Dagblaðið - 28.09.1981, Page 7

Dagblaðið - 28.09.1981, Page 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1981. 7 Erlendir biskupar aöstoða fslenzka starfsbræður við hina hátiðlegu athöfn. Kirkjan var þétt setin og komust færrí inn en vildu. í Fálkanum blður reiðhjól þess að Dagblaðsáskrifanda takist að svara spurningum vikunnar. Verður nafnið þitt dregið út i vikunni? Nokkrir prestanna 1 kirkjunni. Alls voru 130—140 prestar komnir til að heiðra biskupa sína. Að lokinni prédikun upphófst altarisganga. Bergðu biskuparnir tveir, Sigurbjörn og Pétur, fyrst á kaleiknum, en tóku síðan aðra kirkjugesti til altaris. Þeim til aðstoðar voru dómkirkjuprestarnir, sr. Hjalti Guðmundsson og sr. Þórir Stephensen. Munu altarisgestir hafa verið hátt í tvö hundruð. Með þeim fyrstu var biskupsfrú, Sólveig Asgeirsdóttir, og aðrir í fjöl- skyldu sr. Péturs. Þá gengu til altaris ýmsir veraldlegir valdsmenn eins og dr. Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra og Friðjón Þórðarson dóms- og kirkju- málaráðherra og konur þeirra. Enn- fremur fyrrverandi forseti, Kristján Eldjárn og frú Halldóra. Meðan á altarisgöngunni stóð flutti dómkórinn hina undurfögru kantötu Bachs nr. 158. Halldór Vilhelmsson söng einsöng, en Manúela Wiesler lék á flautu. Og ekki má gleyma að geta þess að organisti og stjórnandi dómkórsins var Marteinn Friðriksson. Athöfninni lauk með þvi að Pétur biskup blessaði söfnuðinn og kórinn flutti lokasálminn, sem endar svo: ,,Syni guðs syngi glaður / sér hver lifandi maður / heiður i hvert eitt sinn.” -IHH. — þá áttu kost á að vinna glæsilegt reiðhjól á einfaldan hátt Enn gefst einhverjum áskrifendum Dagblaðsins kostur á að vinna glæsileg verðlaun fyrir það eitt að svara einföldum spurningum. f þessari viku er það reiðhjól að verðmæti 3.500 krónur sem veitt verður í verðlaun. Leikurinn er fólginn i því að einhvem dag vikunnar birtast spurningar þær sem svara þarf á baksíðu blaðsins. Spurningarnar tengjast báðar smáauglýsingum blaðsins. Því næst er nafn eins áskrifanda dregið út og það birt í blaðinu daginn eftir. Ætlazt er til að sá áskrifandi snúi sér til auglýsingadeildar Dagblaðsins og svari spurningunum. Svari hann rétt er vinningur vikunnar hans eign. Sem fyrr sagði er vinningurinn nú reiðhjól. Það er glæsilegur gripur frá Fálkanum, með tíu gírum. Væntanlegum vinningshafa ætti því að reynast leikur einn að sigrast á bröttustu brekkum geti hann á annað borð hjólað. -KMU. Léttur veggur, með stuðlum — hillum skápum og heilum flötum allt eftir þínum þörfum SVERRIR HALLGRIMSSON Smíðastofa, Trönuhrauni 5, Sími 51745

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.