Dagblaðið - 28.09.1981, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1981.
3
Umferðin:
Strætó ekur of nálægt okkur
— segja þrír ungir
hjólreiðamenn
Þrír ungir hjólreiðamenn komu:
Það er alltaf verið að segja okkur
krökkunum hvernig við eigum að
haga okkur í umferðinni og tala um
stórhættulegar hjólreiðar á gang-
stéttum.
Það er nú margt fleira, sem getur
verið hættulegt, eins og til dæmis
hvað bílar keyra nálægt okkur á göt-
unni. Sumir leika sér að því að gera
það en vildu áreiðanlega ekki láta
koma svona fram við sína krakka.
Strætó hefur t.d. mjög gaman af
að keyra nálægt krökkum á
reiðhjólum, finnst okkur. Þeir
athuga ekki að þegar þeir keyra alveg
utan í mann, þá eru þeir svo lengi að
fara fram hjá, af þvi að þetta eru svo
langir bílar, að ef maður missir jafn-
vægið, þá er svo mikil hætta á að
renna undir bílinn og beint fyrir
afturhjólin.
Þrem ungum hjólreiðamönnum finnst strætó hætta til þess að aka of nálægt þeim. Þeir benda á að undir þeim kringum-
stæðum sé hætt við að verða undir afturhjólum vagnanna.
Fyrirmyndar
hótelrekstur
— ogánægðirgestir
Ein ánægð hringdi frá Húsavik:
Mig langar til þess að koma
þakklæti á framfæri til þeirra, sem
sáu um rekstur Eddu-hótelsins í
Stórutjarnarskóla, Ljósavatnshreppi,
i sumar.
Allur rekstur og aðhlynning voru
til fyrirmyndar. Meðal annars var
hægt að fara i gufubað, badminton
og tennis og maður fékk dýrindis
veitingar fyrir lágt verð.
Þarna er tilvalið fyrir fjölskyldur
að vera um helgar á sumrin, þvi
engum þarf að leiðast.
Raddir
lesenda
ófyrirsjáanlega samspil tilviljana,
sem síðar þróast i meðvitaðan á-
setning Hans Wiedbusch og
hörmulegar afleiðingar hans.”
B.S. þykist fullviss um, hver
meðvitaður ásetningur H.W. hafi
verið, er hann fór að Óðali. Já,
margur heldur mig sig, eins og
máltækið segir. Hvernig í
ósköpunum getur B.S. tjáð sig um á-
setning H.W. umrætt kvöld?
Mér finnst forvitnilegt að heyra,
hvað B.S. hefur að segja um þetta.
Umrædd grein segir meira um þann,
sem skrifar (B.S.) en þann sem
skrifaðerum.
Mér er ljóst að allt fólk, sem hefur
ögn af skynsemi og glóru í kollinum
tekur skrif ykkar Dagblaðsmanna
ekki hátíðlega, en samt finnst mér
stefna ykkar stórvarasöm. Fórnardýr
ykkar eru orðin æði mörg, en þó
ráðist þið á garðinn, þar sem hann er
lægstur, þegar þið svívirðið fólk, sem
ekki getur borið hönd fyrir höfuð sér,
því það er ekki lengur á meðal okkar
sem lifandi teljumst. En þar eru þvi
miður fleiri sekir en Dagblaðið.
Að lokum spyr ég enn, eru engin
takmörk fyrir því, hve langt er hægt
að ganga í auðvirðilegri og sóðalegri
blaðamennsku. Er það ekki hlutverk
ritstjóra að koma í veg fyrir svo á-
byrgðarlaus skrif sem þau, er birtust
á forsíðu Dagblaðsins þ. 21.9. sl.?
Athugasemd DB:
Dagblaðið fór með rétt mál í
fréttum af ofangreindu máli, svo.sem
ábyrgu blaði sæmir. Hlutverk þess er
að segja rétt frá því, sem gerist í
kringum okkur, bæði hinu fagra og
hinu ljóta og öllu þar á milli. Þáttur
þessa hlutverks er að grafast fyrir um
orsakir atburða, svo sem Dagblaðið
gerði í ofangreindu máli. Á þessu
stigi verður ekki annað séð en frá-
sagnir Dagblaðsins fari saman við
niðurstöður rannsóknarmanna. Rétt
skal vera rétt, þótt það geti farið í
taugar sumra þeirra, sem þekkja
málsaðila, svo sem fram kemur í
orðbragði bréfsins hér að framan.
„DERBY“ frystikistur, 5 stærðir, 2 verðflokkar, frystiskápar, 2 stærðir,
„DERBY“ frystitækin hafa vandað yfirbragð, með haganlega lausn á hverju smáatriði eins og:
„Hermetisk" frystiþjappa sem tryggir hámarks frystiafköst.
Ytrabyrði úr stáli, rafzinkhúðuð til ryðvarnar, búið hitarörum gegn daggarmyndun.
Innrabyrði úr hömruðu áli, en kostir þess eru ótvíræðir, ál er mjög góður varmaleiðari með
afar lágan eðlisvarma, þetta flýtir djúpfrystingunni. Jafnframt er ál framúrskarandi auðþrifið.
Lokið lokast óaðfinnanlega þétt, búið jafnvægisgormum sem létta það við opnun, læsingu og
ljósi. Ennfremur er yfirborð þess klætt plasthúð til prýðis og til varnar gegn rispum.
Sérstakt djúpfrystihólf er í „DERBY", þannig má djúpfrysta ný matvæli án þess að kosta til
frekari kælingu á matvælum sem þegar liggja frosin fyrir í kistunni.
Þetta hraðar djúpfrystingunni og sparar rafmagn.
Einangrunin er hið viðurkennda „Pelyuretan" frauðplast.
í „DERBY" frystikistum er botninn auðvitað frystiflötur líka.
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
MEIRIHATTAR
HLJÓMPLÖTUÚTSALAN
Síðasta tækifærið
Sjá bls. 31.
V
Eiga þungavinnuvélar
að vera á ferðinni á
mestu umferðartímum?
Hallgrimur Thorsteinsson fréttamaður:
Nei, auðvitað ekki. Þær ættu að aka
mjög árla morguns eða seint að kveldi.
Hjörtur Magnússon starfsmaður toll-
stjóra: Mér finnst ekkert athugavert
við það.
Manfreð Jóhannesson verzlunar-
maður: Nei, alls ekki. Þær eiga að vera
á ferðinni fyrir kl. 7 á morgnana og á
milli hverfa eiga þær að fara upp úr kl.
19, ellegar i lögrcglufylgd, svo þær
stöðvi ekki alla umferð.
Magnús Vi (Hafsteinsson) listamaður:
Nei, þær eiga ekki að vera á ferðinni
frá kl. 7 á morgnana til kl. 22 á
kvöldin.
Alexander Bridde iðnnemi: Nei, slíkir
flutningar eiga einungis að fara fram á
ákveðnum tímum og undir strangasta
eftirliti.
Laufey BJörnsdóttir fjölbradta-
skólanemi: Nei, alls ekki.