Dagblaðið - 28.09.1981, Page 14

Dagblaðið - 28.09.1981, Page 14
14 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1981. Hefur heimilis- fang Walesa týnzthjáASÍ? Það hefur vakið nokkra athygli manna, að engar fregnir skuli hafa borizt frá verkalýðssinnunum i ASÍ og Verkamannasambandi Islands um samstöðu viö pólsku verkalýðs- samtökin Einingu, í tilefni af fvrsta landsþingi þeirra ádögunum. Oftlega áður hefur ekki staðið á verkalýðs- rekendum islenzkum að senda stuðnings- og baráttuskeyti um víða veröld af minna tilefni, þykir sum- um, og spyrja sem svo: ef ekki var tilefni til að lýsa yfir stuðningi við Einingu í tilefni af landsþinginu, hvenær gefst þá tilefni? Nýttdiskó um nœstu helgi Nýja diskótekið í Kópavogi, Manhattan, mun hafa átt að opna með pompi og prakt um næst- síðustu helgi, svo gat ekki orðið vegna smáseinkana svo opna átti staðinn um nýafstaðna helgi. Ennþá urðu smáseinkanir en talið er fullvíst að staðurinn opni eigi síðar en á fimmtudagskvöldið næsta. Enda allt þegar þrennt er. Nöfn skuldaranna áskerminum Auglýsing sjónvarpsins með dillibossunum hefur nú verið bönnuð. Hvað ætla innheimtumenn þá að taka til bragðs? Jú, þeir gætu auðvitað gert það sama og stærsta vídeo-sjónvarp landsins gerir — eða það sem sendir út til fólks í öllum Fellahverfum Breiðholts. í stað þess að loka fyrir útsendingar hafa þeir nú tekið til þess ráðs að birta nöfn skuld- aranna á skerminum svo og heimilis- föng. Þannig geta allir vitað hverjir skulda ennþá 50 krónurnar, sem eru mánaðarleigan. Sagt er að þetta þetta beri nokkuð góðan árangur og kannski ríkisútvarp-sjónvarp ætti að taka þetta til skoðunar. Eða hverjir vilja að allir viti að þeir borgi ekki skuldir sinar. Sjónvarpið 15 ára á miðvikudag Sjónvarpið okkar blessað á 15 ára afmæli þann 30. september. Af því tilefni verður sjónvarpsstarfs- mönnum boðið á ball og við sem heima sitjum fáum að sjá Jón Helga- son lesa kvæði og endursýnda mynd frá Hornströndum. Innlendur skemmtiþáttur verður ekki þarna á dagskrá, né neitt, sem kallazt getur afmælisþáttur. Samninga viðrœð- ur milli Kviks og sjónvarpsins Kvikmyndin Sesselja sem kvik- myndafélagið KVIK hefur gert eftir sögu Agnars Þórðarsonar, Kona, mun nú fyrir nokkru vera tilbúin til sýningar. Miklar vonir eru bundnar við sjónvarpið og standa nú yfir samningar þar á milli. En hnífurinn stendur alltaf á sama stað í kúnni — Það er peningaspursmálið. Málin munu væntanlega fara að skýrast og þá hvort við fáum að sjá Sesselju í sjónvarpinu eða einhvers staðar annars staðar. Ágúst Þórólfsson, Jón S. Sverrisson, Brynjar Bjarnason, Guðmundur Þ. Björnsson, Teódór Bárðarson og Kristinn H. Gunnarsson. Nöfn fjögurra gátum við því miður ekki grafið upp. -ELA. FÓLK Nýsveinar í bifvélavirkjun koma saman Bifvélavirkjar — nýsveinar — komu saman að Suðurlandsbraut 30, þar sem eru húsakynni Félags bifvéla- virkja.fyrir skömmu og tóku á móti viðurkenningum fyrir beztan árangur. Bjarnleifur Ijósmyndari var mættur á staðinn til að mynda nýsveinana átján. í raun voru nýsveinarnir yfir þrjá- tiu, að sögn Snorra Konráðssonar varaformanns félagsins, en fleiri gátu ekki mætt. Þá sagði Snorri að yfir 400 manns væru í félaginu og væri ljóst að ef þrjátíu nýsveinar kæmu úr skólanum tvisvar á ári yrði félagið fljótt að stækka. Ekki sagðist hann þurfa að kvíða, þvi yfirleitt færi stór hluti nýsveinanna í önnur störf. Til dæmis i varahlutaverzlanir, þar sem þeir fá hærri laun, að sögn Snorra. Flestir þessara nýsveina hafa lært allt 1 skólanum, aðeins nokkrir hjá meisturum. Á myndinni má sjá sitjandi annan frá vinstri formann prófnefndar, Eyjólf Tómasson, og nöfn ný- sveinanna Ragnar Grönvold, Gaukur Eyjólfsson, Ólafur Þór Sig- mundsson, Baldur Bjarki Guðbjarts- son, Erlingur Erlingsson, Guðmundur