Dagblaðið - 28.09.1981, Síða 8

Dagblaðið - 28.09.1981, Síða 8
8 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1981. Ýmsar stærðir. Útvegað með , stuttum fyrirvara. Hagkvæmt verð. Til afgr., á lager efni í 165 ferm skemmu (15 X 11 x5,5 mtr.). Fjalar hf.. Ægisgötu 7, símar 17975 — 17976. Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar sem verða til sýnis þriðjudaginn 29. september 1981 kl. 13—16 í porti bak við skrifstofu vora að Borgartúni 7: Peugeot 504 fólksbifreið.......................árg. 1974 V olks wagen ,1200 f ólksbifreið..................— 1976 Volkswagen 1200 fólksbifreið......................— 1975 Volkswagen 1300 fólksbifreið......................— 1973 Chevy Van sendiferðabifreið.......................— 1975 Mercedes Benz 608D sendiferðabifreið..............— 1973 Chevrolet Blazer..................................— 1973 Land Rover disil................................ — 1976 Land Rover dísil..................................— 1974 Land Rover bensín.................................— 1970 Land Rover bensín.................................— 1974 Land Rover bensín.................................— 1973 Ford Transit dísil................................— 1975 Ford Transit dísil................................— 1975 Ford Transit bensín................................1975 FordTransit bensin................................— 1975 FordTransitbensín.................................— 1975 Skoda 120L fólksbifreið...........................— 1978 Ford D300 vörubifreið.............................— 1967 FordEscortstation.................................— 1973 Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 16.30 að viðstöddum bjóðendum. Réttur er áskilinn til að hafna tilboðum, sem ekki teljast viðunandi. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 MNSSKOU Signrðar Hákonarsonar 1 Erlent Erlent D Verkamaimaflokkurinn íBretlandi kaus varaformann ígær: Healey vann afar nauman sigur í gær var kosinn varaformaður Verkamannaflokksins i Bretlandi og stóð styrinn um tvo frambjóðendur, Denis Healey, fulltrúa hægriafla í flokknum, og. -Tony Benn, fulltrúa vinstriaflanna. Var Denis Healey kosinn með naumum meirihluta, en ekki virðist kosning hans leysa deilurnar innan flokksins þar sem Tony Benn fullyrti við stuðningsmenn sína að kosningu lokinni að þetta væri bara byrjunin en ekki endirinn. Tony Benn afsalaði sér aðalstign til að gerast málsvari verkalýðsins. Þriðji frambjóðandinn til varafor- mannsembættisins, John Silkin fyrr- verandi landbúnaðarráðherra, sagði að hinn naumi munur milli Healeys og Benns, sem var tæpt l %, gerðii úrslitin vart marktæk. Healey viðurkenndi að hinn nauma sigur sinn en hvatti flokkinn til að grafa stríðsöxina og vinna að bættu sambandi innan hans. Benn helgaði sex mánaða kosningabaráttu sína jafnróttækum málum og einhliða afvopnun, úrsögn Breta úr Efnahagsbandalaginu, þjóðnýtingu iðnfyrirtækja og banka og aukinni stjórnarforsjá í félags- málum. Hann sagði einnig að Bandaríkin ættu að fá eins árs frest til að loka nifteindastöðvum sínum í Bretlandi. Ef þeir neituðu mundi stjórn verka- mannaflokksins sjá um að lögleiða lokun þeirra. — Ég vildi gjarnan vera sá ráðherra, sem eftir næstu kosningar verður sendur til Washington til að tilkynna Reagan forseta að hann verði að fjarlægja stöðvarnar, sagði hann. Formaður verkamannaflokksins, Michael Foot, sem var á móti framboði Benns í varaformanns- stöðuna án þess þó að styðja Healey opinberlega, vildi ekki tjá sig um úr- slit kosninganna. Því er nú fastlega spáð að sigur- vegarar í næstu kosningum sem fara fram í Bretlandi 1984 verði hið nýja kosningabandalags sósíaldemó- kratíska klofningsins úr Verka- mannaflokknum og Frjálslyndi flokkurinn. David Owen, einn af fjórum leiðtogum verkamannaflokksins sem klufu sig úr honum til að stofna sósial-demókrataflokkinn, sagði