Dagblaðið - 28.09.1981, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1981.
15
ð
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
„Lízt vel á Diisseldorf’
— segir Pétur Ormslev. Bild segir að félagið muni semja við Pétur og nef nir
upphæðina 100 þúsund mörk. Atli Eðvaldsson lék með Diisseldorf á laugardag
l
„Mér lizt virkilega vei á þetta hjá
Fortuna Diisseldorf. Þetta eru ungir,
hressir strákar hjá liðinu, engar stór-
stjörnur, og þær þrjár æfingar, sem ég
hef tekið þátt i hafa verið mjög góðar.
Hvert framhaldið verður veit ég ekki.
Ég fer til Lundúna á þriðjudag og hitti
þar strákana úr Fram-Iiðinu. Siðan
höldum við til írlands f ieikinn við
Dundalk. Þjálfari Fortuna Jörg Berg-
er, mun horfa á þann leik. Hvort ég
kem heim eftir leikinn við Dundalk eða
held aftur til Diisseldorf kemur i ljós
eftir leikinn við írana,” sagði Pétur
Ormslev, landsliðsmaðurinn i Fram,
þegar DB ræddi við hann á heimili
Atla Eðvaldssonar í Dortmund i gær.
í Bild var sagt frá þvi fyrir helgi —
að sögn Viggós Sigurðssonar — að Atli
hefði tekið Pétur Ormslev með sér til
Díisseldorf eftir HM-leikinn við Tékka.
Bild skýrir frá því að Pétur hafi skorað
mark Islands í þeim leik og sé mjög
Atll Eðvaldsson — sigur á Bochum i
fyrsta leiknum með Fortuna
Dusseldorf.
Anderlecht í
efsta sætinu
Anderlecht skauzt upp f efsta sætið
með stórum sigri á Winterslag i 1.
deildinni belgisku á laugardag. Pétur
Pétursson lék ekld með Anderlecht, —
var hins vegar með varaliðinu. Lokeren
tapaði og er nú i sjöunda sæti. Arnór
Guðjohnsen leikur með Lokeren.
Úrslit í 1. deildinni um helgina urðu
þessi:
Standard-Tongeren 2—2
Anderlecht-Winterslag 4—0
Ghent-Molenbeek 2—1
Beveren-FC Liege 0—4
Waregem-FC Brugge 1—2
Mechelen-Beringen 1—2
Antwerpen-Lierse 4—1
CS Brugge-Courtrai 1 —2
Waterschei-Lokeren 1—0
Staðan er nú þannig:
Anderlecht
Standard
FC Liege
Ghent
Courtrai
Antwerpen
Lokeren
Lierse
Tongeren
Beveren
FC Brugge
Molenbeek
Waregem
Waterschei
CS Brugge
Winterslag
Beringen
Mechelen
2 1 14—5
3 3 0 12—5
4 0 2 13—7
4 0 1 9—5
6
6
6
5
6
6
6
6
6
5
6
5
6
6
6
6
3
6 0 2
2
1
1
1
2
1
1
1
2
2
1
1 1
1 0
6— 5
7— 4
6— 5
9— 9
10— 10
5—5
10—9
5— 7
6— 6
7— 13
10—14
5— 15
2—5
6— 11
-hsim.
Chicago Stings
Cosmos
ítalanum kunna, Giorgio Chinaglia,
sem leikur með New York Cosmos,
brást heldur betur bogalistin í úrslita-.
leik amerísku deildakeppninnar
(NASL). Cosmos lék til úrslita gegn
Chicago Stings á laugardag og að
loknum leiktima var staðan jöfn, 0—0.
Þá var gripið til vítaspyrnukeppni í
fyrsta sinn i úrslitaleik NASL.
Chinaglia skaut framhjá og það
kostaði Cosmos sigur. Rudy Glenn
tryggði Chicago Stings meistaratitilinn
í fyrsta sinn en litlu munaði þó að
Hubert Birkenmeier, markverði
Cosmos, tækist að verja skot hans.
