Dagblaðið - 28.09.1981, Side 12

Dagblaðið - 28.09.1981, Side 12
r DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1981. 12 Útgefandi: Dagblaöiö hf. Framkvœmdastjórí: Sveinn R. Eyjólfsson. Ritstjórí: Jónas Krístjánsson. Aðstoðarritstjórí: Haukur Holgason. Fróttastjórí: ómar Valdimarsson. Skrífstofustjórí rítstjómar Jóhannos Reykdal. íþróttir: Hallur Simonarson. Menning: Aöalsteinn Ingólfsson. Aöstoðarfróttastjórí: Jónas Haraldsson. Handrit: Ásgrímur Pálsson. Hönnun: Hilmar Karisson. Blaöamenn: Anna Bjamason, Atli Rúnar Holldórsson, Atli Steinarsson, Ásgoir Tómasson, Bragi Sigurösson, Dóra Stefánsdóttir, Elín Albertsdóttir, Gunnlaugur A. Jónsson, Inga Huld Hókonardóttir, Krístján Már Unnarsson, Siguröur Sverrisson. Ljósmyndin BjamksHur Bjamleifsson, Einar Ólason, Ragnar Th. Sigurösson, Siguröur Porri Sigurösson og Sveinn Þormóðsson. Skrífstofustjórí: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkerí: Þráinn Þoríerfsson. Auglýsingastjórí: Már E.M. Halldórs- son. Dreifingarstjóri: Valgeröur H. Sveinsdóttir. Ritstjóm: Síöumúla 12. AfgrelÖsla, óskriftadeild, auglýsingar og skrifstofur. Þverholti 11. Aöalshni blaösins or 27022 (10 Hnur). Setning og umbrot Dagblaðiö hf., SkSumúla 12. Mynda- og plötugerð: Hilmir hf., Síöumúla 12. Prentun: Árvakur hf., Skeifunni 10. Áskriftarverö á mánuöi kr. 85,00. Verö i lausasölu kr. 6,00. Ólafur stakk á kýlum Ræða Ólafs Jóhannessonar utan- ríkisráðherra á allsherjarþingi Samein- uðu þjóðanna í síðustu viku var meðal hinna beztu, sem þar hefur verið flutt fyrir íslands hönd. Samkvæmt mannasiðum í heimi sendiherra gat Ólafur ekki nafngreint þann aðila, sem með linnulausri heimsvaldastefnu veldur mestum vandræðum í alþjóðlegum samskiptum. Þar þykir of dónalegt að réttnefna Kremlverja sem glæpamenn. Helzti galli ræðunnar var, að í henni voru ekki gagnrýnd afskipti Sovétríkjanna af pólskum innan- ríkismálum, sem koma fram í sífelldum kvörtunum og illa dulbúnum hótunum. Gagnrýni á þessi afskipti átti vel heima í ræðunni. En fyrsta mál Ólafs var innrás Sovétríkjanna í Afghanistan, sem nú hefur staðið heil tvö ár. Á þessum tíma hefur allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna tvisvar fordæmt þetta brot Kremlverja á fullveldisákvæðum stofnskrár samtakanna. Um þetta sagði Ólafur m.a.: ,, . . . tel ég fulla á- stæðu til að ítreka yfirlýsingu mína með enn meiri þunga en áður. Fullveldi og stjórnmálasjálfstæði allra ríkja verður að virða, ef takast á að draga úr þeirri hættulegu spennu. . . ” Ólafur nefndi ekki heldur Kreml eða Sovétríkin, þegar hann vék að síbrotum á mannréttindaákvæðum Helsinki-samkomulagsins, sem felast í verulegri minnkun mannréttinda í Sovétríkjunum síðan Brésnjéf undirritaði samkomulagið. Um þetta sagði Ólafur m.a.: ,,Því miður hefur reyndin orðið sú, að sum þeirra ríkja, sem taka þátt í þessu samstarfi, hafa sýnt fremur lítinn vilja til að framfylgja vissum veigamiklum þáttum lokasamþykkt- arinnar.” Síðan Reagan kom Bandaríkjunum í hóp tveggja risavelda, sem stefna að hemaðarlegum yfirburðum hvort g gn öðru, má segja, að ekki sé ástæða til að geta Sovétríkjanna sérstaklega á því sviði, þótt hernaðar- stefna þeirra hafi lengi verið samfelld. Um þetta sagði Ólafur m.a.: „Vopnakapphlaupið er að því leyti ólíkt öðrum kapphlaupum, að því hraðar, sem menn hlaupa, því meiri líkur eru á að allir tapi. Þess vegna má trygging öryggis ekki snúast um að ná hernaðarlegum yfirburðum.” Eftir umfjöllunina um Afghanistan, Helsinki-svikin og vígbúnaðarkapphlaupið vék Ólafur stuttlega að nokkrum öðrum málum, rétti ísraelsmanna og Palestínumanna, kynþátta- og ofbeldisstefnu Suður- Afríku og innrás Vietnam í Kampútseu. Síðan fjallaði Ólafur um vandamál þriðja heimsins og skyldur hinna ríku þjóða, þar á meðal íslands, sem verða að auka framlög sín til þróunarverkefna, ekki sízt á hinum aðkallandi sviðum orkuöflunar og orkunýtingar. Þá benti Ólafur á þá staðreynd, að í stórum og vaxandi hlutum heimsins eru brotin grundvallaratriði mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna og það af hálfu ríkisstjórna, sem taka þátt í samtökunum eins og ekkert sé. Ólafur gat þó ekki hinnar hörmulegu staðreyndar, að mannréttindi í þriðja heiminum hafa stórlega rýrnað, síðan nýlenduveldin gömlu hurfu af vettvangi. Álþýða manna er mun meira kúguð af innlendri valda- stétt en áður