnir að taka eigin ákvarðanir,
og gera það, og á það einnig við um
aðra vestfirska sjómenn. Það er
a.m.k. skoðun undirritaðs, og hvorki
Finnbogi Hermannsson né neinn
annar er þess umkominn að stimpla
vestfirska sjómenn og verkafólk sem
viljalaust verkfæri í höndum
ákveðins einstaklings.
Slíku svartnætti aðdróttana og
fyrirlitningar hefur vestfirskt launa-
fólk áður svarað og mun hér eftir sem
hingað til svara á verðugn hátt.
Það er krafa, ekkert síður til
málglaðra blaðamanna en annarra,
að þeir finni staf skrifum sínum og
færi rök fyrir fullyrðingum. Sé það
ekki gert, stendur viðkomandi
afhjúpaður og innræti persónunnar
öllum Ijósara eftir en áður.
Bolungarvík, 10. sept. 1981.
Karvel Pálmason.