Dagblaðið - 16.09.1981, Page 20

Dagblaðið - 16.09.1981, Page 20
Blaðaskríbentinn Halldór Ingi Andrósson kominn hinum megin borðið og svarar nú spurningum istað þess að spyrja þeirra. irið Finnsku leikararnir með leikhússtjóra sænska leikhússins / Helsinki, Cari Ohman, i broddi fylkingar á tröppum Valhallar á Þingvöllum. Með þeim á myndinni er Sveinn Einarsson, þjóðleikhússtjóri. DB-mynd: Bjarnleifur. Hópur leikara frá sænska leikhús- inu í Helsinki kom hingað til lands fyrir stuttu og sýndi þá tvivegis leikritið Konurnar í Niskavuori i Þjóðleikhúsinu. Var þetta í fyrsta sinn sem leikritið var sýnt á sænsku en það er þekkt finnskt leikrit. Mikill og góður samgangur hefur verið milli Þjóðleikhússins og sænska leikhússins í Helsinki og hafa íslendingar oft drepið þar niður fæti. Af heimsókn Finna hefur þó ekki orðið fyrr en vonandi koma þeir þó aftur til landsins siðar. Fyrri sýning Finnanna var laugar- daginn 5. september og sú síðari dag- FÓLK inn eftir. Þar sem Finnarnir áttu ekki að halda aftur til Þúsund vatna landsins fyrr en síðdegis á mánudag var ákveðið að skreppa með þá austur á Þingvöll. Þar skoðuðu þeir þingstaðinn og fengu forsmekk af sögu íslands. Að sögn Sveins Einarssonar, þjóð- leikhússtjóra, tókst ferðin hið bezta og höfðu Finnarnir gaman af að litast um á hinum fornfræga sögustað. -SA. DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1981. Htfíþjóðbúnlngnum. i honum þurfti hún að vera allan tímann ogþað í ofsa hrta, eins og hún sjátf segir. Nýkomin frá Japan þar sem hún tók þátt í keppninni Miss International: Kom á óvart hvaö stelp- urnar voru venjulegar — segir Hlíf Hansen ,,Jú, þetta var heilmikið ævintýri og hlutur sem ég á aldrei eftir að upp- lifa aftur,” sagði Hlíf Hansen í stuttu spjalli við Fólk-síðuna. Hlíf kom heim i siðustu viku eftir að hafa tekið þátt í keppninni Miss International í Japan. Ástralía sigraði í þeirri keppni, Brasilía var númer tvö og írland númer þrjú. ,,Ég fór fyrst til Parísar og var svo- lítið smeyk þá en þess þurfti ekki, því mjög vel var tekið á móti mér,” segir Hlíf ennfremur. Ég var í París í einn sólarhring og síðan flugum við allar evrópsku stúlkurnar saman til Japan.” Hlíf fór ein í þetta langa ferðalag og hún var spurðhvori þaó heíði ekki verið erfitt. „Nei, alls ekki,” svaraði hún. „Mér fannst einmitt miklu betra að vera ein. Þannig kynntist ég hinum stelpunum miklu betur en ella. Yfirleitt voru þær einar, þó voru nokkrar með fjölskyldum sínum en það var ekki vinsælt hjá hinum,” segir Hlif. „Keppnin byggðist fyrst og fremst upp á því að koma fram og tjá sig og þá aðallega 1 þjóðbúningum. Þetta var aðallega á daginn og hitinn var ofsalegur. Við vorum í Tokyo í sex daga en síðan fórum við í lest yfir til Kyoto þar sem valin var Miss Ele- gant. Þann titil hlaut ungfrú Brasi- lía.” Hlif sagði ennfremur aö mjög góður andi hefði myndazt meðal þátt- takenda. „Það kom mér á óvart hvað þessar stelpur voru vgnjulegar. Ég bjóst jafnvel við að þær Væru montn- ar, það