Leikið varíToronto. -VS.
hættulegur sóknarleikmaður. Fortuna
Diisseldorf muni að öllum líkindum
semja við Pétur og svo framarlega sem
hann falli inn í liðið ætti ekkert að vera
því til fyrirstöðu. Bild nefnir
upphæðina 100 þúsund vestur-þýzk
mörk sem hugsanlega samnings-
upphæð.
„Það hefur ekkert verið minnzt á
neina peninga svo ég veit ekki hvaðan
Bild hefur þessa upphæð,” sagði Atli
Eðvaldsson, þegar DB bar undir hann
Bild-fréttina. „Ég veit að þeir hjá
Fortuna eru miög hrifnir af Pétri og
það verður spennandi að sjá hvað
kemur út úr þessu.
Ég lék minn fyrsta leik með Fortuna
Dlisseldorf á laugardag og við
sigruðum Bochum. Ég lék allan leikinn
og er ánægður. Þetta á allt eftir að
ganga betur hjá mér eftir þessi skipti
yfir til Fortuna frá Borussia
Dortmund. Við Pétur komum til
Dtisseldorf á fimmtudag og fórum á
æfingu hjá Fortuna. Aftur á föstudag,
svo ég var farinn að þekkja strákana í
liðinu áður en að leiknum við Bochum
kom. Þá var aftur æfing í gærmorgun,
sunnudagsmorgun. Mér lízt vel á þjálf-
arann Berger,” sagði Atli Eðvaldsson
en nánar er greint frá leik Atla í sigur-
leiknum við Bochum í grein Viggós
Sigurðssonar um þýzka boltann.
Þess má geta að þessi Jörn Berger er
austur-þýzkur. Var landsliðsþjálfari en
flúði í ferð austur-þýzka B-
landsliðsins í Júgóslavíu 1979. Síðan'
lá leið hans til Vestur-Þýzkalands.
Hann var þjálfari hjá Darmstadt
1979—1980 og fór þaðan til Ulm. f júlí
í sumar var Berger ráðinn þjálfari hjá
Fortuna Dtlsseldorf. -hslm/VS.
Pétur Ormslev — lizt vel á Dusseldorf.
nSVEGNAER
SKYLDU
AVOXTUN SPARIF1ARIDAG?
Vegna þess aö húsnæöislöggjöfinni hefur veriö breytt,
þannig, að nú gilda eftirtalin kjör í aðalatriðum
um ávöxtun skyldusparnaöarfjár:
1. Það er full verðtryggt með
, lánskjaravísitölu.
2. Vísitölutryggingin er
reiknuð út mánaðarlega
á inneign hvers og eins.
3. Fjárhæð sú, sem
vísitöl utrygg i ng i n
myndar í hverjum
mánuði fyrir sig, er lögð
við innistæðuna í byrjun
næsta mánaðaráeftir.
4. Skyldusparnaðarféð er
skattfrjálst meðöllu.
5. Vextir nema 2,0% á ári.
Samkvæmt þessum kjörum verður ávöxtun ákveðinnar inneignar
í skyldusparnaði sem hér segir(svo að dæmi sé tekið):
Kr.3.950,00 eru lagðar inn á skyldusparnaðarreikning í
Byggingarsjóði ríkisins íjúlí 1980.
Ári síðar, í júlí 1981, hefur þessi fjárhæð hækkað í kr. 5.952,00.
Fjárhæðin hefur því hækkað um 50.94% á 12 mánaða tímabili.
Auk þess er hún skattfrjáls með öllu.
Af þessu má sjá, að ein hagstæðasta ávöxtun sparifjár, sem ungt fölk á kost á nú,
er í skyldusparnaði Byggingarsjóðs ríkisins.
Þess vegna skal ungt fólk, sem tekur þátt í skyldusparnaði, hvatttil að:
•taka inneign sína í skyldusparnaðf ekki út, þótt fyrir hendi sá réttur tii þess,
nema brýn nauðsyn krefji.
•fylgjast rækiiega með því, að atvinnurekendur greiði tilskilinn hluta launanna
inn á skyltíusparnaðarreikning hvers sparanda fyrir sig.
MUNIÐ: Skyldusparnaöur nú getur gert íbúðarkaup möguleg síðar.
^Húsnæðisstofnun ríkisins