Dagblaðið - 16.09.1981, Blaðsíða 14
14
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1981.
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Átta Blika-
stúlkurílands-
liðshópnum
— Skotland og ísland
leika kvennalandsleik í
knattspymu á sunnudag
íDumbarton
Fyrsti kvennalandsleikur íslands i
knattspyrnu verður i Dumbarton við
Glasgow á sunnudag við Skotland.
Þjálfari stúlknanna, Guðmundur
Þórðarson lögfræðingur og fyrrum
landsliðsmaður, tilkynnti skipan lands-
liðshópsins í gær. Sextán stúlkur. ís-
lenzka kvennalandsliðið i handknatt-
leik er i keppnisför um sama leyti og
vegna þess gáfu nokkrar stúlkur ekki
kost á sér í leikinn við skozku stúlkurn-
ar.
í þessu fyrsta kvennalandsliði ís-
lands í knattspyrnunni eru Guðríður
Guðjónsdóttir, Breiðabliki, og Ragn-
heiður Jónasdóttir, Akranesi, mark-
verðir, Jónína Kristjánsdóttir, Ásta
María Reynisdóttir, Rósa Valdimars-
dóttir, Magnea Magnúsdóttir, Bryndis
Einarsdóttir, Ásta B. Gunnlaugsdóttir
og Svava Tryggvadóttir, allar Breiða-
bliki, Sigrún Cora Barker, Ragnheiður
Víkingsdóttir og Bryndís Valsdóttir,
allar Val, Kristín Aðalsteinsdóttir og
Kristín Ragnarsdóttir, báðar Akranesi,
Hildur Harðardóttir, FH, og Brynja
Guðjónsdóttir, Víking.
í fararstjórn verða Ellert Schram,
formaður KSÍ, Gunnar Sigurðsson,
Svanfríður Guðjónsdóttir og Guð-
mundur Þórðarson. Landsliðshópur-
inn heldur til Glasgow á föstudag.
-hsím.
Þróttur komst
ekki í úrslit
— eftirtapgegn KR
fgærkvöld
Þrír leikir voru háðir í riðlakeppni
Reykjavíkurmótsins í handknattleik í
Laugardalshöll í gærkvöld. Einn var í
A-riðli. Þar vann Víkingur Fram með
miklum mun eða 35—21. Tveir voru í
B-riðlinum. KR sigraði Þrótt 20—18.
ÍR sigraði Ármann 21—19.
í A-riðiinum hafa Valur og Víkingur
4 stig, Fylkir tvö og Fram ekkert. Vík-
ingur hefur lokið leikjum sínum en
hefur tryggt sér sæti i úrslitakcppninni.
Valur og Fylkir leika á föstudag. Valur
má tapa þeim leik með þriggja marka
mun til að komast í úrslit. En auðvitað
eru miklu meiri líkur á Valssigri.
I B-riðlinum hafa KR og ÍR 4 stig og
eru komin í úrslitakeppnina. Þróttur og
Ármann hafa ekkert stig. Mjög óvænt
að bikarmeistarar Þróttar skuli ekki
komast í úrslitakeppni Reykjavikur-
mótsins.
Valencia vann í
Tékkóslóvakíu
— ogSparta Prag
steinlá í Sviss
Valencia, Spáni, sem danski leik-
maðurinn Frank Árnesen leikur með,
vann góðan sigur i Tékkóslóvakíu i gær
í UEFÁ-keppninni i knattspyrnu, sigr-
aði Bohemians Prag 0—1. Leikið var í
Prag. Ekkert mark var skorað i fyrri
hálfleik en Saura skoraði i þeim siðari
fyrir spænska liðið. Þetta var fyrri leik-
ur liðanna í 1. umferð.
í sömu keppni urðu heldur betur
óvænt úrslit í Neuchatei í Sviss. Xamax
sigraði Sparta Prag 4—0 að viðstödd-
um 12.750 áhorfendum. 3—0 í hálfleik
fyrir svissneska liðið. Mörkin skoruðu
Liithi, tvö, Tricero og Pellegrini.
I Evrópukeppni bikarhafa gerðu
Jeunesse Esch, Luxemborg, og Velez
Mostar, Júgóslaviu, jafntefli 1—0 (0—
0) í Luxemborg. Áhorfendur 2.500.
Scheitler skoraði fyrir Luxemborgar-
liðið, Mulahasa Novic fyrir Mostar.
Atli Eðvaldsson i leik með Dortmund.
Atli Eðvaldsson frá D
Atli í vt
er féíög
Frá Viggó Sigurðssyni, Leverkusen.
Atli Eðvaldsson var á mánudag seldur frá
Borussia Dortmund til Fortuna Dusseldorf,
sem er næstneðst i vcstur-þýzku Bundeslig-
unni. Kaupverðið er 400.000 þýzk mörk (um
1,3 millj. íslenzkra kr.) og gildir samningur-
inn til ársins 1984.
Samningar Dortmund og Dússeldorf fóru
fram með miklum flýti. Atli var úti að verzla
seinni part mánudags og þegar hann kom
heim var honum tilkynnt að hann væri á
förum til Dússeldorf. Ekki hafa þær fregnir
komið honum algerlega í opna skjöldu þar
sem þýzk blöð hafa rætt hugsanlega sölu
Tony K
þekkta*
—þegarhannlæ
Frá Sigurjóni Jóhannssyni, fréttamanni DB i
Noregi.