B. Guðmundsson, Karl Ólafsson, Sturla Rögnvaldsson, Vignir Guðnason starfsmaður Iþró ttamiðstöð warinnar afhendir Léru gjafabrófið sem gildir i eitt ér. DB-mynd Jónas Sig. Vestm. Mér alveg dauðbrá — segir Lára Lárusdóttir milljónasti gestur íþróttamiðstöðvarinnar í Eyjum „Mér alveg dauðbrá, lak alveg niður,” svaraði Lára K. Lárusdóttir, 16 ára, er hún var spurð hvernig henni hafi orðið við að vera milljónasti gestur íþrótta- miðstöðvarinnar í Vestmannaeyjum. „Það var engin vinna þennan dag, þriðjudag, og ég og vinkona mín ákváðum að fara í sund. Ég setti peninginn á borðið og sá að einhverjir menn stóðu þarna. Síðan tóku þeir í mig og sögðu mér þetta,” sagði Lára. Lára starfar í Vinnslustöð Vestmannaeyja sem eftirlitsmaður. „Leita að ormum i fiskinum,” sagði hún. ,,Ég hafði heyrt um að verðlauna ætti milljónasta gestinn en ég vissi ekki að komið væri að honum strax. Nei, ég fór sko ekki í sund þennan dag út af verðlaunum,” sagði Lára. Hún fékk i verðlaun gjafa- bréf, sem gildir í sund og aðrar æfingar í eitt ár. ,,Já, ég fer mikið i sund en hef ekki stundað íþróttir svo mikið. Ætli ég fari ekki að gera það núna,” sagði Lára og var alsæl með vinninginn sinn. -ELA. Böðvar Guðmundsson hefur sungið á skemmtunum herstöðvaand- stæðinga og gefur nú út sína aðre hljómpkjtu. Ljósm. Einar Karisson. AEtU viðgetum ekkikallað SíS* hana þjóðlega baráttusöngva —Þar fyrir utan skrifar hann leikrit jyrir Nemendaleikhúsið „Þetta eru lög og ljóð sem ég hef unnið undanfarið eitt og hálft til tvö ár,” sagði Böðvar Guðmundsson rit- höfundur í samtali við Fólk-síðuna. Á næstunni kemur út þrettán laga hljómplata þar sem Böðvar syngur eigin lög og ljóð. Mál og menning gefur plötuna út, Stúdíó Stemma ' hljóðritaði og Alfa sá um pressun. „Efniviðurinn er um landið, þjóðina, fólk, örlög þess og kjör,” sagði Böðvar. Hann var þá spurður hvort túlka mætti plötuna þjóðlega eða hvort hér væru baráttusöngvar á ferðinni. „Ætli við getum ekki kallað hana þjóðlega baráttusöngva,” sagði Böðvar þá. „Sumt af þessu hefur heyrzt einhverntíma áður,” segir Böðvar ennfremur. Þetta er önnur plata hans, sú fyrri kom út árið 1974 og nefndist Þjóðhátíðarlög. Böðvar Guðmundsson hefur sungið mikið á skemmtunum herstöðvarand-. stæðinga. Hann hefur starfað sem kennari en tók sér hvíld frá kennslunni í vetur. — Hvað kom þér til að gefa út plötu? „Þetta efni hefur safnazt fyrir hjá mér og strax í fyrra fór ég að skipuleggja efnið til að gefa út. Þegar útgáfustjóri hjá Máli og menningu spurði mig hvort ég ætti eitthvert safn á hljómplötu, spurði ég hann hvort hann vildi gefa hana út. Þannig held ég að þetta hafi komið upp. Ég hafði ekkert leitað fyrir mér að út- gáfu sem taka vildi þetta að sér,” sagði Böðvar. — Hverjir leika undir? „Það er mjög stór og breytilegur hópur eftir lögunum,” svaraði Böðvar, „en útsetjari var Einar Einarsson tónlistarmaður. Upptökur á plötunni byrjuðu í júní og stóðu fram i ágúst. Mér finnst hafa verið vönduð vinna bæði hjá Stúdíóinu og hjá Einari og ég held að ég sé sæmilega ánægður með plötuna. Ef eitthvað hefur farið miður þá er það mér að kenna.” Þessa dagana situr Böðvar og semur leikrit fyrir Nemendaleikhúsið og á hann að skila því fyrir már.aða- mót janúar-febrúar. Böðvar sagðist ekki geta sagt frá leikritinu ennþá, þar sem það væri skammt á veg komið. „Mér finnst skemmtilegt að vinna þetta, ég hef hitt krakkana, sem koma til að leika í leikrítinu og það er allt saman tápmikið og fjörugt fólk,” sagði Böðvar. Þá er hann auk þess að skrifa þætti fyrir útvarpið um merkilega íslendinga svo hann situr ekki auðum höndum þessa dagana. -ELA. Nýsveinarnir sem gátu mætt ésamt formanni prófnefndar, Eyjóffi Tómassyni. DB-mynd BjamleHur.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.