Dagblaðið - 16.09.1981, Page 16

Dagblaðið - 16.09.1981, Page 16
Iþróttir íþróttir Iþróttir DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 16.SEPTEMBER 1981. Íþróttabandalag Keflavikur, sigurvegarar 12. deild íslandsmótsins i knattspyrnu. Fremri röó frá vinstrí: Sigurbjörn Garðars- son, Magnús Garðarsson, Ómar Ingvarsson, Öskar Færseth, ÖIi Þór Magnússon, Skúli Rósantsson, Gfsli Eyjólfsson. Aftari röð: Steinar Jóhannsson, Ingiber Ólafsson, Hermann Jónasson, Kári Gunnláugsson, Gisli Torfason, Þorsteinn Bjarnason, Einar Ásbjörn Ólafsson. DB-mynd emm. Njarðvik, sigurvegararnir I 3. deild Islandsmótsins I knattspyrnu, sigruðu Einherja I úrslitaleik á laugardag 2—1. Aftari röð frá vinstri: Marinó Einarsson, Heiðar Agnarsson, Gisli Grétarsson, Snorri Jóhannesson, Guðmundur Sighvatsson, Ólafur Björnsson, Skúli Hermannsson, Albert Eðvaldsson, Guðjón Reynisson, Mile þjálfari. Fremri röð: Oddgeir Karlsson, Ingólfur Ingibersson, Finnbjörn Agnarsson, Sævar Júliusson, Jón Olsen, Gunnar Þórarinsson, Haukur Jóhannsson, Þórður Karlsson, Benjamin Friðriksson, Jón Ilalldórsson. Þess má geta að Mile mun þjálfa liðið áfram næsta sumar. Einherji frá Vopnafirði hafnaði í öðru sæti 3. deildar og leikur því 1 2. deild næsta sumar. Á myndinni eru: Fremri röð frá vinstri: Magni Björnsson, Viðar Sigurjónsson, Ólafur Ármannsson, Ólafur Jóhannesson þjálfari, Kristján Daviðsson, Glsli Davíðsson. Aftari röð frá vinstri: Sveinn Sveinsson, Stefán Guðmundsson, Aðalbjörn Björnsson, Vigfús Davfðsson, Páll Björnsson, Steindór Sveinsson, Jón Gíslason, Baldur Kjartansson. DB-mynd emm. SLAKT GENGIANDERLECHT — Hef ur tapað þremur stigum í f jórum fyrstu umferðunum Fjórða umferöin í I. deildinni belgísku í knattspyrnunni var háð um helgina. Úrslit urðu þessi: Standard-Anderlecht 2—0 Molenbeek-Winterslag 1—1 Gent-Liege I—0 Beveren-FC Brugge 2—0 Waregem-Beringen 3—0 Mechelen-Lierse 0—2 Antwcrpen-Courtrai 0—1 CS Brugge-Lokeren 0—2 Waterschei-Tongeren 2—2 Mechelen og Tongeren 1. deild í vor. unnu sæti í Pétur Pétursson lék ekki með Ander- lecht frekar en i þremur fyrstu umferðunum. Anderlecht — Belgíu- meisturunum — hefur ekki gengjð sér- lega vel.-Er með fimm stig. Gerði jafn- tefli við Antwerpen í 1. umferð á heimavelli. Vann síðan CS Brugge í 2. umferð á útivelli og Waterschei á heimavelli í þeirri þriðju. Lokeren og Lierse eru efst með sjö stig og Standard Liege í þriðja sæti með 6 stig. Siðan kemur Anderlecht með 5 stig ásamt nokkrum öðrum liðum. Anderlecht, Briissel, er langfrægasta knattspyrnu- félag Belgíu. Sautján sinnum orðið Belgíumeistari — Union St. Gilloise næst með 11 meistaratitla — og fimm sinnum bikarmeistari. Standard Liege næst með fjóra sigra. -hsím. íþróttir Árni Þ. Þorgrímsson, stjórnarformaður KSt, afhenti sigurvegurunum verðlaun sin eftir leikina I Njarðvik og Keflavik á laugardag. Þvi miður komst Ijós inn á filmuna, þegar tsfirðingar voru myndaðir og það verður þvi að bfða betri tfma, að við birtum mynd af þeim hér I DB. r Bréf frá Vopnaf irði: Urslitaleikur þriðju deildar — leikinn á heimavelli annars liðsins! MEngan annan völl að fá,” segir formaður mótanef ndar Íþróttasíðunni hefur borizt eftirfar- andi bréf frá Jóni Sigurjónssyni frá Vopnafirði: Nokkur orð um úrslitaleik 3. deildar íslandsmótsins i knattspyrnu 1981. Laugardaginn 12. september fór fram úrslitaleikurinn í 3. deild í knatt- spyrnu. Þar áttust við tvö beztu lið 3. deildar 1981, Njarðvik og Einherji frá Vopnafirði. Það sem vakti athygli og furðu undirritaðs við þennan leik, var að mótanefnd KSÍ setti leikinn á í Njarðvik, já, þið lásuð rétt, lesendur góðir, á heimavelli annars liðsins! Þetta hlýtur að teljast furðuleg ráðstöfun. Var ekki alveg jafn rétt að setja leikinn á á Vopnafjarðarvelli? Allir vita hvað