að verkamannaflokkurinn væri nú að dauða kominn og það væri hlutverk sósíal-demókrata að halda hefðbundinni stefnu hans áfram. Michael Foot og Tony Benn: Er verkamannaflokkurinn i dauða- teygjunum? NEYÐ í PÓLSKUM SKÓLUM Pólverjar: Við viljum brauð. Er- sex milljónir pólskra barna hófu skólagöngu sína fyrir helgina fengu mörg að kenna á því að mikill skortur er nú á kennslubókum og stílabókum. Sum urðu meira að segja að sætta sig við það að enginn skóli var til fyrir þau. — Það verður enginn leikur að uppfylla fræðslukröfur í ár, skrifar málgagn bænda, Dziennik Ludowy. — Skólakerfið líður ekki síður fyrir vandamál og erfiðleika landsins en aðrir þættir samfélagsins. — í haust fékk ég tvær reiknings- bækur á mann fyrir bekkinn minn, segir Edward Gluszek, stærðfræði- kennari. — Kannski verða þær ekki fleiri í vetur. Samkvæmt opinberum skýrslum eru sex milljónir grunnskólanemenda í Póllandi. Og þau þurfa að berjast við vanda sem hrörlega skóla, skort á kennslubókum og kennurum, ófullnægjandi fæði og lélega upphitun. Yfirvöld hafa nefnilega áætlað að halda innahússhita í 13 gráðum í vetur til að spara orku. Ung móðir upplýsti að hún legði á sig mikla vinnu aðeins til að hafa efni á að greiða fyrir dóttur sína í einkafor- skóla. — Þar fær hún betri mat og kemst kannski á þann hátt hjá því að taka alla þá sjúkdóma sem herja á börnin í almennu skólunum, sagði hún. Áætlað hafði verið að gera við rúmlega helming 13000 skólabygginga í Póllandi í sumar. En i haust komust kennarar og nemendur við u.þ.b. 3000 skóla að því að ólíft var til kennslu í húsnæði þessu, því ekki hafði reynzt unnt að gera við sakir skorts á bygging- arefni og verkamönnum. Glistrup harðánægður með fangelsi Nú á að taka fyrir rétt í Danmörku skattamál Mogens Glistrups, formanns Framfaraflokksins, og á hann yfir höfði sér allt að fjögurra ára fangelsi. Þessi umdeildi stjórnmálamaður er samt ákveðinn í að láta slíkt ekki stöðvasig. — Ég ætla að halda áfram for- mennsku minni í flokknum þrátt fyrir fangelsisvist, segir hann. — Úr því að fangar í dönskum fangelsum fá leyfi til að fara í Tívolí, þá hlýt ég líka að fá leyfi til að sækja pólitíska fundi. BÖRN — UNGLINGAR — FULLORÐNIR Kenndir allir almennir dansar, svo sem: Barnadansar — Samkvæmisdansar - Discodansar - Gömlu dansarnir — Rock — Tjútt — Dömubeat, o.fl. Brons-Silfur og Gullkerfi DSÍ ATH: BARNAKFNNSLA FINNIG Á LAUGARDÖGUM. KENNSLUSTAÐIR: Reykjavík: Félagsheimili Víkinga v/ Hæðargarð. Þróttheimar v/Sæviðarsund. Kópavogur: Félagsheimili Kóp. v/Fannborg 2. Innritun og allar nánari upplýsingar daglega kl. 10.00—19.00 í síma 41557 og 74651 DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS DSÍ SÍÐASTIINNRITUNARDAGUR Hagnaður af Tívolí í Kaupmannahöf n Hið vinsæla Tívolí í Kaupmannahöfn er að vísu lokað yfir veturinn en nú þegar er hafinn undir- búningur undir opnun þess ívor. — Vaxandi efnahagskreppa hefur ekki haft nein áhrif til hins verra fyrir okkur, segir forstjóri þess, Niels Jörgen Kaiser. — Við fengum 130.000 fleiri gesti í sumar en í fyrra, eða alls um 4,5 milljónir. Einnig var yfirleitt alltaf uppselt á sérskemmtanir þaér sem við bjóðum upp á. En það hefur kannski einnig haft nokkur áhrif að veðrið var okkur sérlega hagstætt allt sumarið. Styrkið og fegrið líkamann Dömur og herrar! Ný 4ra vikna námskeið hefjast 7. sept. Leikfimi fyrir konur á öllum aldri. Hinir vinsælu HERRATÍMAR í hádeginu. Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt megrandi æfingum. Sértímar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira. Sértímar fyrir eldri dömur og þær sem eru slæmar í baki eða þjást af vöðva- bólgum. Vigtun — mæling — sturtur — Ijós — gufuböð — kaffi — Innritun og upplýsingar alla virka daga frá kl. 13-22 í síma 83295. Júdódaild Ármanns Ármú/a 32.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.