var síður en svo. Þetta voru bara ósköp venjulegar stelpur í galla- buxum,” segir hún. Hllf sem er 21 árs stundar nú nám 1 Hjúkrunarskóla íslands og hefur Tiugsað sér að helga sig þvi 1 vetur. -ELA. Stúlkurnar sem kepptu um títíllnn Miss Intematíonal í Japan á dögunum. HEf Hansen er í miðröð, önnur frá hægrí. „Mun jyrst og fremst efla alla kynningar- starfsemi,” — rœtt við Halldór Inga Andrésson sem nú hefur störf hjá hljómplötudeild Fálkans innanstokks hjá hljómplötuútgef- anda skrifaði um tónlist í dagblað. Ég gat ekki gert það samvizkunnar vegna og þá hefði ég ekki heldur verið hlutlaus í umfjöllun um plötur og tónlistarmenn á vegum Fálkans,” sagði Halldór Ingi. , „Ég mun fyrst og fremst efla alls kyns kynningarstarfsemi, en það er líka sú hlið sem ég þekki bezt, eftir að hafa skrifað um tónlist í dagblöð í sjö ár. Útgáfustarfsemi Fálkans verður svipuð og undanfarin ár. Á hverju ári verða gefnar út svona 10—15 hljóm- plötur með alls kyns efni. Á þessu ári koma t.d. út plötur með Gunnari Þórðarsyni, Bessa Bjarnasyni og sennilega Guðrúnu Á. Símonar. Það er þó ekki búið að ganga frá plötu Guðrúnar, en á henni verður væntan- lega gamalt efni. Þá mun Fálkinn dreifa plötu Kamarorghestanna, Bís- ar í banastuði, þegar hún kemur út. Þetta starf er nokkuð annasamt og á þessum fyrsta degi mínum hér í Fálkanum hef ég svo sannarlega fengið að finna fyrir því. Lítið mál eins og að setja auglýsingu í sjónvarp er alveg furðulega timafrekt, enda- lausar ferðir á milli staða. Annars verður það að ráðast hvað ég eyði miklum tíma i einstaka hluti starfs- ins, það fer alveg eftir því hvað ég nenni að leggja mig mikið fram,” sagði Halldór Ingi Andrésson. -SA. Finnskt leikhúsfólk á íslandi: Skundaöi á Þingvöll og skoöaöi þingstaöinn ,,Ég hefði aldrei sótt um þetta starf, ef mér hefði ekki litizt á það. Fálkinn er með umboð fyrir mörg þekkt erlend útgáfufyrirtæki og má þar t.d. nefna EMI og Phonogram, og möguleikarnir í þessu efni eru miklir,” sagði Halldór Ingi Andrés- son en hann hóf störf hjá Fálkanum í vikubyrjun. Halldór Ingi mun þar sinna þremur störfum. í fyrsta lagi að hafa umsjón með útgáfustarfsemi Fálkans, þá að sjá um kynningar á innlendum og erlendum tónlistar- mönnum og loks að sjá um pantanir og pressun á erlendum plötum. Síðastnefnda starfið mun Halldór Ingi vinna í samstarfi við þá Rafn Jónsson, verzlunarstjóra plötudeild- arinnar að Suðurlandsbraut og Hali- dór Ástvaldsson á plötulagernum. Halldór leysir Björn Valdimars- son, fyrrverandi verzlunarstjóra af hólmi, en Björn hætti hjá Fálkanum í vikunni. Þá hættir einnig hjá Fálkan- um Ásmundur Jónsson, annar um- sjónarmanna útvarpsþáttarins Áfangar, en Ásmundur var verzlun- arstjóri plötubúðar Fálkans á Lauga- vegi. Verzlunarstjóri þar verður Pétur Guðlaugsson. Undanfarin ár hefur Halldór Ingi skrifað um popptónlist í Morgun- blaðið en hann lætur nú af þeim starfa. „Mér fannst það engan veginn viðeigandi að maður sem væri

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.