heimavöllurinn hefur mikið að segja í knattspyrnuleikjum. Um það þarf ekki að fjölyrða hér, það hefur margoft komið í ljós. Mótanefndin ber við að ekki hafi fengizt grasvöllur á Reykjavíkur- svæðinu undir umræddan leik. Þetta þykir undirrituðum ólíklegt. Hvað með t.d. Kaplakrika í Hafnarfirði? Eða Hallarvöllinn svonefnda í Laugardal? Ekkert var þar um að vera seinni part laugardagsins 12. september. Var kannski verið að spara völlinn fyrir einn af úrslitaleikjum 2. flokks? Fram og Keflavik spiluðu nefnilega þar 13. september í 2. flokki. Er 3. deildin svona lágt skrifuð? Mótanefndin kveður upp þann úr- skurð daginn fyrir leik að aðeins tveir vellir komi til greina: Njarðvíkurvöllur og gamli góði Melavöllurinn. Annað liðið sem spila átti umræddan leik, Einherji, segir sig tilbúið að spila á Melavellinum (þó malarvöllur sé), það sé þó altjént hlutlaus völlur. En for- ráðamenn Njarðvíkur hafa sennilega ekki viljað láta sína menn spila á honum, sett sig í samband við KSÍ og sagt álit sitt á málinu, því úrskurður mótanefndar er, meö samþykki KSI, sá jtð leikurinn skuli fara fram laugardag- inn 12. september kl. 13.00 á Njarðvík- urvelli! Það vakna ýmsar spurningar við svona framkomu af hálfu KSÍ, og gam- an væri að fá að heyra um þetta mál frá KSÍ. Undirritaður á erfitt með að sætta sig við þetta. Að lokum vii ég óska Njarðvíking- um og Vopnfirðingum til hamingju með 2. deildar sætið og óska þeim góðs gengis í 2. deildinni næsta sumar. Jón Sigurjónsson, Vopnafirði. „Njarðvíkurvöllurinn var eini völl- urinn sem bauðst fyrir umræddan leik,” sagði Helgi Þorvaldsson, for- maður mótanefndar KSÍ er DB leitaði álits hans á málinu. „Það var engan völl að fá i Reykjavík og nágrenni, Melavöllurinn upptekinn og Hallarflötin fékkst ekki. Kostnaður við ferðalag Einherja er lika stórt atriði. Bæði félög þurfa að standa straum af honum og því þótti okkur rétt að setja hann á í Njarðvík þar sem möguleiki var á áhorfendafjölda til að lækka þennan kostnað. Liðin voru bæði búin að tryggja sér sæti í 2. deild hvort sem var,” sagði Helgi að lokum. -VS. Ovett kvaddi með sigri Enski hlaupagarpurinn, Steve Ovett, lauk keppnistimabilinu með sigri I 2ja milna hlaupi á Crystal Palace- leikvanginum i Lundúnum á föstudag. Sigraði en hafði litla möguleika á að bæta heimsmetið. Hljóp á 8:25.52 min., Eamon Coghlan, írlandi, sem hafði haldið uppi hraðanum alit hlaupið, varð annar á 8:26.48 min. Heimsmethafinn Henry Rono, Kenýa, náði mjög góðum tíma í 5000 m. Sigraði á 13:12.34 mín. og setti brezkt met. Það er bezti tími, sem náðst hefur á Bretlandi. Julian Goeter, Bretlandi, varð annar á 13:15.59 mín. Ghanamaðurinn Ernest Obeng sigraði olympíumeistarann Allan Wells, Skot- landi, í 100 m hlaupi. Hljóp á 10.35 sek. Wells 10.41 sek. og Frakkinn ungi, Hermann Panzo, varð þriðji á 10.54 sek. Mel Lattany, USA, sigraði í 200 m á 20.48 sek. Don Quarrie, Jamaíka, varð annar á 21.05 sek. Walter McCoy, USA, náði frá- bærum tíma í 400 m hlaupi 44.99 sek. Brezkt met. Michael Paul, Trinidad, annar á 46.30 sek. John Walker, N- Sjálandi, sigraði í míluhlaupi á 3:57.76 mín. John Robson, Bretlandi, annar á 3:58.16 og Uwe Becker, V-Þýzkalandi, þriðji á 3:58.54 mín. Tékkneska stúlkan Jarmila Kratochvilova sigraði í 400 m á 49.51 sek. — brezkt met — Kathy Smallwood, Bretlandi, önnur á 51.08 sek. Mike Boit, Kenýa, sigraði í 800 m á 1:47.06 mín. James Robinson, USA, annar á 1:47.07 mín. Garry Cook, Bretlandi, þriðji á 1:47.31 mín. Greg Foster, USA, hljóp 100 m grinda- hlaup á 13.46 sek. Larry Myricks, USA, stökk 8.11 m í langstökki, Ray Mitchell, USA, 8.05. Anne-Marie Cording, Bretlandi, sigraði í hástökki kvenna, 1,86 m, en norska stúlkan Astrid Tveit varð önnur. Stökk 1.83 m.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.