Tony Knapp, fyrrum landsliðsþjálfari ís-
lands í knattspyrnunni, verður áfram þjálf-
ari í Noregi. Samningur hans við Viking í
Stafangri rennur út í haust og Knapp hefur
nú ráðið sig til þekktasta knattspyrnufélags
Leggjum allan okkar
metnað í að vinna þá
—segir Lúðvík Halldórsson hjá knattspyrnudeild Fram
„Við erum ákveðnir í að sigra
Dundalk i kvöld og leggjum allan okk-
ar metnað i að komast í 2. umferð í
Evrópukeppni bikarhafa,” sagði
Lúðvík Halldórsson hjá knattspyrnu-
deild Fram í samtali við DB. „Við
vcrðum með alla okkar sterkustu menn
nema Lárus Grétarsson sem er meidd-
ur. Þó er enn ekki víst með Trausta
Haraldsson, það kemur i Ijós í dag.”
Þó lítið sé vitað um írska liðið
Dundalk annað en nöfn leikmanna og
árangur í tölum ættu möguleikar Fram-
ara á áframhaldi í keppninni að vera
ágætir. I keppni sem þessari hefur
heimavöllurinn gífurlega mikið að
segja og því þurfa Framarar að ná hag-
stæðum úrslitum í kvöld gegn Irunum.
Að sögn Lúðvíks verður lögð áherzla á
sóknarleik og allt lagt í sölurnar til að
knýja framsigur.
Lið Fram hefur verið tilkynnt og
verður það skipað eftirtöldum leik-
mönnum:
Markvörður: Guðmundur Baldurs-
son, bakverðir: Trausti Haraldsson og
Ágúst Hauksson, miðverðir: Marteinn
Geirsson, fyrirliði og Sighvatur Bjarna-
son, tengiliðir: Pétur Ormslev, Hafþór
Sveinjónsson, Gunnar Guðmundsson
og Viðar Þorkelsson, sóknarmenn:
Halldór Arason og Guðmundur Torfa-
son og varamenn: Halldór Þórarins-
son, markvörður, Sverrir Einarsson,
FIRMAKEPPNI
í utanhússknattspyrnu
hefst laugardaginn
19. september.
Þátttaka tilkynnist eigi síðar en miðvikudag 16. sept. í
símum 73111 (Guðjón) 24120 (Ægir) 12939 (Ólafur) og
17266 (Gunnar). Þátttökugjald 600 krónur.
Knattspyrnudeild KR
Guðmundur Steinsson, Baldvin Elías-
son og Albert Jónsson.
Þjálfari Fram er Hólmbert Friðjóns-
son.
Fari svo að Trausti geti ekki leikið
eru allar líkur á að Hafþór Sveinjóns-
son taki stöðu hans sem bakvörður og
Albert Jónsson stöðu Hafþórs á miðj-
unni.
Takist Fram að komast í 2. umferð
verða þeir fimmta íslenzka liðið til að
afreka slíkt. Valur komst í 2. umferð
Evrópukeppni meistaraliða árið 1967
og ÍA í sömu keppni 1975. ÍBV og ÍBK
komust í 2. umferð UEFA-bikarsins
1978 og 1979. íslenzkt lið hefur því
aldrei komizt áfram í Evrópukeppni
bikarhafa og er kominn tími til að
breyta því. Leikurinn í kvöld verður
13. leikur Fram i Evrópukeppni, þar af
sá sjöundi í Evrópukeppni bikarhafa.
Einn þessara leikja, gegn Hibernians á
Möltu 1971, hefur unnizt, hinir tapazt.
í fyrra tóku Framarar þátt í sömu
keppni gegn danska liðinu Hvidovre.
Fyrri leikurinn í Danmörku tapaðist
0—1 og sá siðari hér heima, 0—2. Með
góðum stuðningi íslenzkra áhorfenda í
kvöld er ekki fráleitt að ætla að annar
sigurleikur Framara í Evrópukeppni
geti orðið staðreynd.
Leikið verður á Laugardalsvellinum
og hefst leikurinn kl. 17.30. -VS.
Irska liflið Dundalk, sem leikur við Fram í dag.
SAAB 900 GLE, 5 dyra, rauður, beinskiptur, ekinn 8 þús. km.
SAAB 99 GL '80,4ra dyra, grœnn, ekinn 12 þús. km.
SAAB 99 '79,2ja dyra, Ijósbrúnn, ekinn 24 þús. km.
SAAB 99 '79,2ja dyra, dökkbrúnn ekinn, 21 þús. km.
SAAB 99 '77,2ja dyra, rauður, ekinn 74 þús. km.
SAAB 99 '77,4ra dyra, grænn, ekinn 64 þús.
SAAB 99 '77,3ja dyra Combi, Ijösbrúnn, ekinn 49 þús. km.
SAAB 99 L '75,2ja dyra blár, ekinn 85 þús.
SAAB 99 '74,2ja dyra, rauður, ekinn 117 þús. km.
TÖGGUR HF.
SAAB UMBOÐK)
Fram-Dundalk íkvöld:
NOTAÐBR
BILAR
Seljum
í dag
Iþrótfir
einnigá
blaðsíðu 16
w