Dagblaðið - 28.09.1981, Page 9

Dagblaðið - 28.09.1981, Page 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1981. I Erlent Erlent Erlent Erlent i) Launamisrétti Flest landslög kveða svo á urn að jafnrétti skuli ríkja í launamálum karla og kvenna. öll lönd fara á bak við þau og þar er Þýzkaland engin undantekn- ing. Árið 1978 voru nokkrar konur er starfa við ljósmyndavinnustofu í Gels- enkirchen búnar að fá nóg af launamis- mun milli kynjanna og kærðu málið fyrir rétti. Eftir þriggja ára baráttu var loks dæmt í málinu í hæstarétti í Kass- el, konunum í vil. Þetta er álitinn mikill sigur fyrir kon- urnar og ryður brautina fyrir fleiri kær- um. Skýrslur í Þýzkalandi sýna að meðallaun karla við skrifstofuvinnu BARIZT VID PERSAFLÓA í gær kom til átaka á ný milli írans og traks við Persaflóa er íranir gerðu skyndiáhlaup á umsáturslið íraka er hertók olíuhreinsunarborgina Abadan fyrir ári síðan. Tókst írönskum her- mönnum að frelsa borgina úr höndum umsátursmanna. Khomeini hefur sent herliðinu heillaóskaskeyti og lýsir frelsun borgarinnar sem miklum sigri fyrir íslömsku byltinguna. íranska útvarpið segir að íranskir hermenn hafi hertekið brú sem herlið íraks hafi byggt yfir ána Karun og eyðilagt aðra. Ennfremur hafi þeir skotið niður MIG herflugvél og eina þyrlu íraka. Útvarpið í írak vill hins vegar aðeins kannast við þyrlutapið. I REUTER i eru um 4000 krónum hærri á mánuði en kaup kvenna við sömu störf. Verka- menn hafa yfirleitt 7 krónum hærra tímakaup en verkakonur. Konur við fimm önnur fyrirtæki í Þýzkalandi hafa nú fetað í fótspor þessara kvenna og kært launamismun. Hæpið er þó að dómurinn í Kassel eða aðrir dómar fái til fullnustu unnið á launamismun kynjanna því fyrirtæki hafa ótal ráð til að fara á bak við þetta, t.d. með stöðuhækkunum og bónus- kerfum. Myndin sýnir mótmælaaðgerðir kvenha í Kassei. Innbyrðis deilur á þingi Einingar í Póllandi: Leiðtogar ásak- aðir fyrir svik Einn af leiðtogum verkfallanna á öðrum degi þings Einingar, sem annarra austantjaldslanda til stofn- 1981 í Póllandi sem urðu undanfari stofnunar samtaka hinna óháðu verkalýðshreyfingar, Einingar, álítur að alþjóðaráðstefna sé nauðsynleg til að tryggja frelsi Póllands. Frú Ánna Walentynowicz, fulltrúi Einingar í Leninskipasmíðastöðinni í Gdansk, sagði á þingi Einingar í gær- kvöld að hún hefði rætt þessa hugmynd við franská forsætis- ráðherrann Pierre Mauroy í París. Hún sagðist hafa lagt fram þrjár tillögur um aðalviðfangsefni: Að innanríkismál Póllands yrðu látin af- skiptalaus, að matarhjálp við landið yrði undir alþjóðaeftirliti og að komið yrði í veg fyrir að það takist að þvinga Pólland með niðurskurði á mikilvægum hráefnum. Moskvustjórn hefur varað Pólverja við að hugsanslegt sé að skera niður sölu á olíu, baðmull og öðrum nauðsynjavörum. Frú Walentynowicz hélt ræðu sína annars einkenndist af flokkadrætti milli hægfara og harðlínumanna um ný lög varðandi sjálfsstjórn verka- manna í fyrirtækjum. í dag er búizt við að kosið verði um lagatillöguna, en reiðir þing- fulltrúar ásökuðu leiðtoga Einingar fyrir linkind í þessu máli. Lech Walesa, leiðtogi Einingar. svaraði með ræðu þar sem hann varði afstöðu sína en ýmsir ræðumenn ásökuðu hann og aðra leiðtoga fyrir að svíkja hreyfinguna í samningum við kommúnista. Opinber talsmaður Einingar álítur að meirihluti þingfulltrúa muni þó að lokum samþykkja lagatillöguna sem felur í sér að yfirvöld og verkamenn deili ákvörðunarrétti á vinnustöðum, en ýmislegt benti til þess í gær að svo yrðiekki. Bréf sem lesið var upp á þinginu frá rúmenskum verkamönnum þar sem Einingu er þökkuð hvatning til unar óháðra verkalýðssamtaka vakti mikinn fögnuð viðstaddra. i ræðu sinni sagði frú Walentynowicz ennfremur að í heimsókn sinni til Bretlands nýlega hefðu brezkir þingmenn tjáð henni að varaforsætisráðherra Póllands, Rakowski, hefði tilkynnt brezkum þingheimi að stuðningur þeirra við Einingu gæti komið af stað innrás Sovétmanna í Pólland. Walesa: Er nú kominn i varnarstöðu á þinginu. Shirley Temple-Black. Sendiherra í Stokkhólmi Enn er óskipað í embætti bandarisks sendiherra í Stokkhólmi og koma þar tvær konur til greina. Er önnur fyrrver- andi barnastjarnan Shirley Temple og þetta yrði þá annað sendiherraembætti hennar þar sem hún var áður sendiherra Bandaríkjanna í Ghana. Ráðendur í Hvíta húsinu vilja ákveðið að hún fái stöðuna, en utanríkis- ráðuneytið tekur aðra konu fram yfir hana, Susan Ridgewav.Susan er sögð sérfræðingur í málefnum Norðurlanda enda var hún áður sendiherra Banda- ríkjanna í Helsinki. Endanleg ákvörðun um málið er i höndum nefndar einnar í Washington og þykir orðið meira en tímabært að útkljáð verði hvor hreppir hnossið. með aðeins einum eða hæfileiki nauðsynlegur M • Nótnaborð með 29 lyklum. • Val hljóða: píanó, fantasy, violin, flauta, gítar. • ADSR-möguleiki: með þessum möguleika getur þú búið til þín eigin hljóð. • 10 innbyggðir rhytmar: March, Walz, 4-beat, Swing, Rock 1, Rock 2, Bossa nova, Samba, Rumba og Beguine. • Innbyggt lag með rythma: German folk song Hœgt að forrita 100 nótur í minni. Annað: Volume, balance, tempó. Möguleiki að tengja straumbreyti við, einnig hátalara. Tölva með 8 stafa borði, -I--t X\T % og minni H—. H. 30 mm L. 300 mm, B. 75 mm, þyngd 438 g með rafhlöðum Eins árs ábyrgð og viðgerðaiþjónusta. Góður leiðarvísir á íslenzku fylgir. VERÐ AÐEiNS 895.- Opið laugardaga —umboðið — Bankastræti 8 — Sími 27510 — Vantar umboðsmenn um land alltl

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.