Dagblaðið - 28.09.1981, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 28.09.1981, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1981. I 11 Erlent Erlent Erlent Erlent 3 Kojak-leikarinn jrægi á slóöum for- feöra í Grikklandi — Aristóteles Savalas, kallaður Telly Árlega streyma til Grikklands millj- ónir ferðamanna að njóta sólarblíð- unnar, náttúrufegurðarinnar og skoða minjar um forna frægð Grikkjaveldis. Dýpst áhrif hafa þó Grikklandsferðir á afkomendur þeirra hundraða þúsunda sem flúðu fátæktina i landi sinu og leituðu betri lífskjara annars staðar, til dæmis í Ameríku. Einn slíkur er Aristóteles Savalas, kallaður Telly. Þaði var hann sem lék Kojak í samnefndum þáttum. Foreldrar hans fluttu frá Grikklandi til Ameriku fyrir 65 árum, 7 árum áður en hann fæddist. Og nú skoðar hann ættjörð þeirra í fyrsta sinn að heita má. Hann er með hlutverk i „Grikkjanum’ sem verið er að kvik- mynda i hæðunum við Spörtu, skammt frá þorpinu þar sem móðir hans fæddist. í myndinni er Savalas Grikki, sem flutt hefur til Ameríku en dreymir alltaf um að snúa heim aftur. En þegar draumurinn rætist kemst hann að því að hann hefur fegrað æskustöðvarnar fyrir sér — og fæðingarbær hans er honum algjörlega framandi, þvert ofan í það sem hann hafði gert sér vonir um. Duglegir foreldrar Telly Savalas á ekki við þessi vanda- mál að glíma. Hann nýtur Grikklands- dvalarinnar og hefur tekið með sér börn sín tvö og bróður sinn sextugan. Móðir þeirra bræðra hét Kristina og var fræg fyrir fegurð sina. Hún fluttist sem barn til Bandaríkjanna og kynntist manni sínum þar. Árið 1939 hafði hún eignast fimm börn, fjóra syni og eina dóttur, en var enn svo fögur að hún var fengin til að vera fulltrúi grískra kvenna á heimssýningunni það ár. Núna er hún málari í Los Angeles. Faðir þeirra bræðra vann eins og forkur. Fyrst við hvað sem til féll, síðan fékk hann umboð fyrir sígarett- ur, fór svo út í að sjá veitingahúsum fyrir alls konar vörum og á endanum varð hann ríkur. Ekki þóttifínt að vera Grikki „En á einni nóttu varð hann gjald- þrota,” segir TellySavalas. ,.i krepp- unni. Þá setti hann hörn sin fimm upp í bílskrjóð, ók til New York og fór að selja kökur. Þetta kalla ég sannan Grikkja.” Telly Savalas varð að tileinka sér sömu seiglu. Sem unglingur varð hann oft fyrir aðkasti — það þótti ekkert fínt að vera Grikki í hverfinu þar sem þau bjuggu. „En pabbi var vanur að segja við mig: Þegar þú verður fullorðinn og skilur gildi þess að vera Grikki þá þorir fólk ekki að tala við þig án þess að spyrja fyrst um leyfi.” Og þeim krökkunum var bannað að tala ensku heima enda eru þeir Telly og bróðir hans flugmælskir á grísku. Sonurinn skírður upp á grísk-katólsku Það varð uppi fótur og fit í þorpinu þar sem móðir Savalas var fædd er spurðist að leikarinn frægi væri að koma þangað og ætlaði meira að segja að láta skíra son sinn, samvkæmt siðum grísk-katólskrar trúar, í þorpinu. Sonurinn, Nikulás, er orðinn átta ára. Hann varð hálfhræddur þegar þrír skírnarvottar, menn sem hann ekki þekkti, fóru að afklæða hann fyrir athöfnina og ofan í kaupið að smyrja hann með olíu. En það bætti úr skák að hann fékk að vera í sviðsljósinu í þetta skipti. Venjulega sjá ljósmyndararnir ekkert nema hans fræga föður en nú fékk sá litli að vera stjarna. Savalas og fylgdarlið fóru líka í þorpið þar sem faðirinn hafði fæðzt. Þröngar götur, hátt á hæðarbrún, þrjú hundruð íbúar. Þar hafði afi þeirra verið frægur á sinni tíð fyrir að mála helgimyndir af snilld. Grískar helgi- myndir eru oft málaðar á tré og þeir bræður reyndu nú að finna eina slíka eftirafasinn. Maríumyndin sem ekki var til sölu Þessi afi, sem hét Kostas, var ekkert blávatn og hafði náð meira en hundrað áraaldri. En þegar þeir Savalas-bræður loks fundu Maríu-mynd eftir afa sinn vildi eigandinn, gamall bóndi, ekki með nokkru móti selja hana. ,,Ég skyldi selja ykkur jörðina mina. Ég skyldi selja ykkur húsið mitt. Jafnvel konuna mína. En ekki Maríumyndina,” sagði sá gamli. ,,Hún hefur bjargað lífi mínu. Einu sinni voru læknarnir búnir að segja að ég væri að dauða kominn. En þá birtist Maríumyndin mér í draumi og sagði mér að örvænta ekki, ég ætti lengra líf fyrir höndum. Þá fór mér aðbatna.” Og þar við sat. (Lauslega þýtt úr People) Savahs horfír yfír þorpM þar sem foðir hans og afí fæddust „Þótt Grikki fari á heimsenda, snýr hann alftaf heim aftursegir einn af öldungum þorpsins. Savaias við hatrO sem Homer kvað svo taguriega um. Oddysserfur og menn hans „lustu érum í hinn dimmbiéa sæ"eða hverníg varþettanúaftur? Vs/^L föt *virka líflaus og* '\éU V litlaus án viðeigandi xj- ‘TÍZKUSKARTGRIPA.. .< ... þáfáiðþiðíYRSA SKÓLAyÖRÐUSTÍG 13 Eyrnalokkar í úrvali (líka smelltir), breið armbönd, hálsfestar af ö/lum gerðum, ennisbönd, gyllt belti ogsvona mætti endalaust telja upp. ! í)OL afsláttur gegn lU/O framvísun skólaskírteina yrsa /4 SKÓLA VÖRÐUSTÍG 13 \T ' • ^ SÍMI25944 ^ jjf ^fjjtízkan byrjar er á réttu línunni Komið og hlustið á heimsins minnstu hljómtæki, sem hljóma ekki síöur en þau stærstu. Það þarf ekki aö fjarlægja margar bækur til þess aö AIWA hljómtækjasamstæöan komist vel fyrir. Allt til hljómflutnings fyrir: HEIMILIÐ - BÍLINN OG DISKOTEKIÐ D I • I fXdQIO ssr\ ir 'ARMULA 38 iSelmula megini ' 105REYKJAVÍK 5UMAR: 31133 83177 POSTHOLF 1366

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.