af hinni erlendu. Um þetta sagði Ólafur þó: ,,. . . brot gegn þessari grundvallarreglu gerast æ tíðari í stó'rum hlutum heims. Ofbeldi og hervaldi er grímulaust beitt að geð- þótta stjórnvalda, hvort sem er til að kúga ein- staklinga, minnihlutahópa eða heilar þjóðir. . . ” N0KKUR ATRIÐIUM SKÍDAÍÞRÓTTINA SEM ÞARFNAST ÚRBÓTA Skíðaíþróttin hefur átt ört vaxandi vinsældum að fagna á und- anförnum árum og er nú sannkölluð almennings- og fjölskylduíþrótt. Aukinn skilningur fólks á gildi úti- vistar samfara bættri aðstöðu í skíðalöndunum veldur þar mestu um. Fegurð fjallanna og umhverfísins umvefur unga sem aldna og allir njóta náttúrunnar að eigin geðþótta. Enda þótt hvassir og kaldir vindar séu tíðir í þessu landi að vetrarlagi, þá erum við sannarlega rík að eiga okkar ágætu skíðalönd í nágrenni byggða. Hin öra framþróun skíðaiðkunar hér á landi kallar á skipulagðar aðgerðir af hendi skiðafélaga, bæjarfélaga o. fl. aðila. Við verðum að tileinka okkur reynslu annarra þjóða eftir því sem við á í þessum efnum og taka jafnframt til umfjöllunar okkar sérstæðu aðstæður. í þessu sambandi vii ég nefna nokkur atriði, þar sem úrbóta er þörf hið allra fyrsta. Kjallarinn Kristján Pétursson Settar verði einfaldar og skýrar reglur um hvernig skíðaiðkendum • „Allir skíðaiðkendur ættu að hafa það hugfast, að skíði án bremsuútbúnaðar eru stórhættuleg. Hversu oft höfum við ekki séð fólk missa af sér skíði og þau síðan runnið með ofsahraða niður brekkurnar. Afleiðing- arnar eru augljósar.” beri að víkja hver fyrir öðrum í brekkunum. Sú meginregla að virða rétt þess aðila, sem á undan fer niður skíða- brekku ætti öllum að vera augljós, þar sem hann snýr baki eða hlið að þeim sem á eftir kemur. Þá þurfa skíðaiðkendur ávalit að hafa það hugfast að geta og reynsla fólks er á mjög mismunandi stigi, þar sem hundruð eða jafnvel þúsundir manna eru á skíðum samtímis á þröngum svæðum. Hin óvæntustu atvik geta á- vallt skeð undir slíkum kringum- stæðum og því þarf skíðafólk að vera tillitssamt og læra rétt viðbrögð bæði í þeim tilvikum, sem samstuð verða eða þegar það dettur með öðrum hætti. Fræða þarf unglingana Góðar öryggisbindingar skíða geta oft komið í veg fyrir alvarleg slys og því er áríðandi að kunnáttumenn stilli bindingar eftir viðurkenndum reglum. Ennfremur ættu allir skíða- iðkendur að hafa það hugfast, að skiði án bremsubúnaðar eru stór- hættuleg. Hversu oft höfum við ekki séð fólk missa af sér skíði og þau síð- an runnið með ofsahraða niður brekkurnar. Afleiðingarnar eru augljósar. Meirihluti skíðaiðkenda er ungt fólk á skólaaldri og meðal þeirra eru margir byrjendur. Nauðsynlegt er að ráðamenn skíðasvæðanna geri sér fullkomlega ljóst hvaða ábyrgð þeir bera gagnvart þessu fólki, sem oft er ekki í umsjá foreldra né kennara og kemur með hópferðabílum. Á öllum skiðasvæðunum þurfa að vera til staðar ábyrgir aðilar, sem leiðbeina og kenna þessumungmennum.það er ekki nóg að koma þeim i lyfturnar og móttaka peninga. Sérstaklega er þessu ábótavant á Bláfjallasvæðinu, þangað er oft ekið hundruðum skóla- barna. Þar þyrfti sem annars staðar að vera til staðar skíðaskóli, þar sem skólabörn gætu fengið kennslu fyrir sanngjarnt verð, leiðbeiningar um öryggisbúnað skíða og reglur er gilda um umferð í brekkunum. Foreldrar yrðu að sjálfsögðu miklu öruggari um börn sin í umsjá slíkra kunnáttumanna, jafnframt lærðu þau í upphafi sinnar skíðaiðkunar réttar undirstöðuaðferðir. Meira fé til uppbyggingar í Bláfjöllum Það er fögur sjón og umhugsunar- verð að sjá hundruð ungmenna í faðmi fjallanna umvafm drifhvítum snjónum, hávaðasöm, kát og hress. Þarna getur líka öll fjölskyldan verið þátttakandi sér til heilsubótar og ánægju, auk þess að sameiginleg áhugamál gera heimiiislífið fjölbreyttara og skapar það meiri samheldni. Eins og kunnugt er eiga aöild að Bláfjallasvæðinu Stór-Reykjavíkur- svæðið og byggðarlögin á Suðurnesjum. Fjárframlög til uppbyggingar svæðisins hafa verið mjög lág, að Reykjavík undan- skilinni, mörg byggðarlög greiða alls ekki neitt, enda þótt hundruð manna fari þaðan á skíði. For- ráðamenn þeirra byggðarlaga, sem ekkert hafa greitt hingað til ættu að sjá sóma sinn og metnað í að vera með í uppbyggingunni, það er sannarlega góð fjárfesting fyrir æsku þessara bæjarfélaga. Kristján Pétursson.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.